Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
6
0
8
Máli Istorrent vísað frá
Máli SMÁÍS gegn Istorrent ehf. vísað frá „Ótrúlegt að ætla að meina rétthafa-
samtökum að leita réttar sinna félagsmanna,“ segir framkvæmdastjóri SMÁÍS
HÆSTIRÉTTUR hefur vísað höfundarréttarmáli
gegn Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni frá
dómi. Krafist var viðurkenningar á því að stefndu
væri óheimilt að starfrækja vefsíðuna torrent.is
eða aðra sambærilega vefsíðu sem gerir notendum
kleift að fá aðgang að og deila hljóð- og myndefni,
sem umbjóðendur stefnenda ættu höfundarrétt
að, án samþykkis rétthafa. Héraðsdómur Reykja-
ness vísaði málinu sömuleiðis frá í lok marsmán-
aðar og var sá úrskurður til endurskoðunar fyrir
Hæstarétti.
Aðildarskortur og of víðtækar kröfur
Stefnendur voru Samtök myndrétthafa á Ís-
landi (SMÁÍS), Framleiðendafélagið – SÍK, Sam-
band tónskálda og eigenda flutningsréttar
(STEF) og Félag hljómplötuframleiðenda (FHF).
Þeim var gert að greiða stefndu 400 þús. kr. í
málskostnað.
Kröfum SMÁÍS, Framleiðendafélagsins og
FHF var vísað frá þar sem breyting hafði orðið á
aðild þeirra að málinu. Höfðu nafngreindir aðilar
dregið málsóknarumboð til félaganna til baka og
tekið sjálfir við aðild fyrir Hæstarétti. Þetta var
talið óheimilt. Aðild STEFs að málinu var hins
vegar óbreytt. Engu að síður var hinn kærði úr-
skurður staðfestur um kröfur STEFs, vegna
skorts á umboði frá félagsmönnum til að fara með
einstaklingsbundnar kröfur. Þá þótti fyrrnefnd
viðurkenningarkrafa of víðtæk miðað við þá höf-
undarréttarlegu hagsmuni sem STEF fer með.
„Þessi niðurstaða er miður,“ segir Snæbjörn
Steingrímsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS í
fréttatilkynningu. Hann segir rétthafa nú neyðast
til að höfða sama mál í eigin nafni á sömu for-
sendum, án málsóknarumboðs. „Þar með vonast
rétthafar til að loksins verði efnislega tekið á
þessu máli og harma það jafnframt að þessi nið-
urstaða mun leiða til þess að auka kostnað stefn-
enda og stefnda auk þess að leggja frekara álag á
réttarkerfið.“
Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Árni Kol-
beinsson, Garðar Gíslason og Jón Steinar Gunn-
laugsson. Verjandi var Tómas Jónsson hrl. og
sækjandi Hróbjartur Jónatansson hrl.
RÍKISENDURSKOÐUN telur að
endurskoða þurfi innra skipulag og
stjórnun Vinnumálastofnunar, gera
árangursstjórnunarsamning við
hana og móta henni faglega stefnu.
Þetta kemur fram í stjórnsýsluút-
tekt Ríkisendurskoðunar á Vinnu-
málastofnun.
Þá þarf að einfalda stjórnsýslu
þeirra sjóða sem stofnunin hefur
umsýslu með og er í því samhengi
lagt til að efnt verði til nýrrar stofn-
unar velferðarmála. Einnig er hvatt
til að kannað verði með formlegum
hætti hvort rétt sé að sameina
Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit
ríkisins.
Stjórnsýslan of flókin
Í úttektinni kemur fram að nú-
verandi stjórnsýsla þeirra sjóða
sem Vinnumálastofnun hefur um-
sjón með sé óþarflega flókin. Ein-
földun hennar gæti bætt þjónustu
við bótaþega, aukið skilvirkni og
lækkað umsýslukostnað. Lagt er til
að stjórnir sjóðanna verði lagðar
niður og að umsjón Vinnumála-
stofnunar með þeim verði flutt til
nýrrar stofnunar velferðarmála
sem sinni allri umsýslu lífeyris-,
sjúkra-, slysa- og vinnumarkaðs-
tengdra trygginga og bóta. Ríkis-
endurskoðun leggur þá til að kanna
skuli með formlegum hætti mögu-
leika á sameiningu Vinnumálastofn-
unar og Vinnueftirlits ríkisins í eina
öfluga stofnun á sviði vinnumark-
aðsmála.
Nýlega tilkynnti Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra að
kannaðir yrðu kostir þess að setja á
stofn nýja stofnun velferðar- og
vinnumála með því að samþætta
starfsemi Vinnumálastofnunar og
Tryggingastofnunar ríkisins. Þann-
ig yrði hægt að koma fyrir á einum
og sama stað allri þeirri velferðar-
þjónustu sem er á sviði vinnu- og
tryggingarmála.
Vinnumálastofnun
endurskipulögð?
NEYTENDASTOFU hafa borist er-
indi frá tveimur bílaumboðum, þ. á
m. Brimborg, vegna nýlegrar
markaðsherferðar bílaumboðsins
Heklu. Deilt er um hvort herferðin
stangist á við lög um eftirlit með
óréttmætum viðskiptaháttum, en
auglýst hefur verið allt að 17%
verðlækkun á bílum hjá Heklu, í
þeim yfirlýsta tilgangi að sporna
gegn verðbólgu. Í yfirlýsingu frá
Brimborg segir að hin auglýsta
verðlækkun eigi aðeins við eina
gerð Audi-bifreiðar sem ekki hafi
selst hér á landi síðan 2005. Verð-
lækkun á þeim bíl hafi því ekki
áhrif til lækkunar verðbólgu.
