Morgunblaðið - 23.04.2008, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 33
dagbók
Í dag er miðvikudagur 23. apríl, 114. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.)
Félag íslenskra fræða stend-ur fyrir fyrirlestri á morg-un, fimmtudag. Þar munAðalheiður Guðmunds-
dóttir aðjúnkt flytja erindið „Gangið
hægt um gleðinnar dyr“ – Um
skemmtanasiði Íslendinga fyrr á
öldum
„Fyrirlesturinn byrja ég með yf-
irliti yfir danssöguna á Íslandi, hve-
nær heimildir segja okkur að dans-
inn berist hingað og síðan mun ég
tala um andstöðu trúarlegra og ver-
aldlegra yfirvalda við dansinn í
gegnum aldirnar,“ segir Aðalheiður
en hún er einn höfunda bókarinnar
Norden i Dans, sem segir danssögu
Norðurlanda.
Í fyrirlestrinum beinir Aðalheiður
einkum sjónum sínum að tímabilinu
frá 16. og fram á 17. öld: „Þær heim-
ildir sem við höfum um dansinn eru
einkum úr opinberum skjölum
mennta- og ráðamanna. Ég freista
þess því að hlusta eftir viðhorfum al-
þýðunnar í gegnum þau kvæði sem
flutt voru með dönsunum, þá víki-
vakakvæðin sérstaklega og önnur
danskvæði.“
Aðalheiður segir að við nánari
skoðun hafi komið í ljós að kvæðin
feli í sér miklar upplýsingar um það
hvað fór fram á danssamkomunum:
„Nokkur atriði koma endurtekið fyr-
ir í kvæðunum. Til dæmis er ljóst að
dansfólkið tekur sjálft sig og aðra
viðstadda ekki of hátíðlega, og eru
lýsingarnar oft skrautlegar eftir því.
Kvæðin ganga líka mikið út á það að
piltar og stúlkur, eins og það hét,
hittast til að spá hvert í annað,“ segir
Aðalheiður. „Finna má mýmörg
dæmi um það hvernig karlmennirnir
lofa konurnar í dansinum, bæði bún-
að þeirra og líkamlegt atgervi, og
einnig eru dæmi um að konurnar
geri hið gagnstæða, gefi körlunum
gaum og lofi þá.“
„Það kemur í ljós að sú mynd sem
alþýðan gefur af dansinum er ekki
par skárri en sú sem lýst er í plögg-
um ráðamanna. Yfirvöld sveitanna
settu sig kannski ekki upp á móti
sakleysislegu daðri, heldur þurftu
þau frekar að taka á praktískum
málum, s.s. að sjá fyrir öllum þeim
börnum sem komu undir eftir gleð-
irnar.“
Fyrirlesturinn fer fram í húsi
Sögufélagsins, Fischersundi 3 og
hefst kl. 20. Aðgangur er öllum
heimill og ókeypis.
Sagnfræði | Fyrirlestur um nýja innsýn í dansmenningu fyrr á öldum
Dans, kossar og gleði
Aðalheiður
Guðmundsdóttir
fæddist 1965.
Hún lauk B.A. í
íslensku frá HÍ
1989, varð cand-
.mag. í íslenskum
bókmenntum
1993 og doctor
phil. í íslenskum
miðaldabókmenntum 2002. Að-
alheiður hefur verið stundakennari
við HÍ frá 1995, aðjúnkt frá 2006 og
er nú með rannsóknarstöðustyrk
frá Rannís. Eiginmaður Aðalheiðar
er Guðvarður Már Gunnlaugsson
handritafræðingur og eiga þau þrjú
börn samanlagt.
Tónlist
Bústaðakirkja | Kvennakórinn Léttsveit
Reykjavíkur heldur vortónleika kl. 20 á
sumardaginn fyrsta, 24. apríl. Stjórnandi
er Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Magga
Stína verður einsöngvari með kórnum.
