Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 24
lifun
24 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
H
ér er mikið gæsavarp
og ein þeirra er búin
að liggja á í meira en
tvær vikur. Ég á von
á að ungarnir komi
hjá henni í næstu eða þarnæstu
viku,“ segir Hrafn Gunnlaugsson
þar sem hann gengur um sjávarlóð-
ina sína á Laugarnestanganum þar
sem hann býr í einu sérstæðasta
húsi borgarinnar. Garðurinn er
hálfgert náttúrugallerí og þar ægir
saman ótrúlegustu hlutum, gömlum
og nýjum. Þar eru leifar af niður-
gröfnu skotfærabyrgi frá því í
seinni heimsstyrjöldinni og loft-
varnabyssustandur, en líka sitthvað
sem hann hefur föndrað við sjálfur.
Hann hefur meðal annars gert
haug Hallgerðar langbrókar, fyrsta
femínista Íslands að hans sögn. „Í
Njálu segir að hún sé grafin í
Laugarnesi og eina nóttina
dreymdi mig hana hér rétt fyrir ut-
an húsið svo mér fannst við hæfi að
gera henni haug þar sem ég sá
hana standa. Hún var í langbrók-
inni og langt því frá berrössuð.“
Í garðinum eru meðal annars
guðir úr Hrafninn flýgur og hof,
gömul kafbátaþil ofan úr Hvítanesi
og mikið af stórum steinbjörgum.
„Ég er að rækta álfa í þessum
steinum því það er skortur á hús-
næði fyrir þá innan borgarmark-
anna. Eftir gjaldþrot þeirra í fiski-
ræktinni og loðdýraræktinni kann
ég því vel að stunda álfarækt, hún
er áhættuminni og það eru jafnvel
meiri líkur á að menn sjái álf hér
en hval í hvalaskoðun.“
Hrafn keypti lóðina og húsið upp-
haflega til að koma þar fyrir leik-
myndasmiðju fyrir um 25 árum.
„Síðan vatt þetta upp á sig og
smám saman varð leikmyndaverk-
stæðið að íbúðarhúsi og ég hef búið
hérna undanfarin rúm fimmtán ár.
Hér líður mér vel og ég hef samið
við allar vættir og drauga í ná-
grenninu og í þessu húsi, svo and-
rúmið er gott. Hér eru allar árstíð-
irnar fallegar. Á vetrum getur
brimið barið á gluggana en aftur á
móti vorar mjög snemma hér vegna
hitans af sjónum og vegna skjólsins.
Hér getur hvönnin orðið á þriðja
metra á hæð á einu sumri. Þegar
húmið leggst yfir á haustin er gott
að sitja á veröndinni og njóta þess
að sjá borgarljósin kvikna.“
Hrafn hefur byggt heilmikið við
húsið sem er þrjár hæðir, með sól-
skálum, veröndum og ýmsum út-
nárum. Þetta er völundarhús.
Dásamlega stórt kaos þar sem
margt er frá gömlum tíma í nýju
hlutverki.
„Þetta heimili er í raun allsherjar
endurvinnsla. Eldhúsborðið er til
dæmis úr kjalviði úr skipasmíða-
stöð, einn veggurinn er hlaðinn úr
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Hausasafn Við innganginn er fjöldi útskorinna hausa sem Hrafn hefur viðað að sér á ferðalögum sínum um veröldina og þeir skreyta líka hof úr Hrafninn flýgur.
Allsherjarendurvinnsla og á
Viltu rjóma í kaffið? Hrafn þjónustar gesti sína innan um potta og pönnur í eldhúsi sem teygir anga sína víða.
Klukkur og steinar Þennan vegg hlóð Hrafn úr múrsteinum úr ofni frá brotajárnsverksmiðjunni í Straumi.
Hann hefur gaman af því
að skapa híbýli sín út frá
eigin forsendum og hann
lætur efnið og umhverfið
ráða forminu. Kristín
Heiða Kristinsdóttir
heimsótti Hrafninn á
Laugarnestanganum.