Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 13 FRÉTTIR www.bifröst.is E N N E M M / S ÍA / N M 3 10 2 1 15.maí RENNUR UMSÓKNAR- FRESTUR ÚT! VIÐSKIPTADEILD • BS í viðskiptafræði • BS in Business Administration • MS í alþjóðlegri banka- og fjármálastarfsemi • MS í alþjóðaviðskiptum • MS í stjórnun heilbrigðisþjónustu • BA í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS) • MA í menningarstjórnun • MA í Evrópufræðum FÉLAGSVÍSINDADEILD • BS í viðskiptalögfræði • ML í lögfræði • MA í skattarétti LAGADEILD • Staðnám • Fjarnám FRUMGREINADEILD Menningarstjórnunarnámið hefur á undanförnum árum unnið sér sess sem framsækið og hagnýtt nám fyrir starfandi og verðandi stjórnendur í menningarlífi. Námið hefur einnig nýst fólki sem starfar innan skólakerfisins og sækist eftir góðri framhaldsmenntun til að auka faglega hæfni sína við stjórnun og rekstur menntastofnana. Menningarstjórnunarnámið er alþjóðlega samkeppnishæft nám sem veitir nemendum traustan bakgrunn í stjórnunar-, rekstrar- og menningar- fræðum. Bifröst er eini háskólinn hér á landi sem býður upp á þessa samsetn- ingu náms og þegar hefur sýnt sig að nemendur sem útskrifast hafa með MA gráðu í menningarstjórnun frá Bifröst takast á hendur leiðandi störf á sviði menningar og menntunar. Skipulag meistaranámsins miðast við að hægt sé að stunda það með vinnu eða sem fullt nám. Allar nánari upplýsingar á bifrost.is. Menningarstjórnun MA nám Jón Ólafsson forseti félagsvísindadeildar Ræktaðu hæfileikana í hvetjandi umhverfi SKRIFAÐ hefur verið undir vilja- yfirlýsingu þess efnis að norð- lenskir fjárfestar kaupi rekstur Flugfélags Íslands á Akureyri en ekki hefur verið upplýst hverjir það eru - nema hvað félagið Norð- anflug er þeirra á meðal. Friðrik Adolfsson skrifaði undir samninginn við FÍ, en hann er sölustjóri leiguflugs hjá félaginu, með aðsetur á Akureyri og hefur meðal annars verður ábyrgur fyr- ir umfangsmiklum leiguverkefn- um Twin Otter á Grænlandi. Frið- rik stýrir rekstrinum fyrir nýja eigendur en hann var á sínum tíma starfsmaður Flugfélags Norðurlands, sem sinnti þessum sömu verkefnum en sameinaðist Flugfélagi Íslands fyrir fáeinum árum. Árni Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Íslands, er ánægður með viljayfirlýs- inguna að því er fram kemur í fréttatilkynningu; segir hana skref í átt að því markmiði Flug- félags Íslands að starfsemin í kringum Twin Otter-vélarnar haldist á Akureyri og geti enn frekar vaxið og dafnað í höndum nýrra eigenda. Á næstu dögum verður gengið frá endanlegum kaupsamningi og hefðbundin áreiðanleikakönnun mun fara fram. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið fyrir næstu mánaðarmót og nýir eig- endur taki við rekstrinum 1. júní. Helstu verkefni sem hafa verið tengd rekstri þessara véla eru áætlunarflug frá Akureyri til Grímseyjar, Vopnafjarðar og Þórshafnar, leiguverkefni á Grænlandi og viðhaldsverkefni í viðhaldsstöð félagsins á Akureyri. Hugsanlegt er að stofnað verði nýtt félag um reksturinn en hugs- anlegt er að hann verði samein- aður öðru flugfélagi. Hvað það verður kemur í ljós í næstu viku. Rekstur FÍ nyrðra seldur GUNNLAUGUR K. Jónsson, for- seti Náttúru- lækningafélags Íslands (NLFÍ), var kjörinn fyrsti