Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
TB
W
A\
RE
YK
JA
VÍ
K\
SÍ
A
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ALLUR maturinn og tækin sem
við náðum að koma inn í landið hefur
verið gerður upptækur,“ hafði dag-
blaðið New York Times eftir Paul
Risley, fulltrúa Matvælastofnunar
Sameinuðu þjóðanna í Bangkok, í
gær. Matvælastofnunin aflýsti áætl-
uðum hjálparsendingum til Búrma í
gær en þær voru ætlaðar fórnar-
lömbum fellibylsins sem reið yfir
landið fyrir viku.
Stjórnvöld í Búrma hafa vísað
ásökunum Matvælastofnunar SÞ á
bug og segja að ötullega sé unnið að
dreifingu aðfanganna í landinu.
Áætlað er að Matvælastofnunin
haldi sendingum áfram til landsins í
dag.
Hömlur herforingjastjórnarinnar
á hjálparstarf erlendra ríkja og sam-
taka hafa verið harðlega gagnrýndar
af alþjóðasamfélaginu og eru taldar
óviðunandi miðað við neyðar-
ástandið í landinu. Búrma er „ekki
reiðubúið til að þiggja hjálp erlendra
hjálparstofnana“, sagði í tilkynningu
frá stjórnvöldum í gær.
„Við vonumst til að fleiri komist
inn í landið á komandi dögum,“ sagði
Michael Annear, talsmaður alþjóða-
deildar Rauða krossins, í samtali við
AFP-fréttastofuna. Hann sagði að
sjö starfsmenn Rauða krossins
hefðu fengið vegabréfsáritun í dag
og að viðræður við stjórnvöld héldu
áfram.
Neyðarástand ríkir á flóðasvæð-
um í suðurhluta landsins og óttast er
að farsóttir og hungursneyð auki
enn á mannfallið. Talið er að yfir
100.000 manns hafi þegar látist og
að 1,5 milljónir þurfi nauðsynlega á
aðstoð að halda.
Vilja íhlutun öryggisráðsins
Fjölmargar þjóðir hafa lýst sig
reiðubúnar til aðstoðar og þrýsting-
ur alþjóðasamfélagsins á stjórnvöld
um að landið verði opnað vex dag frá
degi. Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, lýsti í gær yfir stuðn-
ingi við tillögu Bernard Kouchner,
utanríkisráðherra Frakklands, sem
vill að öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna þvingi stjórnvöld í Búrma með
einhverjum leiðum til að opna landið
fyrir alþjóðlegu hjálparstarfi. „Ég
styð tillögu Frakka um að örygg-
isráðið taki hættuástandið í Búrma
til skoðunar. Það væri óábyrgt ef ör-
yggisráðið kæmi ekki að málinu,“
sagði m.a. í yfirlýsingu frá Merkel.
Herforingjastjórnin þykir með
eindæmum tortryggin í garð vest-
rænna ríkja. Að mati stjórnmála-
skýrenda hefur hún fyrst og fremst
áhyggjur af því að með komu útlend-
inga til landsins, þ.m.t. hjálparliðar,
aukist líkurnar á uppreisn meðal
íbúa landsins.
Einnig er talið að stjórnvöld óttist
innrás af hálfu Bandaríkjanna,
hnattvæðingu og það að menningu
landsins verði stefnt í hættu.
„Herforingjastjórnin er haldin
miklu útlendingahatri og telur að
sér standi ógn af öllum og öllu,“ hef-
ur AP-fréttastofan eftir Sean Tur-
nell, sérfræðingi í málefnum Búrma
við Macquarie háskólann í Ástralíu.
„Ef stjórnvöld verða uppvís að því
að ráða ekki við ástandið en neyðast
til að hleypa vestrænum þyrlum inn
í landið sýnir það íbúunum vanmátt
hersins,“ segir Turnell. Hann segir
jafnframt að herforingjastjórnin sé
uppteknari af völdunum og því að
halda andlitinu gagnvart lands-
mönnum en að bjarga lífi þeirra.
Einangruð undir harðstjórn
Herforingjastjórnin hefur stuðlað
að einangrun landsins í áratugi og
má vantraust hennar á vestrænum
ríkjum líklega helst rekja til nærri
aldarlangrar nýlendustjórnar Breta
sem lauk árið 1948.
Þingræði var í landinu í stuttan
tíma eftir að nýlendustjórninni
sleppti eða þar til valdarán tryggði
harðstjóranum Ne Win völd árið
1962. Á 26 árum skerti stjórn Ne
Wins mannréttindi landsmanna
verulega. Áhrif stjórnarandstöðu
landsins eru einnig skert auk þess
sem landið hefur verið lokað gagn-
vart umheiminum.
Herforingjastjórnin hefur sett
ýmis lög til að takmarka áhrif að ut-
an og til að halda menningu Búrma
óspilltri. Erlendur gjaldmiðill er
m.a. óheimill í landinu og lands-
mönnum bannað að hýsa útlendinga
í híbýlum sínum. Ferðamönnum var
ekki hleypt inn í landið á áttunda
áratugnum en þá var hægt að fá tak-
markaðar vegabréfsáritanir í eina
viku.
