Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„ÉG tel nægilegt að um-
rædd tillaga meirihluta
stjórnar Orkuveitunnar
verði samþykkt á stjórn-
arfundi enda er um að
ræða útfærslu á því sem
ákveðið var á eigendafundi
fyrir skömmu. Ef fram
kemur krafa um að sér-
stakur eigendafundur
verði haldinn til að af-
greiða slíka tillögu er
sjálfsagt að skoða það til
að tryggja sem víðtækasta sátt um málefni
REI,“ segir Kjartan Magnússon, stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og
Reykjavik Energy Invest (REI).
Vísar Kjartan þar til nýlegrar tillögu
meirihluta stjórnar OR þess efnis að gerð
verði úttekt á verkefnum REI og verðmat á
verkefnum þess með það fyrir augum að fyr-
irtækið geti einbeitt sér að ráðgjöf og þróun-
arverkefnum en hugað að sölu á þeim verk-
efnum sem ekki falla undir þá starfsemi.
Eins og fram hefur komið telur minnihluti
stjórnar að tillöguna þurfi að ræða á eig-
endafundi OR þar sem hún gangi í berhögg
við samþykkt eigendafundar OR frá febrúar
sl. þar sem eigendur samþykktu að REI ætti
áfram að vera í 100% eigu OR og áfram rek-
ið með það hlutverk að sinna þróunar- og
fjárfestingarverkefnum á erlendri grund.
Aðspurður hversu hátt hlutfall verkefna
REI sé einvörðungu fjárfestingarverkefni
segir Kjartan að verið sé að fara yfir verk-
efni fyrirtækisins og meta þau. „Öll verkefni
REI eru fjárfestingarverkefni í þeim skiln-
ingi að komist þau á framkvæmdastig þarf
utanaðkomandi fjármagn til þeirra. Þótt
REI losi sig við áhættu í einstökum verk-
efnum er vel mögulegt að fyrirtækið taki
þátt í þeim áfram með sölu á ráðgjöf eða
verkefnisstjórn. Það sem skiptir mestu máli
er að núverandi meirihluti borgarstjórnar
hefur ekki í hyggju að taka tugmilljarða
króna úr vösum Reykvíkinga og annarra
notenda Orkuveitunnar og verja þeim til
áhættufjárfestinga á viðsjárverðum mörk-
uðum,“ segir Kjartan.
Stefnan að lágmarka áhættu
Aðspurður segir Kjartan verkefni REI
vera mörg og mislangt á veg komin. „Verk-
efnið í Djíbútí er það verkefni sem lengst er
komið og þar stendur hagkvæmnisathugun
fyrir dyrum. REI tekur þátt í þeirri hag-
kvæmnisathugun ef hægt verður að tryggja
að stærstur hluti kostnaðar við hana komi
frá erlendum fjárfestum. Þátttaka í verkefn-
inu grundvallast á þeirri stefnu að lágmarka
áhættu REI án þess að spilla þeim verðmæt-
um sem kunna að vera fyrir hendi í ein-
stökum verkefnum.“
Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur telur nægilegt að nýleg tillaga meirihlutans um REI
verði einvörðungu rædd á stjórnarfundi OR Segir öll verkefni REI vera fjárfestingarverkefni
Kjartan
Magnússon
Vill tryggja víðtæka sátt um málefni REI
FYRSTI fundur bæjarstjórnar Kópa-
vogs í nýjum fundarsal á 1. hæð í Fann-
borg 2 var haldinn í gær.
