Morgunblaðið - 10.04.2008, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 25
MINNINGAR
✝ Soffía Thor-arensen fæddist
á Akureyri 26.
ágúst 1942. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
við Hringbraut 2.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Valdimar
Thorarensen, f. 26.
september 1910, d.
9. október 1974, og
Lára Hallgríms-
dóttir, f. 28. desem-
ber 1917, d. 24.
janúar 1973. Systkini Soffíu eru
Jakob Valdimar, f. 1937, Guðrún
Ólína, f. 1938, Júlíus, f. 1940,
Valdimar, f. 1944, Leifur, f. 1945,
Miriam, f. 1950, Lára, f. 1952,
Margrét, f. 1953 og Halla, f.
1958.
úr fyrra sambandi eru Marta
Sólrún, Tinna Dögg og Sólveig
Huld. 2) Ármann, tollvörður, f.
22. febrúar 1970, maki Klara E.
Finnbogadóttir, grunnskólakenn-
ari, börn þeirra Andri Hrafn og
Ísak Már. 3) Lára Guðleif, leið-
beinandi á leikskóla, f. 14. janúar
1973, maki Gunnar Magnússon,
starfsmaður hjá Vífilfelli, börn
þeirra Soffía Rún og Róbert Atli.
Soffía ólst upp í foreldrahúsum
á Akureyri. Hún og Kjartan hófu
búskap á Akureyri og bjuggu
þar meirihluta ævi Soffíu. Þau
bjuggu um tíma í Vestmanna-
eyjum. Haustið 1996 fluttu þau
til Reykjavíkur og hafa búið þar
síðan. Lengst af starfaði Soffía
hjá ullarverksmiðjunni Gefjun en
vegna veikinda hætti hún störf-
um sumarið 1996. Barnabörnin
voru hennar líf og yndi.
Soffía verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Soffía giftist 11.
nóvember 1967
Kjartani Tómassyni
múrara, f. í Vest-
mannaeyjum 28. júní
1945. Foreldrar
hans eru Elísabet
Sigurðardóttir, f. 3.
júlí 1925 og Tómas
Oddsson, f. 22. des-
ember 1925, fóst-
urfaðir Kjartans var
Sigurður Ármann
Höskuldsson, f. 19.
júní 1923, d. 8. sept-
ember 2005. Börn
Soffíu og Kjartans eru: 1) El-
ísabet (Bettý), leikskólakennari,
f. 19. október 1968, sambýlis-
maður Jón Örn Pálsson, sjáv-
arútvegsfræðingur, börn þeirra
Eva Mist Guðmundsdóttir og
Rakel Rán Jónsdóttir. Börn Jóns
Elsku mamma!
Með þessu ljóði kveð ég þig.
Sem ungu barni þú ruggaðir mér
í svefninn, með söng á vörum þér.
Svaf ég þá vel og svaf ég fast
því ég vissi, alla þína ást mér gafst.
Er erfitt ég átti þú studdir mig
kenndir mér hvernig á að virða sjálfan sig.
Vera góð og heiðarleg
muna það, virða hvar sem ég dvel.
Ólst mig upp með von í hjarta
mér til handa um framtíð bjarta.
Hamingjusöm ég á að vera
elskuleg móðir sem allt vill gera.
Með þessum orðum vil ég þakka þér
alla þá ást og umhyggju sem gafst þú mér.
Ég elska þig mamma og mun ávallt gera
vil ég þú vitir það hvar sem ég mun vera.
(Höf. ók.)
Far þú í friði.
Þín dóttir
Elísabet (Bettý).
Í dag kveðjum við yndislega konu
á besta aldri. Ég kynntist Soffíu fyrir
u.þ.b. 19 árum þegar ég fór að vera
með Ármanni syni hennar og rúm-
lega 1½ ári síðar flutti ég inn á heim-
ili þeirra Kjartans að Gránufélags-
götu 27. Þar var mér tekið opnum
örmum og fann ég aldrei annað en að
ég tilheyrði fjölskyldunni. Ég hef
alltaf dáðst að viljastyrk Soffíu og
þrautseigju. Þrátt fyrir mikil veik-
indi í gegnum árin kvartaði hún aldr-
ei eða barmaði sér. Soffía hjálpaði
okkur oft þegar sonur okkar, Andri
Hrafn, var lítill og var stöðugt lasinn.
Hún var alltaf tilbúin að passa og
honum leið vel hjá henni. Enda ekki
annað hægt þar sem Soffía hafði
mjög góða nærveru. Henni var mjög
umhugað um sína nánustu og ekki
síst barnabörnin og tók ævinlega upp
hanskann fyrir þau. Soffía var ákveð-
in og hafði skoðanir á hlutunum sem
hún var óhrædd að láta í ljós enda
fengum við stundum að heyra það
þegar henni fannst líða of langur tími
á milli þess sem við hefðum samband
eða létum sjá okkur.
