Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 18

Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 18
daglegt líf 18 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Það er ekki tekið út meðsældinni að vera flótta-maður og lenda svo íókunnum framandi að- stæðum án þess að hafa svo mikið sem óskað eftir slíkum vistaskiptum sjálfur,“ segir Zija Krrutaj, 21 árs gamall flóttamaður frá Kósóvó. Zija flúði ásamt fjölskyldu sinni heimaland sitt Kósóvó vegna stríðs- átaka árið 1998. Fjölskyldan fór til Sarajevó í Bosníu þar sem hún bjó í flóttamannabúðum í sjö ár eða þang- að til henni bauðst fyrir tilstilli Rauða krossins á Íslandi að flytjast til Íslands sem flóttamenn. Zija kom fyrst til Íslands í ágúst árið 2005 ásamt foreldrum sínum og fjórum systkinum. Íslandsdvölin hefur því staðið í rúm tvö og hálft ár en fjölskyldan býr í íbúð við Snorra- braut. Foreldrarnir eru heimavinn- andi og eru systkinin öll í skóla nema það elsta, sem starfar á Land- spítalanum. „Við hófum strax ís- lenskunám við Fjölbrautaskólann í Ármúla, en íslenskan hefur reynst fjölskyldumeðlimum miserfið. For- eldrar mínir gáfust til dæmis mjög fljótlega upp á því að læra tungu- málið, en við systkinin skiljum málið orðið nokkuð vel. Það er hins vegar ekki auðvelt,“ seg- ir Zija og brosir. Eftir eina námsönn í íslensku tók við fullt almennt stúdentsnám við FÁ sem lauk með því að Zija út- skrifaðist sem stúdent. Síðastliðið haust settist hann svo á skólabekk í Háskóla Íslands þar sem hann er nú að ljúka fyrsta ári í viðskiptafræði. „Námið gengur held ég bara ágæt- lega miðað við mína málakunnáttu. Það má segja að ég hafi fengið drauma mína uppfyllta sem fela í sér að fá að ganga menntaveginn. Ég stefni á að klára viðskiptafræð- ina og svo sé ég bara til hvað tekur við,“ segir Zija á góðri íslensku og bætir við að nú sé hann í leit að vinnu, sem geti komið sér að gagni við námið. Tillögur að bættum heimi Zija var boðið af Flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóðanna að taka þátt í ráðstefnu um ungt flóttafólk í Evrópu sem auk Flótta- mannastofnunarinnar var skipulögð af Evrópuráðinu. Þessi fyrsta ráð- stefna var haldin í Strassborg í des- ember 2006 og var Zija eini fulltrúi Íslands á ráðstefnunni. „Þarna hitt- ist um þrjátíu manna hópur ungs fólks á aldrinum 18 til 30 ára sem átti misjafna reynslu að baki sem flóttamenn auk einstaklinga sem vinna með flóttafólk. Þegar við fór- um að ræða saman kom í ljós að vandamálin sem flóttafólk glímir við eru keimlík, burtséð frá því hvar það er niðurkomið. Við vorum því hvött til að setja niður okkar markmið og tillögur að betri heimi, ungu flótta- fólki til hagsbóta sem við og gerðum og lítum á sem vinnuplagg til kom- andi ára. Okkur varð vel til vina enda upplifðum við okkur sem eina stóra fjölskyldu. Við kvöddumst síð- an með það eitt að markmiði að hitt- ast á ný til að freista þess að bæta líf ungs flóttafólks.