Morgunblaðið - 10.04.2008, Síða 10

Morgunblaðið - 10.04.2008, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Er umhverfisstefna Samfylkingarinnar að fara í álsvelginn? VEÐUR Nýverið var sögð saga af því íStaksteinum þegar Eyjólfur Einarsson myndlistarmaður hjó eft- ir því að vextirnir sem auglýstir voru á húsi Verzlunarbankans höfðu náð styrkleika brennivíns.     Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr,sendi bréf á ritstjórnina með meðfylgjandi mynd úr Bankastræti í byrjun níunda áratugarins, þar sem sést að vextirnir eru 46% og yfir- skriftin á veggnum er: „Góðar frétt- ir fyrir þig!“ Og undir vaxtatölunni 46% stendur: „Hæstu innlánsvext- irnir í dag!“     Og bréfið er svohljóðandi: „„Saganvar góð,“ er stundum sagt. Get- ur verið hrós um góðan sögumann en stundum felst í því broddur. Þá telja menn að sannleikurinn sé nú ekki jafnan hafður í heiðri. Þó kem- ur stundum fyrir að söguefnið sjálft er lygilegra en frásögnin.     Sendi hér mynd, líklega tekin sum-arið 1980, úr Bankastræti. Þar sannast að ekki aðeins voru vextir hærri en prósentan í brennivíni heldur voru þeir málaðir á vegginn. (Ekki á ljósaskildi, eins og sögu- mann minnti að Eyjólfur Einarsson hefði séð á sínum tíma.)“     Og víst er að á þeim tíma hafa jafn-vel 46% vextir verið neikvæðir og verðbólgan étið upp spariféð.     Þeir sem muna verðbólguna áþessum árum óska þess að þurfa aldrei að upplifa slíka tíma aftur. STAKSTEINAR Góðar fréttir! SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                          *(!  + ,- .  & / 0    + -                                     !   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  " " "  "  "       #   #   #       #          :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? $ $    %$  $ $    $ $ $ $ $ $ $ $ $ %$                       *$BC                     !  "   #    $   $         % *! $$ B *! &' (   '   #  )* ) <2 <! <2 <! <2 &#(  +  !, - ) .    $                B   " 2  & '$  %(   %    ) # " !   *  & '$  %(   %    ) # " !   <7            $ )  * $       "             # +    $   * $       $     % $  % /0   )11  )   2) ) +  ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Hjörtur J. Guðmundsson | 9. apríl Hvers vegna bauð Ólafur Ragnar Al Gore til landsins? ... Er ástæðan sú að vís- indamennirnir í nefnd- inni hafa ekki treyst sér til að taka nærri eins djúpt í árinni og varafor- setinn fyrrverandi gerir í dómsdagsspám sínum? Eða var Ólafur bara að nota aðstöðu sína til að bjóða gömlum félaga sínum og skoðanabróður til landsins í nafni forsetaembættisins ... Meira: sveiflan.blog.is Ingólfur H. Þorleifsson | 9. apríl Hvert er hlutverk Vegagerðarinnar! Ég hélt í einfeldni minni lengi vel að Vegagerðin væri hugsuð til að þjón- usta vegfarendur. Það er að verða skýrara með ár- unum að ég hef rangt fyr- ir mér. Þau svör sem fólk virðist fá frá þessari ríkisstofnun eru oft og tíðum til háborinnar skammar. Þessi seinagangur á Reykjanesbraut skrifast alfarið á vegagerðina og yf- irmenn hennar sem eru samgöngu- ráðherra og vegamálastjóri. ... Meira: golli.blog.is Björgvin Guðmundsson | 9. apríl Sömu laun fyrir sömu vinnu Ein aðalkrafan af hendi Stéttarfélags í al- mannaþjónustu (SFR) í komandi kjarasamn- ingum við ríkið er að greidd verði sömu laun fyrir sambærileg störf hjá ríki og á almennum markaði. Að sögn Árna Stefáns Jónssonar, for- manns SFR, er hér um nýmæli að ræða. Spurður um ástæðu kröfunnar segir Árni Stefán sameiginlega launa- könnun SFR og VR sem gerð var ... Meira: gudmundsson.blog.is Salvör | 9. apríl Þotuliðið, forsetinn, fjórða valdið, löggur og líkamsrækt Það geta verið ein- hverjar stjórnmálalegar eða peningalegar skýr- ingar á því að íslenskir ráðherrar leigi þotur til að komast beint á áfangastað. Ég held að fyrir hafi komið að vél flugmálastofn- unar hafi verið notuð til að ferja ráð- herra