Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 110. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
HÁRLOSIÐ BURT!
ÞAÐ ER GEFANDI AÐ AUKA LÍFSGÆÐI
FÓLKS, HÁRSEKK FYRIR HÁRSEKK >> 18
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÞRJÁTÍU Íslendingar voru 100 ára og eldri
hinn 1. janúar síðastliðinn. Á sama tíma voru
jafnmargir 99 ára. Aldrei höfðu fleiri Íslend-
ingar náð 99 ára aldri en í fyrra og því gætu
óvenju margir náð því að verða 100 ára í ár,
eins og Jónas Ragnarsson bendir á á vef sín-
um, www.langlifi.net. Í Morgunblaðinu hafa
m.a. birst undanfarið viðtöl við hvern 100
ára öldunginn á fætur öðrum sem ber ald-
urinn vel og er hress til orðs og æðis.
Í byrjun þessa árs höfðu 11 Íslendingar
náð 100 ára aldri og jafnmargir voru 101 árs,
fjórir voru 102 ára, tveir 103 ára, einn 104
ára og einn 105 ára. Kristín Guðmunds-
dóttir, sem var elst Íslendinga í ársbyrjun,
105 ára, lést 8. janúar síðastliðinn. Nú er
Þuríður Samúelsdóttir í Reykjavík, sem
fæddist 19. júní 1903 í Strandasýslu, elst Ís-
lendinga, 104 ára að aldri. Af tíu elstu Ís-
lendingum sem voru á lífi 1. mars síðastlið-
inn var aðeins einn karl, Sigsteinn Pálsson í
Mosfellsbæ. Hann fæddist 16. febrúar 1905
á Fáskrúðsfirði og er því 103 ára.
Íslenskir karlar elstir í heiminum
Íslenskir karlar verða nú karla elstir í
heiminum, 79,4 ára, að því er fram kemur á
vef Hagstofunnar. Karlar í Hong Kong eru í
öðru sæti, Japanir í því þriðja, Svíar í fjórða
og Svisslendingar í fimmta sæti samkvæmt
vefnum um langlífi.
Íslenskar konur geta vænst þess að verða
82,9 ára en japanskar konur lifa kvenna
lengst og er meðalævilengd þeirra nú 86 ár.
Lengi voru lífslíkur íslenskra kvenna hærri
en kynsystra þeirra af öðru þjóðerni. Nú lifa
konur meðal nokkurra annarra þjóða að
meðaltali lengur en íslenskar konur. Næst á
eftir japönskum konum ná konur í Taívan
mestri ævilengd, þá á Spáni, í Sviss, Hong
Kong og San Marínó. Sé horft til Norður-
landanna sérstaklega er ævilengd kvenna
litlu minni en íslenskra kynsystra þeirra, að
undanskildum dönskum konum. Danskar
konur geta vænst þess að verða 80,3 ára en
danskir karlar 75,4 ára gamlir.
Dregið hefur saman með kynjunum hér á
landi hvað meðalævilengd varðar. Á 7. og 8.
áratug 20. aldar var um sex ára munur á
meðalævilengd íslenskra karla og kvenna.
Nú er munurinn einungis 3,6 ár. Svipuð þró-
un hefur orðið annars staðar í Evrópu, ekki
síst á Norðurlöndum. Þessi munur er nú 4,4
ár í Svíþjóð þar sem minnstu munar utan Ís-
lands á ævilengd kynjanna.
Met í aldar-
afmælum
Dregur saman með
ævilíkum kynjanna
Morgunblaðið/ÞÖK
Langlífi Íslendingar geta vænst þess að
lifa lengur en fólk af flestu öðru þjóðerni.
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FORSVARSMENN Samvinnutrygginga ehf.
ásamt tengdum hluthöfum í Icelandair Group
hf. hafa leitað eftir því við erlend flugfélög að
þau kaupi allt að 35% hlut í Icelandair fyrir um
8,5 milljarða króna.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hefur Glitnir tekið að sér að hafa milligöngu um
söluna.
Samvinnutryggingar ehf. eiga þriðjung hluta-
fjár í Langflugi ehf. sem er stærsti hluthafinn í
Icelandair, með 23,8% hlut. Finnur Ingólfsson á
2⁄3 hluta Langflugs ehf.
