Morgunblaðið - 23.04.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 15
MENNING
ÁHUGAFÓLK
um bókmenntir
hefur beðið
ákvörðunar son-
ar Vladimirs
Nabokovs heit-
ins um örlög
handrits að
skáldsögu hans
óbirtri um ára-
bil. Rithöfund-
urinn skildi eftir fyrirmæli um að
handritið ætti að brenna eftir
hans dag, en nú hefur sonur hans,
Dmitri Nabokov, tekið af skarið
og ákveðið að bókin Frummyndin
af Láru verði gefin út og komi
fyrir sjónir almennings.
„Ég er tryggur sonur og velti
þessu lengi fyrir mér. Þá birtist
faðir minn mér, brosti kaldhæðn-
islega og sagði: „Þetta er nú meiri
klípan sem þú ert kominn í. Í guð-
ana bænum láttu bara gefa þetta
út,““ sagði Dmitri Nabokov í sam-
tali við þýska vikuritið Der
Spiegel. Hann hefur áður haldið
því fram að í þessu verki hafi
sköpunargáfa föður hans náð nýj-
um hæðum.
Dmitri hefur verið gagnrýndur
fyrir hversu tvístíga hann hefur
verið í málinu í gegnum tíðina og
sakaður um að draga ákvörðunina
á langinn að óþörfu en nú eru rúm
þrjátíu ár síðan Vladimir lést og
spurningin um örlög handritsins
kom upp. Bókin er varðveitt á
fimmtíu pappaspjöldum í sviss-
nesku bankahólfi.
Bókin
ekki
brennd
Síðasta skáldsaga
Nabokovs gefin út
Vladimir Nabokov
SÖNGLEIKURINN Gone With
The Wind var frumsýndur fjölmiðla-
fólki í New London Theatre í Lond-
on í gærkvöldi en því hefur verið
spáð að uppfærslan muni ganga illa
þar sem hún sé alltof löng (3,5 klst)
og þar að auki drepleiðinleg. Sýn-
ingin er sú kostnaðarsamasta sem
sett verður upp í leikhúshverfinu
West End á þessu ári.
Margaret Martin, læknir í Los
Angeles, skrifaði handritið að söng-
leiknum upp úr 1.000 bls. skáldsögu
Margaret Mitchell. Martin hefur
aldrei áður skrifað leikverk, hvorki
leikrit né söngleik. Sýningin fór illa
af stað á dögunum þegar ein leik-
kvenna slasaðist á fæti á forsýningu
og nokkrum dögum síðar varð að
fresta annarri forsýningu vegna
breytinga, śkveðið var að stytta
verkið eftir prufukeyrslu sem
reyndist mörgum áhorfendum svo
erfið að þeir gengu út. Sýningin var
þá rúmir fjórir tímar að lengd. Þær
sögur hafa gengið af sýningunni að
henni hafi verið flýtt af fjárhags-
ástæðum og hún því í raun ekki
tilbúin. Með aðalhlutverk fara Dar-
ius Danesh, sem tók þátt í Pop Idol
2001 og leikur Rhett Butler, og
óþekkt leik- og söngkona, Jill Paice,
fer með hlutverk Scarlett O’Hara.
Óbærileg
leiðindi?
Kvikmyndin fræga Clark Gable
og Vivien Leigh á veggspjaldi
Gone With the Wind.
DAGSKRÁIN „… og fjöllin
urðu til“ byggist að miklu leyti
á ljóðum Halldórs Laxness. Í
kvöld, á fæðingardegi skálds-
ins, verða haldnir tónleikar í
Listasal Mosfellsbæjar í
Kjarna í tilefni af útgáfu sam-
nefnds geisladisks.
Bjarki Bjarnason og Sig-
urður Ingvi Þorsteinsson tóku
dagskrána saman og fram
koma þau Eyjólfur Eyjólfsson
tenór, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari,
Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari og Þór-
unn Lárusdóttir leikkona.
Dagskráin hefst klukkan 20.30, allir eru vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Ljóðin sungin á
afmæli skáldsins
Þórunn
Lárusdóttir
MOSFELLSKÓRINN fagnar
tvítugsafmæli sínu með tón-
leikum í Austurbæ í kvöld. Þar
flytur kórinn úrval laga sem
hann hefur haft á dagskrá í
gegnum tíðina ásamt nýju efni.
