Morgunblaðið - 27.03.2008, Page 33

Morgunblaðið - 27.03.2008, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 33 ✝ Sigurlaug Sig-rún Björnsdóttir fæddist á Brekku í Seyluhreppi í Skagafirði 27. ágúst 1908. Hún lést á Dvalarheimili aldr- aðra í Borgarnesi 15. mars síðastlið- inn. Hún var dóttir hjónanna Björns Bjarnasonar, bónda á Brekku, f. 30. ágúst 1854, d. 30. desember 1926, og Stefaníu Ólafs- dóttur, f. 14. ágúst 1878, d. 27. jan- úar 1974. Systkini Sigurlaugar voru Margrét, gift Óskari Jón- assyni kafara; Sigurlína, gift Jóni Jónssyni, bónda á Hofi á Höfð- aströnd; Kristín, gift Geir Gunn- laugssyni, bónda í Eskihlíð í Reykjavík og Lundi í Kópavogi; bifreiðarverkstæði. Börn þeirra eru: 1) Hörður Sveinsson, f. 28. mars 1932, d. 16. október 2006, kvæntur Elínu Kristinsdóttur. Þau eiga fimm börn, átta barnabörn og þrjú barnabarnabörn. 2) Þráinn Sveinsson, f. 5. september 1938, d. 3. september 1978, kvæntur Björgu Kolka, þau eiga eitt barn. Þráinn á dóttur og dótturdóttur frá fyrra sambandi. 3) Stefanía Guðlaug Drew, f. 13. janúar 1946, gift Arnold Drew, f. 25. september 1946, þau eiga tvö börn og fimm barnabörn. Sigurlaug ólst upp í Skagafirði til 9 ára aldurs, en þá fór hún til Sigurbjargar systur sinnar í Deildartungu í Reykholts- dal. Sigurlaug stundaði nám við Húsmæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði veturinn 1929-1930. Eftir að Sveinn dó og hún flutti til Reykjavíkur vann hún m.a. við ýmis verslunarstörf. Sigurlaug bjó á Sólvallagötu 41 í Reykjavík eftir að hún flutti frá Borgarnesi þar til hún fór á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi árið 1999. Útför Sigurlaugar fer fram frá Bústaðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Anna, gift Eiði Sig- urðssyni, bónda í Lækjamóti í Mikla- holtshreppi; Jórunn, gift Pétri Jónssyni bifreiðarstjóra; og Andrés útvarpsstjóri, kvæntur Margréti Vilhjálmsdóttur. Einnig átti hún tvö hálfsystkini sam- feðra, Sigurbjörgu, gift Jóni Hannessyni, bónda í Deildartungu í Reykholtsdal, og Andrés er lést ungur. Systkinin eru nú öll látin. Sigurlaug giftist, 15. mars árið 1931, Sveini Sveinbjarnarsyni bif- reiðarstjóra frá Geirshlíðarkoti í Flókadal, f. 15. júní 1902, d. 6. des- ember 1946. Þau bjuggu fyrstu ár- in í Geirshlíðarkoti en fluttu síðar í Borgarnes þar sem Sveinn rak Elsku amma mín, lífsganga þín var löng, næstum 100 ár. Þú sagðir mér fyrir tveimur árum að þú gætir örugglega gengið til Reykjavíkur með göngugrindina þína og ætlaðir að dansa við mig þegar þú yrðir 100 ára. Ég kynntist Sveini afa aldrei, hann dó langt fyrir aldur fram, í desember 1946, aðeins rúmlega fer- tugur að aldri. Þú stóðst ein uppi með þrjú börn, það yngsta Stefaníu tæplega eins árs, Þráin átta ára og Hörð (pabba) 14 ára. Þið Stebba voruð mjög samrýnd- ar, en hún giftist og flutti til Am- eríku um 1970. Þráinn dó ungur, tæplega fertugur, árið 1978. Pabbi, mamma og við systkinin vorum þín nánasta fjölskylda á Íslandi upp frá því. Pabbi og mamma heimsóttu þig reglulega í Borgarnes og fylgdust vel með þér. Þið afi áttuð fyrirtæki í Borgarnesi sem gerði þér kleift, eft- ir að hann dó, að kaupa hús að Sól- vallagötu 41 í Reykjavík ásamt Andrési bróður þínum og fjölskyldu hans. Þar bjugguð þið öll mín æsku- ár. Þegar þú fluttir á Sólvallagötuna vannst þú