Morgunblaðið - 10.05.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 17
ERLENT
Kynntu þér Tvennu á www.nb.is
Við tryggjum þér bestu vextina!
Nýjung sem sameinar kosti verðtryggðra
og óverðtryggðra reikninga
TB
W
A\REYKJAVÍK\
SÍA
„HÉR er talað um að þetta sé það
versta ástand sem skapast hefur
frá því í borgarastyrjöldinni og það
er því gífurleg spenna í loftinu. Ef
menn gæta sín ekki gæti farið illa,“
segir Davíð Logi Sigurðsson,
starfsmaður Palestínuflótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna
(UNRWA) í Líbanon.
„Á miðvikudag og fimmtudag var
allt lamað hér í Beirút. Það var
engin umferð um göturnar því fólk
hélt sig heima og herinn var með
mikla viðveru,“ segir Davíð.
„Þeir sem komust til vinnu hjá
UNRWA mættu á fimmtudaginn en
um eittleytið ákváðum við að hætta
vinnu til að vera komin heim áður
en Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-
hreyfingarinnar byrjaði að tala
klukkan fjögur því það var fastlega
búist við því að eitthvað myndi ger-
ast í framhaldi af því,“ segir Davíð.
„Á leiðinni heim lenti ég í vand-
ræðum því Hizbollah-menn höfðu
víða lokað vegum og þá m.a. helstu
umferðaræðunum út úr borginni.
Þar sem ég bý í fjallaþorpi í um 20
mínútna fjarlægð frá Beirút átti ég
erfitt með að komast út úr borg-
inni,“ segir Davíð. Hann hafi því
horft fram á að sitja fastur í um-
ferðinni í þó nokkurn tíma „en það
hefði verið slæmur kostur því var
ekki að vita upp á hverju menn
hefðu tekið eftir að Nasrallah hefði
talað. Ég vildi því ekki lenda í
óvissu úti á þjóðvegi, snéri til baka
og inn á hótel,“ segir Davíð.
Vaknaði við brjálæðisleg læti
Hótelið segir Davíð vera mið-
svæðis í Beirút og nálægt hverfi
sem heitir Hamra. „Í gærkvöldi
heyrðist byssugnýr og drunur í
sprengjuvörpum og þannig leið
kvöldið, nóttin og morgunninn. Hót-
elið er í aðeins um fimm mínútna
fjarlægð frá mestu látunum en ég
held að mestmegnis hafi verið skot-
ið upp í loftið eða á byggingar og að
ekki hafi verið um skotbardaga að
ræða,“ segir Davíð. „Þeir einu sem
sáust ef laumast var til að líta út
um gluggann voru vopnaðir menn
með grímur á götuhornunum við
hótelið,“ segir Davíð.
„Ég náði nú að sofna en vaknaði
svo aftur um tvöleytið við brjál-
æðisleg læti. En þá var byrjað að
rigna og þær mestu þrumur og eld-
ingar sem ég hef nokkurn tíma orð-
ið vitni að gengu yfir borgina og
blönduðust byssugnýnum. Menn
tala um það hér
að Guð hafi á
þennan hátt látið
skoðun sína í ljós
á því sem er að
gerast í landinu,“
segir Davíð.
„Í gærmorgun
héldu átökin
áfram og þá
hætti mér nú að
lítast á blikuna
því vonir höfðu staðið til að rign-
ingin hefði letjandi áhrif á menn, en
svo reyndist ekki vera,“ segir Dav-
íð.
„Um tíuleytið fór að draga úr
skothríðinni og þá fór ég akandi
ásamt samstarfsfólki mínu upp í
fjöllin. Á leiðinni, þegar við vorum
að sækja fleira fólk sem býr í
Hamra-hverfinu mættum við vopn-
uðum mönnum, bæði úr líbanska
hernum og Hizbollah-mönnum, en
Hizbollah hafði lagt Hamra-hverfið
undir sig í gær,“ segir Davíð.
Hann segir að ferðin til fjalla hafi
gengið nokkuð vel „einu vandræðin
sem við lentum í var vegna vega-
tálma sem reistir voru úr brennandi
bíldekkjum. En það er algeng leið
hér til að loka umferðaræðum. Okk-
ur tókst þó að semja við þá sem
vöktuðu tálmana um að hleypa okk-
ur í gegn,“ segir Davíð.
Reyna að halda starfinu áfram
„Nú erum við komin í kristið
fjallaþorp sem er mjög öruggt og
rólegt. Hér verður maður ekki var
við það sem er að gerast inni í Bei-
rút,“ segir Davíð.
Hann segir að á næstu dögum
komi í ljós hvort hægt verði að
halda uppi óbreyttu starfi á vegum
UNRWA. „Við erum nú að ræða
hvernig áframhaldið verður en
UNWRA sinnir þörfum palest-
ínskra flóttamanna í Líbanon og
það er spurning hvort við getum
haldið vinnunni áfram eða hvort
ástandið fari versnandi,“ segir Dav-
íð.
„Það er gríðarlega mikilvægt að
við reynum að gera allt sem hægt
er því auk þess að halda úti skólum
fyrir flóttamennina þá sjáum við
líka um heilsugæslumál. Þar að
auki er nokkuð stór hópur sem er
háður matargjöfum frá okkur og
þeim verðum við einfaldlega að
sinna áfram,“ segir Davíð.