“ Boðað var svo til annarrar ráð- stefnu í Búdapest í febrúar síðast- liðnum þar sem hópurinn hittist á ný og nú er stefnt að stofnun netsam- félags og formlegra samtaka ungs flóttafólks. Zija segir að þriðji fund- urinn hafi enn ekki verið skipulagð- ur, en gaman væri auðvitað að geta haldið hann á Íslandi með góðra manna hjálp. Upplifunin er dálítið erfið „Ég dreg enga dul á það að aðlög- un að íslensku samfélagi er mjög erfið. Við fluttum til lands þar sem býr lítil þjóð og allir þekkjast. Og ef manni tekst ekki nógu vel upp með íslenskuna er lífið hér svolítið erf- itt,“ segir Zija, sem á sér albönsku sem móðurmál en talar auk þess bosnísku og nú íslensku. „Áður en okkur bauðst að fara til Íslands höfðum við hafnað í tvígang boðum um að flytjast til Bandaríkj- anna og Kanada, en þorðum ekki að hafna í þriðja sinn af ótta við hvað um okkur yrði. Það var því aldrei spurning um annað en að þiggja Ís- landsboðið þegar það kom. Við viss- um þá ekkert um Ísland annað en að um væri að ræða eyju sem tilheyrði Skandinavíu og að hér væri svolítið kalt í veðri. Þekkingin er þó allt ann- ars eðlis en sjálf upplifunin. Satt best að segja áttum við von á því að upplifun okkar hér á Íslandi yrði auðveldari en reyndin hefur verið.“ Ísland gæti orðið fyrirmynd Zija segir aðstæður til móttöku flóttamanna misjafnar eftir löndum. „Ég hika þó ekki við að fullyrða að Ísland geti verið fyrirmynd hvað varðar móttöku á flóttamönnum eft- ir að hafa heyrt reynslusögur ann- arra enda er hér allt gert til að flóttamönnum geti liðið sem best. Það er þó ekki þannig að allt sé full- komið því margt má auðvitað bæta líka. Íslendingar vita til dæmis ósköp lítið um flóttamenn og sumir vilja ekkert endilega auðvelda þeim lífið. Flóttamenn eru hins vegar ekkert hingað komnir vegna eigin óska og þráhyggju þar um heldur hafa þeir verið reknir áfram og inn í aðstæður sem þeir báðu aldrei um sjálfir. Það er því kannski svolítið mikilvægt að skilgreina hlutverk flóttamannsins upp á nýtt svo hann geti fundið sér einhverjar rætur á ný eftir miklar þjáningar.“ join@mbl.is Að finna sér rætur á ný Morgunblaðið/Ómar Flóttamaður Zija Krrutaj flúði ásamt fjölskyldu sinni frá Kósovó árið 1998 og hafði búið í flóttamannabúðum í Sarajevó í Bosníu í sjö ár þegar fjölskyldunni bauðst hæli á Íslandi sem hún vissi lítið sem ekkert um. Skilaboð Á Íslandi er ekki stríð, en kannski fjölmörg önnur vandamál, sem blasa við flóttamönnum, sem setjast að hér á landi. „Draumur minn snýst um að fá að ganga menntaveginn,“ sagði Zija Krrutaj í samtali við Jóhönnu Ingvars- dóttur. Zija er í við- skiptafræði við HÍ og var boðið af Flótta- mannastofnun Samein- uðu þjóðanna og Evr- ópuráðinu í félags- skapinn „Ungt flóttafólk í Evrópu“. Þegar við fórum að ræða saman kom í ljós að vandamálin sem flóttafólk glímir við eru keimlík, burtséð frá því hvar það er niðurkomið. Ílok venjulegs skóladags skráir NicoleDobbins sig inn á vefinn ParentConnect áheimaskrifstofu sinni í borginni Alpha- retta í Georgíu í Bandaríkjunum og les nýjustu skýrslur um börnin sín þrjú áður en hún rýkur út til að taka á móti skólabílnum. Hún er líka steinhætt að spyrja hefðbund- inna spurninga um hvernig hafi verið í skól- anum í dag, hún veit svarið nú þegar. Hvað hef- urðu að segja um þessa einkunn?