Kórstjóri hefur frá upphafi
verið Páll Helgason.
Í tilefni afmælisins leikur
hljómsveit með kórnum að
þessu sinni og hana skipa þeir
Óskar Einarsson hljómborðs-
leikari, Jóhann Ásmundsson bassaleikari, Gunn-
laugur Briem trommuleikari og Sigurgeir Sig-
mundsson gítarleikari.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og aðgangs-
eyrir er 2.000 krónur.
Tónlist
Tvítugsafmæli
Mosfellskórsins
Gunnlaugur
Briem
KARLAKÓRINN Stefn-
ir heldur fyrstu vortón-
leika sína í Langholts-
kirkju í kvöld. Flutt
verða lög eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, Gunn-
laug S. Snævarr, Sig-
valda S. Kaldalóns og
fleiri.
Stefnir telur um fimmtíu félaga, kórstjóri er
Gunnar Ben. og undirleikari Judith Þorbergsson.
Kórinn heldur vortónleikaröðinni áfram í Víði-
staðakirkju og Hlégarði í maí og í sumar liggur
leiðin síðan austur í Mývatnssveit, á Eskifjörð,
Egilsstaði og Vopnafjörð.
Tónleikar karlakórsins í Langholtskirkju hefj-
ast klukkan 20 í kvöld.
Tónlist
Fyrstu vortónleikar
karlakórsins Stefnis
Langholtskirkja
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
DEGI BÓKARINNAR verður fagn-
að með margvíslegum hætti í dag.
Rithöfundasamband Íslands ákvað
að nota tækifærið til þess að heiðra
Stein Steinarr, en öld er liðin frá
fæðingu hans í ár. Á dagskrá sem
haldin verður í Iðnó í kvöld koma ólík
skáld fram og lesa ljóð eftir Stein og
fjalla um verk hans frá eigin brjósti,
þau Bragi Ólafsson, Gerður Kristný,
Kristján Þórður Hrafnsson, Linda
Vilhjálmsdóttir, Matthías Johann-
essen, Óskar Árni Óskarsson og Sig-
urður Pálsson.
„Steinn satt að segja var mikill
áhrifavaldur í mínu lífi,“ segir Pétur
Gunnarsson, formaður Rithöfunda-
sambandsins og einn skipuleggjenda
dagskrárinnar. „Ég las hann mjög
mikið á unglingsárunum og sem ung-
ur maður. Þá var hann minn sálu-
félagi. Þetta er skáld sem maður gat
leitað til bæði með sín áhugamál og
áhyggjumál. Hann talar beint til
manns.“
Kynnin endurnýjuð
„Ég lít svo á að það sé heilmikið
verk að halda þessum skáldum okkar
inni í myndinni. Það er svo margt
sem bætist við og margt sem gerist
og alltaf meira og meira, örar og ör-
ar. Það er hætta á því að skáld og rit-
höfundar, sama hvað þau eru góð,
gleymist eða þokist úr sjónmáli. Það
finnst mér að megi alls ekki gerast
með Stein og svona dagskrá er alveg
rakið tækifæri til þess að endurnýja
kynnin,“ segir Pétur.
Hann segir alltaf hættu á því að
þegar skáld hverfi af sjónarsviðinu
dofni minning þeirra smám saman.
Stundum geti það verið eðlileg þró-
un. „Það verður alltaf að vera inn-
stæða fyrir því að skáld sé lesið og sé
í umferð. Ef efni er gjörsamlega
komið úr takti við tímann er kannski
eðlilegt að það þoki til hliðar, en það
á alls ekki við um Stein. Ég held að
hann eigi mikið erindi við okkur í dag
og hafi náð því að verða sígildur.“
Heildarsafn ljóða Steins Steinars
var endurútgefið á dögunum eftir að
hafa verið ófáanlegt um nokkurt
skeið. „Á sínum tíma var það mikið
keypt til fermingargjafa, sem er dá-
lítið merkilegt af því að Steinn var
svo mikið uppreisnarskáld á sínum
tíma og þótti ekki sérstaklega fínn
pappír í betri kreðsum. Svo náði
hann þessari stöðu að verða svona
sjálfkrafa fermingargjöf. Það er
náttúrlega annað sem við erum alltaf
að hugsa um, að viðbrögðin við
skáldum mega ekki verða svona
sjálfkrafa. Þess vegna er ég spennt-
ur að heyra í þessum ólíku skáldum,
sem hvert hafa sinn vinkil á Stein
Steinarr.