Einnig koma fram: Aðalheiður Þorsteins-
dóttir, Tómas R. Einarsson og Kjartan
Guðnason. Síðan fer Léttsveitin til Berl-
ínar þar sem Maríus Sverrisson söngvari
stígur á svið með kórnum. Á efnis-
skránni verða m.a. söngverk eftir Atla
Heimi Sveinsson, Megas, Tómas R. Ein-
arsson, Kjartan Ólafsson og Helga R.
Einarsson, m.a. við texta Laxness, Meg-
asar og Þórarins Eldjárns. Nánari
uppl.http://lettsveit.is/
Dillon | Rokksveitin noise spilar í kvöld
og frumflytur nýtt efni af væntanlegri
plötu, sem kemur út í haust og er sú
þriðja í röðinni. Tónleikarnir hefjast kl.
22 og er frítt inn.
Norræna húsið | Söngkórinn Domus Vox
heldur tónleika með nemendum á fram-
haldsstigi síðasta vetrardag, kl. 20.
Anna Birgitta Bóasdóttir og Guðný
Jónsdóttir flytja sönglög frá ýmsum tím-
um.
Frístundir og námskeið
Mímir símenntun ehf. | Spænsk-
unámskeið verða haldin í maí. Í boði
verða byrjenda- og framhaldsnámskeið.
Upplýsingar og skráning í síma 580-
1808 og á www.mimir.is.
Uppákomur
List án landamæra | Opið hús á Sléttu-
vegi 9, kl. 15. Þar sýna Óskar Theodórs-
son og Guðmundur Kristján Jónsson
málverk, Arngrímur Ólafsson flytur ljóð,
Sigurður Sigurðsson býður upp á heima-
gert konfekt, Ómar Kristjánsson og Leif-
ur Leifs þeyta skífum og Jón Sigurður
Friðvinsson kynnir bækur.
Mannfagnaður
Landbúnaðarháskóli Íslands | Sum-
ardeginum fyrsta verður fagnað í blóma-
bænum Hveragerði. Hefðbundið er opið
hús hjá Landbúnaðarháskólanum á
Reykjum í Ölfusi og skólahúsin á Reykj-
um verða opin kl. 10-18 og eru allir vel-
komnir í heimsókn. Í Hveragerði verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá.
Fyrirlestrar og fundir
HÍ, VRII, Hjarðarhaga 2-6, stofa 158 |
Dr. John Douglas frá BRGM, í Frakklandi
heldur fyrirlestur í boði verkfræðideildar
Háskóla Íslands. Fjallað er um aðferðir
sem beitt er við mat á jarðskjálftavá og
jarðskjálftaáhættu. Fyrirlesturinn hefst
kl. 16 og fer fram á ensku.
Ættfræðifélagið | Ættfræðifélagið held-
ur fund fimmtudaginn 24. apríl kl.
20.30, í húsi Þjóðskjalasafnsins á Lauga-
vegi 162, 2. hæð. Sigurður Hermund-
arson fjallar um Laugardalsættina, sem
kom út á síðasta ári.
Fréttir og tilkynningar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Mat-
arúthlutun kl. 14-17. Tekið við hreinum
fatnaði og öðrum varningi á þriðjudögum
kl. 10-15. Sími 551-4349. Netfang maed-
ur@simnet,is
Útivist og íþróttir
Reykjavíkurborg | Bænaganga kl. 9,
gengið verður á mörgum stöðum um-
hverfis Reykjavík og Kópavog og víða á
höfuðborgarsvæðinu. Sjá www.lindin.is
Félagsstarf
40+ félagsstarf fyrir fólk með
þroskahömlun | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 17-22, bingó, matur, verð kr.
700.
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl 8.30,
vinnustofa kl. 9-16.30, postulíns-
málun kl. 9-12 og 13-16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna, smíði/útskurður kl. 9-16.30,
heilsugæsla kl. 10-11.30. Uppl. í síma
535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð-
un, glerlist, almenn handavinna,
morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð,
hádegisverður, spiladagur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16, leiðb/Halldóra
kl. 13-16, leikfimi kl. 10, leiðb/Guðný.