“ spyr hún þess í stað og þegar elsti sonur hennar kemur heim um kvöldmatarleytið kann vel að vera tilbúið útprent af ParentConnect vefnum þar sem lélegustu einkunnirnar hafa verið yfirstrik- aðar með gulum merkipenna. „Hann veit að ég skoða ParentConnect á hverjum degi og að við munum taka á þeim málum sem upp koma,“ hefur New York Times eftir Dobbins. Leiðarvísir eða njósnatæki? Fjöldi vefsíðna er nú í boði í Bandaríkjunum sem gera foreldrum kleift að fylgjast daglega með námi barna sinna – hvort þau hafi mætt í tíma, skilað verkefnum og hvernig þau standi sig á prófum. Að sögn New York Times hafa vefir á borð við Edline, ParentConnect, Pin- nacle Internet Viewer og PowerSchool áhrif á samskipti milli foreldra og barna, fjölskyldna og kennara. Þó forrit á borð við þessi hafi í sum- um tilfellum verið árum saman í boði hafa þau ekki náð verulegum vinsældum fyrr en nýlega. Rannsóknir sýna að það getur haft jákvæð áhrif á námsárangur barna sýni foreldrarnir náminu áhuga og kennarar hafa lofað þau áhrif sem for- ritin geta haft á tengsl við foreldranna. Í bestu tilfellum geta þau verið eins konar leiðarvísir fyrir foreldrana um námsgreinar barnsins, áminning fyrir gleymna krakka eða jafnvel við- vörunarljós og lygamælir. Slíkir vefir eru hins vegar ekki eingöngu af hinu góða því þeir geta líka aukið streitu barna vegna daglegra ein- kunna og aukið átök innan fjölskyldunnar. „Það góða er mjög gott,“ segir Nancy Lar- sen, skólastjóri við Fairfield Ludlow mennta- skólann í Connecticut. „En það slæma er mjög ljótt.“ Á táningsaldrinum þegar krakkar vilja í sí- auknum mæli öðlast aukið frelsi frá fjölskyldum sínum nota sumir foreldrar vefina til að herða tökin. Samkeppnin um bestu háskólana er svo hörð segja foreldrar, að þeim finnst nauðsyn- legt að fylgjast reglulega með einkunnum barnsins. Það er nefnilega hægt að fylgjast mjög náið með börnunum – kanna hvaða verk- efni séu framundan, hvaða verkefnum þau eigi að vera að vinna að, hvort þau hafi skilað sér seint í tíma, hlotið áminningu og hvaða einkunn- ir þau hafi fengið fyrir heimaverkefni og próf. Það er meira að segja hægt að fá viðvörun senda í farsímann! Líkt og gefur að skilja eru börnin ekki alltaf sátt við þann óhefta aðgang sem foreldrarnir virðast hafa að skólaveru þeirra og er ófáar kvartanir í þá veru að finna á Facebook. „Ég geng inn í húsið og það er ekki einu sinni: Halló, hvernig var dagurinn. Það er öskrað á mig af því að ég féll á prófi,“ skrifar einn dæmigerður táningur á Facebook. Og ann- ar skrifar: „Þetta er eins og hafa foreldra sína eða forráðamenn standandi yfir sér allan dag- inn í skólanum að bíða eftir því að manni verði á.“ Það er erfitt, að sögn New York Times, að meta nákvæmlega áhrif vefsíðna á borð við Par- entConnect á námsárangur og þó margir segi árangurinn góðan hafa aðrir, eins og t.d. Denise Pope fyrirlesari við Stanford, áhyggjur af að þessar síður auki á kvíða nemenda. „Þegar svona mikil áhersla er lögð á einkunnirnar er verið að segja við krakkana: „Það er mikilvæg- ara að ná einkunninni, með öllum tiltækum ráð- um, heldur en að læra efnið.“ Og þar með fjölg- ar þeim sem svindla,“ segir Pope. Ég veit hvað þú gerðir í síðasta stærðfræðitíma Reuters Skólinn Það getur bætt árangur en líka aukið stress barna að foreldrar fylgist með náminu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.