Morgunblaðið - 10.04.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.04.2008, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LANDSBANKINN hefur styrkt landssöfnun Lionshreyfingarinnar á Íslandi, Rauðu fjöðrina, um eina milljón kr. Í landssöfnuninni í ár var markmiðið að safna fé til að kaupa og þjálfa leiðsöguhunda fyrir blinda. Allt söfnunarfé renn- ur beint til málefnisins. Landssöfnun Lionshreyfing- arinnar stóð yfir dagana 3.-6. apríl um land allt. Þetta er í ní- unda sinn sem Lionshreyfingin stendur fyrir landssöfnun með því að selja rauða fjöður. Fyrsta landssöfnunin fór fram árið 1972 en þá rann allt söfnunarfé til stofnunar augnlækningadeildar Landakots. Í síðustu söfnun árið 2004 var safnað fyrir langveik börn undir kjörorðinu: „Léttum þeim lífið.“ Viggó Ásgeirsson færir Guðmundi Rafnari Valtýssyni framlagið. Landsbankinn styrkir Lions Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÁRIÐ 2012 munu öll börn yfir 12 mánaða aldri í Reykjavík eiga kost á annaðhvort leikskólaplássi eða vistun hjá dagforeldrum. Fram að þeim tíma verða byggðir fleiri leik- skólar, opnaðar nýjar deildir við eldri leikskóla, dagforeldrum fjölg- að sem og valkostum. Þetta er á meðal markmiða fjög- urra ára aðgerðaáætlunar sem borgaryfirvöld kynntu í gær, undir yfirskriftinni Borgarbörn. Ólafur F. Magnússon borgar- stjóri segir áætlunina fela í sér stóraukin framlög til leikskólamála, eða sem nemur 14% aukningu á ár- unum 2008 til 2011, úr 8.215 millj- ónum króna 2008 í 9.318 milljónir króna árið 2011, aukning sem nemi rúmlega 1,1 milljarði miðað við fast verðlag. „Aukin framlög til þessa mála- flokks nema 14% aukningu frá síð- ustu þriggja ára áætlun, sem er mesta aukning milli ára í þriggja ára áætlun hjá nokkrum málaflokki núna,“ segir Ólafur. „Við erum bæði að auka framlög meira þarna en til annarra mála- flokka og koma með ný úrræði sem ekki hafa verið í boði áður. Fyrir utan það að við ætlum að reyna að bjóða upp á fleiri úrræði, eins og til dæmis ungbarnadeildir. Greiðir fyrir nýjungum Við ætlum líka að koma með þessa þjónustutryggingu þannig að það sé hægt að greiða ýmsum nýj- um þjónustuaðilum þessar 35.000 krónur á mánuði sem niðurgreiðslu til jafns við dagforeldrakerfið og að foreldrar geti nýtt þetta til að stytta biðina eftir þjónustu sem nú er alltof löng. Við ætlum þannig að hjálpa foreldrum að koma börnum sínum að hjá þjónustuaðilum, en ef ekki þá er það réttur foreldra að fá þessa greiðslu. Þetta er miðað við jafna nýtingu beggja foreldra, með valfrjálsum hluta eins og í fæðingarorlofskerf- inu. Aðalatriðið er þetta: Þau börn sem ekki hafa fengið þjónustu og þær fjölskyldur sem þrátt fyrir enga þjónustu hafa ekki fengið neinn fjárhagslegan styrk frá borg- aryfirvöldum, þeim verður núna tryggt meira jafnrétti en hingað til í þessu.“ Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for- maður leikskólaráðs Reykjavíkur, segir eitt markmið áætlunarinnar að gera þjónustutrygginguna úrelta með því að tryggja öllum börnum tólf mánaða og eldri vist hjá dag- foreldrum eða í leikskólum. „Við ætlum að loka þessu gati sem er þessi óvissa foreldra um vistun eftir fæðingarorlof, með því að byggja upp nýjar deildir við gamla leikskóla, með því að bjóða nýjan ungbarnaleikskóla, með því að búa til ný úrræði í formi dagfor- eldra og nýjar tegundir leikskóla. Með þessu náum við, miðað við mannfjöldaspár og þá forsendu að lenging fæðingarorlofsins hefjist ár- ið 2010, að bjóða öllum úrræði. Við gerum ekki einu sinni ráð fyrir fjölgun dagforeldra inni í þessu. Ég vonast til að þeim fjölgi í kjölfar hækkunar á niðurgreiðslum.“ Áætlun um fjölgun fagfólks í leik- skólunum muni halda áfram sam- hliða þessu, sem felist meðal annars í því að senda fólk til náms.  Borgaryfirvöld kynna aðgerðaáætlun í leikskólamálum  Álögur ekki auknar Verði eitt af „flaggskipum“ meirihlutans Morgunblaðið/Golli Aðgerðaáætlun Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, og Ólafur F. Magnússon borgarstjóri kynna áætlunina á Laufásborg í gær. Í HNOTSKURN »Útgjöld borgarinnar til mála-flokksins munu aukast í nokkrum þrepum, úr 8.215 millj- ónum 2008, í 8.584 milljónir 2009, í 9.068 milljónir 2010 og 9.318 milljónir árið 2011. »Auknum útgjöldum verðurekki mætt með auknum álög- um á borgarbúa, að sögn Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra. »Að sögn Ólafs er tilgang-urinn m.a. að laða ungt fjöl- skyldufólk til borgarinnar. HÓPUR Vestmannaeyinga undir forystu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns hefur skipulagt undirskriftasöfnun á netinu gegn byggingu ferjulægis í Bakka- fjöru. Í tilkynningu frá hópnum eru yfirvöld hvött til að leysa þann vanda, sem samgöngur milli lands og Eyja eru í, með því að byggja hraðskreiða ferju sem gengi á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Hópurinn segist hafna al- gjörlega hugmyndum sem uppi eru um að byggja ferjulægi í Bakkafjöru vegna þess að sú út- færsla muni ekki stytta ferðatíma milli Reykjavíkur og Vest- mannaeyja sem nokkru nemi. Einnig muni stóraukin umferð á Suðurlandsvegi skapa hættu og fleiri ferðir munu falla niður vegna veðurs. Undirskriftasöfnunin fer fram á síðunni www.strondumekki.is Mótmæla Bakka- fjöruhöfn STUTT „MARKMIÐIÐ er mjög skýrt: Við er- um að reyna að ýta undir alls kyns þró- unarstarf í leik- skólum borgarinnar með þessum styrk- veitingum til að stuðla að þróun og nýbreytni í leik- skólastarfi. Það er alveg einstaklega gaman að vita af því hvað það er mikil fjölbreytni í verkefn- unum í ár,“ segir Þorbjörg Helga Vig- fúsdóttir, formaður leikskólaráðs, um styrkveitingar ráðsins til þró- unarverkefna í ár. Alls námu styrkirnir sextán millj- ónum króna í ár og skiptust á milli tuttugu og eins verkefnis. Hæsti styrkurinn, um 3,5 milljónir króna, rennur til þriggja leikskóla í Vest- urbænum og Myndlistaskóla Reykjavíkur, sem eiga í samstarfi um sjónmennt. Innt eftir athygl- isverðum styrkþeg- um nefnir Þorbjörg rannsóknarverk- efnið „Raddir barna“ á vegum RannUng, Rann- sóknarstofu í mennt- unarfræðum ungra barna við Kenn- araháskóla Íslands, sem fái tvær millj- ónir í styrk til að efla rannsóknir á mennt- un og uppeldi ungra barna. Tilgangurinn sé að fá „sjónarmið barna inn í þennan heim sem við fullorðnir höfum skapað“. „Nú fáum við gleggri rannsókn- arvinnu sem hefur ekki verið mikið um, varðandi það hvernig þessir krakkar eru að læra. Almennt er- um við að ýta undir að hægt sé að búa til ný verkefni, nýja starfsemi eða nýja tegund þróunarkennslu- fræði og viljum þannig styðja við hið góða, faglega starf í skólunum.“ Efla þróunarstarfið INNTUR eftir því hvort auknum útgjöldum til þessa málaflokks verði mætt með auknum álögum segir Ólafur F. Magnússon borg- arstjóri svo ekki munu verða. Framundan séu óvissutímar í efnahagslífinu og ljóst að tekjur borgarinnar verði minni en áætl- að var. Áherslan verði á að auka þjónustu en leikskólar í nýjum hverfum fylgi íbúafjölgun. „Það er bara hagfræði sem gengur ekki upp samkvæmt ráð- leggingum okkar fjármálastjóra og borgarhagfræðings að taka lán til að stórauka framkvæmdir á tímum versnandi efnahagsástands. Það gengur ekki upp. Lánin núna eru mjög dýr og það getur verið dýrt spaug að taka lán og fara síðan að reka borgarsjóð með miklum halla. Það yrði alltof dýrt fyrir borgina til lengri tíma litið. Við fáum klára ráðgjöf um að- hald og vandaða fjármálastjórn,“ segir Ólafur. Aðhald í framkvæmdum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.