Morgunblaðið - 10.05.2008, Page 26
- kemur þér við
Þeir ríku rjúka
fram úr
Fólk sem hefur
ekki efni á að byggja
skilar lóðum
Ungmennafélag
Íslands misskildi
tilgang með lóða-
úthlutun
Guðrún Gunnars
opnar myndaalbúmið
Ætlar ekki að
ritskoða sjálfan sig
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
neytendur
26 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Aðaltilgangurinn meðþessu verkefni er aðtryggja smáframleið-endum og kaffirækt-
endum sanngjarnt verð, sem er þá
alltaf yfir heimsmarkaðsverði
þannig að þeir geti séð fyrir sér og
sínum með framleiðslunni,“ út-
skýrir Guðmundur Halldórsson,
sölu- og verkefnisstjóri í Te &
kaffi þegar hann er inntur eftir því
út á hvað Fairtrade vottunin
gangi. „Einnig fá Fairtrade vott-
aðir kaffibændur aukaþóknun frá
samtökunum sem er notuð í efna-
hagsleg og samfélagsleg verkefni á
svæðinu.“ Te & kaffi varð nýverið
fyrsti íslenski kaffiframleiðandinn
til að fá slíka vottun á eigið kaffi,
nánar tiltekið á þrjár tegundir
kaffis sem fyrirtækið framleiðir.
„Í þessum heimsmarkaðsvið-
skiptum er oft á tíðum verið að
pína framleiðendurna niður í verði,
jafnvel niður fyrir kostnaðarverð,“
heldur hann áfram. „Hins vegar
eru ýmsar leiðir til að bæta kjör
þessarar stéttar og Fairtrade er
ein af þeim. Þar sem Te & kaffi
framleiðir eingöngu sælkerakaffi
hafa bændurnir þó yfirleitt fengið
betra verð fyrir sína framleiðslu,
einfaldlega af því að verðið er
hærra á þeim tegundum sem við
erum að kaupa en ella.“
Hann segir heljarinnar bákn
standa að baki vottuninni. „Fair-
trade samtök starfa nú í rúmlega
20 Evrópulöndum, Bandaríkjunum
og Japan. Öll samtökin tilheyra
Fairtrade Labeling Organisation,
FLO, sem er alþjóðaeftirlits-
skrifstofa. Hún hefur það hlutverk
að hafa eftirlit með bæði framleið-
endum, því það þarf líka að
tryggja að þeir fari eftir settum
reglum, og eins með heildsölunum
og kaffibrennslum á borð við okk-
ur. Við höfum aftur mjög ríka upp-
lýsingaskyldu gagnvart þessum
samtökum um rekjanleika á því
kaffi sem við kaupum inn, hvert
það fer og svo framvegis.“
Það tók Te & kaffi um átta mán-
uði að fá vottunina en það flækti
ferlið að ekki er Fairtrade skrif-
stofa eða tengiliður hér á landi.
„Við þurftum því að ná þessari
vottun beint í gegn um að-
alsamtökin og þau eru bara ný-
byrjuð að leyfa það svo þetta var
nýtt fyrir þeim líka.“
Vottað te í bígerð
Kaffitegundirnar þrjár sem þeg-
ar eru vottaðar eru lífrænt Su-
matra Mandheling sem er frá
Indónesíu, Espressoblanda teg-
unda frá Mið- og Suður-Ameríku
og Indónesíu og loks Colombia
Brazil sem eins og nafnið bendir
til er ræktað í Kólumbíu og Bras-
ilíu. „Þetta eru allt saman Fair-
trade vottaðar tegundir og ég
hugsa að þeim gæti fjölgað hjá
okkur í framtíðinni. Eins erum við
að leita leiða til að bjóða upp á Fa-
irtrade vottað te og jafnvel ein-
hverja fleiri vöruflokka.“
Guðmundur kveður eft-
irspurnina eftir Fairtrade vott-
uðum vörum vaxa hægt og sígandi.