fyrir þér með því að vera með kostgangara. Pálmi Jónsson systursonur þinn var meðal þeirra sem áttu athvarf hjá þér, en hann bjó á neðri hæðinni hjá Andrési frænda. Þegar þú fórst á vinnumarkaðinn vannst þú lengst af fyrir Pálma Jónsson, bæði í Ísbúðinni við Aust- urstræti og í Hagkaupum. Pabbi og mamma giftu sig árið 1954 og þú leigðir bræðrum frá Vestmannaeyjum, þeim Ingólfi og Árna herbergi. Ingólfur fór aftur til Eyja, en Árni fór hvergi. Þið bjugg- uð saman þar til þú fórst á Dval- arheimilið í Borgarnesi 1999. Árni lést fyrir nokkrum árum. Sambúð ykkar var mjög sérstök, hann tæp- um 20 árum yngri, en þið áttuð margt sameiginlegt. Þið spiluðuð brids, brugguðuð í baðkerinu og fór- uð í saman í sund. Að mínu mati var sambúðin mikið lán fyrir ykkur bæði og virðingin gagnkvæm. Þú umgekkst ættingja hans og vini eins og okkur fjölskylduna og gerðir aldrei mannamun. Þú varst ekki allra, enda mjög hreinskilin kona og hafðir skoðanir á mönnum og málefnum. Þú sagðir mér einhvern tíma að þú hefðir ekki átt margar vinkonur í æsku vegna þess hversu hreinskilin þú varst. Þú gættir okkar systkinanna þegar for- eldrar okkar fóru til útlanda. Það sem ég man frá þeirri dvöl var tifið í klukkunni í stofunni og sundið á bak við húsið hjá þér. Mér fannst þögnin oft yfirþyrmandi enda vön miklu fjöri á mínu heimili. En pönnukök- urnar þínar slógu svo sannarlega í gegn og eru okkur systkinunum minnisstæðar. Pabbi dó skyndilega fyrir rúmu ári, þú spurðir ekki um hann fyrr en fyrir nokkrum vikum, en þá sagðir þú mömmu að þú myndir hitta hann fljótlega. Svona geta vegir Guðs ver- ið órannsakanlegir. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Borgar- nesi fyrir frábæra umönnun og hversu vel var ávallt tekið á móti okkur þegar við komum í heimsókn, sérstakar þakkir fá frænkur okkar, þær Ingibjörg og Margrét. Elsku amma, það voru forréttindi að fá að kynnast þér. Þú fórst í friði, sátt við þitt hlutskipti og færð að hvíla við hlið afa eftir öll þessi ár. Margrét Harðardóttir og fjölskylda. Elsku amma mín, nú þegar þreyttur líkami þinn er búinn að fá hvíld eftir næstum 100 ára veru hér á jörð, langar mig að senda þér nokkur kveðju- og þakkarorð. Þegar ég fæddist bjuggu foreldr- ar mínir Björg og Þráinn ásamt Ax- el hálfbróður mínum, í risíbúðinni í húsinu þínu á Sólvallagötu 41 og þú á annarri hæð. Samgangur var ná- inn og þú varst okkur drengjunum alltaf góð amma og passaðir mig oft, mömmu varstu góð tengdamóðir. Þú hafðir þessa ljúfu lund. Pabbi minn var líka svona ljúfur. Hann var ekki hraustur, fæddist með hjarta- galla og þurfti að fara í hjartaskurð til London, þar sem skipt var um hjartalokur í honum vorið 1978 en hann náði ekki heilsu eftir það og lést 3. september 1978, þá rétt fer- tugur, ég var þá sjö ára. Þú varst sterk, amma mín, eins og þú þurftir oft að vera eftir ástvinamissi. Mamma mín flutti til Bandaríkjanna haustið 1981 með okkur bræður og settumst við þar að, það varð því vík milli okkar, við höfum komið tvisvar til Íslands á þessum tíma og varst þú þá enn við nokkuð góða heilsu og gott að hitta þig. Nú ert þú komin til betri heima, elsku amma, og búin að hitta ástvini þína sem á undan voru farnir. Hjá okkur lifir minningin um elskulega, hjartahlýja konu sem öllum vildi vel og öllum þótti vænt um, sem hana þekktu. Vertu