Samkvæmt upplýsingum AP-
fréttastofunnar geta ferðamenn nú-
orðið fengið vegabréfsáritanir í allt
að mánuð í senn en blaðamenn lúta
harðari reglum. Jafnframt þurfa er-
lendir erindrekar leyfi til að ferðast
utan Yangon, sem er aðalviðskipta-
borg landsins.
Þiggja aðstoð erkióvinarins
Bandaríkin eru meðal helstu
óvinaríkja Búrma að mati herfor-
ingjastjórnar landsins en Bandarík-
in hafa sett viðskiptahöft á stjórnina
auk þess að gagnrýna skerðingu
mannréttinda í landinu.
Stjórnmálaskýrendur vilja meina
að skyndileg ákvörðun stjórnarinnar
árið 2005 um að flytja höfuðborg
landsins frá Yangon til afskekktu
borgarinnar Naypyitaw, sem liggur
djúpt inni í frumskógi, stafi af ótta
við innrás Bandaríkjahers.
Í gær barst Bandaríkjunum þrátt
fyrir allt yfirlýsing frá stjórninni í
Búrma sem hyggst þiggja neyðar-
hjálp frá Bandaríkjastjórn og mun
C-130 vél Bandaríkjahers fljúga til
Búrma næstkomandi mánudag.
Erlendar hjálparsveitir myndu
sýna vanmátt stjórnarhersins
" #
$
!" # ! #
#$%&$$
#
&
$
#$# '
(
$# $
' $$)*$ !
$
&)%
& #! &
% & '()* +'%
! !
"# #$% &' "('# %)
&
!" #
*++'( ! !
,!&#
-!!
.(!
,-
.
,-.
,-.
./,
0.1
0.1
000
000
2/,
20.
,-
1,
,-
30
0/
04
02
23
2/
1
1
,#!
/0
12,% 3/,
,!(!
4 (
56 !
!
0 !
/ !
12(!
-! !# (
/+ !!
!
7!
8+!
/!&+%
" )1
12,
/9 #
C@ N C + ,,
/
!"
REUTERS
Heimilislaus Lítill drengur að leik í rústum þess sem áður var heimili hans í
þorpinu Bogalay, einu þorpanna á flóðasvæðunum í suðurhluta Búrma.
Í HNOTSKURN
»Herforingjastjórn Ne Winsnáði völdum í Búrma árið
1962.
»Einangrun landsins hefurverið gífurleg á síðustu ára-
tugum og hafa stjórnvöld viljað
hindra öll erlend áhrif á íbúa og
menningu Búrma.
»Talsmaður Rauða krossins erbjartsýnn á að fleiri starfs-
mönnum verði hleypt inn í landið
á næstu dögum.
Búrma hefur einangrast verulega á síðustu áratugum og herforingjastjórnin viljað hefta öll erlend áhrif
Tókýó. AFP. | Veðurfræði telst ekki
vera íþrótt og því síður keppnisgrein
á Ólympíuleikum. En veðurstofur í
átta löndum og svæðum ætla samt
sem áður að halda sína eigin keppni í
Beijing í ágúst, um leið og sumar-
leikarnir fara fram í borginni. Sig-
urvegarinn verður sá sem spáir ná-
kvæmast fyrir um veðrið meðan
leikarnir standa yfir.
Keppnisliðin eru frá Ástralíu,
Kanada, Austurríki, Kína, Frakk-
landi, Hong Kong, Japan og Banda-
ríkjunum. Munu þau gera athuganir
á hita, rakamettun og úrkomu í Beij-
ing og grennd og spá fyrir um næstu
36 stundir. Liðin munu senda kín-
versku veðurstofunni niðurstöður
sínar og þar verða þær bornar sam-
an, að sögn Kazuo Saito sem fer fyrir
japanska liðinu. Keppnin er ekki ein-
vörðungu haldin til gamans, ætlunin
er að gefa veðurstofunum tækifæri
til að bera saman kerfi og aðferðir og
hugsanlega bæta eigin vinnubrögð,
segir annar Japani, Tsuyoshi Wat-
anabe.
Japanarnir ætla að gera sínar spár
með aðstoð ofurtölvu í Tsukuba sem
er öflug miðstöð fyrir vísindarann-
sóknir. Saito segir að japanska
keppnisliðinu hafi gengið vel í síð-
ustu verkefnum sínum en aðrar
þjóðir hafi bætt tæknina og erfitt sé
að spá um árangurinn í ágúst. Og
reyndar mistókst japönsku veður-
stofunni gersamlega að spá fyrir um
ágústveðrið í Beijing í fyrra, þá gerði
hitabylgju og hitinn fór í 35 stig á
Celsíus.
Hver fær gull í veðri?
Veðurstofur nokkurra landa hyggjast keppa í
Beijing um að spá fyrir Ólympíuleikana sem verða í ágúst
Morgunblaðið/Rax
Ólympíuveður? Andlit í skýjum