Morgunblaðið - 23.04.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
Í TILEFNI af ári stjörnufræðinnar
2009 hefur verið opnuð ný vefsíða á
slóðinni www.2009.is. Síðan verður í
stöðugri endurnýjun og þar munu
birtast fréttir og upplýsingar um at-
burði stjörnufræðiársins, bæði hér
heima og erlendis. Að auki verður
boðið upp á margskonar fræðslu um
stjarnvísindi fyrir almenning.
Heimasíða um
stjörnufræði
Í TILEFNI af viku bókarinnar hafa
Seltjarnarnesbær, Forlagið og
World Class tekið sig saman og
ætla að bjóða upp á óvænta stemn-
ingu í Seltjarnarneslaug og World
Class Seltjarnarnesi nk. laugardag.
Höfundar munu lesa upp úr verk-
um sínum. Frítt verður í sundlaug-
ina og heilsurækt World Class allan
daginn.
Bókasund
á Nesinu
ELDRI bogarar
í Hafnarfirði
fara fram á að
stofnað verði
embætti um-
boðsmanns
aldraðra. Þetta
er meðal þeirra tillagna sem sam-
þykktar voru á aðalfundi Félags
eldri borgara í Hafnarfirði nýlega.
Farið er fram á að hafist verði nú
þegar handa við byggingu á nýju
hjúkrunarheimili, eins og kveðið sé
á um í samkomulagi Hafnarfjarð-
arbæjar og heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins frá febrúar
2006. Þá var samþykkt tillaga um að
samþætting félagslegrar heimaþjón-
ustu bæjarins og heimahjúkrunar
yrði að veruleika sem fyrst sam-
kvæmt tillögum nefndar um heild-
ræna öldrunarþjónustu frá 2006.
Vilja umboðs-
mann aldraðra
STUTT
MIKILL áhugi fagaðila og almenn-
ings á byggingariðnaði, mann-
virkjagerð og skipulagsmálum sýndi
sig á Verki og viti 2008. Um 18.000
gestir heimsóttu sýninguna. Þetta
eru ívið fleiri gestir en komu á Verk
og vit 2006, en þá heimsóttu tæplega
17.000 gestir sýninguna.
AP-sýningar stóðu að Verki og
viti 2008 í samstarfi við iðnaðarráðu-
neyti, Reykjavíkurborg, Samtök iðn-
aðarins, Landsbankann og Ístak.
18.000 gestir
á Verki og viti
ÞORGERÐUR Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra og tón-
listarmúsin Maxímús músíkús lögðu
leið sína í verslun Eymundsson í
Holtagörðum í gærmorgun og not-
uðu þar fyrstu ávísanirnar sem Fé-
lag íslenskra bókaútgefenda og bók-
salar gefa landsmönnum í Viku
bókarinnar.
Ávísunum að upphæð 1.000 kr.
verður dreift á heimilin í landinu og
virka sem afsláttur ef keyptar eru
bækur fyrir 3.000 kr. eða meira.
Þeir sem vilja kaupa meira af bók-
um geta prentað út fleiri ávísanir á
vefsíðunni bokautgafa.is, og gildir þá
sami afsláttur fyrir hverjar 3.000
krónur sem verslað er fyrir. Þannig
má t.d. með fjórum ávísunum fá
4.000 kr. afslátt af bókum sem kosta
12.000.
Í tilkynningu frá aðstandendum
átaksins segir að með þessu fram-
taki sé ætlunin að minna á gildi og
mikilvægi bókalesturs.Hægt er að
nota ávísanirnar til 4. maí.
Bóksalar og bókaútgefendur dreifa ávísunum sem nota má til bókakaupa
Lestrarhestar Þau Þorgerður Katrín og Maxímús áttu ekki í nokkrum
vandræðum með að velja sér bækur, enda úrvalið mjög fjölbreytt.
Hægt að kaupa bækur
með 30% afslætti til 4. maí
DJÁKNAVÍGSLA verður í Dóm-
kirkjunni sumardaginn fyrsta
klukkan 14. Þá vígir Karl Sig-
urbjörnsson, biskup Íslands, Guð-
nýju Bjarnadóttur sem ráðin hefur
verið djákni í Vestmanna-
eyjaprestakalli, Kjalarnesspró-
fastsdæmi, til kærleiks- og sál-
gæsluþjónustu í samstarfi við
Fjölskyldusvið Vestmannaeyja-
bæjar og Heilbrigðisstofnun Vest-
mannaeyja. Séra Þorvaldur Víð-
isson miðborgarprestur þjónar
fyrir altari. Organisti er Guð-
mundur H. Guðjónsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Djáknavígsla
í Dóm-
kirkjunni
www.bifröst.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
3
11
8
VIÐSKIPTADEILD
• BS í viðskiptafræði
• BS in Business Administration
• MS í alþjóðlegri banka-
og fjármálastarfsemi
• MS í alþjóðaviðskiptum
• MS í stjórnun heilbrigðisþjónustu
• BA í heimspeki, hagfræði
og stjórnmálafræði (HHS)
• MA í menningarstjórnun
• MA í Evrópufræðum
FÉLAGSVÍSINDADEILD
• BS í viðskiptalögfræði
• ML í lögfræði
• MA í skattarétti
LAGADEILD
• Staðnám
• Fjarnám
FRUMGREINADEILD
• Allar deildir háskólans kynna náms-
framboð í grunn- og framhaldsnámi og
bjóða umsækjendum og öðrum áhuga-
sömum upp á viðtöl við deildarforseta,
námsráðgjafa og kennara.
• Stjórnendur skólans ræða umsóknir og
úrvinnslu þeirra við þá sem vilja.
• Kennslufræði háskólans verður kynnt en
fámennir verkefnahópar, nálægð við
kennara og starfsfólk auk verkefnavinnu
í tengslum við atvinnulífið skapa
skólanum mikla sérstöðu.
• Íbúðir, herbergi og önnur aðstaða
nemendagarða verður til sýnis.
Leiðsögn, skemmtun
og vöfflur
Fimmtudaginn 24. apríl frá kl. 14 – 17.
Velkomin á opinn dag!
háskólinn á bifröst
• Nemendur kynna nám og daglegt líf á
Bifröst.
• Öll félagsleg aðstaða verður til sýnis, þar
á meðal líkamsræktarsalir, heitir pottar,
kaffihús og lestraraðstaða.
• Grunnskólinn á Varmalandi og leik-
skólinn Hraunborg kynna starfsemi sína.
• Á meðan foreldrar skoða svæðið geta
börnin farið á hestbak og leikið sér í leik-
tækjum á háskólatorginu.
• Boðið verður upp á kaffi, kakó, vöfflur
og ís.
• Allir gestir fá frímiða í Hvalfjarðargöngin
til baka.
FRÍTT Í
GÖNGIN Á
LEIÐINNI
HEIM