Morgunblaðið - 10.04.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 97. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
MISSA SOLEMNIS
VLADIMIR ASHKENAZY VÆNTIR MIKILS AF
NÝJA TÓNLISTARHÚSINU Í REYKJAVÍK >> 15
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ÞÓTT Ólympíuleikarnir séu fyrst og fremst
íþróttamót hafa þeir pólitíska þýðingu, sér-
staklega þegar þeir eru haldnir af einræð-
isríki eins og Kína. Í
þessu tilliti er opn-
unarhátíðin sérlega mik-
ilvæg því á henni tjaldar
gestgjafinn öllu því besta
sem til er og leggur iðu-
lega mikla áherslu á
menningu og sögu þjóð-
arinnar.
Það vakti því töluverða
athygli þegar Angela
Merkel, kanslari Þýska-
lands, tilkynnti að hún myndi ekki mæta á
opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Bejing,
jafnvel þótt talsmaður Merkel hefði strax
bætt við að ekki væri um að ræða mótmæli
gegn aðgerðum Kínverja í Tíbet. Í kjölfarið
sagði Nicholas Sarkozy, forseti Frakk-
lands, að ekki væri útilokað að hann myndi
hunsa opnunarhátíðina.
Forsetinn skuldbindur ekki forsetann
Forseti Kína, Hu Jintao, bauð forseta Ís-
lands á opnunarhátíðina þegar þeir hittust í
Kínaheimsókn Ólafs Ragnars í fyrrahaust
og Íþrótta- og ólympíusamband Íslands
hefur boðið menntamálaráðherra á opn-
unarhátíðina. Mæta þau?
Þetta svar fékkst hjá Örnólfi Thorssyni
forsetaritara: „Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, hefur mótað þá stefnu, í
ljósi þess að forsetakosningar verða í sum-
ar, að ekki sé unnt að taka bindandi afstöðu
til þátttöku forseta í atburðum á næsta
kjörtímabili, sem hefst hinn 1. ágúst 2008,
hvorki innanlands né utan, fyrr en ljóst
verður hver gegnir þá embættinu. Eina
undantekningin frá þessu er að ákveðið var
í samráði íslenskra stjórnvalda fyrir tæpu
ári að þiggja boð forseta Þýskalands um að
forseti Íslands færi þangað í opinbera
heimsókn í síðari hluta október 2008, hver
svo sem þá gegndi forsetaembættinu.“
Þegar spurt var hvort Ólafur Ragnar
færi á hátíðina, yrði hann enn forseti í
haust, var vísað í þetta sama svar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra ætlar að taka þátt í
opnunarhátíðinni í Beijing.
Að mæta
eða mæta
ekki
Íslenskir ráðamenn
ætla á opnunarhátíð
Keppni Hraðar,
hærra, sterkar.
Gítarleikararnir
>> 37
Allir
í leikhús
Leikhúsin í landinu
ELDUR varð laus í hliðarbygg-
ingu stóra turnsins við Smáratorg,
hæstu byggingar landsins, í gær-
kvöldi. Slökkvistarfi lauk um mið-
nætti.
Þorgeir Elíesersson, vettvangs-
stjóri lögreglunnar, sagði að til-
kynning hefði borist um eld á 2.
hæð hliðarbyggingarinnar kl.
21.25. Þá var allt tiltækt lið slökkvi-
liðs og lögreglu á höfuðborgar-
svæðinu kallað út. Turninn var
rýmdur til öryggis en fólk var m.a.
á veitingastaðnum Veisluturninum
á 20. hæð og í líkamsræktarstöð á
15. hæð. Fenginn var strætisvagn
til að veita þeim skjól sem komu úr
turninum. Fljótlega var fólki
hleypt aftur upp í turninn.
Að sögn lögreglu mun eldurinn
hafa komið upp í rými sem enn er í
byggingu. Mikill reykur myndaðist
og vann slökkviliðið við að kæfa
eldinn og reykræsa húsið.
Sigurður F. Gíslason, fram-
kvæmdastjóri og matreiðslumeist-
ari Veisluturnsins á 19. og 20. hæð,
sagði lögregluna hafa hringt og til-
kynnt að brunaboð hefði borist.
Síðan gáfu þeir boð um að rýma
húsið. Verið var að halda tvær
veislur í Veisluturninum og um 50
gestir á staðnum auk starfsfólks.
Sigurður sagði að allir hefðu verið
komnir út innan tveggja mínútna
og það án alls óðagots.
„Við höfum haldið brunaæfingar
og hér eru einu eldvarnarlyftur á
landinu auk tveggja stórra stiga
niður,“ sagði Sigurður.
Morgunblaðið/Ómar
Eldsvoði Talsverðan reyk lagði út úr hliðarbyggingu stóra turnsins við
Smáratorg. Þar kviknaði í rými sem mun enn vera í byggingu.
Eldur í hæsta
húsi landsins
Komnir út Reykkafarar fóru inn í húsið og slökktu eldinn.
Mikill viðbúnaður vegna útkallsins
GERT er ráð fyrir að setja tvö hús upp á þak
bygginga við Vegamótastíg 7-9 samkvæmt
samþykktum skipulagsráðs Reykjavíkur í gær.
Skipulagsráð hefur samþykkt m.a. að setja í
auglýsingu breytingartillögu fyrir Vegamóta-
stíg 7-9, sem felur í sér að byggt verði á lóð-
unum nokkurn veginn í samræmi við fyrra
deiliskipulag. Aftur á móti verður á þaki bygg-
ingarinnar endurreistur lítill steinbær, „Her-
dísarbær“, sem áður stóð á Vegamótastíg 7 og
var rifinn seint á sjöunda áratug síðustu aldar
og sömuleiðis verður gamla timburhúsið á
Vegamótastíg 9 flutt upp á þak. „Skipulagsráð
var einróma í afstöðu sinni til húsaflutninganna
upp á þak og við teljum að það sé fullt svigrúm
til að leika sér aðeins innan ramma deiliskipu-
lagsins,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulagsráðs. „Stundum er talað um
að borgarskipulag sé alveg laust við glettni en í
þessu tilviki má segja að farnar séu óhefð-
bundnar leiðir.“ Deiliskipulagsbreyting vegna
Pósthússtrætisreits fer líka í auglýsingu og er
markmið skipulagsins að sýna byggingararf-
inum þann sóma sem honum ber en laga húsin
jafnframt að nútímaþörfum eins og hægt er.
Miðað er við að gömlu húsin verði færð til eldra
horfs eða lagfærð. Þá er gert ráð fyrir því að
Nýja bíó verði endurreist við sinn gamla stað.
Glettni í deiliskipulaginu
Í HNOTSKURN
»Í kjölfar Lækjargötubrunans á síðastaári var farið í hugmyndaleit vegna skipu-
lags fyrir svæðið, sem skipulagsráð flokkar
til mikilvægra svæða.
»Náðist góð samstaða um vinningstillög-una, sem nú hefur verið færð í deiliskipu-
lagstillögu. Hún tekur mið af verndun sögu-
frægra bygginga og uppbyggingu til
eflingar fyrir Kvosina. Borgaryfirvöld stefna
að því að endurvekja Landfógetagarðinn og
gera hann aðgengilegan fyrir almenning.