Kópavogur varð kaupstaður að lögum
11. maí 1955. Björn Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri tómstunda- og menning-
arsviðs og áður bæjarritari til margra
ára, rifjar upp að fastur fundarstaður
Kópavogskaupstaðar hafi verið í barna-
skólanum í Kópavogi eða öðru nafni
Kópavogsskóla við Digranesveg. Skól-
inn hafi verið helsti samkomustaðurinn í
bænum og þar hafi til dæmis verið bóka-
safn og haldnar messur. Fundirnir hafi
verið þar með örfáum undantekningum
til 1960, þegar þeir hafi verið fluttir í
nýbyggt félagsheimili Kópavogs við
Fannborg. Þar hafi þeir verið haldnir
ýmist á 1. eða 2. hæð og nú sé fundar-
staðurinn væntanlega til framtíðar. Morgunblaðið/RAX
Bæjarstjórn
Kópavogs
fundar í
nýjum sal
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
frá 3. apríl sl., þar sem Pétur Guð-
geirsson héraðsdómari kvað á um að
hann ásamt héraðsdómurunum Ás-
geiri Magnússyni og Sigríði Ólafs-
dóttur viki sæti í máli ákæruvaldsins
á hendur pilti á tvítugsaldri sem
ákærður var fyrir alvarlegt kynferð-
isbrot. Sömu dómarar sýknuðu pilt-
inn í júlí á sl. ári en Hæstiréttur
ómerkti dóminn og vísaði honum til
aðalmeðferðar og dómsálagningar í
héraði að nýju.
Málið var höfðað á hendur piltinum
vegna gruns um að hann hefði nauðg-
að ungri konu í kjallara Hótel Sögu í
mars á sl. ári. Fjölskipaður héraðs-
dómur sýknaði piltinn, m.a. á þeirri
forsendu að atburðarásin gæti ekki,
hlutrænt séð, talist ofbeldi í skilningi
laganna. Konan veitti ekki mótspyrnu
og bar því við að hafa verið skelfingu
lostin. Pilturinn sagði samræðið hafa
verið með vilja konunnar.
Hæstiréttur ómerkti dóminn, m.a.
á þeirri forsendu að ályktun héraðs-
dóms um lögskýringuna gæti ekki
staðist í ljósi dómaframkvæmdar.
Í andstöðu við stjórnarskrá
Héraðsdómararnir töldu sig ekki
getað fjallað um málið að nýju, undir
þeim skilmálum sem Hæstiréttur
setti með dómi sínum. Töldu þeir að í
ummælum Hæstaréttar mætti finna
fyrirmæli til dómara málsins um að
álykta á tiltekinn veg. „Hlýtur íhlutun
af þessu tagi að vera í andstöðu við 70.
gr. stjórnarskrárinnar þar sem
tryggður er réttur manns til þess að
fá fjallað um ákæru á hendur honum
fyrir óháðum og óhlutdrægum dóm-
stóli,“ segir m.a. í úrskurði héraðs-
dóms.
Hæstiréttur felldi eins og áður seg-
ir úrskurð héraðsdóms úr gildi og
segir í m.a. í dómi réttarins að þær
ástæður sem færðar eru í úrskurði
héraðsdóms varði í engu hæfi dóm-
endanna til að fara með málið. Hins
vegar er það ekki á færi Hæstaréttar
að leggja fyrir tiltekna dómara að
fara með málið, heldur dómstjóra.
Dómarar Hæstaréttar voru og
ekki sérlega ánægðir með orðaval
Péturs í úrskurði sínum og segir m.a.
í dómi réttarins: „Í hinum kærða úr-
skurði eru ummæli, sem varða dóm
Hæstaréttar 14. febrúar 2008 [...], en
þar var ómerktur dómur áður-
nefndra héraðsdómara í máli ákæru-
valdsins gegn varnaraðila. Slík um-
mæli eiga ekkert erindi í
dómsúrlausn og ber að átelja héraðs-
dómarann fyrir þau.“
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur
Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Ekki á færi Hæstaréttar að leggja fyrir tiltekna héraðsdómara að fara með mál
Úrskurður felldur úr gildi
og héraðsdómari ávíttur
Í HNOTSKURN
»Pilturinn var ákærður fyrirnauðgun í kjallara Hótel
Sögu 17. mars á síðasta ári. Hann
sat í gæsluvarðhaldi frá 19. mars
til 5. júlí.
»Héraðsdómur sýknaði hannaf ákærunni en Hæstiréttur
ómerkti dóminn.
»Héraðdómararnir viku þásæti en úrskurðurinn var
ómerktur.