Annar stærsti hluthafi Icelandair er Fjárfest-
ingarfélagið Máttur ehf. sem er að 49% hlut í
eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu og 49% í
eigu Einars Sveinssonar og fjölskyldu. Gunn-
laugur Sigmundsson, stjórnarformaður Ice-
landair, á um 2% í Mætti. Karl Wernersson á
einnig félagið Naust ehf. sem á 14,8% í Iceland-
air.
Buðu SAS að kaupa 30%
Aðrir stórir hlutir í Icelandair eru í eigu Óm-
ars Benediktssonar í félaginu Urði ehf., sem á
5,55%, og Glitnir banki á 4,11% í Icelandair.
Samtals eiga því eigendur Langflugs, Urður
ehf. og Glitnir banki tæp 35%, en það munu vera
þeir hlutir sem Glitnir hefur nú til sölumeðferð-
ar.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hófust þreifingar eftir áramót í hópi ákveðinna
hluthafa Icelandair með þeim hætti að SAS var
ritað bréf, þar sem kannað var hvort áhugi væri
hjá skandinavíska flugfélaginu á að koma inn í
Icelandair með hlut á milli 25% og 30%. Engin
niðurstaða varð hins vegar af þeim þreifingum.
Það var svo fyrir skömmu að forsvarsmenn
Samvinnutrygginga hófu á ný könnun á því,
hvort erlent flugfélag eða erlend flugfélög hefðu
áhuga á því að kaupa stóran hlut í félaginu með
milligöngu Glitnis. Ekki liggur fyrir niðurstaða í
þeim könnunum, enn sem komið er, en sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa und-
irtektir erlendra flugfélaga verið fremur dræm-
ar.
Vilja selja allt að 35% í Icelandair
Samvinnutryggingar ehf. og tengdir hluthafar leita eftir erlendum
kaupendum að hlut sínum í Icelandair Glitnir hefur milligöngu um söluna
ALÞJÓÐLEGA lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings segir í nýrri
skýrslu um Ísland að tímanlegar og ákveðnari aðgerðir af hálfu hins
opinbera en hingað til hafi verið greint frá geti aukið tiltrú, án þess
að stofna lánshæfi hins opinbera í hættu.
Norski olíusjóðurinn hefur fjárfest fyrir yfir 60 milljarða króna í
íslenskum ríkis- og fyrirtækjaskuldabréfum. Íslenskir bankamenn
hafa sagt að sjóðurinn hafi tekið þátt í að stuðla að verulegri hækk-
un skuldatryggingarálags íslensku bankanna. Talsmenn sjóðsins
vildu í gær ekki tjá sig um þær fullyrðingar.
Hlutabréf lækkuðu almennt í kauphöllinni á Íslandi í gær eins og
víðast hvar annars staðar í heiminum en hlutabréfavísitölur lækk-
uðu í flestum kauphöllum í Asíu, Evrópu og Ameríku. | 13
Fitch vill ákveðnari
aðgerðir ríkisins
Norðmenn með yfir 60 milljarða
Fló á skinni >> 37
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
Nýtt orð
yfir kaffitímann
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
19
15
0
4
/0
8
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra sagði eftir við-
ræður við Mahmoud Abbas, for-
seta Palestínumanna, í gær að hún
hefði skipað Þórð Ægi Óskarsson
sendiherra sérstakan sendifulltrúa
í málefnum Palestínumanna. Mun
hann hafa aðsetur á Íslandi en fara
reglulega í heimsókn til svæðisins
og að sögn ráðherra verða ígildi
sendiherra í Palestínu.
„Í öðru lagi þá var um það rætt
hvort við gætum látið þessi mál til
okkar taka, m.a. með því að bjóða
saman palestínskum þingmönnum
og ísraelskum hingað til lands til að
eiga viðræður og tala líka við ís-
lenska stjórnmálamenn.“ Aðspurð
sagði Ingibjörg nokkra sérþekk-
ingu á málefnum Mið-Austurlanda
þegar vera fyrir hendi í ráðuneyt-
inu.
Palestínusamskipti efld
Ráðherra skipar
sérlegan sendi-
fulltrúa Íslands
Morgunblaðið/Frikki
Fundur Saeb Erekat, Mahmoud Abbas og Ólafur Ragnar Grímsson á Bessastöðum í gær. Ísland getur | Miðopna