Hársnyrting Guðrúnar sími 553-
3884/893-3384.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl.
10-11.30. Sími 554-1226. Skrifstofan
í Gjábakka er opin kl. 15-16. Sími
554-3438. Félagsvist er í Gjábakka í
miðvikudögum kl. 13.
FEB Kópavogi, ferðanefnd | Ferð
um Vatnsleysuströnd – Voga – Njarð-
víkurnar – Keflavíkurflugvöll – Kefla-
vík – Garðskaga – Sandgerði – Hafnir
– Reykjanesvita og Grindavík verður
farin föstudaginn 2. maí. Brottför frá
Gjábakka kl. 9.45 og Gullsmára kl.
10. Kvöldmatur í Grindavík. Skrán-
ingarlistar í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl.
10. Síðdegisdans undir stjórn Matt-
hildar og Jóns Freys kl. 14.30, kaffi-
veitingar. Söngfélag FEB, æfing kl.
17.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía og
glerlist kl. 9.30, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi verður til kl. 17, fé-
lagsvist og glerlist kl. 13, söngfugl-
arnir taka lagið við gítarundirleik
Guðrúnar Lilju kl. 15.15, viðtalstími
FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30 og
dans kl. 18-20 undir stjórn Sigvalda.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, hádeg-
isverður, kvennabrids kl. 13. Kaffi-
veitingar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi
kl. 9, 9.45 og 10.30, brids og búta-
saumur kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, dansæfing kl.
10. Frá hádegi er spilasalur opinn.
Vetur kvaddur kl. 14, fjölbreytt dag-
skrá í tali og tónum í Breiðholts-
kirkju, m.a. sönghópur frá Hæð-
argarði, stjórn. Hjördís Geirs. Á eftir
Dómkirkjan | Bænastund kl. 12.10-
12.30. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Bænarefnum má koma
á framfæri í síma 520-9700 eða
með tölvupósti til domkirkj-
an@domkirkjan.is.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma
kl. 20. Prédikun, tónlist og samvera.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr-
irbænir, hádegisverður að lokinni
stundinni, TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-
18 í Rimaskóla og Korpuskóla.
Grensáskirkja | Samverustund aldr-
aðra kl. 12, matur og spjall. Helgi-
stund kl. 14.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl.
8. Hugvekja, altarisganga, einfaldur
morgunverður í safnaðarsal á eftir.
Háteigskirkja | Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18. Prestar og kirkjuverðir
taka við bænarefnum.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Há-
degisbænastund kl. 12-13. Hægt að
senda bænarefni á filadelfia(hja)
gospel.is Biblíukennsla – Royal Rang-
ers (kristilegt skátastarf) kl. 18-20,
fyrir allan aldur. Súpa og brauð kl. 18.
Hægt er að kaupa mat fyrir alla fjöl-
skylduna á lágu verði. Royal Rangers
kl. 19, kristilegt skátastarf, fyrir
börnin og biblíukennsla fyrir full-
orðna.
KFUM og KFUK á Íslandi | Kaffisala
Skógarmanna KFUM í Vatnaskógi
verður á Holtavegi 28 á sumardag-
inn fyrsta kl. 14-18. Skógarmenn og
aðrir velunnarar Vatnaskógar eru
hvattir til að mæta.
Kristniboðssalurinn | Samkoma kl.
20. Skúli Svavarsson segir frá starfi
SAT-7 sjónvarpsstöðvarinnar. Kjart-
an Jónsson er ræðumaður kvöldsins
og fjallar um starf Páls postula. Kaffi
á eftir.
Langholtskirkja | Hádegisbæna-
gjörð með orgelleik og sálmasöng kl.
12.10. Létt máltíð kl 12.30. Starf eldri
borgara kl. 13-16, sungið, spilað,
föndrað og kaffisopi.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10, gönguhópurinn Sólarmegin kl.
10.30, kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur)
kl. 14.15.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl.
