Morgunblaðið - 27.03.2008, Side 14

Morgunblaðið - 27.03.2008, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT UM miðjan dag í gær var enn leitað fimm manna eftir að neðsta hæðin í sex hæða blokk í Álasundi í Noregi lagðist saman. Var ástæðan sú, að klöppin undir húsinu, sem stóð í hlíð, rann af stað, líklega vegna frost- þenslu. Slösuðust tveir en þó ekki al- varlega. Atburðurinn átti sér stað rétt fyrir klukkan fjögur í fyrrinótt að stað- artíma og eins og fyrr segir lagðist neðsta hæðin saman og húsið færðist nokkra metra út í götuna. Við húsið var niðurgrafinn própangasgeymir með 4.000 lítrum og af ótta við, að hann spryngi var öllum íbúum húsa í allt að 500 m fjarlægð skipað að fara burt. Var eldur laus í húsinu og gekk illa að ráða niðurlögum hans. Haraldur Freyr Guðmundsson, knattspyrnumaður úr Keflavík, sem leikur nú með Álasundi, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að fréttin um slysið væri aðalefnið í öllum fjölmiðl- um og ekki síst vangaveltur um þá fimm, sem enn væru ekki komnir í leitirnar. Þeir áttu hins vegar heima á ýmsum hæðum hússins og því ekki ólíklegt og vonandi að þeir hafi verið að heiman. Sagði Haraldur, að vetur væru yfirleitt mildir og snjóléttir í Álasundi en þessi vetur hefði þó ver- ið undantekning þar á, nokkuð snjó- þungur og frostasamur. Hefði það trúlega átt sinn þátt í, að hlíðin undir húsinu fór af stað. Fólk í næstu húsum kveðst hafa vaknað upp við mikinn hávaða og hræringar, sem sumir töldu í fyrstu vera jarðskjálfta. Þustu flestir út til að kanna hvað um væri að vera og þá kom í ljós, að neðsta hæð fyrrnefnds húss hafði lagst saman, önnur hæðin laskast mikið og húsið sjálft færst fram um eina sjö, átta metra. Fyrir ofan húsið var mikil steinblokk, sem hafði losnað úr berginu. Norsku fjölmiðlarnir, meðal ann- ars Aftenposten, sögðu í gær, að jarðfræðingurinn Geir Bertelsen hefði áður varað íbúa hússins við og lagt til, að þeir létu sprengja ofan af berginu upp af því. Ástæðan væri sú, að það væri mjög sprungið og því mikil hætta á, að það spryngi enn meira í frostum. Fimm saknað eftir húshrun í Álasundi Reuters Á vettvangi Björgunarmenn við húsið. Neðsta hæð þess lagðist saman er bergið fyrir ofan það fór af stað. Við því hafði raunar verið varað. Stóð í hlíð sem fór af stað, líklega vegna frostþenslu JOHN McCain hefur þegar tryggt sér út- nefningu banda- rískra repúblik- ana fyrir forsetakosning- arnar í nóvem- ber og hefur hann ítrekað þá skoðun sína að ekki beri að draga heraflann strax burt frá Írak. „Það væru ólýsanleg svik, blett- ur á karakter okkar sem mikillar þjóðar, ef við við skildum írösku þjóðina eftir á köldum klaka,“ sagði hann í Los Angeles í gær. Hann virtist hins vegar gefa í skyn að hann myndi fylgja annarri stefnu en George W. Bush er hann lagði áherslu á samráð við gamlar vinaþjóðir. „Þótt við séum öflug merkir það ekki að við getum gert hvað sem er, hvenær sem við vilj- um.“ Hyggst ekki hvika í Írak John McCain TVEGGJA daga heimsókn forseta Frakklands, Nicolas Sarkozy, til Bretlands hófst í gær með því að forsetinn og eiginkona hans, Carla Bruni, heilsuðu upp á El- ísabetu drottningu og fjölskyldu hennar í Windsor-höll. Drottningin er lengst t.v., þá kemur Bruni og loks Sar- kozy en í baksýn eru Karl ríkisarfi og eiginkona hans, Camilla hertogaynja. Forsetinn ávarpaði síðar þingið í London og sagðist þá meðal annars ætla að senda fleiri franska hermenn til Afganistan, afar mikilvægt væri að halda áfram baráttunni gegn talíbönum. Reuters Fleiri Frakkar til Afganistan London. AP. | Miklar deilur hafa ver- ið í Bretlandi um áform stjórnar Gordons Brown forsætisráðherra sem hyggst gera breytingar á lög- um um rannsóknir á stofnfrumum og fósturvísum. Vísindamenn segja að breytingar séu nauðsynlegar til að hægt sé að gera tilraunir til að finna lækningu við sjúkdómum eins og Alzheimer og Parkinsonsveiki. Skortur er á eggjum úr konum til að stunda stofnfrumurannsóknir. Lagt er til að þessum skorti verði m.a. svarað með því að leyft verði að gera tilraunir til að búa til mannlega fósturvísa úr eggi dýrs. Þá er frumukjarninn í eggi úr kú eða kanínu fjarlægður en í staðinn sprautað í eggið DNA-erfðaefni úr manni og loks komið af stað frumu- skiptingu með rafstraumi. Einnig á að heimila