Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Hjól í óskilum
UNDANFARNAR 2-3 vikur hefur
hjól verið í óskilum fyrir utan Lífeyr-
issjóðinn í Bankastræti 7. Hjólið er
læst og er af gerðinni Trek. Það er vel
með farið og fjólublátt og grátt á lit.
Eigandinn er vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 510-6100.
Þrælabönd
STÖNDUM við öll jöfn gagnvart
sköttum og skyldum þessa lands?
Varla, sumir vinna svart, öðrum er
leyft að draga allan kostnað sem kost-
ar þá að lifa frá tekjum sínum svo
engir eru tekjuskattarnir. En óbreytt
launafólk skal greiða tekjuskatt að
fullu sem fer svo í að niðurgreiða
rekstrarkostnað framleiðenda. Nið-
urgreiðslurnar nema tugum milljarða
króna á ári og í ofanálag þurfa launa-
fólk og neytendur að borga hæsta
matvælaverð í heimi. Launafólk og
neytendur eru í þrælaböndum þessa
óréttlætis, þessu verður ekki aflétt
fyrr en við göngum í ESB.
Pétur Sigurðsson.
Seðilgjöld, nei takk
Í framhaldi af grein í Fréttablaðinu
hinn 4. maí og grein viðskiptaráð-
herra, Björgvins G. Sigurðssonar, um
innheimtu seðilgjalda er mér bæði
ljúft og skylt að benda á að Veita inn-
heimtuþjónusta ehf. innheimtir
hvorki seðilgjöld af greiðendum né
kröfuhöfum.
Veita hefur ekki innheimt seð-
ilgjöld síðan 17. september 2007 þeg-
ar félögin Premium og AM Kredit
voru sameinuð undir nafni Veitu.
Með þessari aðgerð hefur félagið náð
til fyrirtækja sem hafa ekki notað
þjónustu innheimtufyrirtækja vegna
m.a. mótlætis við seðilgjöld. Færst
hefur mjög í vöxt að fyrirtæki neiti að
greiða seðilgjöld enda um talsverðar
upphæðir að ræða þegar um er að
ræða stærri fyrirtæki. Niðurfelling
seðilgjalda hefur lagst vel í við-
skiptavini og ekki síður greiðendur
enda er slík gjaldtaka gamaldags,
óþörf og ósanngjörn.
Ólafur Kjartansson,
framkvæmdastjóri.
Tæknifrjóvgun
EINHLEYPAR konur öðlast rétt til
tæknifrjóvgunar, var fyrirsögn í
Fréttablaðinu 5. maí. Mér varð hugs-
að til þessara barna og langar að
beina eftirfarandi spurningum mín-
um til heilbrigðisráðherra. Hver er
réttur þessara barna? Hver ætlar að
vera faðir þeirra? Og hver á að borga
með þeim? Hefur eitthvað verið
hugsað út í framtíð þeirra?
Lesandi.
Fyrr má rota en dauðrota
ÉG er eldri borgari og fór í Lyfjaver
til að kaupa Viagra sem er ekki í frá-
sögur færandi nema hvað að pakkinn
sem kostaði einu sinni 12.500 kr. fyrir
12 pillur hefur nú mánuði síðar hækk-
að upp í 19.178 kr. fyrir sama
skammt. Þeir gefa afslátt sem nemur
um 12,5 % eða 2.397 kr. af heild-
arverði. Þetta finnst mér vera sví-
virðileg hækkun og sérstaklega þar
sem tryggingarnar taka engan þátt í
þessu. Einhvers staðar las ég það að
annars staðar á Norðurlöndunum
væri þetta frítt fyrir eldri borgara.
En það er svívirðilega farið með okk-
ur hér.
Eldri borgari.
HÉR eru tveir vinir saman að dorga við höfnina í fallegu veðri. Það er
skemmtileg iðja og sumum finnst þetta vera ágæt leið til að róa taugarnar
á meðan horft er ut á hafið.