Viðurlögin bann eða sekt
Að sögn Þórunnar Önnu Árnadótt-
ur, sviðsstjóra neytendaréttarsviðs
hjá Neytendastofu, er í báðum er-
indum vísað til fimmtu og sjöttu
greinar laganna. Þar er m.a. lagt
bann við því sem brýtur í bága við
góða viðskiptahætti og er óhæfilegt
gagnvart hagsmunum neytenda,
svo sem rangar, ófullnægjandi eða
villandi upplýsingar í auglýsingum.
Starfsmenn Heklu fá 10 daga frest
til að koma sínum sjónarmiðum á
framfæri við stofnunina og mun
málsmeðferð því standa út næstu
viku. Neytendastofa hefur heimild
til að banna birtingu auglýsinga og
sekta fyrirtæki sem brjóta gegn
fyrrnefndum lögum. | 43
Auglýsingar
Heklu sagðar
brot á lögum
REKSTRARFYRIRTÆKIÐ
Kjarnabúð ehf., sem er í eigu
Vagnssystkina í Bolungarvík, und-
irritaði í gær tæplega 400 milljóna
króna samning við þýsku ferða-
skrifstofuna Kingfisher Reisen.
Hún er ein af stærstu evrópsku
ferðaskrifstofunum sem sérhæfa
sig í stangveiðiferðum.
Samningurinn er gerður til fimm
ára. Kjarnabúð ehf. hyggst ráðast í
framkvæmdir og uppbyggingu fyr-
ir þetta verkefni fyrir tæpar 300
milljónir á næstu þremur árum.
Ætlunin er að byggja 20 hús í Bol-
ungarvík til að þjónusta sjóstang-
veiðimenn á vegum Kingfisher Rei-
sen. Einnig verða smíðaðir 20 bátar
fyrir verkefnið.
Kingfisher Reisen hóf rekstur ár-
ið 1987 og þjónustar milli 7.500 og
8.000 viðskiptavini á ári.
400 milljóna
kr. samningur
Ánægð Við undirritun 400 milljóna kr.
samningsins í gær en hann er til 5 ára.
Utanríkisráðuneytið ræður íslensk-
um ríkisborgurum eindregið frá
því að ferðast til Líbanon vegna
ófriðarástands sem er í landinu um
þessar mundir. Ráðuneytið óskar
jafnframt eftir upplýsingum um þá
Íslendinga sem kunna að vera í
landinu. Nánari upplýsingar veitir
borgaraþjónusta utanríkisráðu-
neytisins í síma 545-9900.
Þá ræður utanríkisráðuneytið Ís-
lendingum frá öllum ferðalögum til
Búrma í kjölfar náttúruhamfara
sem gengu yfir landið 2. maí síðast-
liðinn nema brýna nauðsyn beri til.
Varar við ferð-
um til Líbanon
HÓPUR kvenvörubílstjóra kom saman á bensínstöðinni
N-1 á Ártúnshöfða um sexleytið í gærkvöldi í því skyni
að sýna samstöðu með öðrum vörubílstjórum. Þær gáfu
þeim, sem vildu styðja baráttuna, rauða borða til þess
að hengja á bíla sína.
Að sögn Einars Árnasonar, talsmanns vörubílstjóra,
voru þetta konur sem starfa sem vörubílstjórar en geta
ekki tekið þátt í mótmælaaðgerðum með beinum hætti.
Með þessu hafi þær viljað sýna starfsbræðrum sínum
samhug. Að sögn tók fólk gjörningnum mjög vel.
Rauðir borðar til stuðnings málstað vörubílstjóra
Sýndu samstöðuna í verki
Morgunblaðið/Golli
„VIÐ erum að fara
inn í mjög hættu-
legt efnahagsum-
hverfi. Meginvandi
okkar felst í því að
koma á stöðug-
leika í gjaldeyris-
málum og til þess
þurfum við að
skapa traust á ís-
lensku krónunni.“
Þetta segir Arnór Sighvatsson, aðal-
hagfræðingur Seðlabanka Íslands, í
viðtali við þýska blaðið Frankfurter
Allmemeine Zeitung í gær.
Þá segir Arnór í frétt blaðsins að
upptaka evru myndi eflaust auka
stöðugleikann í efnahagslífinu hér á
landi. Það sé þó einungis mögulegt
með aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu, sem sé ekki raunhæft af
pólitískum ástæðum.
Hann segir að það valdi miklum
vanda hvað fjármálageirinn er stór í
samanburði við stærð efnahagslífs-
ins. Vegna þessa hafi mat á áhættu
fyrir Ísland og bankana hækkað
mikið. En ef bankarnir ættu í vand-
ræðum með lausafé í erlendri mynt,
væri staðan mun verri en hún er.
Blaðamaður biður Arnór að spá
um gengi íslensku krónunnar eftir
eitt ár. Hann svarar því til að íslenski
þjóðarbúskapurinn hafi náð sér fljótt
eftir svipaðan vanda árið 2002. Ís-
lenska efnahagslífið sé sveigjanlegt
og geti lagað sig fljótt að breyttum
aðstæðum.
Stuðlar að
stöðugleika
Arnór
Sighvatsson