varaforseti Evr- ópusambands heilsustofnana (European Spas Association – ESPA) á aðal- fundi sambandsins í Yverdon-les- Bains í Sviss sl. miðvikudag. Meginstefna ESPA, sem mynduð eru af aðildarfélögum frá 21 Evrópu- landi, er að kynna heilsulindir og böð í Evrópu og gæta þess að náttúru- legir meðferðarkostir jarðvegs, loftslags og sjávar séu almenningi sem aðgengilegastir. Eitt meginverkefna ESPA undan- farin ár hefur verið að þróa gæða- staðla „Quality Standards“ í þeim til- gangi að tryggja gæði þjónustunnar. Til að öðlast gæðavottun sambands- ins verður að uppfylla a.m.k. 80% af gæðakröfum sambandsins sem eru ítarlega skilgreindar í gæðastöðlum þess. Heilsustofnun NLFÍ í Hvera- gerði stóðst þessa úttekt á síðasta ári og fékk umrædda gæðavottun, fyrst sambærilegra heilsustofnana/fyrir- tækja á Norðurlöndum. Starf ESPA er unnið án ágóða- sjónarmiða. Skrifstofur sambands- ins eru í Brussel í Belgíu. Forseti ESPA er dr.-ing. Sigrun Lang frá Þýskalandi en hún lét nýlega af starfi borgarstjóra Baden-Baden í Þýskalandi. Í forystu evr- ópskra heilsu- stofnana Gunnlaugur K. Jónsson BÆJARRÁÐ Kópavogs samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að endur- skoða kjör skuldabréfa og stað- greiðsluafslátt vegna úthlutunar á byggingarétti í Vatnsendahlíð síð- astliðið haust. Tilgangurinn er að bregðast við breyttu efnahags- ástandi. Fram kemur í fréttatilkynningu að í tillögu meirihlutans í bæjarráði, sem samþykkt var einróma, segir m.a. að í ágúst á síðasta ári hafi verið tekin sú ákvörðun af hálfu bæjarráðs að auglýsa til úthlutunar byggingar- rétt fyrir íbúðarhúsnæði í Vatns- endahlíð í Kópavogi, úthlutun hafi farið fram 13. nóvember í bæjarráði. Frá úthlutun hafi aðstæður á lána- og fasteignamarkaði gjörbreyst. Vegna þeirra miklu breytinga sem orðið hafi á efnahagsástandi var því lagt til að farið yrði í endurskoðun á lóðakjörum með tilliti til þess hvort unnt væri að koma til móts við lóða- hafa með bættum kjörum, með því að kjör skuldabréfa og staðgreiðslu- afsláttur yrði endurskoðaður. Kjör vegna lóða í Vatns- endahlíð endurskoðuð ♦♦♦ SAMTÖK aldraðra telja að ef lífeyr- ir eldri borgara, sem ekki hafa aðrar tekjur en lífeyri frá Tryggingastofn- un ríkisins, verði ekki hækkaður um 9.100 sé verið að búa til nýja gliðnun milli lífeyris aldraðra og lágmarks- launa. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi fulltrúa LEB (Landssambands eldri borgara), FEB (Félags eldri borgara í Reykja- vík), 60+ (Sambands eldri Samfylk- ingarmanna) og SES (Samtaka eldri sjálfstæðismanna). „Fundurinn taldi að þessa fjárhæð vantaði til þess að lífeyrir eldri borg- ara hefði hækkað jafnmikið og lág- markstekjutrygging í dagvinnu hefði hækkað í síðustu kjarasamn- ingum. Ekkert svar hefur borist frá stjórnarflokkunum við þessu erindi. Bendir allt til þess að ætlunin sé að hundsa erindið. Kjaranefnd FEB telur óviðunandi, að framangreind leiðrétting eigi sér ekki stað strax. Það er verið að búa til nýja gliðnun milli lífeyris aldraðra og lágmarks- launa. Þessa gliðnun verður að leið- rétta strax. Kjaranefnd telur, að ekki megi slá leiðréttingu á frest.“ Krefjast hækkunar á lífeyri til aldraðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.