frumuflutninga sem hafa að markmiði að búa til fósturvísa með erfðaefni, DNA, úr tveim kon- um og einum karli. Opinber eftirlitsnefnd, sem fylg- ist með tilraunum á þessu sviði, hefur þegar veitt allmörgum bresk- um vísindamönnum takmarkaða heimild til að búa til blandaða fóst- urvísa af þessu tagi. En með nýju lögunum yrðu ákvæðin gerð skýr- ari. Andstæðingar tillagnanna sem nú eru í bígerð hjá stjórninni eru margir hvassyrtir og segja að verið sé að leggja grunn að Franken- stein-tilraunum, með vísan til skáld- sögunnar frægu um mannskrímslið er vísindamaður bjó til. Leiðtogar kaþólsku kirkjunnar segja að tillög- urnar séu „andstyggileg árás á mannréttindi, mannlega reisn og mannlegt líf“. Þrír kaþólskir ráðherrar í stjórn Browns hafa sagt að þeir myndu íhuga stöðu sína ef svo færi að Brown leyfði ekki liðsmönnum Verkamannaflokksins að greiða at- kvæði án tillits til flokksaga. Brown ákvað því á þriðjudag að flokks- agareglunum yrði ekki beitt við at- kvæðagreiðsluna. Deilt um stofn- frumutilraunir Breska stjórnin vill rýmri heimildir til rannsókna á hættulegum sjúkdómum Peking. AFP. | Stjórnvöld í Kína reyna nú að sýna að þeim hafi tekist að binda enda á mótmælin í Tíbet með því að bjóða fámennum hópi er- lendra fréttamanna í þriggja daga skoðunarferð um svæðið. Kínverskir fjölmiðlar sögðu í gær að alls hefðu 660 mótmælendur gefið sig fram við yfirvöld og flestir þeirra hefðu verið „blekktir eða knúnir“ til að taka þátt í mótmælunum. Flugvél fréttamanna, sem kín- verskir embættismenn völdu, lenti í Lhasa, höfuðborg Tíbets, í gær og er þetta í fyrsta skipti sem erlendum fréttamönnum er leyft að fara þang- að eftir mótmælin. Kínversk stjórn- völd hafa gefið til kynna að frétta- mennirnir fái að tala við fólk, sem varð fyrir árásum, og skoða hús sem urðu fyrir skemmdum í óeirðum. Bú- ist er þó við að fréttamennirnir fái aðeins að sjá það sem stjórnvöldin vilja, en þau hafa gagnrýnt umfjöllun vestrænna fjölmiðla um mótmælin. Útlagastjórn Tíbeta segir að 140 manns hafi beðið bana í mótmælun- um en kínverskir fjölmiðlar segja að alls liggi 20 manns í valnum, þar af nítján í Lhasa. Hundruð Tíbeta gefa sig fram ÁÆTLAÐ er, að um tvær milljónir Dana þjáist af höfuðverk, ýmist vegna mígrenis eða þeirrar spennu og streitu, sem einkennir daglegt líf nú á dögum. „Þetta er eins og hver annar far- aldur en rannsóknir hér í landi og í Noregi sýna, að á milli 10-15% íbú- anna eru með mígreni en allt að 35% þjást af höfuðverk, sem stafar af innri spennu,“ segir Helge Kasch, sérfræðingur á taugadeild háskóla- sjúkrahússins í Árósum. Kom þetta fram á fréttavef Berlingske Tidende. Höfuðverkurinn er ekki aðeins höfuðverkur fyrir þá, sem af honum þjást, heldur líka fyrir hið opinbera því að útgjöldin hans vegna hafa hækkað ár frá ári. Kostnaður vegna mígrenisjúklinga er um 24 milljarðar ísl. kr. árlega og Jes Olesen tauga- sjúkdómafræðingur telur, að tvö- falda megi þá upphæð sé útgjöldum vegna höfuðverkjar af öðrum ástæð- um bætt við. Rannsóknir, sem gerðar hafa ver- ið í ESB-ríkjunum, sýna, að höfuð- verkur er ein af 10 algengustu ástæðunum fyrir því, að fólk mætir ekki í vinnuna og fyrir skertri starfs- getu. Hvað er þá til ráða? Rigmor Jen- sen, prófessor og yfirlæknir við höf- uðverkjardeild sjúkrahússins í Glostrup, segir, að að undanskildu mígreni sé höfuðverkurinn lífsstíls- sjúkdómur. Lækningin felist í hóf- semi, hollum mat, nægum svefni og hreyfingu. Innri spenna og streita helsta ástæða höfuðverkja Morgunblaðið/Ásdís Höfuðverkur Getur stafað af ýmsu en oft er lífsstílnum um að kenna. HÓPUR munka, sem búa í klaustri frá 12. öld rétt við Vín í Austurríki, hefur gert mjög hagstæðan upp- tökusamning við Universal Music en fyrirtækið hefur á sínum snærum poppstjörnue eins og þau Amy Winehouse og Eminem. Tildrögin eru þau, að fyrirtækið ætlar að gefa út diska með gregorí- önskum söng en hann er ein elsta tegund vestrænnar sönglistar og á rætur að rekja aftur á 10. öld. Er áhugi á þessum söng mjög vaxandi, til dæmis fyrir áhrif frá tölvuleiknum Halo. Meira en 100 söngflokkar sóttust eftir samningnum við Universal en talsmaður þess sagði, að hrífandi söngur munkanna hefði borið af öll- um öðrum. Munkarnir voru bestir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.