blessuð, elsku amma mín. Þinn sonarsonur Sveinn Þráinsson (Svenni), Houston í Bandaríkjunum. Sigurlaug Björnsdóttir ömmu- systir mín er látin í hárri elli. Lauga kom ríðandi úr Skagafirði níu ára gömul með ömmu minni og afa sem höfðu farið í heimsókn norður að Hólum og tóku hana með sér á heimleiðinni. Lauga hélt hún væri að fara í orlof suður í Borgarfjörð, en það lengdist í dvölinni og í Deild- artungu átti hún heimili þar til hún fór á Kvennaskólann á Blönduósi og festi síðan ráð sitt. Lauga var því ein af stórfjölskyldunni í Deildartungu og ætíð nátengd móðurfólki mínu. Það hefur ekki verið létt fyrir ömmu Stefaníu að þurfa að láta yngstu dótturina í fóstur eða fyrir Laugu að uppgötva að orlofið var til frambúð- ar. En það var alla tíð fjarri Laugu að vera með vol og víl og kannski huggun harmi gegn að tengingin við skyldfólkið í Skagafirði var sterk og fleiri afkomendur Björns og Stef- aníu áttu eftir að dvelja lengri og skemmri tíma í Tungu. Í þá daga var ekki sí og æ verið að þeytast milli landshluta, en þó heimsótti Björn í Brekku dætur sínar í Deild- artungu einu sinni. Hann reið þá einhesta úr Skagafirðinum suður í Borgarfjörð. Tveir elstu móður- bræður mínir voru fyrir austan tún að leik er til þeirra kom gamall grá- skeggjaður maður á brúnum hesti sem spurði þá að heiti. Þegar þeir tjáðu honum það rak hann þeim rembingskoss og sagðist vera afi þeirra. Þegar Lauga og Sveinn sett- ust að í Borgarnesi bjuggu þau fyrst í húsi með annarri fjölskyldu. Þar var þó alltaf nóg gistipláss þegar farið var í kaupstað frá Deildar- tungu enda þau hjón bæði afar gest- risin og ekki verið með neitt vesen eða smámunasemi. Strákarnir flugust á á eldhúsgólfinu á kvöldin svo það var alltaf hreint sagði Lauga. Á sumrum var Lauga síðan oft í Deildartungu bæði með sín börn og annarra. Þráinn heitinn, yngri sonur hennar, varð þar heima- gangur og fékk að verða eftir einn vetur þegar Lauga flutti til Reykja- víkur eftir lát Sveins. Komin á ní- ræðisaldur flutti svo amma mín í bæinn og þurfti þá sem fyrr oft að líta til yngri systranna. Ég fór iðu- lega með ömmu á Sólvallagötuna til Laugu sem ætíð tók á móti manni glöð í bragði og tilbúin að spila. Ég votta aðstandendum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir. Að mörgu leyti er það svolítið undarleg tilhugsun að hún Lauga frænka hefði orðið eitt hundrað ára síðar á þessu ári. Undarleg tilhugs- un fyrir þær sakir að minningin um Laugu er um síunga manneskju. Innan um peysufataklæddar eldri systur sínar var Lauga yngri kyn- slóðin, næst í aldri Andrési föður okkar, en hann var yngstur barna afa okkar og ömmu, þeirra Ingi- bjargar Stefaníu Ólafsdóttur og Björns Bjarnasonar. Á fyrstu bú- skaparárum foreldra okkar bjuggu þau í nánu sambýli á Sólvallagötu 41 í Reykjavík, Lauga á efri hæðinni, við á neðri hæð. Inn í þetta sambýli á Sólvallagötunni kom einnig Pálmi systursonur þeirra Laugu og Andr- ésar, seinna kenndur við Hagkaup, fyrst einn á báti og síðar með sína ungu fjölskyldu sem hreiðraði um sig á efstu hæð hússins. Stigagang- urinn á milli heimilanna var fjölfar- inn, enda góður vinskapur með öllu þessu fólki auk fjölskyldutengsla. Þegar fram liðu stundir starfaði Lauga í fyrirtæki systursonar síns og má nokkuð víst heita að hún hafi reynst drjúgur liðsauki enda