Elsku Soffía, við munum öll sakna
þín en við reynum að hugga okkur við
að nú líður þér vel og ert laus við allar
þrautir. Eftir stendur minning um
góða konu sem mun fylgja okkur alla
tíð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem.)
Þín tengdadóttir,
Klara.
Lífið er svo skrýtið. Einn daginn
fer maður til ömmu sinnar og fær
páskaegg en þann næsta er hún dáin.
Amma var alveg yndisleg og alltaf
svo góð við okkur. Hún gerði allt fyr-
ir okkur, steikti til dæmis pönnukök-
ur og bakaði vöfflur ef við báðum
hana um og svo átti hún alltaf ísblóm
í frystinum.
Elsku amma við munum aldrei
gleyma þér. Takk fyrir að vera svona
hlý og góð.
Við áttum hér saman yndisleg ár
af þeim geislarnir skína.
Nú falla að lokum fjölmörg tár
á fallegu kistuna þína.
(D.Þ.)
Þínir ömmustrákar,
Andri Hrafn og Ísak Már.
Elsku systir! Nú er komið að
kveðjustund, þar sem þú ert farin
þangað sem okkur öllum er ætlað að
fara. Langar mig að minnast þín með
þessum orðum. Ég mun alltaf minn-
ast þín sem sterks persónuleika. Ég
leit alltaf upp til þín. Það mátti svo
margt af þér læra. Ég man er ég var
lítil stelpa og þú hjálpaðir mér að æfa
mig í að lesa upphátt. Ég átti að lesa:
einu sinni voru tófa og refur í greni,
en ég las: einu sinni voru tófa og ref-
ur í gæru. Ég man þú hlóst svo mikið
að tárin streymdu niður kinnarnar og
ég man að ég hló svo mikið sjálf. Það
kenndi mér að það má alveg hlæja að
mistökunum.
Svo er eitt sem ég mun alltaf
muna. Ég þurfti að leggjast inn á
sjúkrahús er ég var lítil og var
kannski ekki alveg sátt við það. Þú
áttir svo fallega dúkku sem þú keypt-
ir í Danmörku, ég man þú gafst mér
hana og sagðir: Hafðu hana með þér.
Það var mér svo mikil huggun. Þessu
mun ég aldrei gleyma. Þú komst alla
leið vestur þegar ég giftist honum
Sævari mínum. Líka þegar Eva
Soffía átti merkisafmæli og þegar
Ásta mín fermdist. Samt varst þú
ekki alltaf vel frísk. Þú tókst veik-
indum þínum með miklu æðruleysi.
Ég dáðist alltaf að því hvað heimilið
ykkar var hlýlegt og hve vel þú ann-
aðist börnin þín þrjú. Takk fyrir allar
stundirnar er ég heimsótti þig. Það
var alltaf svo notalegt. Þú bakaðir
bestu vöfflur í heimi. Ég veit þú varst
mjög trúuð. Við gátum rætt um það
oft og lengi. Ég veit að þú ert komin á
góðan stað, það hefur verið tekið vel
á móti þér. Elsku systir, takk enn og
aftur fyrir allt. Megir þú hvíla í friði
og Guð geymi þig.
Þín systir,
Halla.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um huga minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Soffía systir. Nú að leiðar-
lokum langar mig að kveðja þig með
örfáum minningarorðum og þakka
þér allar okkar góðu samverustund-
ir. Þú varst í mínum huga stóra góða
systirin en samt svo smágerð og
brothætt.
Ég minnist þess sem lítil stelpa
hvað ég hafði gaman af því að horfa á
þig punta þig fyrir böll og skemmt-
anir, hárið uppsett og vel greitt, kom-
in á háu hælana og tilbúin í fjörið. Ég
man vel þegar við fórum saman í bæ-
inn og þú gafst mér bláa fallega pilsið
sem ég valdi sjálf, einnig man ég sér-
staklega eftir dúkkunni stóru sem þú
gafst mér í afmælisgjöf gegn því skil-
yrði að ég næði henni niður af skápn-
um. Það tókst ekki átakalaust en
hafðist að lokum með þinni hjálp.
Lífið lék ekki alltaf við þig, þú
þurftir ung að fara úr landi í mikla
hjartaaðgerð og dvaldist lengi á
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Biðin
eftir heimkomu þinni var löng en
þegar von var á þér í desember sagði
mamma að heimkoma þín og bætt
heilsa væri stærsta og besta jólagjöf-
in okkar allra.