á milli staða þar sem ekki voru aðrir kostir í boði. Ég þekki auk þess ekki til annars en að Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde fari vel með fé almenn- ings, þau hafa ekki tengst bruðli eða flottræfilshætti. En mér finnst þessi nýja lína að ferðast með einkaþotum ekki vera það sem ég vil sjá í íslenskri stjórnsýslu. Það sem ég vil sjá er að forustumenn okkar deili kjörum með alþýðunni en loki sig ekki af og taki þátt í að skapa umhverfi þar sem fólki er mismunað. Það er rík tilhneiging til slíkrar þróunar, það má m.a. nefna að til stóð að koma upp sérstakri hraðafgreiðslu og þar með sérmeðferð í löggæslu fyrir þá sem ferðast á Saga Class. Þetta er af- ar viðsjárverð þróun. Það er líka óvið- felldið að forseti Íslands ferðist í einkaþotu í boði fyrirtækja eins og komið hefur fyrir. Það væri reyndar sniðugt og gott for- dæmi hjá ríkisstjórninni að fara fram á það að opinberir embættismenn sem eru í embættiserindum og borga ekki flugfarið úr eigin vasa sitji ekki á Saga Class heldur í almennu farrými. Ég held reyndar að það sé stefna hjá Rík- isútvarpinu, það var alla vega stefnan þar á sínum tíma, það er áhugavert hvort það hefur breyst með HF- væðingu þeirrar stofnunar. Það hefur ekkert komið fram í frétt- um sem sannfærir mig um að þessi þotuleiga hafi verið skynsamleg og réttlætanleg og að svona ferðamáti sé það sem íslenskir ráðherrar eigi að nota í framtíðinni. Mér finnst mik- ilvægt að íslenskir ráðamenn minni sjálfa sig á að íslensk þjóð er ekki nema rúmlega 300 þúsund manns og þeir hegði sér eftir því og api ekki upp siði sem tíðkast hjá einhverjum hundr- að milljónaþjóðum þar sem fjarlægðin er óralöng milli ráðherra og almenn- ings. Í röksemdum er sagt: „Þá spör- uðust um 5 vinnudagar alls sem reikna megi á u.þ.b. 200 þúsund ... Meira: salvor.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR ELSA B. Frið- finnsdóttir, for- maður Félags ís- lenskra hjúkrun- arfræðinga og varaformaður BHM, segir það ekki rétt, sem fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær, að Félag ís- lenskra hjúkrun- arfræðinga hafi lengi knúið á um lækkun gjalda til BHM. Ákveðið var fresta frekari atkvæðagreiðslu á aðalfundi BHM sl. föstudag til að veita aðildarfélögum tækifæri til að taka afstöðu til mögulegra áhrifa sem tillaga sem samþykkt var um lækkun samningsgjalda felur í sér. Elsa bendir á að tillagan hafi komið frá Útgarði – félagi háskóla- manna og formaður BHM eigi sæti í stjórn þess félags. Bragi Skúlason, formaður Útgarðs, hafi sent tillög- una til stjórnar með viku fyrirvara. Hann hafi svo mælt fyrir henni á að- alfundinum og formaður Félags ís- lenskra náttúrufræðinga hafi einnig hvatt fundarmmenn til að greiða henni atkvæði. „Ég sagði ekki eitt einasta orð um þessa tillögu og það er rangt að Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga hafi lengi knúið á um lækkun gjalda,“ segir Elsa. 46 með, 13 á móti Fram hefur komið að óánægja sé innan BHM vegna tillögunnar en Elsa bendir á að á fundinum hafi 46 greitt atkvæði með samþykkt henn- ar en 13 voru á móti. ,,Því miður var mjög léleg mæting á þennan fund því þarna átti að taka fyrir mikil- væg mál eins og stefnuna til fram- tíðar. En það eru þarna félög sem mönnuðu ekki þau pláss sem þau áttu. Það kann vel að vera að þessi félög séu óánægð með þessa af- greiðslu en það er lítið við því að gera ef fólk mætir ekki á fundi þar sem ákvarðanir eru teknar,“ segir Elsa. Aðildargjöldin ekki eini tekjustofn bandalagsins Hún bendir einnig á að tekjur BHM koma ekki allar frá aðildar- gjöldum því bandalagið hafi líka tekjur af seldri þjónustu til sjóða fé- laganna. Aðildargjöldin séu u.þ.b. ¾ af tekjum bandalagsins. Ekki sé því rétt að tekjur BHM lækki um 25% við lækkun gjaldanna. Útgarður lagði til lækkunina Elsa B. Friðfinnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.