Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 39
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SITTHVAÐ getur verið land-
kynning annað en glysbæklingar
og beinar auglýsingar eins og
sannast á vinsældum íslenskrar
tónlistar og bókmennta; það
koma ófáir hingað til lands í leit
að Björk eða Sigur Rós og eins á
Erlendur sér fjölmarga aðdá-
endur úti í heimi sem heimsækja
landið með hann í huga.
Botsvana er og land sem nýt-
ur góðs af vinsældum aðal-
persónu úr glæpasagnaröð, því
bækur Alexanders McSmiths
um Mma Ramotswe hafa selst í
bílförmum og aukið ferðalög til
heimalands hennar.
Í bókunum Mma Ramotswe
eru glæpirnir misalvarlegir og
reyndar sumt ekki beint glæpir.
Í nýrri bókaröð um annan
Botsvanabúa, David „Kubu“
Bengu, er viðfangsefnið öllu
harkalegra, því fyrsta bókin
hefst með því er menn finna lík-
amsleifar sem eru lítið annað en
bein og sinar eftir að hýenur og
hrægammar hafa verið að gæða
sér á þeim. Smám saman kemur
svo í ljós að beinin eru af hvítum
manni en það á eftir að taka
Kubu langan tíma að komast að
því hver hinn látni var því búið
var að brjóta allar tennur úr við-
komandi og ýmsir fleiri eiga eft-
ir að geispa golunni áður en yfir
lýkur.
Viðurnefnið „Kubu“, sem er
flóðhestur á Setswana, lýsir höf-
uðpersónunni býsna vel, hann er
gríðarlega mikill vöxtum, um
140 kíló að minnsta kosti, mikill
lífsnautnamaður í mat og drykk
og óperuunnandi. „Kubu“ lýsir
líka vel upplagi hans því líkt og
flóðhesturinn er hann óstöðv-
andi og stórhættulegt að verða á
vegi hans. Honum tekst líka að
leysa gátuna á endanum þó að
hann þurfi að sauma að forrétt-
indastétt landsins og flækjan
verði meiri við hvert dauðsfall og
af þeim er nóg.
Höfundar þessarar nýju bóka-
raðar eru í raun tveir, Michael
Sears og Stanley Trollip. Þeir
eru hagvanir í sunnanverðri Afr-
íku og hafa glímt við ljón, skóg-
arelda og fíla, en tekið dýralífs-
myndir í Simbabve, Suður-
Afríku og Botsvana í áratugi.
Þeir eru báðir fæddir í Jóhann-
esarborg í Suður-Afríku og
Sears býr þar en Trollip ýmist
þar eða í Minneapolis. Það er
væntanlega ekki tilviljun að þeir
kjósa að láta bókatröðina gerast
í Botsvana, Mma Ramotswe er
búin að brjóta ísinn en sú Botsv-
ana sem þeir lýsa er nútímalegri
og eins vandamálin sem glímt er
við; náttúruvernd, misskipting
auðs og blóðdemantar.
Forvitnilegar bækur: Ný glæpasagnaröð frá Afríku
Blóðdemantar í Botsvana
Dýralíf í Botsvana Flóðhesturinn verður að einskonar tákni fyrir
aðalpersónu bókarinnar, David „Kubu“ Bengu.
1. Where Are You Now? – Mary Higgins Clark
2. Unaccustomed Earth – Jhumpa Lahiri
3. Certain Girls – Jennifer Weiner
4. Belong To Me – Marisa de los Santos
5. Small Favor – Jim Butcher
6. The Appeal – John Grisham
7. Compulsion – Jonathan Kellerman
8. Change of Heart – Jodi Picoult.
9. Bulls Island – Dorothea Benton Frank
10. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini
New York Times
1. Lords of the Bow – Conn Iggulden
2. Engleby – Sebastian Faulks
3. The Enchantress of Florence - Salman Ruhdie
4. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini
5. The Post-birthday World – Lionel Shriver
6. On Chesil Beach – Ian McEwan
7. The Gathering – Anne Enright
8. The Book Thief – Markus Zusak
9. Mister Pip – Lloyd Jones
10. Slam – Nick Hornby
Waterstone’s
1. Exit Music – Ian Rankin
2. Bad Luck and Trouble – Lee Child
3. Stalins Ghost – Martin Cruz Smith
4. Witch of Portobello – Paulo Coelho
5. Blood of Flowers – Anita Amirrezvani
6. Children of Hurin – J. R. R. Tolkien
7. Lollipop Shoes – Joanne Harris
8. Skin Privilege – Karin Slaughter
9. Dexter in the Dark – Jeff Lindsay
10. Daring to Dream – Nora Roberts
Eymundsson
ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR»
FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
- H.J., MBL
eeee
- S.V., MBL
eee
Sýnd kl. 10:15
Ver
ð aðeins
550 kr.
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Sýnd kl. 6
- V.J.V.,
TOPP5.IS/FBL
“Tryllingslegt hnefahögg
í andlitið!”
- S.V., MBL
- K.H.G., DV
TOPPMYNDIN Á
ÍSLANDI Í DAG!
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
endurgreitt
í Regnboganum
The Ruins kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Vantage Point kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Tropa de Elite enskur texti kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
King of Kong íslenskur texti kl. 6 - 10:20 Leyfð
The Band’s Visit enskur texti kl. 6 Leyfð
Caramel enskur texti kl. 6 Leyfð
Sýnd kl. 8 og 10:15Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 6 m/ísl. tali
-bara lúxus
Sími 553 2075
MÖGNUÐ MYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
UM HÓP NEMENDA SEM SÉRHÆFÐU SIG Í AÐ
LÆRA OG TELJA Í SPILIÐ 21 MEÐ ÞAÐ MARKMIÐ
AÐ HREINSA SPILAVÍTIN Í VEGAS!
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
- L.I.B. TOPP5.IS, FBL- H.J., MBL
- L.I.B.,
TOPP5.IS/FBL
SÝND Í REGNBOGANUM
bíóDAGARREGNBOGINN11.-30. APRÍL
GRÆNA ljóssiNs
- S.V., MBL
CARAMEL
SÝND Í REGNBOGANUM
SÝNDAR Í REGNBOGANUMSÝND Í REGNBOGANUM