Snemma kynntist þú Kjartani þín-
um og þið hófuð búskap í litlu snyrti-
legu íbúðinni ykkar í Gránufélags-
götunni á Akureyri. Þangað var gott
að koma og þiggja hjá þér góð ráð og
fylgjast með tveimur elstu börnunum
ykkar sem fæddust þar.
Um tíma bjugguð þið í Vestmanna-
eyjum þar sem þriðja barnið bættist í
hópinn ykkar. Eftir gosið í Eyjum
fluttuð þið til Akureyrar og bjugguð
þar til ársins 1996 er þið fluttust til
Reykjavíkur.
Þinn góði maður Kjartan var fest-
an í þínu lífi og var vakinn og sofinn
yfir velferð þinni alla tíð, sérstaklega
reyndi á þetta síðustu árin þegar
veikindi þín ágerðust og reyndist
Kjartan þá eins og alltaf frábær eig-
inmaður og félagi. Gæfan í ykkar lífi
var að eignast elskulegu börnin ykk-
ar, Bettý, Ármann og Láru. Öll hafa
þau, ásamt tengdabörnunum, reynst
ykkur mjög vel og ekki má gleyma
gullmolunum þínum, barnabörnun-
um sex, sem þú varst svo stolt af og
veittu þér mikla ánægju og gleði.
Nú við leiðarlok þakka ég okkar
samverustundir og þakka þinn
stuðning við mig og mína fjölskyldu
alla tíð. Ég er þakklát fyrir að hafa
getað kvatt þig og verið hjá þér síð-
ustu stundirnar. Ég veit að það hefur
verið tekið vel á móti þér í nýjum
heimkynnum og óska þér Guðs bless-
unar með hjartans þökk fyrir allt og
allt.
Elsku Kjartan, börnin ykkar,
tengdabörn og aðrir aðstandendur,
fjölskylda mín sendir ykkur bestu
samúðarkveðjur og við biðjum um
styrk ykkur til handa. Sameiginlega
geymum við allar góðu minningarnar
um Soffíu og varðveitum þær vel í
hjörtum okkar.
Margrét systir í Þorlákshöfn.
Soffía ThorarensenBréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
LISTADAGAR barna og ungmenna
í Garðabæ verða haldnir í þriðja sinn
dagana 9.-12. apríl.
Að þessu sinni er þema hátíð-
arinnar Náttúran – Umhverfið. Allir
skólar í Garðabæ taka þátt í listadög-
um, þ.e. leik-
skólar, grunn-
skólar,
Tónlistarskóli
Garðabæjar og
Fjölbrautaskól-
inn í Garðabæ.
Dagskrá lista-
daga er mjög fjöl-
breytt og hefur
unga fólkið unnið
hörðum höndum
síðustu mánuði
við undirbúning hátíðarinnar. Dag-
skráin fer fram víðs vegar um bæinn,
m.a. í skólunum, í sundlaug Garða-
bæjar, í Jónshúsi, í Vídalínskirkju, á
Bókasafni Garðabæjar, í Hönn-
unarsafni Íslands og ýmsum fyr-
irtækjum í bænum. Sérstök ástæða
er til að vekja athygli á menning-
argöngu á milli útilistaverka bæj-
arins sem farin verður nk. laugardag
kl. 13.
Tilgangurinn með listadögunum er
að vekja athygli á því listræna starfi
sem fer fram í skólum bæjarins og að
gefa börnum og ungmennum færi á
að koma verkum sínum á framfæri.
Í Garðabæ er lögð áhersla á fram-
sækið og metnaðarfullt menningar-
starf í þágu barna og ungmenna og
að bærinn sé í fremstu röð á því sviði.
Unnið er markvisst að því að styrkja
listnámsgreinar á öllum skólastigum.
Með tilkomu Hönnunarsafns Íslands
í Garðabæ hefur ennfremur verið
lögð áhersla á að auka þátt hönnunar
og frumkvöðlastarfs í skólastarfi og
um leið að efla samvinnu bók- og list-
námsgreina. Ráðinn hefur verið
kynningarfulltrúi iðnhönnunar sem
vinnur í samstafi við skóla að aukn-
um áherslum á hönnun og listsköpun.
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er
sérstök listnámsbraut þar sem unnið
er gífurlega metnaðarfullt starf og
lagður grunnur að frekara listnámi í
sérskólum.
Með listadögum eflist samstarf
milli stofnana og skóla sem og milli
ólíkra listgreina.
Skólar hafa einnig myndað tengsl
við fyrirtæki í bænum og á listadög-
um verða haldnar sýningar á verkum
nemenda í fyrirtækjum og stofn-
unum.
