Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 15
AKUREYRI
EYFIRSKI safnadagurinn þótti
takast afar vel, en hann var á laug-
ardaginn. Fjöldi fólks sótti heim söfn
víða um fjörðinn og voru gestir tölu-
vert fleiri en í fyrra.
„Það er annað fólk sem kemur til
okkar á þessum degi en venjulega;
þá grípa heimamenn tækifærið og
fara jafnvel á mörg söfn sama dag-
inn,“ sagði Kristín Sóley Björnsdótt-
ir, kynningarfulltrúi Minjasafnsins á
Akureyri, í samtali við Morgunblað-
ið.
Kristín Sóley segir algengt að
heimamenn hugsi sem svo að söfnin
séu öll í túnfætinum, þannig að þang-
að sé hægt að fara hvenær sem er.
En svo fari margir aldrei – nema
þegar svona tækifæri gefst!
Safnarútur fóru frá Akureyri;
önnur fram í fjörð á Smámunasafnið
og síðan á Safnasafnið á Svalbarðs-
strönd og í Laufás. Hin fór út með
firði austan megin, til Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar, en hluti hópsins fór
reyndar ekki svo langt heldur sigldi
út í Hrísey og fór þaðan til Dalvíkur.
Rúturnar voru vinsælar og stefnt er
að því að á næsta ári verði einnig
hægt að taka sér far á stöðunum yst í
firðinum og halda til Akureyrar.
Kristín Sóley segir safnafólk hafa
verið mjög ánægt í fyrra, á fyrsta
safnadaginn, og allir verið sammála
um að halda þessu áfram. Nú hafi að-
sókn verið enn meiri og dagurinn
hafi örugglega fest sig í sessi.
„Ég er viss um að heimamenn eru
bestu kynningarfulltrúar okkar og
þess vegna viljum við sýna þeim
söfnin, til þess að þeir geti vísað
gestum sínum þangað í framtíðinni.
Við viljum líka kynna fólki innra
starf safnanna, að við leggjumst ekki
í dvala 15. september þegar lokað er
fyrir sumarstarfsemina! Hér í
Minjasafninu á Akureyri eru sex
starfsmenn og alltaf nóg við að vera;
til dæmis við að taka á móti munum,
skrá, flokka og forverja og ýmislegt
fleira,“ sagði Kristín Sóley.
Heimamenn eru bestu
kynningarfulltrúarnir
Safnafólk mjög
ánægt með það
hvernig til tókst
Ljósmynd/Alma Skaptadóttir
Spennandi Þessi ungi drengur skoðaði hús Hákarla-Jörundar í Hrísey.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
ÍSLENDINGAR voru ekki of-
arlega á vinsældalista íbúa stóru
sjávarútvegsstaðanna á austur-
strönd Englands, þar á meðal
Grimsby, á tímum þorskastríðanna
og árunum eftir þau. En tímarnir
breytast og mennirnir með; Ís-
lendingar stunda mikil viðskipti á
svæðinu og nú hillir undir að
Grimsby og Akureyri taki upp
formlegt vinabæjarsamband.
Nokkrir fulltrúar í sveitarstjórn
Grimsby og nágrennis í Norður-
Lincolnskíri eru í heimsókn á Ak-
ureyri. Undir þessi stjórnvöld
heyrir 160.000 manna samfélag
þar sem stærstu borgirnar eru
Grimsby, Cleethorpes og Imm-
ingham. Gestirnir funduðu í gær
með forráðamönnum bæjarins og
Háskólans á Akureyri, en í dag
hitta þeir að máli fulltrúa við-
skiptalífsins í bænum. Akureyrsk-
ir viðskiptamenn hafa stefnt að
því að setja á stofn nokkurs konar
verslunarráð Akureyrar og ekki er
talið ólíklegt að af því verði í
tengslum við þessa heimsókn.
Slíkur félagsskapur er fyrir hendi
í Grimsby, formaður hans er með í
för í höfuðstað Norðurlands, og
eru vonir bundnar við að frekari
viðskipti milli fyrirtækja á stöð-
unum tveimur geti orðið að veru-
leika.
