Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 36
... í talsverðri fjarlægð
frá öllum Stillerunum,
Sandlerunum og Ferrellunum
sem hafa tröllriðið þessari
kvikmyndagrein… 38
»
reykjavíkreykjavík
SÝNING á leikriti Vest-
urports, Kommúnunni, hef-
ur notið mikillar athygli í
Mexíkó og þá fyrst og fremst
vegna þátttöku mexíkóska
leikarans Gael García Bernal
í uppfærslunni. Sýningin
hefur hlotið misjafna dóma í
mexíkóskum fjölmiðlum.
Dagblaðið La Jornada segir
að sýningin endurspegli ekki
hippahreyfinguna eins og hún hafi
verið á 8. áratugnum og El Universal
segir Gael hafa borið af öðrum leik-
urum í sýningunni en erfitt hafi þó
reynst að lesa þýðingar á ís-
lenskum leiktexta, sem birt-
ar voru á hliðarskjáum.
Bernal sagði m.a. á blaða-
mannafundi vegna sýning-
arinnar, sem Gísli Örn Garð-
arsson, leikstjóri verksins,
sat einnig, að það hefði verði
ótrúlega skemmtilegt að fá
að vinna með spænsku leik-
konunni Elenu Anaya enda
hafi þau verið vinir í tíu ár.
Þá fór Gael fögrum orðum um
reynslu sína af því að leika á Íslandi
og sagðist fullur orku eftir dvölina.
Misjafnlega tekið
Gael García
Bernal
Tímaritið
Reykjavík Grape-
vine og tónlist-
arbúllan Organ
boða til sum-
arglaðnings á
Organ í kvöld.
Fram koma sveitirnar Seabear,
Skátar, Kimono og Swords of
Chaos auk þess sem von er á sér-
stökum heiðursgestum, þeim Magn-
úsi Kjartanssyni og Möggu Gauju
Magnúsdóttur en saman hyggjast
þau flytja hið sígilda lag „Sólar-
samba“ sem fyrst heyrðist í
Söngvakeppni Sjónvarpsins árið
1988. Lagið á 20 ára afmæli núna í
vor og því var það talið tilvalið að
dusta rykið af þessum þemasöng ís-
lenska sumarsins og kynna það von-
andi fyrir nýjum kynslóðum. Lagið
þykir um margt byltingarkennt en
eitt af því sem texti lagsins inn-
leiddi í nútímamál er orðið „bongó-
blíða“ sem er nú hverju mannsbarni
tamt. Reikna má með því að fagn-
aðarlætin berist langt út á götu í
Veltusundinu þegar feðginin Maggi
og Magga stíga á svið en heyrst hef-
ur að þau hafi þegar pantað þrjár
tequila-flöskur upp á svið fyrir at-
riði sem tekur víst ekki lengri tíma
en 10-15 mínútur.
Sól, samba og þrjár
tequila-flöskur
Eins og kom fram á mbl.is í gær
eru Evróvisjón-veðbankarnir farnir
að spá því að framlag Rússa fari
með sigur af hólmi í Serbíu í næsta
mánuði. Samkvæmt þessum sömu
veðbönkum eru líkurnar á því að
Eurobandið fái flest stig 1 á móti
33 sem telst nokkuð slappt en
myndbandið virðist ekki hafa gert
mikið gagn þar. Í ljósi þessa mega
landsmenn búast við því að á næstu
dögum lýsi Evróvisjón-fararnir því
yfir að það væri í sjálfu sér „mikill
sigur“ að komast upp úr forkeppn-
inni.
Markið sett lægra?
Duggholu-
fólkið í leikstjórn
Ara Krist-
inssonar vann
aðalverðlaunin
(Golden Sprockets
Award) í flokki
kvikmynda fyrir börn á aldrinum 8-
10 ára á Sprockets-kvikmyndahá-
tíðinni í Toronto um síðustu helgi.
Veitt voru aðalverðlaun fyrir bestu
mynd fyrir aldurshópinn 8-10 ára
annars vegar og hins vegar ald-
urinn 11-12 ára.
Sprockets-kvikmyndahátíðin
(Sprockets Toronto International
Film Festival for Children) var
haldin dagana 12.-18. apríl sl. og
mun vera ein virtasta barnamynda-
hátíð í heimi. Duggholufólkið var
svo opnunarmynd barnamyndahá-
tíðarinnar í Kristiansand sem hófst
á mánudaginn.
Duggholufólkið
fær gull í Toronto
„ÉG hef nú ekki alveg tölu á þessu,
en næsta vor verða liðin 20 ár frá
því við byrjuðum með þessa seríu.
Þá langar okkur til að loka hringn-
um og loka þessu 20 ára tímabili,“
segir Karl Ágúst Úlfsson, for-
sprakki Spaugstofunnar.
