Morgunblaðið - 23.04.2008, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
STYTTA af Vigdísi Finnbogadóttur,
bætt tungumálakennsla fyrir inn-
flytjendur, betri aðstaða við Hljóm-
skálagarð og úrbætur vegna mann-
eklu í leikskólum var meðal þess
sem fulltrúar úr Reykjavíkurráði
ungmenna fjölluðu um á fundi með
borgarstjórn í gær.
Um er að ræða árlegan fund þar
sem lagðar eru fram tillögur ungs
fólks sem starfað hefur í ungmenna-
ráðum í hverfum borgarinnar. Ung-
mennaráðin vinna m.a. í þeim til-
gangi að auðvelda fólki undir 18 ára
aldri að koma skoðunum sínum og
tillögum á framfæri við viðeigandi
aðila.
Leyfisveggir nauðsynlegir
Einar Karl Gunnarsson frá ung-
mennaráði miðborgar og Hlíða tal-
aði fyrir bættri aðstöðu fyrir graff-
ití, eða veggjalist, í Reykjavík.
Sjálfur segist hann vera hræðilegur
að „graffa“ og gafst upp á því fyrir
þó nokkru síðan en hann þekkir
marga veggjalistamenn. Hann segir
þá hafa lengi barist fyrir svoköll-
uðum leyfisveggjum en það eru
veggir sem eru sérstaklega ætlaðir
veggjalist.
Aðspurður segir hann ekki leika
nokkurn vafa á því að slíkir veggir
myndu draga töluvert úr ólöglegu
veggjakroti og þá ekki síst í miðbæ
Reykjavíkur. Eins og staðan er nú
sé ekki komið til móts við „graff-
arana“ í Reykjavík og hafi þeir eng-
an stað til að fara á.
Leyfisveggir væru kjörnir staðir
fyrir fólk til að skapa listaverk og
því tilvaldir til að draga úr svoköll-
uðum „töggum“, þegar fólk merkir
ýmsa staði með stöfum eða stikkorð-
um. Einar Karl segir unga „graff-
ara“ aðallega standa fyrir slíku en
það sé þá helst vegna þess að þeir
hafi enga staði til að æfa sig á og þar
komi leyfisveggirnir til sögunnar.
Styttu af Vigdísi í Reykjavík
„Ég ber afar mikla virðingu fyrir
þessari konu, það ætti fyrir löngu að
vera komin stytta af henni,“ segir
Kjartan Þór Ingason frá ungmenna-
ráði Breiðholts. Hann flutti tillögu
þess efnis að reisa ætti styttu af
Vigdísi Finnbogadóttur. Engar
styttur eru af konum í
borginni og segir
Kjartan Þór það sjálf-
sagt að heiðra þennan
fyrsta lýðræðislega
kjörna kvenforseta í
heimi. Hvað staðsetn-
ingu varðar segir
Kjartan Þór að reisa
ætti styttuna á áber-
andi stað í höfuðborg-
inni, líkt og stytturnar
af Hannesi Hafstein og Jóni Sig-
urðssyni.
Og hvað ætli Vigdísi sjálfri finnist
um hugmyndina? „Hún [Vigdís]
hringdi í mig í skólann, hún var með
svo unglega rödd að ég ætlaði ekki
að trúa því að hún væri komin yfir
sjötugt. Hún var alveg yndisleg og
sló á létta strengi,“ segir Kjartan
Þór. „Hún styður mig og sagði að
henni fyndist þetta frábær hug-
mynd.“
Borgarstjórn á að sýna
gott fordæmi
Áttundi og síðasti ræðumaðurinn
á fundinum var Gunnar Ingi Magn-
ússon frá ungmennaráði Vesturbæj-
ar en hann ræddi um aukið vægi
ungmennaráða í Reykjavík. Auka
þurfi samvinnu þeirra og borgaryf-
irvalda en Gunnar Ingi segir þeirra
ósk einfaldlega þá að tillögum þeirra
sé svarað. „Ég flutti tillögu fyrir
tveimur árum síðan um bætta að-
stöðu á hjóla- og göngustíg á Æg-
isíðunni og hef ekki enn fengið svar
við tillögunni. Þáverandi borgar-
stjóri, Steinunn Valdís, lofaði að
þetta yrði komið í gang á innan við
viku en nú eru tvö ár liðin og ekkert
hefur gerst.“
Gunnar Ingi segist hreinlega vilja
að borgarstjórn taki mark á ung-
mennunum og skuldbindi sig til að
svara þeim. Hann segir borgar-
stjórnina sýna slæm vinnubrögð
þegar hún standi ekki við stóru orð-
in. Hún eigi að gefa gott fordæmi
þar sem unga kynslóðin muni að
endingu taka við stjórn landsins og
þá sé slæmt ef hún taki upp þessi
vinnubrögð. Þá segir Gunnar Ingi
að nauðsynlegt sé að tala meira við
ungmennin í borginni og sinna betur
þeirra málefnum. Ungt fólk sjái oft
hlutina í öðru ljósi en hinir eldri og
því þurfi rödd þeirra að heyrast.
Nauðsynlegt að borgar-
stjórn hlusti á ungmenni
Morgunblaðið/Frikki
Skoðun ungmenna Ungt fólk fylkti liði á árlegan fund með borgarstjórn Reykjavíkur í gær þar sem fulltrúar úr
Reykjavíkurráði ungmenna lögðu fram sínar tillögur um það sem betur mætti fara í borginni.
