Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 15 Bagdad. AP, AFP. | Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, veitti í gær liðsmönnum Mahdi-hersins í Basra, næststærstu borg landsins, þriggja daga frest til að afvopnast eftir tveggja daga átök þeirra við íraskar öryggissveitir og bandaríska her- menn. Að minnsta kosti 55 manns liggja í valnum í Basra og Bagdad eftir að átökin breiddust út til Sadr-borgar, hverfis sjíta í írösku höfuðborginni. Um 300 manns hafa særst í átök- unum eftir að íraskar öryggissveitir í Basra létu til skarar skríða gegn liðsmönnum Mahdi-hersins, sem er skipaður stuðningsmönnum sjíta- klerksins Moqtada al-Sadr. Óttast er að aðgerðir öryggissveit- anna verði til þess að al-Sadr falli frá vopnahléi sem hann lýsti yfir í ágúst og framlengdi í síðasta mánuði. Stuðningsmenn hans segja að írösku öryggissveitirnar og bandaríska her- liðið hafi notfært sér vopnahléið til að reyna að ganga milli bols og höf- uðs á Mahdi-hernum. Vopnahléið er talið ein af helstu ástæðunum fyrir því að dregið hefur úr blóðsúthell- ingunum í Írak síðustu mánuði. Átökin í Basra eru rakin til harð- vítugrar valdabaráttu milli Mahdi- hersins og tveggja annarra fylkinga sjíta fyrir héraðskosningar sem fram fara í október. Fylkingarnar vilja njóta góðs af olíuútflutningnum frá Basra og mútugreiðslum í tengslum við vöruinnflutning um höfn borgar- innar. Mahdi-herinn fær þriggja daga frest til að afvopnast Reuters Ólga Sjítar í Bagdad mótmæla herferð yfirvalda gegn Mahdi-hernum. „HVAR eru fugl- ar þeir á sumri sungu? segir í kvæði Stein- gríms Thor- steinssonar og Bretar spyrja sig nú þessarar spurningar. Talningar á síð- ustu árum sýna nefnilega, að garðfuglum þar í landi fækkar stöðugt. Mikið er um fuglaáhugamenn í Bretlandi og þegar vetrartalningin fór fram að þessu sinni í janúarlok tóku þátt í henni næstum 400.000 manns. Varði hver þeirra klukku- tíma í að telja fugla í garðinum sín- um eða í skemmtigörðum í bæjum og borgum. Hefur þessi talning ver- ið árlegur viðburður frá árinu 1979. Niðurstaðan nú er sú, að til jafn- aðar sáust 28,4 fuglar í görðunum en 34,8 árið 2004. Hefur þeim stöð- ugt fækkað í þessi 29 ár. Hefur gráspör, sem þó er enn algengasti fuglinn, fækkað um 64% og þeim duglega fugli staranum um 77%. Hringdúfum, tyrkjadúfum og finkum hefur að vísu fjölgað en í öðrum tegundum er um afturför að ræða. Ástæðurnar fyrir þróuninni kunna að vera margar að mati sér- fræðinga, til dæmis mengun og eyðilegging búsvæða, og einnig þær breytingar, sem orðið hafa á loftslagi á síðari árum. „Hvar eru fuglar…“ Þröstur, frændi gráspörsins. BRÚNÓ, villtur björn sem reikaði um fjöll Þýskalands í mánuð áður en hann var skotinn, hefur verið stoppaður upp og er nú til sýnis á safninu Maður og náttúra í Münch- en. Brúnó hafði verið fluttur til Norður-Ítalíu en ráfaði þaðan til Austurríkis og Þýskalands. Villt bjarndýr hafði þá ekki sést í Þýska- landi frá árinu 1835. Evrópskir fjöl- miðlar fylgdust grannt með ferðum Brúnós sem skaut reglulega upp kollinum til að gæða sér á sauðfé og kanínum eða brjótast inn í bý- flugnabú. Brúnó var síðan skotinn í júní 2006 með sérstöku leyfi yf- irvalda þrátt fyrir mótmæli nátt- úruverndarsamtaka. AP Uppstoppaður Björninn Brúnó var í heimsfréttunum sumarið 2006. Brúnó til sýnis á safni YFIRTÖKUTILBOÐ TIL HLUTHAFA Í SKIPTUM Þann 19. mars 2008 tilkynnti Exista hf. („Exista”) að það hefði ákveðið að gera öðrum hluthöfum Skipta hf. („Skipti”) tilboð í hluti þeirra í félaginu. Tilboðið er valfrjálst yfirtökutilboð samkvæmt 101. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 (hér eftir nefnd „VVL”) og um það gilda X. og XI. kafli laganna. Hljóðar yfirtökutilboðið upp á 6,64 krónur fyrir hvern hlut í Skiptum í samræmi við þá skilmála og skilyrði sem fram koma í tilboðs- yfirlitinu. Exista á nú 43,68% hlutafjár í Skiptum í gegnum dótturfélög sín, Exista B.V. (43,65%), Vátrygginga- félag Íslands hf. (0,02%) og Líftryggingafélag Íslands hf. (0,01%). Tilboðshafar Tilboðið nær til allra hluta í Skiptum sem ekki eru þegar í eigu Exista og dótturfélaga þess eða teljast til eigin hluta Skipta, sama dag og tilboðið er gert. Tilboðið mun einnig ná til þeirra hluta sem Skipti hafa skuldbundið sig til að gefa út í tengslum við kaup á fyrirtækjum, sbr. XVIII. kafla tilboðsyfirlitsins. Hluthafar sem skráðir eru í hlutaskrá Skipta við lokun viðskipta miðvikudaginn 26. mars 2008 munu fá sent tilboðsyfirlitið, samþykkiseyðublað og svarsendingarumslag. Framangreind skjöl eru einnig aðgengileg hjá fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf., Borgar- túni 19 í Reykjavík. Einnig er hægt að nálgast tilboðsyfirlitið á heimasíðu Kaupþings banka hf., http://www.kaupthing.is, og í gegnum fréttakerfi OMX Nordic Exchange Iceland hf. („OMX ICE”), http://www.omxgroup.com. Umsjónaraðili Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf. („Kaupþing”) hefur umsjón með yfirtökutilboðinu fyrir hönd Exista. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar bankans í síma 444 7000. Tilboðsverð og greiðsla Verð samkvæmt yfirtökutilboði þessu er 6,64 krónur fyrir hvern hlut í Skiptum, kvaða- og veðbandalausan. Greitt verður fyrir hlutina með hlutabréfum í Exista þar sem hver hlutur í Exista er verðlagður á 10,1 krónu, sem var lokagengi þeirra í kauphöll 18. mars 2008, daginn fyrir til- kynningu um að yfirtökutilboð væri væntanlegt. Skiptigengið er því 0,6574 hlutir í Exista fyrir hvern hlut í Skiptum. Verði fjöldi hluta sem til- boðshafi á rétt á að fá afhentan ekki heil tala verður námundað upp í næstu heilu tölu fyrir ofan. Gildistími Gildistími yfirtökutilboðsins er frá kl. 9 árdegis þann 31. mars 2008 til kl. 4 síðdegis þann 26. maí 2008. Samþykki við yfirtökutilboðinu verður að hafa borist til Kaupþings eigi síðar en kl. 4 síðdegis þann 26. maí 2008. Hluthafar bera sjálfir ábyrgð á að samþykkiseyðublaðið hafi borist til Kaupþings. Exista áskilur sér einhliða rétt til að ákveða hvort samþykkiseyðublöð sem berast eftir að gildistími tilboðsins rennur út verði tekin gild. Yfirtökutilboðið getur verið framlengt að því marki sem heimilt er samkvæmt VVL. Taka úr viðskiptum Ef tilboðið nær fram að ganga munu Skipti ekki lengur uppfyllas skilyrði um lágmarksdreifingu á eignarhaldi. Mun Exista þá fara fram á það við stjórn Skipta að hún óski eftir því að hlutabréf Skipta verði tekin úr viðskiptum af aðalmarkaði OMX ICE. Exista býður hluthöfum Skipta að kaupa hluti þeirra í félaginu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.