Dagskráin hefst klukkan átta og
aðgangur er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir. Auk fyrr-
nefndra skálda koma fram Þórður
Helgason skáld og bókmenntafræð-
ingur sem flytur erindi um áhrif
Steins á næstu kynslóðir skálda og
Guðmundur Ólafsson leikari sem les
úr prósa Steins.
Þá syngur Kvennakór við Háskóla
Íslands lög við ljóð hans undir stjórn
Margrétar Bóasdóttur.
Sálufélaginn Steinn
Rithöfundar fagna aldarafmæli Steins Steinars með afmælisdagskrá í kvöld
„Heilmikið verk að halda þessum skáldum okkar inni í myndinni“
Morgunblaðið/hag
Formaðurinn Pétur Gunnarsson undir vökulu auga Steins Steinarr.
„ÉG BYRJAÐI að læra þegar ég
var fjögurra ára svo ég hef alla ævi
verið að spila á fiðlu. Þetta er líka
bæði gefandi og það sem mér finnst
skemmtilegast að gera. Ég fór að
taka þetta alvarlega á unglingsár-
unum og síðan þá hefur þetta bara
verið lífið,“ segir Helga Þóra Björg-
vinsdóttir fiðluleikari sem heldur í
kvöld sína fyrstu einleikstónleika á
Íslandi eftir áralangt nám erlendis.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röðinni Tónsnillingar morgundags-
ins.
Eftir að Helga Þóra lauk prófi
frá Listaháskóla Íslands árið 2004
lá leið hennar til Berlínar í fram-
haldsnám í listaháskólanum UDK
og þaðan útskrifaðist hún með
hæstu mögulegu einkunn í fyrra.
Nú er hún sest að í París og stund-
ar þar frekara nám í fiðluleik.
„Ég myndi helst vilja vinna í
Frakklandi, Þýskalandi eða hérna á
Íslandi,“ segir Helga Þóra og segir
ýmsa möguleika opna nýútskrifuðu
tónlistarfólki hérlendis. „Það er
hægt að gera margt á Íslandi. Það
er hægt að kenna og það er hægt
að búa sér til tækifæri til að spila.“
Í kvöld flytur Helga Þóra sónötur
eftir Bach, Prokofiev og Debussy.
Tónleikarnir hefjast í Salnum í
Kópavogi klukkan 20.
Lífið er fiðluleikur
Morgunblaðið/Valdís Thor
Fiðla Helga Þóra kemur fram á sínum fyrstu einleikstónleikum í kvöld.
Hlaut hæstu mögulegu einkunn við
útskrift úr framhaldsnámi í Berlín
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og innan þessa hrings
er veröld þín.
Minn skuggi féll um stund
á gluggans gler.
Ég geng í hring
í kringum allt, sem er.
Og utan þessa hrings
er veröld mín.
(Steinn Steinarr)
Utan hringsins
LINDA Vilhjálmsdóttir er einn
þeirra rithöfunda sem taka þátt í
hátíðarhöldunum í Iðnó í kvöld.
Hún valdi að lesa og fjalla um ljóðið
hér að ofan, „Utan hringsins“ sem
kom fyrst út í bókinni Ferð án fyr-
irheits árið 1942.
„Mér finnst það segja mikið í
ofsalega stuttu máli,“ segir Linda.
Steinn Steinarr var í miklu uppá-
haldi hjá henni áður fyrr, en það
hefur breyst. „Hann var það þegar
ég var unglingur, en það hefur
dofnað yfir því með árunum.“
Hún segist ekki hafa lesið ljóð
hans í nokkurn tíma, en við und-
irbúning dagskrárinnar í Iðnó hafi
hún kynnst þeim á ný. „Það kom
mér svolítið á óvart þegar ég fór að
leita að ljóði til þess að lesa, hvað
þau voru öll keimlík og hvað mér
fannst hann með svipað yrkisefni í
gangi í öllum sínum ljóðum, svona
þrjú þemu eða svo.“
Segir mikið
í stuttu máli