Morgunblaðið - 10.04.2008, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUSTURLAND
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
MARKAÐSVIRÐI notaðs TBM-
risabors eins og þess sem í gær lauk
heilborun aðrennslisganga Kára-
hnjúkavirkjunar gæti verið um 3
milljónir evra. Sveitarfélögin á Aust-
urlandi bíða nú úttektar sem verið er
að ljúka um fýsileika heilborunar
vegganga í Austfjarðafjöllum.
Til að bora veggöng með TBM2,
sem nú stendur í Jökulsárgöngum
Kárahnjúkavirkjunar og er í eigu
Impregilo, þyrfti að breyta þvermáli
krónunnar úr 7,2 m í 8,6 m. Viðbót-
arkostnaður við að breyta bornum
og gera upp gæti numið um 3 millj-
ónum evra. Impregilo bauð sem und-
irverktaki hjá Arnarfelli í gerð Héð-
insfjarðarganga og reiknaði þá með
að heilbora göng sem yrðu 9,2 m í
þvermál. Þversnið vegganga fer eftir
kröfum Vegagerðarinnar.
„Þetta er það öflugur bor að vel er
hægt að stækka krónuna,“ segir Jó-
hann Kröyer, sem hefur fyrir hönd
Landsvirkjunar haldið utan um heil-
borun Impregilo við Kárahnjúka-
virkjun frá upphafi. „Hann væri vel
nothæfur í að bora veggöng á Ís-
landi. Slíkt er þó spurning um for-
gangsröðum og pólitík. Til að svona
borar séu samkeppnishæfir þurfa
göngin að vera 4–6 km löng eða
meira og taka þyrfti í samfellu nokk-
ur göng í einu, þar sem hægt væri að
keyra borinn á spori frá einu fjalli til
annars. Svona tæki lætur maður
ekki standa á lager og bíða í nokkur
ár, þá fer þetta strax að ryðga.“
Það tekur ca. 1 ár að smíða risabor
samkvæmt pöntun. Þá tekur ein-
hverja mánuði að flytja hann til
landsins og um fjóra mánuði að setja
saman og stilla upp. Borarnir ganga
á sporum og brautin þarf að vera til-
tölulega bein og breið, því þeir geta
ekki borað í miklum halla né tekið
krappar beygjur.
Heilborun veg-
ganga möguleg
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Stopp! Gianni Porta, sem stjórnað hefur verkefnum Impregilo á Íslandi,
skipar borstjóra TBM2 að stöðva borinn eftir gegnumbrot í gær.
Egilsstaðir | Lárus Bjarnason,
sýslumaður á Seyðisfirði, veitti í vik-
unni tíkinni Codie viðtöku frá emb-
ætti ríkislögreglustjóra en hún er
fíkniefnaleitarhundur af Border Col-
lie-kyni.
Steinar Gunnarsson, yfirhunda-
þjálfari ríkislögreglustjóra og lög-
regluvarðstjóri, þjálfaði tíkina og fór
sú þjálfun að mestu fram á Austur-
landi. Steinar segir Codie afbragðs-
góðan fíkniefnaleitarhund, hún hafi
undirgengist mjög stranga og viða-
mikla þjálfun og sé vandlega valin úr
fjölda hvolpa á Englandi vegna
skapgerðar sinnar og eiginleika.
Þegar Steinar afhenti Lárusi sýslu-
manni tíkina á lögreglustöðinni á
Egilsstöðum í vikunni, lét hann
reyna á afbragðsgott þefskyn henn-
ar og þjálfun með því að koma fyrir
fíkniefnasmituðum ögnum á lög-
reglubifreið embættisins. Það tók
Codie aðeins örskotsstund að finna
þær eftir að hafa þefað af bílnum í
krók og kring. Að launum fékk hún
boltann sinn í kjaftinn.
Kaupin á Codie voru fjármögnuð
með gjafafé og komu m.a. Frímúr-
arar, Lions, Landsvirkjun, Fljóts-
dalshérað og opinberir aðilar að því.
Hún mun tilheyra tollgæslunni á
Seyðisfirði en verður notuð til fíkni-
efnaleitar jafnt fyrir lögreglu og toll,
m.a. á Egilsstaðaflugvelli og við
Norrönu á Seyðisfirði. Lárus segir
tollvörð verða fenginn austur til að
annast tíkina og þarf sá að undir-
gangast fjögurra mánaða þjálfun og
próf. Fíkniefnaleitarhundur er einn-
ig staðsettur í Fjarðabyggð og þjón-
ar lögreglu á Austurlandi öllu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Snögg Steinar Gunnarson lögregluvarðstjóri og yfirþjálfari fíkniefnahunda Ríkislögreglustjóra og Tollgæslu af-
henti Sýslumannsembættinu á Seyðisfirði nýjan fíkniefnahund í vikunni. Hér sýnir Codie listir sínar við leit.