vinnu- söm og skipuleg með afbrigðum. Heimili hennar bar þessum karakt- ereinkennum skýran vitnisburð. Þar var allt í röð og reglu, hreint og vel til haft. Á Sólvallagötunni tókust góð kynni með okkur og fjölskyldu Laugu, börnum hennar, Herði, Þráni og Stefaníu, en Sveinn Svein- björnsson, eiginmaður Laugu, féll frá fyrir aldur fram, aðeins rúmlega fertugur. Sveinn var mikill atorku- maður og hafði, með dyggum stuðn- ingi konu sinnar, byggt upp öflugt flutningafyrirtæki í Borgarnesi þeg- ar hann lést. Við fráfall Sveins flutti Lauga til Reykjavíkur en á gamals aldri vitjaði hún upprunans því síð- ustu æviárum sínum varði hún í Borgarnesi. Bjó hún þar í góðu yf- irlæti á dvalarheimili aldraðra. Þótt Lauga þyrfti á lífsleiðinni að glíma við ýmsa erfiðleika heyrðist hún aldrei kvarta. Hún var það sem kalla má jarðbundin manneskja, tókst á við hvern vanda af yfirvegun og æðruleysi. En þótt hún ræddi lít- ið um eigin hag eða sinna nánustu mátti öllum ljóst vera að fjölskyldu sinni reyndist Lauga afar vel, bar hag hennar mjög fyrir brjósti og var ætíð til að reiða sig á. Hún var og trygglynd öllum þeim sem hún bast vináttuböndum. Það fengu vinir hennar oft að reyna. Til Laugu var ætíð gott að sækja. Hún var brosmild, létt í lund og sér- lega greiðvikin. Æðruleysi og bjart- sýni einkenndu lyndiseinkunn Laugu frænku okkar, enda er birta yfir minningu hennar. Valgerður, Vilhjálmur, Ólafur Bjarni og Margrét Birna. Sigurlaug Sigrún Björnsdóttir ✝ Elskuleg systir okkar, frænka og mágkona, AUÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Ytra-Skógarnesi, síðast til heimilis á Bræðraborgarstíg 55, Reykjavík, sem lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 13. mars, verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 28. mars kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð Grundar s. 530-6100. Jens Kristjánsson, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Einar Haukur Kristjánsson, Anna Jóna Sigurðardóttir, Kristjana Ágústa Kristjánsdóttir, Sigríður Dinah Dunn, Magnús Hansson, Birgir Sigmundsson, Ásdís Guðmundsdóttir og aðrir ættingjar og vinir. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG ODDSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1a, lést fimmtudaginn 20. mars á líknardeild Landa- kotsspítala. Kveðjuathöfn fer fram í Háteigskirkju föstudaginn 28. mars kl. 11.00. Jarðsett verður á Keldum á Rangárvöllum. Ingibjörn Hallbertsson, Ragna Jónsdóttir, Ingunn Pétursdóttir Sim, John W. Sim, Einar Pétursson, Ingibjörg Magnúsdóttir, Loftur Þór Pétursson, Dröfn Eyjólfsdóttir, Linda Björg Pétursdóttir, Jóhann Unnsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, HELGI HALLVARÐSSON fyrrverandi skipherra, Lautasmára 1, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum laugardaginn 15. mars. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 27. mars, kl. 13.00. Þuríður Erla Erlingsdóttir, Guðfinna Helgadóttir, Guðni Einarsson, Sigríður Helgadóttir, Birgir H. Sigurðsson, Helgi Helgason, Brynja Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR frá Flatey á Skjálfanda, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 29. mars kl. 14.00. Vigdís Helga Guðmundsdóttir, Pálmi Sigfússon, Sigurjón Guðmundsson, Ása Grímsdóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.