SIGRÚN Elsa
Smáradóttir,
borgarfulltrúi
Samfylking-
arinnar og
stjórnarmaður í
Orkuveitu
Reykjavíkur
(OR), hefur tek-
ið sæti í stjórn
Reykjavik
Energy Invest
(REI). Gerðist það á síðasta hlut-
hafafundi félagsins sem fram fór
á mánudaginn var. Sigrún tekur
við sætinu af Hjörleifi Kvaran,
forstjóra OR, sem setið hafði í
stjórn REI til bráðabirgða að ósk
minnihlutans.
Vildu að stjórn REI yrði
ekki pólitískt skipuð
„Við höfðum lagt fram tillögu í
stjórn OR þess efnis að stjórn
REI yrði ekki pólitískt skipuð,
heldur skipuð fagstjórnendum.
Við héldum lengi í þá von að það
yrði orðið við því, en svo var
ekki,“ segir Sigrún Elsa og vísar
til þess að þegar núverandi stjórn
REI var skipuð 28. febrúar sl.
hafi Kjartan Magnússon, stjórn-
arformaður OR, og Ásta Þorleifs-
dóttir, fulltrúi F-lista, tekið sæti í
stjórninni.
„Meðan meirihluti stjórn-
arinnar er skipaður pólitískt þá
er ekki sérstaklega auðvelt að fá
fagstjórnendur til þess að koma
inn í stjórnina, miðað við hvernig
ástandið hefur verið að und-
anförnu, sem einkennst hefur af
upplausn og stefnubreytingum
fram og til baka. Þannig að við
sáum að það sem þyrfti væri
fyrst og fremst pólitískt aðhald
eins og staðan er núna,“ segir
Sigrún Elsa og tekur fram að við
núverandi aðstæður sé mikilvægt
að minnihlutinn hafi fulltrúa eins
nálægt ákvörðunartökuferlinu og
hægt sé.
Þörf á
pólitísku
aðhaldi
Sigrún Elsa tekur
sæti í stjórn REI
Sigrún Elsa
Smáradóttir
KJARTAN Magnússon, stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Reykjavik
Energy Invest (REI), hyggst verða við beiðni
Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins, og leggja fram viljayfirlýs-
ingarnar sem undirritaðar voru í Jemen og
Eþíópíu nýverið á næsta fundi borgarráðs.
„Rétt er að geta þess að ég hef ekki skrifað
undir neina viljayfirlýsingu í Eþíópíu, und-
irritun hennar var ákveðin af fyrrverandi
stjórn REI í janúar sl.
Í Djibútí var skrifað undir samning um
frekari hagkvæmnisathugun vegna hugs-
anlegs jarðhitaverkefnis. Í þeim samningi eru
viðskiptaupplýsingar sem REI hefur skuld-
bundið sig til að halda trúnað um og verða
þeir samningar því ekki kynntir op-
inberlega,“ segir Kjartan. Tekur hann fram
að borgarfulltrúum allra flokka standi hins
vegar til boða að sjá þessa samninga og
kynna sér efni þeirra.
„Við samningsgerðina var leitast við að
takmarka áhættu REI og í þeim er ekkert
sem hefur í för með sér beinar fjárhagslegar
skuldbindingar fyrir félagið,“ segir Kjartan.
Hyggst verða
við beiðni ÓskarsGENGISTAP Orkuveitu Reykjavíkur (OR) vegna erlendra skulda nemur um 25 milljörðumkróna það sem af er ári. Þetta kemur fram í skriflegu svari Kjartans Magnússonar, stjórn-
arformanns OR, til Morgunblaðsins. Bendir hann á að á móti gengistapinu komi gengis-
hagnaður, sem nemi um 5 milljörðum króna, vegna afleiðslusamninga vegna orkusölu til
stóriðju.
„Gengistapið nemur því um 20 milljörðum króna og hef ég að sjálfsögðu áhyggjur af því.
Innan Orkuveitunnar eru skuldamál í stöðugri skoðun og nýtur fyrirtækið einnig ut-
anaðkomandi ráðgjafar sérfræðinga í þessum efnum. Spár þeirra gera ráð fyrir því að
gengisvísitalan lækki þegar líður á árið og því muni þetta tap ganga að einhverju leyti til
baka. Við vonum að hið versta sé yfirstaðið og munum fylgjast grannt með stöðunni áfram.“
Gengistap OR 20 milljarðar króna