Bæjarbúar eru hvattir til að taka
þátt í Listadögum barna og ung-
menna og kynna sér það mikla og
metnaðarfulla starf sem unnið er í
skólum í Garðabæ á sviði lista. Þeir
eru velkomnir á alla viðburði lista-
daganna. Nánari upplýsingar um
dagskrá má finna á vef Garðabæjar:
www.gardabaer.is.
JÓNA SÆMUNDSDÓTTIR,
formaður menningar- og safna-
nefndar Garðabæjar.
Listadagar barna og
ungmenna í Garðabæ
Frá Jónu Sæmundsdóttur
Jóna
Sæmundsdóttir
GESTUR Gunnarsson segir í pistli
í Morgunblaðinu 31. mars að
heyrst hafi raddir um að hiti sé
2-4°C
lægri á Hólmsheiði en í Vatns-
mýri. Ef Gestur er þarna að vísa til
greinar minnar í Morgunblaðinu
23. mars hefur hann misskilið hana.
Ég giskaði þar á að sá hitamunur
væri 2 stig í vetrarmánuðunum
nóvember-mars. Beinn sam-
anburður mælinga er ekki ennþá
til, en á Hólmi sunnan Hólmsheiðar
var 1,2 stigum kaldara en í Vatns-
mýri í nóvember-mars áratuginn
1964-1973. Hæðarmunur Hólms og
Vatnsmýrar er 74 metrar. Hólms-
heiði er svo 43 metrum hærri en
Hólmur, svo að eftir grófum hlut-
fallsreikningi ætti að vera þar 1,9
stigum kaldara en í Vatnsmýri.
Þetta þýðir að hvenær sem hiti í
Vatnsmýri er 2-4 gráður að vetr-
arlagi þegar lægð er að nálgast er
þar gjarnan rigning og lending-
arfært, en snjókoma og slæmt
skyggni í 0-2ja stiga hita á Hólms-
heiði á sama tíma.
Hugleiðingar Gests um að með-
alskýjahæð á Hólmsheiði sé 450
metrar eru hæpnar og segja auk
þess ósköp lítið um hversu oft sé
þar lendingarfært fyrir flugvélar.
En sé sama skýjahæð yfir sjó á
báðum stöðum liggja skýin auðvit-
að 117 metrum lægra yfir Hólms-
heiði en Vatnsmýri. Það veldur
verulegum mun á þessum tveimur
valkostum þar sem 65 metra (200
feta) skýjahæð yfir flugvelli nægir
til lendingar.
PÁLL BERGÞÓRSSON,
fv. veðurstofustjóri.
Meira um hita
á Hólmsheiði
Frá Páli Bergþórssyni
ÉG skora á landsmenn að safna til að
kaupa stóra borinn af Ítölunum, þann
síðasta sem er að klára við Kára-
hnúka. Það eru svo margar stór-
framkvæmdir sem þjóðin þarf að
framkvæma næstu árin, þær gíf-
urlegu framfarir sem eru. Ef ég byrj-
aði nú þar sem næst mér er þá dettur
mér fyrst í hug Sundabraut alla leið
upp á Kjalarnes, Öskjuhlíðin í staðinn
fyrir götuna sem ætlað er að komi
sunnan við kirkjugarðinn í Fossvog-
inn. Úr Örfirisey undir höfnina að
Sæbraut. Undir Hellisheiði frá Geit-
hálsi að Hveragerði, Fróðárheiði,
Brattabrekka, nær öll fjöllin á Vest-
fjörðum, Holtavörðuheiði, Vatns-
skarð, Vaðlaheiði, Hellisheiði eystri,
flest fjöll á Austfjörðum, Öxi eða Axl-
arfjall í Lón, Lónsheiði, Reynisfjall í
Mýrdal.
Þetta eru svo miklar framhvæmdir
að nægja mun langt fram á öldina.
Kannski finnst mörgum þetta fjar-
stæðukennt, en höfum þá í huga að
þetta má gerast á svo mörgum árum
að þjóðin fyndi minna fyrir því. Svo
eru alls konar punktar sem koma sem
tekjur á móti: Styttri leiðir með til-
heyrandi orkusparnaði; millj-
arðasparnaður í öðrum vegafram-
kvæmdum fyrir vegagerðina; minni
vandræði á vetrum vegna snjóruðn-
ings og örugglega björgun margra
mannslífa vegna öruggari ferðamáta.
Þetta yrði örugglega ein besta fjár-
festingin sem þjóðin hefði lagt í.
KARL JÓHANN ORMSSON,
fv. deildarfulltrúi.
Reynum að kaupa
stóra borinn
Frá Karli Jóhanni Ormssyni
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar