Morgunblaðið - 23.04.2008, Side 2
Í HNOTSKURN
»Elsa Björk Valsdóttir ermeð sérfræðipróf í almenn-
um skurðlækningum frá
Dartmouth-háskóla í New
Hampshire-ríki.
»Hún er nú að ljúka sérnámi ískurðlækningum neðri
hluta meltingarvegar við
Lankeanu Hospital and
Institute for Medical Research í
Fíladelfíu í Pennsylvaníu-ríki.
»Elsa Björk mun starfa áLandspítalanum í sumar í
afleysingum.
ÍSLENSKUR skurðlæknir í sérnámi
í Bandaríkjunum, Elsa Björk Vals-
dóttir, vakti athygli á nýafstöðnu árs-
þingi samtaka
meltingarfæra-
skurðlækna (Soc-
iety of American
Gastrointestinal
Endoscopic
Surgeons) í Fíla-
delfíu þar sem
hún flutti erindi
um aðgerðir við
krabbameini í
ristli og enda-
þarmi með speglunarbúnaði í stað
hefðbundinna skurðaðgerða. Rann-
sóknir Elsu Bjarkar sýna að hægt er
að nýta þessa tegund aðgerða fyrir
enn fleiri sjúklingahópa en áður hefur
verið talið fært, s.s. sjúklinga með
krabbamein neðarlega í endaþarmi.
Hingað til hefur varanlegt stóma, þ.e.
þegar endaþarmur er fjarlægður og
endinn á ristlinum leiddur út um op á
maganum, verið einn af fáum með-
ferðarmöguleikum fyrir slíka sjúk-
linga.
Aðspurð segir Elsa Björk smásjár-
speglunaraðgerðir um endaþarm
vera nýja tegund skurðaðgerða sem
fyrst hafi komið fram á sjónarsviðið í
Þýskalandi fyrir rúmum 20 árum.
Segir hún aðgerðina mun útbreiddari
í Evrópu en Bandaríkjunum en það
hafi verið að breytast á sl. fimm árum
enda menn orðnir meðvitaðri um
kostina.
Búnaðurinn ekki til hérlendis
„Fram að þessu hefur þessi aðgerð
verið notuð við sjúkdómum í enda-
þarmi, s.s. til að fjarlægja sepa eða
æxli, en rannsóknir sýna að líka er
hægt að nota hana á sjúklinga sem
lokið hafa geislameðferð,“ segir Elsa
Björk og tekur fram að kostur þess-
arar tegundar aðgerða sé að hægt er
að gera staðbundið brottnám á æxl-
um og koma þannig í veg fyrir stóra
og sársaukafulla kviðskurði. „Þetta
er því mun minna inngrip sem þýðir
að sjúklingar sem fara í aðgerð um
endaþarm þurfa minna af verkjalyfj-
um eftir aðgerð, komast mun fyrr
heim af spítala og fljótar aftur til
sinna daglegu starfa,“ segir Elsa
Björk og tekur fram að eftir svona
aðgerð geti sjúklingar farið heim
samdægurs en þeir sem fari í opna
kviðarholsaðgerð þurfi oft að liggja á
spítala í fimm til sjö daga.
Aðspurð segir Elsa Björk þann
búnað sem aðgerðirnar krefjist ekki
vera til hérlendis. Bendir hún á að
vissulega sé einhver stofnkostnaður
fólginn í því að kaupa tækin og þjálfa
upp starfsfólk en hins vegar sparist
mikið í fækkun legudaga. „Til langs
tíma litið myndi þetta því koma mun
betur út, bæði fyrir heilbrigðiskerfið
og sjúklingana sjálfa.“
Fækka mætti legudögum til muna
Nýjar rannsóknir íslensks skurðlæknis á aðgerðum við krabbameini í ristli og endaþarmi með
speglunarbúnaði vekja athygli á ársþingi samtaka meltingarfæraskurðlækna í Bandaríkjunum
Elsa Björk
Valsdóttir
!
! " # $%
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
SKULDIR heimilanna í bankakerf-
inu jukust um 47 milljarða í síðasta
mánuði, þar af jukust skuldir heim-
ilanna í erlendum gjaldmiðlum um
39 milljarða. Þetta kemur fram í töl-
um sem Seðlabankinn birti í gær.
Heimilin skulduðu um síðustu
mánaðamót 928,4 milljarða í banka-
kerfinu, en mánuði áður námu skuld-
irnar 881,6 milljörðum. Í lok mars
skulduðu heimilin 203 milljarða í er-
lendri mynt, en 164,2 milljarða mán-
uði áður.