Liðsauki gegn fíkniefnum
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Mér finnst þetta
frábært framtak hjá foreldrafélög-
unum í leikskólum Reykjanesbæj-
ar og mig langar til að þakka þeim
fyrir þetta ótrúlega átak. Þetta er
sannarlega til eftirbreytni fyrir
önnur bæjarfélög á landinu,“ sagði
Sigríður Björnsdóttir, annar stofn-
enda forvarnasamtakanna Blátt
áfram, á fræðslufundi með foreldr-
um leikskólabarna í Reykjanesbæ í
vikunni. Í leikskólunum er hafið
fræðsluátak um kynferðislegt of-
beldi gagnvart börnum. Foreldra-
félög leikskólanna níu í Reykja-
nesbæ hafa tekið sig saman um að
færa öllum leikskólabörnum að
gjöf bókina „Þetta eru mínir einka-
staðir“ sem kennir barninu að
þekkja líkama sinn og hvað sé við-
eigandi snerting og hvað ekki. Um
600 bækur voru afhentar í leikskól-
um bæjarins á miðvikudag en
kvöldið áður höfðu foreldrar setið
fræðslufund samtakanna Blátt
áfram. Fjölmörg fyrirtæki hafa
lagt verkefninu lið.
Sigríður Björnsdóttir tengdi
fræðslufundinn við sína eigin
reynslu af kynferðislegu ofbeldi og
gat því miðlað til foreldra hvaða
einkenni geta verið merki um kyn-
ferðislegt ofbeldi. Hún sagði mjög
nauðsynlegt fyrir alla foreldra að
vera vel vakandi yfir einkennum,
ekki bara hjá sínum eigin börnum,
heldur öllum börnum sem viðkom-
andi umgengst. „Það eru lög í land-
inu sem segja að við berum ábyrgð
á öllum börnum og það er mjög
mikilvægt að við stígum fram ef
ákveðin hegðum vekur grunsemd
eða grunur leikur á kynferðislegu
ofbeldi. Ég vildi að einhver hefði
gert það í mínu tilfelli,“ sagði Sig-
ríður.
Hátt hlutfall
barna sætir ofbeldi
Forvarnaverkefnið í leikskólum
Reykjanesbæjar miðar að því
kenna börnum að virða mörk sín og
segja nei. „Forvarnir snúast um
fræðslu og með því að fræða börnin
um hvað sé eðlileg snerting og
hvað ekki er líklegra að þau sporni
við því sem þeim finnst óþægilegt.
Með átaki sem þessu má minnka
kynferðislegt ofbeldi gagnvart
börnum,“ sagði Sigríður. Sigríður
nefndi að rannsóknir hefðu sýnt að
1 af hverjum 5 stúlkum yrði fyrir
kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára
aldur og 1 af hverjum 10 drengjum.
Þetta er um 17% barna og miðað
við fjölda barna undir 18 ára aldri í
Reykjanesbæ í dag gæti verið að í
kringum 500 börn hefðu sætt kyn-
ferðislegu ofbeldi í bæjarfélaginu.
Þetta fannst fundarmönnum slá-
andi tölur.
Góð fyrirmynd fyrir aðra
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Lestur Inga Jódís Kristjánsdóttir nemandi á leikskólanum skoðar hér
muninn á strák og stelpu í sínu eintaki af „Þetta eru mínir einkastaðir“
Í HNOTSKURN
»Um 600 leikskólabörn íReykjanesbæ fengu í gær
afhenta bókina „Þetta eru mín-
ir einkastaðir“ .
»Bókinni er ætlað að hjálpaöllum sem bera ábyrgð á
börnum að vernda þau fyrir
kynferðislegu ofbeldi.
»Reykjanesbær er fyrstabæjarfélagið til að hrinda
slíku átaki í framkvæmd. Fyrir
því standa foreldrafélög leik-
skólanna í bæjarfélaginu.
Fræðsluátak gegn
kynferðislegu of-
beldi hafið í leik-
skólum Reykja-
nesbæjar
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Sunnudagaskólabörn í
Reykjanesbæ fjölmenntu í Keflavík-
urkirkju síðastliðinn sunnudag til þess að
horfa á leiksýninguna „Við Guð erum vin-
ir.“ Hitaveita Suðurnesja bauð upp á leik-
sýninguna en með henni hófst sunnudaga-
skólinn að nýju í Keflavíkurkirkju eftir hlé
vegna ferminga og páska.
Það var Eggert Kaaber frá Stopp-
leikhópnum sem flutti leikritið og börnin
voru alveg með boðskapinn á hreinu, „þeir
sem hugsa bara um sjálfa sig getur ekki
liðið vel“. Aðalpersónan Óskar gerðist
nokkuð gráðugur þegar hann fékk tíu ósk-
ir í skiptum fyrir töfrasprota sem hann
fann og var í eigu dvergs nokkurs. Hann
óskaði sér alls kyns munaðar en gleymdi
þeim sem minna máttu sín eða áttu bágt.
Hann tapaði því öllum óskunum en iðr-
aðist og baðst fyrirgefningar á framferði
sínu.
Sýningin er byggð á sögu úr bókinni
„Við Guð erum vinir“ eftir Kari Vinje.
Hugsaði bara
um sjálfan sig
Morgunblaðið/Svanhildur
Leiklist Sunnudagaskólabörnin voru mjög
áhugasöm á leiksýningunni og fylgdust
vel með, enda höfðu þau boðskapinn á
hreinu
SUÐURNES