Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 19
LANDIÐ
Reyðarfjörður | Helga M. Steins-
son hefur hafið störf sem
verkefnastjóri þróunarverkefna
hjá Fjölmenningarsetri á Austur-
landi, með starfsaðstöðu á Reyð-
arfirði og Egilsstöðum. Hún mun
ásamt því að kynna Fjölmenning-
arsetrið, vinna að þróun verkefna
sem varða móttöku innflytjenda
og auðvelda samskipti og efla
þátttöku þeirra í samfélaginu. Þá
mun Helga vinna náið með stofn-
unum og sveitarfélögum á Austur-
landi við að framfylgja stefnu
stjórnvalda í þessum málaflokki,
koma í veg fyrir fordóma og efla
fjölmenningarlega kennslu og
samskiptahætti.
Þróun fjöl-
menningar
Seyðisfjörður | Starfsfólk og stjórn
Þróunarfélags Austurlands fagnar
n.k. föstudag, 28. mars, 25 ára af-
mæli félagsins í félagsheimilinu
Herðubreið á Seyðisfirði. Félagið
var stofnað sem Iðnþróunarfélag
Austurlands í Herðubreið árið
1983 og er því eitt elsta
atvinnuþróunarfélag landsins.
Meðal gesta sem flytja ávörp á af-
mælishátíðinni verða Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra, Svan-
fríður Inga Jónasdóttir,
bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, Að-
alsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, og Axel Beck,
forstöðumaður þróunarfélags
Kaupmannahafnarsvæðis. Dag-
skráin hefst kl. 15.
Kvartaldar
þróunarfélag
Borgarfjörður eystri | Tvö ný hótel
eru að rísa í Bakkagerðisþorpinu á
Borgarfirði eystri; heilsuhótelið Blá-
björg, sem Ásta Sigfúsdóttir er í for-
svari fyrir og Hótel Útskálar sem
Arngrímur Viðar Ásgeirsson er að
reisa ásamt fleirum.
Útskálar eru vinnuheiti á hótelinu
sem rís nú á svokölluðum Bökkum í
Bakkagerðisþorpi. Grunnur að því
var tekinn í janúar og er um að ræða
tíu tveggja manna herbergi sem
gengt verður í utan frá og því um n.k.
mótel að ræða. Á að hefja rekstur
þar í sumar. Blábjörg verða til húsa í
gömlu frystihúsi á Bakkaeyri og
stefnt að því að þar verði sjö her-
bergi á efri hæð og á neðri hæð
gestamóttaka, eldhús, matsalur og
listmunaverkstæði. Opnar það lík-
lega fyrir sumarið en hótelrýmið
sjálft verður væntanlega ekki tilbúið
fyrr en vorið 2009, þrátt fyrir að tals-
verðu sé lokið af endurbótum á
frystihúsinu. Nokkrir gistisalir eru
fyrir á Borgarfirði, en bæði fram-
kvæmdaaðilar og heimamenn vænta
mikils af uppbyggingunni.
Á ráðstefnu um ferðaþjónustu á
Borgarfirði eystri, sem haldin var
nýverið, kom m.a. fram að sjálfbærni
í ferðamennsku yrði lykilatriði í upp-
byggingu þjónustu á svæðinu. Green
Globe vottun væri eftirsóknarvert
markmið og Borgarfjörður og ná-
grenni ætti að verða vistvænt ferða-
mannasvæði. Gera þurfi ítarlega út-
tekt á stöðu og möguleikum
svæðisins, virkja íbúa og samstilla
ólík sjónarhorn og hagsmuni heima-
fólks.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Tvö hótel í bygg-
ingu á Borgarfirði
Ljósmynd/Hafþór Snjólfur
Smíða Hótel Útskálar rísa á Borg-
arfirði og verður opnað fyrir sumar.
Dyrfjöll Borgfirðingar hafa lagt metnað í þjónustu við t.d. göngu-
ferðamenn og horfa nú til spennandi möguleika í sjálfbærri ferðaþjónustu.
Egilsstaðir | Góð afkoma var af
rekstri Fljótsdalshéraðs á árinu
2007. Ársreikningur fyrir árið
2007 var lagður fram í bæj-
arstjórn til fyrri umræðu 19. mars
sl. Rekstrarafkoma ársins varð
betri en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir vegna lengds framkvæmda-
tíma við Kárahnjúkavirkjun.
Fljótsdalshérað var rekið með
189,6 m. kr. rekstrarafgangi á
árinu 2007. Rekstrartekjur voru
2.436 milljónir og rekstrargjöld
fyrir fjármagnsliði 2.066 m. kr.