Morgunblaðið/Frikki
Dorgað við höfnina
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÆTLA EKKI AÐ
GELTA Á ÞIG Í DAG
Í STAÐINN ÆTLA ÉG AÐ
TJÁ MIG MEÐ DANSI
MEÐ ÞESSUM DANSI ÆTLA ÉG
AÐ TÚLKA TILFINNINGAR MÍN-
AR Í GARÐ SAMBANDS OKKAR
ÞETTA ÚTSKÝRIR
AF HVERJU HANN
VAR SVONA GÓÐUR
VIÐ BRÉFBERANN
TEPPIÐ MITT!
Ó, SNOOPY! ÞÚ FANNST ÞAÐ!
ÞÚ FANNST ÞAÐ! ÞÚ FANNST
ÞAÐ! ÞÚ FANNST ÞAÐ!
STUNDUM ER TILVIST
MÍN RÉTTLÆTANLEG
MAMMA OG
PABBI ERU
FARIN. NÚNA
ERUM VIÐ BARA
EINIR MEÐ
BARNAPÍUNNI
HELDURÐU AÐ HÚN MUNI
EFTIR ÞVÍ ÞEGAR HÚN VAR
HÉRNA SÍÐAST OG VIÐ
ÆTLUÐUM AÐ STURTA
GLÓSUNUM HENNAR NIÐUR?
HA! HA! ÞAÐ
VAR FRÁBÆRT!
FARÐU AÐ
SOFA! HVAÐ?
KLUKKAN ER
BARA HÁLF
SJÖ!
HÚN MUNDI EFTIR ÞVÍ
HÚN KEMST EKKI
UPP MEÐ ÞETTA!
HRINGJUM Í
BJÖRGUNAR-
SVEITINA
EIGUM VIÐ
AÐ SKÁLA,
HRÓLFUR?
JÁ... FYRIR
HVERJU VILTU
SKÁLA?
HMM...
ÞAÐ ER GÓÐ
SPURNING
ÉG VIL SKÁLA FYRIR ÞVÍ
AÐ ÞURFA EKKI AÐ FARA Í
MAT HEIM TIL ÞÍN Í KVÖLD
HANN KEMUR
ALLTAF BARA
MEÐ ÓDÝR
SKOT
Á MIG!
HJÓNABANDS
-RÁÐGJAFI
GAMAN AÐ
SJÁ ÞIG, ADDA!
MANNSTU
EFTIR MÉR?
TOMMI!
AUÐVITAÐ! ÞAÐ
KEMUR MÉR Á
ÓVART AÐ ÞÚ
SKULIR MUNA
EFTIR MÉR
AUÐVITAÐ!
ÞÚ LÍTUR
MJÖG
VEL ÚT
Í KVÖLD
Ó?
TAKK!
ÞÚ HEFÐIR
EKKI SAGT
ÞETTA Í
SKÓLANUM
VÍST HEFÐI ÉG GERT
ÞAÐ. ÉG VAR ALLTAF MEÐ
VINSÆLU KRÖKKUNUM
EN MIG LANGAÐI ALLTAF
AÐ BJÓÐA ÞÉR ÚT
AF HVERJU
GERÐIR ÞÚ
ÞAÐ EKKI?
VINIR
MÍNIR
HEFÐU
STRÍTT
MÉR...
Ó... ÞÁ
SKIL ÉG
ÞAÐ ALVEG
Æ, NEI! ÞÚ
HEFUR MEITT
PETER!
HVERJUM ER
EKKI SAMA?
FYRST ÉG HEF
NÁÐ ÞÉR...
ÞÁ ER
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN
NÆSTUR!
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Sími 533 4800
Glæsileg og mikið endurnýjuð 78,3 fm 3ja herbergja endaíbúð á fjórðu
hæð (efstu) í fjölbýli á Seltjarnarnesi, með glæsilegu útsýni. Íbúðin
skiptist í hol, eldhús, baðherbergi, stofu, og tvö herbergi. Sér geymsla í
kjallara. Glæsilegt útsýni til sjávar í átt að Esjunni. Tvennar svalir.
LÁN MEÐ 4,15% VÖXTUM FRÁ GLITNI FYLGIR EIGNINNI.
LÁNIÐ 17,7 MILLJ.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Eiðistorg – Hagstæð lán áhvílandi