Morgunblaðið - 06.05.2008, Side 38

Morgunblaðið - 06.05.2008, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI * Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500 ÞAÐ ÞARF ALVÖRU KARLMANN TIL AÐ VERA BRÚÐARMEYJA eee ,,Hugljúf og skemmtileg" - V.J.V., Topp5.is/FBL SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! eeee “Ein besta gamanmynd ársins” - V.J.V., Topp5.is/FBL -S.V., MBL eeee - 24 stundir 2 VIKUR Á TOPPNUM! Bubbi Byggir ísl. tal kl. 4 21 kl. 10:40 B.i. 12 ára Superhero Movie kl. 4 - 6 B.i. 7 ára Horton m/ísl. tali kl. 3:45 Made of Honour kl. 6 - 8:20 - 10:35 The Ruins kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Tropa de Elite kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára Forgetting Sarah Marshall kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Brúðguminn enskur texti kl. 6 B.i. 7 ára * Gildir á allarsýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ Made of Honour kl. 8 - 10 Street Kings kl. 10 B.i. 16 ára Forgetting Sarah M. kl. 8 B.i. 12 ára Superhero Movie kl. 6 B.i. 7 ára Bubbi Byggir m/ísl. tali kl. 6 SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI „ATH SÉRSTAKT LEYNIATRIÐI ER AÐ MYND LOKINNI (EFTIR LEIKARA/CREDIT LISTANUM)“ Iron Man kl. 5:20 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Made of Honour kl. 5:45 - 8 - 10:15 Made of Honour kl. 5:45 - 8 - 10:15 LÚXUS Street Kings kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! Staða mannréttindastjóra laus til umsóknar Skrifstofa borgarstjóra Hlutverk og ábyrgðarsvið • Standa vörð um að borgarbúum sé ekki mismunað vegna uppruna, litarháttar, trúarbragða, aldurs, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, efna- hags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu. • Undirbúa fundi mannréttindaráðs og fylgja eftir ákvörðunum ráðsins. • Vinna, ásamt mannréttindaráði, framkvæmda- áætlun mannréttindamála. • Efla samráð innan borgarinnar í þeim málum sem mannréttindastefnan nær til. • Eiga samvinnu við stofnanir, félög og önnur sveitarfélög um mannréttindamál. • Leiða samráð við tilnefnda mannréttindafulltrúa á sviðum Reykjavíkurborgar. • Taka þátt í samstarfi stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Þekking á eða reynsla af störfum á þessu sviði æskileg. • Víðtæk reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg. • Stjórnunar-, skipulags- og samskiptahæfileikar. • Tungumálakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður til að ná árangri í starfi. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling sem er reiðubúinn að sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Borgarstjóri er næsti yfirmaður mannréttindastjóra. Laun eru samkvæmt ákvörðun Kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Umsóknir skal færa inn á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is eigi síðar en 26. maí nk. Upplýsingar um starfið veita Anna G. Ólafsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu borgarstjóra, og Hallur Páll Jónsson, mannauðsstjóri Reykjavíkurborgar, í síma 411 1111. Hlutverk mannréttindaráðs er að sjá til þess að mann- réttindastefnu Reykjavíkurborgar sé fylgt eftir og hún kynnt. Í því felst vinna að sérstakri framkvæmdaáætlun mannréttindamála í samvinnu við svið og skrifstofur borgarinnar og hagsmunahópa, samhliða starfs- og fjárhagsáætlunum. Enn fremur ber mannréttindaráði að stuðla að þekkingaröflun og miðlun upplýsinga á sviði mannréttindamála. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heima- síðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsemenn sem þú þarft að ná í. SAMKVÆMT leikstjóra spænskrar heimildakvikmyndar var sigurinn í Evróvisjón-söngvakeppninni árið 1968 hafður af Sir Cliff Richards með svindli. Spænski keppandinn Massiel sigraði í keppninni með lag- inu La, la, la, en eftir æsispennandi stigagjöf þátttökuþjóðanna skildi aðeins eitt stig Massiel og Sir Cliff. Samkvæmt leikstjóranum Montse Fernandes Vila var það að undirlagi Francos einræðisherra Spánar á þessum tíma, sem stig voru „keypt“ af þátttökuþjóðum, þar sem Franco taldi að sigur í keppninni myndi styrkja ímynd Spánar á alþjóðavett- vangi. Er þetta í eina skiptið sem Spánn hefur sigrað í Evróvisjón. Cliff Richards flutti hið góðkunna dægurlag Congratulations! og þótti býsna sigurstranglegur, en keppnin fór fram á heimavelli hans, í Royal Albert Hall. Dagblaðið Daily Telegraph segir að starfsmenn spænska ríkissjón- varpsins hafi verið gerðir út af örk- inni með loforð um að kaupa sjón- varpsþætti og ýmiss konar efni af sjónvarpsstöðvum, gegn því að spænski keppandinn fengi stigin. „Það eru til sönnunargögn sem sýna fram á að stig voru keypt til að tryggja Massiel sigurinn,“ segir Massiel. Á þessum tíma tóku 17 þjóðir þátt í keppninni og sá tíu manna nefnd um stigagjöfina í hverju landi. Ferðamannastraumur var að hefjast til sólbakaðra stranda Spánar og Vila segir að stjórn Francos hafi ver- ið mjög meðvituð um að bæta þyrfti ímynd landsins. „Þegar við horfum til baka, á partíin sem voru skipulögð og hvernig Massiel var gerð að þjóð- arhetju, þá virðist það allt býsna öfgakennt. En þetta var gert til að baða stjórnina dýrðarljóma,“ segir Vila. Lagið La, la, la var umdeilt frá upphafi. Í upphaflegu útgáfunni var sungið á katalónsku en stjórnvöld heimtuðu að lagið yrði sungið á spænsku. Sir Cliff gerði aðra atlögu að sigri í Evróvisjón árið 1973 þegar hann söng lagið Power To All Our Friends. Þá lenti hann í þriðja sæti, fyrir aftan keppendur frá Lúxem- búrg og Spáni. Hann er þó á toppn- um hvað sölu varðar í Bretlandi, hef- ur selt 250 milljón plötur, sem er meira en Bítlarnir og Elvis hafa af- rekað. Reuters Hjartaknúsarinn Spænskur leikstjóri segir spænsk stjórnvöld hafa beitt brögðum til að hafa sigurinn af Sir Cliff í Evróvisjón árið 1968. Haldið fram að Franco hafi rænt Evróvisjónsigri af Sir Cliff Richards SÚPERMÓDELIÐ Elle Macpherson, sem er orðin 45 ára gömul, hyggst flytja úr skarkala og stressi Lundúnaborgar með syni sína tvo, heim til Ástr- alíu. Hefur hún sett glæsihýsi sitt í Notting Hill-hverfinu á sölu. Vinur sýningarstúlkunnar segir að hún hyggist lifa einfaldara lífi í Ástralíu. Sjö hæðir eru í húsinu í Notting Hill og þaðan hefur Macpherson stýrt fyr- irtæki sínu, sem hannar og framleiðir undirfatnað. Þegar hún flutti inn fyrir áratug, voru allar innréttingar sniðnar við hæfi módelsins, til dæmis voru fataskápar sérsniðnir utan um síðar gallabuxur hennar. Þá lét hún koma sundlaug og danssal fyrir í húsinu. Macpherson flytur heim Uppgefin Elle Macpherson er þreytt á London og hyggst flytja heim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.