„Það er gífurleg
spenna í loftinu“
Davíð Logi
Sigurðsson
Átökin í Beirút hafa ekki látið Davíð Loga Sig-
urðsson ósnortinn og hann sagði Jóhönnu M.
Vilhelmsdóttur frá reynslu síðustu daga.
jmv@mbl.is
SIGURDAGURINN, þegar minnst er stríðslokanna í
Evrópu 1945, var haldinn hátíðlegur í Moskvu í gær
með mikilli hersýningu í fyrsta sinn frá hruni Sov-
étríkjanna haustið 1991. Hér sést vélknúinn fall-
byssuvagn á skriðbeltum. Einnig voru sýndir skrið-
drekar, eldflaugaskotpallar fyrir hinar nýju og öflugu
Topol-flaugar sem gerðar eru fyrir kjarnorkuvopn og
annar búnaður auk þess sem herþotur flugu yfir svæðið
með miklum dyn. Efnahagur Rússa hefur batnað mjög
á seinni árum, einkum vegna hækkandi verðs á olíu og
gasi, helstu útflutningsvörum þeirra. Hafa þeir marg-
faldað framlög til varnarmála en nýr forseti landsins,
Dmítrí Medvedev, sagði í ræðu sinni að markmiðið væri
eingöngu að „tryggja öruggar varnir landsins“.
Reuters
Hersýning á Rauða torginu
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
LIÐSMENN Hizbollah-hreyfingar-
innar lögðu undir sig vesturhluta
Beirút í gær, þremur dögum eftir að
blóðug átök brutust út í borginni.
Tugir særðust þegar átök fóru úr
böndunum eftir að Nasrallah, leið-
togi Hizbollah-hreyfingarinnar lýsti
því yfir að aðgerðir stjórnvalda í
garð hreyfingar hans jafngiltu
stríðsyfirlýsingu.
Stjórnarandstaðan hefur lýst því
yfir að Hizbollah og tengdar sjíta-
hreyfingar muni verja vegatálmana
sem komið hefur verið upp víða um
borgina þar til lausn finnist á stjórn-
arkreppunni. Hvorki ríkisstjórnin né
stjórnarandstaðan virtist reiðubúin
til að gefa eftir í gær.
„Þetta er ekki valdarán, heldur
tengist einfaldlega ákvörðunum rík-
isstjórnarinnar. Við viljum samvinnu
en ríkisstjórnin vill sitja ein að völd-
um og hefta okkar hlut,“ sagði tals-
maður stjórnarandstöðunnar við
fjölmiðla í gær.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa
hinsvegar lýst því yfir að stjórnin
muni ekki endurskoða ákvörðun sína
um að rannsaka fjarskiptakerfi Hiz-
bollah-hreyfingarinnar, en það var
það sem hrinti átökunum af stað síð-
astliðinn miðvikudag. „Frekar
myndi ríkisstjórnin segja af sér en
að draga þá ákvörðun til baka,“ sagði
einn ráðherra stjórnarinnar við
AFP-fréttastofuna í gær.
Alþjóðlegur stuðningur
Atlaga var gerð að heimili Saad
Hariri, fremsta stjórnmálamanns
súnní-manna, talið er að Hariri hafi
verið heima en að hann hafi ekki sak-
að. Hizbollah skaut einnig að skrif-
stofum fjölmiðlafyrirtækis Hariri og
árásarmenn umkringdu sjónvarps-
stöð í hans eigu og lömuðu útsend-
ingar útvarpsstöðvar hans.
Stjórnmálaskýrendur telja líklegt
að fyrst liðsmenn Hizbollah réðust
ekki til atlögu við Hariri á heimili
hans heldur létu sér nægja að skjóta
að húsinu, séu þeir fyrst og fremst að
sýna styrk sinn og muni ekki ganga
lengra enn um sinn. Utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Condoleezza
Rice, hefur skv. upplýsingum BBC
sagt að Bandaríkin muni styðja rík-
isstjórn Fouad Siniora „og veita
henni þann styrk sem nauðsynlegur
er til að lægja þennan storm,“ sagði
Rice. Hún sagði jafnframt að „með
því að reyna að vernda ríki sitt innan
ríkisins sýni Hizbollah fyrirlitningu
á íbúum landsins.“
Deilan í Líbanon er víða álitin vera
útvíkkun á átökum Bandaríkjanna,
arabískra bandamanna og Ísraels
við Sýrland og Íran, sem eru talin
styðja Hizbollah-hreyfinguna.
„Bandaríkin ráðfæra sig nú við aðrar
ríkisstjórnir á svæðinu og við örygg-
isráð SÞ um til hvaða ráðstafana
verði að grípa til að draga þá sem
standa fyrir ofbeldinu í Beirút til
ábyrgðar,“ hafði AFP-fréttastofan
eftir Gordon Johndro, talsmanni
Hvíta hússins.
Javier Solana, aðaltalsmaður ESB
í utanríkismálum, hefur einnig lýst
yfir „fullum stuðningi“ ESB við rík-
isstjórn Líbanons.
Tvísýnt er um lausn
vandans í Líbanon
Hvorki ríkisstjórnin né stjórnarandstaðan hyggjast gefa eftir
Reuters
Átök Lítil umferð hefur verið um götur Beirút, íbúar hafa reynt að komast
burt en vopnaðir og grímuklæddir menn eru um alla borg.