Meira en tvöföldun erlendra
lána á einu ári
Erlendar skuldir heimilanna juk-
ust um 23,8% í mars. Þessi mikla
aukning skýrist fyrst og fremst
vegna gengisfalls krónunnar, en
gengið féll mjög mikið í kringum
páskana. Við gengisfallið hækkaði
höfuðstóll lánanna. Skuldir heimil-
anna í erlendri mynt hafa aukist um
109 milljarða á einu ári, farið úr 94
milljörðum í 203 milljarða.
Yfirdráttarlán heimilanna hækk-
uðu einnig, fóru úr 72,2 milljörðum í
76,9 milljarða. Yfirdráttarlán eru
dýrustu lán sem hægt er að taka, en
vextir af þeim eru um 25%. Hluti af
lánum sem flokkuð eru sem yfir-
dráttarlán er lán hjá kortafyrirtækj-
um sem ekki bera vexti. Ef þessar
skuldir eru dregnar frá nema vextir
sem heimilin voru að borga af yfir-
dráttarlánum yfir 1,2 milljörðum
króna í marsmánuði.
Ekki juku þó öll heimili skuldir
sínar í mars því innistæður heimil-
anna í bönkunum jukust um 16 millj-
arða í mánuðinum. Þær nema núna
561,7 milljörðum.
Innistæður erlendra aðila
tvöfaldast á einu ári
Seðlabanki Íslands vekur athygli á
því að innistæður erlendra aðila hjá
íslenskum innlánsstofnunum hafa
tvöfaldast á einu ári og var heildar-
innistæða þeirra í mars síðastliðnum
rúmlega 1.364 milljarðar króna.
Þessi aukning hefur þó ekki verið
mikil allra síðustu mánuði, en hún
var langmest síðastliðið sumar og
haust.
Skuldir heimila jukust um
47 milljarða í marsmánuði
Skuldir heimilanna í erlendri mynt hafa aukist um 109 milljarða á einu ári
2 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ENGAN sakaði þegar eldur kom
upp í íbúðarhúsi við Skúlaskeið í
Hafnarfirði í gærkvöld. Þegar
slökkvilið kom á vettvang var tölu-
verður eldur á annarri hæð hússins
en samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
gekk slökkvistarfið afar vel. Húsið
var mannlaust.
Tilkynning um brunann barst til
slökkviliðs um kl. 20.15 og voru
slökkviliðsmenn komnir á staðinn
skömmu síðar. Fjórir reykkafarar
voru þegar í stað sendir inn til að
athuga hvort einhverjir væru í hús-
inu. Eftir að þeir höfðu leitað af sér
allan grun hófst slökkvistarf af
fullum krafti og tók ekki langan
tíma að ráða niðurlögum eldsins.
Þrátt fyrir snör handtök eru
skemmdir af völdum elds og reyks
töluverðar.
Eldsupptök eru ókunn og lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu fer
með rannsókn málsins.
Eldur
kom upp í
íbúðarhúsi
Morgunblaðið/Golli
Aðgerðum lokið Slökkviliðsmenn
voru fljótir að ná tökum á eldinum.
SVEITARSTJÓRN Flóahrepps
verður í dag afhentur listi með nöfn-
un 216 íbúa í hreppnum sem skora á
sveitarstjórnina að endurskoða
ákvörðun sína um að setja Urriða-
fossvirkjun á aðalskipulag hrepps-
ins. Í Flóahreppi eru 424 íbúar 18
ára og eldri og því meirihlutinn sem
er á móti virkjuninni.
Sveitarstjórn Flóahrepps sam-
þykkti samhljóða á fundi sínum 14.
nóvember sl. að auglýsa tillögu að
aðalskipulagi þar sem gert er ráð
fyrir Urriðafossvirkjun. Samþykktin
var byggð á þeim forsendum að stað-
aráhætta við Þjórsá vegna hugsan-
legra flóða stenst viðmið sem gefin
eru í reglugerð um hættumat vegna
ofanflóða.
Margir á
móti virkjun
♦♦♦
STURLA Jónsson talsmaður at-
vinnubílstjóra segir sína menn ekki
sátta við framgöngu lögreglu-
manna vegna mótmæla bílstjóra
sem fram fóru við Bessastaði í gær.
Mótmælin voru friðsamleg en eigi
að síður er mikill kurr í bílstjórum.
„Lögreglumenn lágu í leyni á bak
við litað gler í lögreglubílum og
tóku myndir í gegnum rúðurnar
eins og við værum stórglæpamenn.
Það var andstætt því sem talað
hafði verið um þegar við sögðum
lögreglunni frá fyrirætlunum okk-
ar í gær. Það var talað um að mót-
mælin færu fram í sátt og sam-
lyndi.“
Sturla var með áberandi höfuðfat
í tilefni fundarins við Bessastaði
meðan hann ræddi við lögreglu-
mennina í gær.
Bílstjórar ósáttir við framgöngu lögreglunnar við Bessastaði í gær
Mikill
kurr í bíl-
stjórum
Morgunblaðið/Júlíus