Síðasti þáttur þeirra félaga þenn-
an veturinn verður sýndur næst-
komandi laugardagskvöld, og verð-
ur það þáttur númer 333 frá
upphafi. Aðspurður segist Karl
Ágúst telja að þar sé um einhvers
konar heimsmet að ræða, að
minnsta kosti í þessum flokki sjón-
varpsþátta. „Ég hugsa það nú, en
það fer nú kannski svolítið eftir því
hvernig þetta er reiknað. Ef við
skoðum leikna gamanþætti í sjón-
varpi með sömu höfundum og sömu
áhöfn allan tímann held ég að þetta
hljóti að vera heimsmet,“ segir
hann en leggur um leið áherslu á að
líklega sé enginn þáttur eins og
Spaugstofan sýndur í heiminum.
„En auðvitað eru svona frétta-
tengdir þættir keyrðir víða og sem
dæmi má nefna Saturday Night
Live sem hefur verið sýndur í
bandarísku sjónvarpi í eitthvað yfir
30 ár. En þar er hins vegar skipt
um áhöfn reglulega, og búið að fara
í gegnum marga hópa.“
Ala upp nýja kynslóð
Spaugstofan er stöðugt í efstu
sætum á listum Capacent Gallup yf-
ir vinsælustu þættina í íslensku
sjónvarpi, og sem dæmi má nefna
að þáttur þeirra félaga sem sýndur
var hinn 12. apríl mældist með
44,3% uppsafnað áhorf. Hvernig tel-
ur Karl Ágúst að standi á þessum
óþrjótandi vinsældum? „Vænt-
anlega er það vegna þess að fólk
hefur ennþá gaman af okkur, ég
held að það sé stærsta skýringin.
Við erum náttúrlega að fjalla um líð-
andi stund, og þar af leiðandi veru-
leika fólks sem er að horfa á okkur.
Og ég vænti þess að við séum að
gera það á þann hátt að fólk vilji
frekar sjá það frekar en missa af
því,“ segir hann.
En ætlið þið nokkuð að rugga
bátnum þegar það gengur svona vel,
og gera einhverjar róttækar breyt-
ingar síðasta veturinn? „Við erum
svo sem ekkert farnir að ræða næsta
vetur, en við erum alltaf opnir fyrir
nýjum hlutum og reynum reglulega
að sprengja rammann og gera eitt-
hvað sem við höfum ekki gert áður.
Við höldum því áfram, enda mynd-
um við ekki nenna að standa í þessu
ef við værum að gera það sama dag
eftir dag,“ segir Karl Ágúst, en
meðal þeirra breytinga sem gerðar
hafa verið má nefna þann fjölda
aukaleikara sem hefur komið fram
í þáttunum í vetur, og mun halda
því áfram þann næsta. „Þetta er
nefnilega líka liður í því að ala upp
nýja kynslóð,“ segir Karl Ágúst og
hlær.
Það er því ljóst að þeir félagar
eru fyllilega klárir í sinn síðasta
vetur á skjánum, enda segir Karl
Ágúst þá frískari en nokkru sinni
fyrr. Sem dæmi nefnir hann að þeir
verði aldrei uppiskroppa með hug-
myndir. „Það var það sem allir
héldu í upphafi, og þar á meðal við
sjálfir, að þegar við færum að
keyra svona viku eftir viku kæmi að
því á endanum að það yrði einhvers
konar þurrð. En þegar þessi hópur
kemur saman er eins og þarna sé
einhver uppspretta sem ekki geng-
ur til þurrðar. Þannig að við höfum
aldrei lent í því að vanta hug-
myndir.“
En eruð þið alveg harðir á því að
hætta endanlega eftir næsta vetur?
„Þannig líður okkur allavega í dag,
og við höfum hugsað þetta þannig
að við lokum þessum 20 ára hring –
og snúum okkur svo að einhverju
öðru.“
Þáttur númer
333 sýndur á laug-
ardaginn Allra
síðasta þáttaröðin
sýnd næsta vetur
Í þá gömlu góðu Spaugstofan í sinni upprunalegu mynd árið 1990. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá.
Spaugstofan setur heimsmet
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
■ Fim 8. maí kl. 19.30
PPP áttræður
Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í
þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan
með þessum tónleikum þar sem einn athyglisverðasti ungi sellisti
heims leikur dásamlegan sellókonsert Schumanns. Þá er á efnis-
skránni hin magnaða fimmta sinfónía Mahlers auk verks eftir afmælis-
barnið. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba. Einleikari: Danjulo Ishizaka
Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á
Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir.
■ Fim. 15. maí kl. 19.30
Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna Hinn heimsþekkti
sönghópur Swingle Singers mætir með efnisskrá sem spannar allt
sviðið. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af.
■ Lau. 17. maí kl. 14.
Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda
bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri
endurflutt. Tryggið ykkur miða!Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is