12.15. Prestur sr. Sigurður Árni Þórð-
arson. Opið hús kl. 15. Vigdís Gríms-
dóttir rithöfundur kemur í heimsókn
á degi bókarinnar og spjallar um sig
og verk sín í síðasta opna húsi vetr-
arins, les úr bókinni um Bíbí og segir
frá kynnum þeirra. Veitingar á Torg-
inu.
Selfosskirkja | Skátamessa kl. 11.
Skrúðganga leggur af stað frá Sand-
víkurskóla kl. 10.30. Sr. Gunnar
Björnsson.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Fyr-
irlestur mánaðarlega, kynntir sér-
staklega. Heitt á könnunni.
skapandi skrif, félagsvist, hlát-
urklúbbur, framsögn. Uppl. 568-
3132.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sport-
húsinu í Dalsmára kl. 9.30-11.30,
ringó í Smáranum kl. 12, línudans í
Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í
síma 564-1490.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10.30, leikfimi kl. 11, handverksstofa
opin – námskeið í myndlist kl. 13,
kaffiveitingar kl. 14.30. Hárgreiðslu-
stofa sími 552-2488, fótaaðgerða-
stofa sími 552-7522.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl.
9-16, félagsvist kl. 14, hárgreiðslu-
stofa Erlu Sandholt sími: 588-1288.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
Sjálfsbjörg | Félagsvist kl. 19 í fé-
lagheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
| Fjáröflunarkaffi verður í Hátúni 2,
Fíladelfíu, fimmtudaginn 24. apríl kl.
15.30. Fjöldi mótorhjóla og tækja á
svæðinu. Kaffiveitingar kosta 1.000.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík
| Afmælisfundur SVD kvenna í
Reykjavík verður haldinn í Gaujabúð
föstud. 25. apríl kl. 19. Matur og leik-
ir, verð 3.500 kr.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-12. Aðstoð v/böðun kl.
9.15-16, handavinna kl. 10-12, sund kl.
11.45, hádegisverður, verslunarferð í
Bónus kl. 13-16, tréskurður kl. 14.30,
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, morgunstund kl. 10, handa-
vinnustofan opin allan daginn, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðarstofan opin
allan daginn, upplestur kl. 12.30,
bókband kl. 13, dans kl. 14. Uppl. í
síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Almenn handa-
vinna kl. 9-13, salurinn opinn kl. 13,
ganga kl. 14, botsía kl. 15, kaffi.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðra
safnaðarheimili kl. 11.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn
í Holtakoti kl. 10-12, farið í göngu um
Álftanesið kl. 10 og kaffi í Holtakoti
að lokinni göngu. Opið hús eldri
borgara er í Litlakoti kl. 13-16, bingó
og spilað.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12, tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Hverfishátíð eldri borgara
kl. 14. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16.
TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsstarf
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf eldri borgara
er á miðvikudögum kl. 13-16. Spilað,
föndrað, handavinna og óvænt uppá-
koma. Hafið samband við kirkjuvörð í
síma 553-8500 ef bílaþjónustu er
óskað.
er boðið upp á kaffiveitingar í safn-
aðarheimilinu.
Furugerði 1, félagsstarf | Bókband
kl. 9, leikfimi og framhaldssagan kl.
13.15, kaffi.
Hraunbær 105 | Handavinna og út-
skurður kl. 9, hádegismatur, brids kl.
13, kaffi.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, pútt á
Keilisvelli kl. 10-11.30, línudans kl. 11,
saumar – almenn handmennt kl. 13,
pílukast kl. 13, Gaflarakórinn kl. 16.15,
dansleikur með Þorvaldi Halldórs-
syni kl. 20.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnu-
stofa hjá Sigrúnu kl. 9-16, keramik,
taumálun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley
Erla. Samverustund kl. 10.30, lestur
og spjall. Böðun fyrir hádegi. Bíó kl.
13.30, kaffisala í hléi. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan; út-
skurður, bútasaumur, glerlist, postu-
lín, frjáls verkefni. Ókeypis tölvu-
kennsla á miðvikud. og fimmtud.
Línudans, Bör Börsson, söngur, þeg-
ar amma var ung og afi líka, brids,