Fjárfest var fyrir 193 milljónir og
lántökur námu 94 milljónum á
árinu. Íbúar voru um áramót
4.073.
Góð afkoma á
Héraði í fyrra
Eftir Guðfinnu Hreiðarsdóttur
Ísafjörður | Eitt af mestu verkum
tónlistarsögunnar, Jóhann-
esarpassía Bachs, var flutt í Ísafjarð-
arkirkju á föstudaginn langa. Um
var að ræða páskatónleika Tónlist-
arskóla Ísafjarðar undir yfirskrift-
inni Heimsins ljós og komu þar fram
strengjasveit, einleikarar, söng-
hópar og upplesarar.
Var flutningurinn á verkinu
óhefðbundinn að því leyti að fluttir
voru valdir þættir úr Jóhann-
esarpassíunni en hún rekur písl-
arsögu Krists eins og hún kemur
fyrir í Jóhannesarguðspjallinu. Að
sögn Sigríðar Ragnarsdóttur, skóla-
stjóra, var það einn kennari tónlist-
arskólans, pólski fiðluleikarinn Ja-
nusz Frach, sem átti hugmyndina að
þessum óvenjulegu tónleikum.
„Hann valdi þætti úr passíunni, út-
setti, æfði verkið og stjórnaði flutn-
ingnum. Markmiðið var að kynna
þetta meistaraverk Bachs og veita
kennurum og nemendum tækifæri
til að taka þátt í að flytja það auk
þess að bjóða heimafólki og gestum
Skíðavikunnar að hlýða á tónlist sem
fjallar um boðskap páskahátíð-
arinnar,“ segir Sigríður. Hún segir
tónleikana jafnframt hafa verið lið í
60 ára afmælishaldi skólans.
Hátt á annað hundrað áheyrendur
sóttu tónleikana og hrifust mjög af
flutningum enda tókst listamönn-
unum að koma píslarsögu Krists til
skila á áhrifamikinn og hátíðlegan
hátt.
Óhefðbundinn flutning-
ur Jóhannesarpassíu
Tónlist Janusz Frach hylltur ásamt
öðru listafólki í Ísafjarðarkirkju.
Ljósmynd/Ingunn Ósk Sturludóttir
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Eigendaskipti urðu hjá
fyrirtækinu Ísgel á Blönduósi
skömmu fyrir páska. Guðfinna Ingi-
marsdóttir sem rekið hefur fyrirtæk-
ið í 9 ár ákvað að selja það heima-
mönnum því hún gat ekki hugsað sér
að það hyrfi úr bæjarfélaginu. Hinir
nýju eigendur eru Gunnar Kristinn
Ólafsson, Zophonías Ari Lárusson og
Lárus B. Jónsson.
Hjá Ísgel hafa aðallega verið fram-
leiddar gelmottur sem notaðar hafa
verið til að viðhalda kælingu á fiski
sem sendur er á erlendan markað.
Ennfremur eru framleiddar vörur
sem tilheyra svokallaðri sjúkrapokal-
ínu en það tengist kæli- og hita-
bakstri. Fyrirtækið framleiðir einnig
einnota kælipoka sem eru mikið not-
aðir við íþróttameiðsl og Guðfinna
sagði gott að hafa svona poka við hlið-
ina á grillinu ef kæla þarf brunasár.
Enn ein framleiðsluvara fyrirtækisins
Ísgels er það sem kallað er „multifrís“
en það eru pakkningar sem settar eru
ofan í kælibox.
Guðfinna sagði í samtali við Morg-
unblaðið að framleiðslugetan hefði
vaxið mikið frá því hún hóf rekstur-
inn. Í dag eru framleiddar um 14.000
gelmottur á dag, allt frá 125 g að
þyngd upp í 300 g mottur. Vélbún-
aðurinn sem notaður er við fram-
leiðsluna er frá Frakklandi og var í
upphafi ætlaður til að pakka inn
ávaxtasafa en með nokkrum breyt-
ingum hefur vélin verið löguð að ísgel-
framleiðslunni.
14 þúsund gelmottur
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Framleiðsla Eigendur Ísgels ásamt Guðfinnu Ingimarsdóttur, f.v. Kristín
I. Lárusdóttir, Guðfinna, Gunnar Kristinn Ólafsson, Lárus B. Jónsson, Sig-
rún Zophoníasdóttir, Zophonías Ari Lárusson og Katrín Benediktsdóttir.
AUSTURLAND
!
"
#$ %&
'
& %
!
"
! #
"
$%
&
'
( )*
*+,,-./.0*
1
2 /333 -4)