Grímsbæingar endurgjalda nú
heimsókn Akureyringa frá því í
fyrra. Þá var undirrituð vilja-
yfirlýsing um vinabæjarsamstarf,
en ætlunin er að leggja meg-
ináherslu á samskipti atvinnulífs
og mennta- og rannsóknarstofn-
ana. Breski borgarstjórinn sagði
m.a. í samtali við Morgunblaðið í
gær að heimamenn í Grimsby ætl-
uðu sér að koma á fót eigin há-
skóla og stefnt væri að samstarfi
við Háskólann á Akureyri á
ákveðnum sviðum. Raunar munu
skólamenn í Lincolnsskíri þegar
þiggja ráð norðanmanna varðandi
uppbyggingu þeirrar menntastofn-
unar.
„Mér finnst mjög ánægjulegt að
hægt skuli að glæða aftur þá vin-
áttu sem var fyrir hendi á milli
fólks á þessum stöðum á árum áð-
ur,“ sagði Stewart Swinburn,
borgarstjóri svæðisins, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann
sagði ástandið vitaskuld hafa
breyst þegar deilur þjóðanna
vegna fiskveiðilögsögunnar voru
sem harðastar, en ekki þýddi að
dvelja í fortíðinni. „Við verðum að
grafa stríðsöxina og hugsa til
framtíðar, og ég er mjög spenntur
fyrir því að koma á vinabæjarsam-
starfi. Við viljum samt ekki fara of
geyst, heldur tökum eitt skref í
einu en leggjum áherslu á að
svæðin bindist traustum vin-
áttuböndum. Við viljum koma á
tengslum sem nýtast næstu kyn-
slóðum.“
Swinburn lagði áherslu á að
fólki á báðum stöðum yrði kynnt
saga vinanna handan hafsins.
„Grimsby var t.d. stærsta fiski-
höfn á Bretlandi á sínum tíma og
hér hefur fiskurinn líka alltaf
skipt miklu máli.“
Sögulegt vináttusamband í augsýn
Þorskastríðin bitnuðu mjög á Grimsby á Englandi sem verður líklega næsti vinabær Akureyrar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vinátta Stewart Swinburn, borgarstjóri í Grimsby, og Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri í Nonnahúsi í gær.
SÝNING á verkum Karls Guð-
mundssonar var opnuð í Ketilhús-
inu á laugardaginn og er hluti af
List án landamæra. Karl er alvar-
lega mál- og hreyfihamlaður ungur
maður en hann býr yfir góðum
skilningi, að sögn Rósu Kristínar
Júlíusdóttur, myndlistarkonu og
kennara, sem starfað hefur með
honum lengi. „Þrátt fyrir fötlun
sína tekst Kalla að koma til skila
þeirri næmu listrænu tilfinningu
sem býr innra með honum,“ segir
hún. Rósa segir sjónræna hugsun
Kalla strax á barnsaldri af þeirri
gerð sem Ellen Winner (prófessor í
sálfræði við Boston-háskóla) telur
einkenna börn með afburða greind
í myndsköpun. „Kalli kýs að fara
fagurfræðilegu leiðina í myndlist
sinni,“ segir Rósa. Þegar hann er
spurður hvað hann vilji segja með
myndunum sínum svarar hann iðu-
lega: „Ég vil að fólki líði vel þegar
það upplifir myndirnar mínar.“ –
„Hann hefur sagt mér,“ segir Rósa,
„að fyrir sér sé fagurfræði allt fal-
legt sem hann sér.“ „Fagurfræðileg
upplifun,“ segir Kalli, „er aftur á
móti þegar ég sé eitthvað fallegt þá
líður mér einkennilega vel. Það ert-
ir eitthvað. Ég verð einkennilegur
innan í mér, verð spenntur, en líður
þó vel.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Ég verð einkenni-
legur innan í mér“
Kalli og Rósa … Karl Guðmundsson og Rósa Kristín Júlíusdóttir.
TB
W
A\
RE
YK
JA
VÍ
K\
SÍ
A