Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 36

Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 36
 Hlust- endaverðlaun FM957, sem veitt voru í Háskólabíói á laugardags- kvöldið, þóttu heppnast nokkuð vel. Eins og fram hefur komið stóð Páll Óskar Hjálmtýsson uppi sem sigurvegari kvöldsins, en hann þurfti að flytja heilar fimm þak- arræður. Í einni þeirra þakkaði hann hljómsveitinni Gusgus sér- staklega, en hann söng hið frábæra lag „Hold You“ á síðustu plötu sveitarinnar, Forever. Sagði Páll Óskar að við upptökur lagsins hefði hann orðið „graður“ að nýju, og ákveðið að gera plötu í kjölfarið. Útkoman varð svo Allt fyrir ástina, sem hefur slegið rækilega í gegn. Gusgus kallaði fram greddu Páls Óskars Allir eiga sína listrænu toppa en þurfti þetta að fara svona rækilega til andskotans eftir það…? 41 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „LEIKURINN er uppseldur fyrir Playstation 3, nema hvað að hægt er að fá hann í pakka með tölvunni sjálfri. Þannig að þeir sem eiga ekki Playstation 3 geta gripið hann með vélinni,“ segir Ólafur Þór Jóelsson, vörustjóri tölvuleikja hjá Senu, en hátt á þriðja þúsund eintök af tölvu- leiknum Grand Theft Auto IV hafa selst fyrir Playstation 3 hér á landi. Sala á leiknum hófst fyrir viku og er uppseldur fyrir Playstation 3, en einhver eintök eru til fyrir X-Box 360 sem er þó mun óalgengari vél. „Leikir seljast stundum upp, en við fengum gríðarlega mikið magn af þessum leik og það fór mjög hratt. Það er meira á leiðinni og það er set- ið um hvert einasta stykki. Það virð- ist líka vera að margir séu að nota tækifærið núna og fara úr Playsta- tion 2 í Playstation 3. Við finnum að fólk er að kaupa mikið af vélum og það er klárlega tenging á milli þess og leiksins,“ segir Ólafur og bætir því við að fleiri eintök af leiknum séu væntanleg í verslanir hér á landi á fimmtudag eða föstudag. Heyrst hefur að leikurinn gangi nú kaupum og sölum á „svörtum markaði“ fyrir háar upphæðir. Ólaf- ur segir það ekki koma sér á óvart. „Leikurinn tekur að minnsta kosti 50 til 60 tíma í spilun þannig að ef maður deilir því niður á ýmsa aðra afþreyingu getur maður borgað ansi mikið fyrir hann til þess að jafna það út,“ segir Ólafur, en GTA IV hefur selst vel um allan heim. „Ég hef heyrt að sala á leiknum hafi farið yf- ir 400 milljónir dollara, og að það sé mest selda afþreyingarvara allra tíma fyrstu tvo dagana. Þá eru Harry Potter-bækurnar, stærstu bíómyndirnar og fleira tekið með.“ Grand Theft Auto uppseldur Góð ending GTA IV tekur að minnsta kosti 50 til 60 tíma í spilun.  Auglýsingar Símans þar sem meðlimir Merzedes Club eru í að- alhlutverki hafa vakið töluverða at- hygli að undanförnu, og eflaust krækt í nokkra áskrifendur fyrir fyrirtækið. Þeir félagar Gazman og Gillzenegger virðast hins vegar taka hlutverk sitt sem málsvarar Símans sérstaklega alvarlega, og eru þeir sem gangandi auglýsingar fyrir fyrirtækið. Þannig sást til vöðvabúntanna í Diskinum í Laug- ardalslauginni einn fagran helg- armorgun fyrir skömmu þar sem þeir lágu í mestu makindum, sleiktu sólina og töluðu í símann. Árrisulir laugargestir ráku upp stór augu, enda ekki á hverjum degi sem menn hafa síma með sér í heita pottinn – hvað þá til að ræða ævintýri næturinnar. Meira frelsi í sundi Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is LISTDANSNEMINN Frank Fannar Pedersen komst í fimmtán manna úrslit í listdanskeppn- inni Stora Daldansen í Mora í Svíþjóð um helgina. Þar reyna með sér bestu dansararnir á aldrinum 15 til 21 árs frá Eystrasaltslöndunum og Norðurlöndunum að Danmörku undanskil- inni. Rúmlega fjörutíu dansarar komust í keppn- ina í Mora, en fyrst fór fram undankeppni í hverju landi fyrir sig. Frank hefur verið í ballett í tíu ár, eða síðan hann var sjö ára. Hann á ekki langt að sækja hæfileikana því móðir hans er Katrín Hall, list- rænn stjórnandi Íslenska dansflokksins. „Hún ýtti mér ekki út í þetta, en hún lét mig vita að það væri að byrja strákahópur hjá Listdansskól- anum og ég fór í inntökuprófið og komst inn. Svo hef ég bara ekkert hætt, maður festist bara í þessu,“ segir Frank. „Þetta var rosalega öðruvísi á sínum tíma. Ég þurfti að halda þessu leyndu fyrir bekkjarfélögum mínum fyrsta árið.“ Þó að skólafélagar Franks hafi ekki skilið dansáhuga hans til að byrja með, þá breyttist það með árunum. „Þetta var kannski vandamál þegar ég var svona níu til ellefu ára. Svo komst ég upp í gagnfræðaskóla og þar var þetta meira viðurkennt. Það var flott að fá að taka þátt í Skrekk fyrir hönd skólans og hafa einhverja hæfileika til þess að bjóða upp á.“ Næsta vor útskrifast Frank frá MH og þá er stefnan tekin á háskólanám í listdansi, helst er- lendis. „Ég er eiginlega eini strákurinn á mínu aldursskeiði í ballett á Íslandi og þess vegna held ég að það sé svakalega mikilvægt fyrir mig að fá samkeppni. Ég fann það núna úti hvað það var gaman að keppa við aðra karldansara sem voru jafngóðir og ég, þar sem maður þurfti virkilega að sanna sig.“ Þegar fram líða stundir gæti Frank vel hugsað sér að gerast danshöfundur, en næstu árin vill hann dansa sem mest sjálfur. „Það er gaman að vera uppi á sviði og þess vegna er maður nátt- úrlega að æfa sig og pína á hverjum degi.“ Hélt dansinum leyndum  Frank Fannar Pedersen er kominn í flokk bestu ungu dansara Norður- landanna og Eystrasaltsríkjanna  „Þetta var rosalega öðruvísi á sínum tíma“ Morgunblaðið/Golli Dansari „Ég er eiginlega eini strákurinn á mínu aldursskeiði í ballett á Íslandi,“ segir Frank Fannar Pedersen. ■ Fim 8. maí kl. 19.30 PPP áttræður Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan með þessum tónleikum þar sem einn athyglisverðasti ungi sellisti heims leikur dásamlegan sellókonsert Schumanns. Þá er á efnis- skránni hin magnaða fimmta sinfónía Mahlers auk verks eftir afmælis- barnið. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba. Einleikari: Danjulo Ishizaka Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir. ■ Fim. 15. maí kl. 19.30 Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna Hinn heimsþekkti sönghópur Swingle Singers mætir með efnisskrá sem spannar allt sviðið. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af. ■ Lau. 17. maí kl. 14. Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri endurflutt. Tryggið ykkur miða!Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.