„Við fáum alltaf annað slagið fyr-
irspurnir frá fólki sem er að velta
fyrir sér uppruna kaffisins og
hvert hlutskipti framleiðandans
eða bóndans er. Sala á Fairtrade
vottuðum vörum eykst hratt í Evr-
ópu og hefur vaxið um u.þ.b. 20%
árlega frá aldamótum. Svo vit-
undin um þessi mál er vonandi að
aukast.“
ben@mbl.is
Sanngjarnt kaffi undir
íslenskum merkjum
Vottað Kaffitegundirnar þrjár.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sanngjarnt Markmiðið er að kaffibændur geti séð fyrir sér og sínum með
framleiðslunni að sögn Guðmundar Halldórssonar hjá Te & kaffi.
Í þessum heimsmark-
aðsviðskiptum er oft á
tíðum verið að pína
framleiðendurna niður í
verði, jafnvel niður fyrir
kostnaðarverð.
Kjör kaffibænda í fjar-
lægum löndum eru
kannski ekki ofarlega á
baugi hjá venjulegum
kaffisvelgjum. Te &
kaffi er hins vegar um-
hugað um aðstæður
þeirra sem sjá þeim fyr-
ir hráefni og hefur nú
fengið vottun um sann-
gjörn viðskipti á þrjár
kaffitegunda sinna.
Björn Stefánsson fæddist áSléttu í Fljótum árið 1867 og
ólst þar upp. Skáldagáfan vaknaði
snemma hjá honum en lítt
hampaði hann henni á yngri árum,
að því er Pétur Stefánsson greinir
frá í samantekt um langafa sinn.
Árið 1892 giftist hann Dorotheu
Jóelsdóttur frá Sauðanesi,
Upsaströnd, og hófu þau búskap á
Bakka í Austur-Fljótum. Þau
fluttu sig að Stóru-Þverá, Fljótum,
árið 1899 og bjuggu þar til 1904 er
þau tóku sig upp með börn sín,
utan hið yngsta, og fluttu til
Kanada.
„Þar komst Björn að hjá
póstþjónustunni og vann þar þann
tíma sem hann var í Kanada eða í
26 ár, að undanskildum þremur
árum er hann gegndi herþjónustu
í fyrri heimsstyrjöldinni. Ekki
þurfti hann þó að fara á vígvöll því
hann slasaðist illa í Bretlandi og
var sendur heimleiðis.
Björn, sem ætíð kenndi sig við
Sléttu, fluttist til Íslands 1930 og
yfirgaf fjölskyldu sína sem varð
um kyrrt vestanhafs. Eftir heim-
komuna var Björn fyrst hjá Pétri
syni sínum að Keldum í Sléttuhlíð
en lengst af á Syðstahóli hjá
Júlíusi Geirssyni bónda og konu
hans Guðrúnu Halldórsdóttur,
hálfsystur Dorotheu konu
Björns.
Júlíus flytur að Móskógum á
Bökkum 1945 og fór Björn með
honum þangað og bjó þar til
æviloka. Björn lést í maí 1953.“ Og
með fylgja nokkrar vísur Björns:
Sorg ef hýsir sefa minn,
og sældar leynast hótin,
þá er vísa vel kveðin,
vísust meinabótin.
Björn sendi þessar vísur til
Íslands mannskaðavorið 1922.
Týnast fley og farast menn,
fjörs með grandi sínu.
Sár hefir slegið Ægir enn,
ættarlandi mínu.
Höfug falla harmatár,
hjartans sárin blæða.
Ó hve mörgum svíða sár,
sem er hart að græða.
Þögull stynur þanki minn,
þó ei kvarti lengur.
Mörgum vina missirinn,
mjög að hjarta gengur.
Kominn úr fjárrekstrarferð
hrakinn og kaldur heldur Björn til
apótekarans Aage Schöth og segir:
Nú er fátt sem fjörgar mann,
flý ég á náðir þínar.
Gef mér einhvern andskotann,
að ylja kverkar mínar.
Inn í vínbúð kemur Björn, en á
ekki fyrir flösku, leggur það sem
til er á borðið og segir:
Þó að ykkur þyki lítið,
þetta sem ég á,
eina flösku af ákavíti,
ætla ég að fá.
Að lokum ein af mörgum vísum
sem Björn orti í hernum:
Þegar á góðu gamni er þrot,
gleði hvergi að finna,
leik ég mér við baugabrot,
bernskudaga minna.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORN
Af Birni á Sléttu