Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 25
múrsteinum úr ofni sem var í
brotajárnsverksmiðjunni úti í
Straumi. Parketið er kubbar úr
bryggju, gamall símastaur heldur
uppi hliðarhúsinu, ég breytti tog-
arabobbing í arin, hér eru stólar úr
löngu horfnu Trípólíbíói og svona
mætti lengi telja. En ekkert er
stöðugt. Rómaveldi hvarf. Og ég
hverf úr þessu húsi einn daginn, og
húsið líka.“
Að hafa efni á því að
vera maður sjálfur
Í kjallaranum er heit laug í sjáv-
arklöppinni og þar er hægt að fara
í gufu inni í berginu undir aðalhús-
inu. Þar eru líka vistarverur fyrir
gesti sem Hrafn hefur grafið fyrir.
„Ég bauka hér í kjallaranum ef
mér leiðist. Og ég læt efnið og um-
hverfið ráða forminu. Ég er að
þessu öllu til að skemmta mér. Ætli
þetta sé ekki æskudraumurinn um
að smíða dúfnakofa. Þetta er mitt
litla ríki. Mesta ríkidæmið er að
hafa efni á því að vera maður sjálf-
ur.“
Hrafn er mikill safnari. Um tvö
hundruð englar eru um allt hús, en
þá hefur hann keypt á ferðum sín-
um um heiminn, enda er eitt af því
skemmtilegasta sem hann gerir að
ferðast og skoða veröldina. Á þvæl-
ingi sínum hefur hann líka orðið
sér úti um fjölmargar kirkjuklukk-
ur og aðrar klukkur sem hanga hér
og þar um híbýlin.
„Þetta sem ég hef gert fyrir hús-
ið hefur stundum valdið fjaðrafoki
og menn viljað fjarlægja það og
rífa, en ætli það endi ekki með að
það verði friðað,“ segir Hrafn og
brosir dularfullur að mögulegum
örlagaglettum. „Almenningur er
farinn að hafa gaman af þessu og
hingað eru allir velkomnir, ég tek
stundum á móti litlum hópum sem
koma til að skoða,“ segir Hrafn og
tekur fram blað sem liggur á borð-
inu. „Hingað komu vinir mínir úr
Evrópsku kvikmyndaakademíunni
og héldu fund og í þessari frétta-
tilkynningu sem þeir sendu frá sér
segir: „Að húsið sé listaverk í sjálfu
sér sem hafi opnað huga þeirra og
örvað hugmyndaflugið,“ eins og hér
stendur. Framtíðin? Ég veit ekki
hvort ég verð hér mikið lengur.
Þetta er að verða eins og bíómynd
sem ég er búinn að frumsýna.“
khk@mbl.is
álfarækt í garðinum
Asíska svæðið Borðið er frá Víetnam og uppi á hillu er
drykkur með marineruðum snákum sem bætir bólfimi.
Heiðursskjalasafn Á klóinu hanga heiðursskjöl frá kvik-
myndaakademíum, Smekkleysu og fleirum, sem og símskeyti.
Monroe-höggdeyfar Þeir hafa fengið nýtt hlutverk: Hrafn
breytti þessum höggdeyfum í fyrirtaks háa stóla.
Borðstofa Hér er notalegt að sitja í birtunni með góðu fólki og horfa yfir
hafið með kaffibolla. Forn bryggjuviðurinn á gólfinu gælir við fót.
Vinnustofan Þar vomir Hvíti Krist-
ur yfir og uppstoppaður hrafn hefur
auga með öllu hjá nafna sínum.
Enginn eins Slökkvarar sem Hrafn
keypti á þjófamarkaði á Indlandi.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 25