Í HNOTSKURN
»Reykjavíkurráð ungmennafundaði fyrst með borgar-
stjórn árið 2002. Markmiðið er
að koma tillögum og skoðunum
einstaklinga undir 18 ára aldri á
framfæri.
»Átta ungmenni fluttu samtals13 tillögur sem m.a. fjölluðu
um ungmennahús, forvarnar-
kennslu, lífsleikni, félagsmið-
stöðvar og græn svæði í nýjum
hverfum.
»Þetta er í sjöunda sinn semfundur sem þessi er haldinn.
Fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna lögðu í gær fram tillögur sínar á árlegum fundi með borgarstjórn.
Þetta er í sjöunda sinn sem slíkur fundur er haldinn en tillögurnar snertu jafnt ungmenni sem aðra borgarbúa.
Einar Karl
Gunnarsson
Kjartan Þór
Ingason
Gunnar Ingi
Magnússon
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational bað Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur utanríkisráðherra og
Ólaf Ragnar Grímsson forseta um að
ræða yfirvofandi aftöku ungs manns
við Mahmoud Abbas Palestínufor-
seta og fara fram á að Abbas stað-
festi ekki aftökuskipunina.
„Íslandsdeild Amnesty Inter-
national vonar að umrædd samþykkt
Sameinuðu þjóðanna, þrýstingur al-
mennings og íslenskra yfirvalda leiði
til þess að lífi Tha’er Mahmoud
Husni Rmailat verði þyrmt,“ segir í
yfirlýsingu samtakanna.
Morgunblaðið spurði utanríkis-
ráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, á blaðamannafundi með Abb-
as hvort tilmæli Amnesty hefðu
verið tekin upp í
viðræðum ís-
lenskra ráða-
manna við gest-
inn. Svaraði
Ingibjörg Sólrún
því játandi og að
hún hefði rætt
sérstaklega mál
23 ára mannsins
sem hlaut dauða-
dóm. Abbas, sem lengi hefur verið
andvígur dauðarefsingum, sagði að
málið hefði verið rætt við sig, bæði af
hálfu forseta Íslands og utanríkis-
ráðherra. „Ég hlustaði af athygli á
það sem þau sögðu og við munum
taka af mikilli alvöru á þessu máli,“
sagði Abbas.
Urðu við áskor-
un Amnesty
Íslenskir ráðamenn báðu Abbas um
að staðfesta ekki aftökuskipun
Mahmoud Abbas
„ÞETTA var óvenju skemmtilegur
og ánægjulegur fundur,“ sagði
Geir H. Haarde forsætisráðherra
eftir fund sinn með David Camer-
on, leiðtoga breska Íhaldsflokks-
ins, og William Hague, talsmanni
flokksins í utanríkismálum. Að
sögn Geirs var rætt um fjölmörg
mál, s.s. alþjóðleg efnahagsmál,
orkumál, umhverfismál, varnarmál
og hvalveiðar.
„Þeir spurðu út í hvalveiðarnar
og ég fór yfir okkar sjónarmið,
lýsti almennum viðhorfum og upp-
lýsti þá um stöðu mála. Nið-
urstaðan var sú að vera sammála
um að vera ósammála,“ sagði Geir
sem hittir Gordon Brown, for-
sætisráðherra Bretlands, á morg-
un. Hann sagðist ekki vænta mik-
illa tíðinda af þeim fundi en flest
þeirra mála sem rætt var um í
gær eru á dagskrá.
Fundinum lauk með því að Geir
afhenti þeim Cameron og Hague
eintak af einni bóka Arnalds
Indriðasonar, og sagði þá hafa
verið afar ánægða með gjöfina.
„Ég er að vonast til að þeim gefist
tími til að lesa Arnald, því ég hef
góða reynslu af því að gefa mönn-
um bók eftir hann.“
Fjölmörg mál
rædd á fundi
með Cameron
Funduðu Geir H. Haarde og David
Cameron á fundinum í London.
Ólafsvík | Oft var það í tali fólks í
vetur, að hann væri langur og
þreytandi. Ekki var þó mikið um
stórviðri hér vestra, en vestangarr-
inn var þrárri en allt annað. Snjór
varð samt aldrei mikill.
Sjósókn var lengst af erfið vegna
ógæfta, en menn létu sig hafa skæl-
inginn.
Öll él birtir þó upp um síðir eins
og sagt var forðum og loks kvakar
fugl í mó. Í dag andar blænum aust-
an, sólin skín í hlæjanda heiði,
þvottur blaktir á snúrum og léttar
bárur vagga bátum á víkinni.
Létu sig hafa
skælinginn
flugfelag.is
Ferðalag er góð
fermingargjöf
Pantaðu gjafabréf
í síma 570 3030
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
HEIMIR Björgúlfsson, myndlistar-
maður og fyrrverandi liðsmaður
hljómsveitarinnar Stilluppsteypu,
slasaðist alvarlega aðfaranótt
sunnudags þegar ekið var aftan á
hann við þjóðveg í Los Angeles.
Samkvæmt upplýsingum frá syst-
ur Heimis, Valborgu Valgeirs-
dóttur, sprakk á bíl hans og var
hann að ná í varadekk í skottið þeg-
ar ekið var á hann með þeim afleið-
ingum að báðir fótleggir brotnuðu
fyrir neðan hné. Heimir gekkst
undir aðgerð á sjúkrahúsi í Los
Angeles og hafa læknar þar greint
frá því að hann muni ná sér að fullu
þó svo slysið hafi verið mjög alvar-
legt. Heimir býr og starfar í Los
Angeles.
Slasaðist
alvarlega