Morgunblaðið - 10.05.2008, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 53
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
eeee
“Ein besta
gamanmynd
ársins”
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
-S.V., MBL
eeee
- 24 stundir
SÝND Í ÁLFABAKKA
það þarf alvöru karlmann
til að vera brúðarmeyja
eee
,,Hugljúf
og skemmtileg"
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
SkemmtilegaSta rómantíSka
gamanmynd árSinS
SÝND Í KRINGLUNNI
BÍÓUNUM ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
YFIR 18.000
ÁHORFENDUR
- Páll Baldvin Baldvinnsson
Fréttablaðið
eee
- Sigurjón M. Egilsson
Mannlíf
eeee
Stefán Birgir Stefánsson
sbs.is
- S. V.
Morgunblaðið
eee
SÝND Í KRINGLUNNI
IRON MAN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
SUPERHERO MOVIE kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
P2 kl. 10 B.i. 16 ára
HORTON m/ísl. tali kl. 4 B.i. 16 ára
BUBBI BYGGIR m/ísl. tali kl. 4 B.i. 16 ára
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í SELFOSSI SÝND Í SELFOSSISÝND Á KEFLAVÍK SÝND Á KEFLAVÍKSÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Á SELFOSSI
IRON MAN kl. 2 - 5 - 8 - 10:30 POWER B.i. 12 ára
THE HUNTING PARTY kl. 8 - 10 (10) B.i. 12 ára
OVER HER DEAD BODY kl. 6 (8) B.i. 7 ára
DRILLBIT TAYLOR kl. 4 (6) LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN ísl. tal kl. 2 ( LAU./SUN.) LEYFÐ
ATH. - TÍMAR FYRIR MÁNUDAG 12. MAÍ ERU Í SVIGA.
IRON MAN 5:40 - 8 - 10:30 MÁN.
IRON MAN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
DEFINITELY MABY kl. 8 (8) LEYFÐ
DOOMSDAY kl. 10:20 (10:20) B.i. 16 ára
DRILLBIT TAYLOR kl. 3:30 - 5:45 (5:30) LEYFÐ
BUBBI BYGGIR m/ísl. tali kl. 3:30 ( LAU./SUN.) LEYFÐ
ATH. - TÍMAR FYRIR MÁNUDAG 12. MAÍ ERU Í SVIGA.
IRON MAN 5:30 - 8 - 10:30 MÁN.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
UNDANFARIÐ hefur kraumað duglega undir
í íslenskum rappheimum og hafa Móri, Poetrix
og XXX Rottweilerhundar allir komið við sögu í
skærunum. M.a. var Móri ósáttur við gagnrýni
Poetrix á kannabisneytendur og segir tónlist
hans lítið annað en dulbúinn AA-áróður.
„Ég hef aldrei gert það að neinum sérstökum
málstað að berjast gegn kannabisreykingum,“
segir Poetrix. „Eða að ég sé að reyna að tala
niður til þeirra sem gera slíkt. Ég er ekki í
neinni forvarnarstarfsemi og ekki yfirlýstur
meðlimur neinna samtaka, hvorki AA né ann-
arra. Ef fólk vill stunda kannabisreykingar og
það gengur upp, þá er mér sama. Hann Móri
kom ekki upp í huga minn þegar ég var að vinna
plötuna mína, og hún er ekki ætluð sem skot eða
niðurrökkun. Platan mín fjallar eingöngu um
mína persónulegu reynslu af hlutunum og mér
finnst ansi sjálfmiðað að menn haldi að platan
snúist um þá.“
Gagnrýni mikilvæg
Blaðamanni leikur forvitni á að vita hversu
djúpt þessi „slagur“ ristir raunverulega.
„Ég var einhvern tíma nýfarinn af kaffihúsi
þegar ég frétti að fimmtán manna hópur hefði
komið þar inn og ætlað að taka mig til bæna. Ég
veit þó ekki hversu mikil alvara lá þar að baki.
Gagnrýni mín á aðra tónlistarmenn í þessari
senu er ekkert meira en það, þetta er ekkert
persónulegt og menn flaska ítrekað á þeim
punkti. Tónlistarleg gagnrýni á mig og aðra er
hins vegar algerlega nauðsynleg til að halda
mönnum á tánum. Og mér finnst alltaf virðing-
arverðara að menn tali bara hreint út. Mér er
skítsama þó að ég sé ekki í náðinni hjá ein-
hverjum hópi því ég rugga bátnum en það þýðir
ekki sjálfvirkt að ég hafi eitthvað á móti þeim
sem persónum. Þetta er bara gagnrýni á
ákveðna hluti sem menn gefa sig út fyrir að
standa fyrir. Þegar menn setja andlitið í fjöl-
miðla sjálfviljugir verða þeir að vera reiðubúnir
undir gagnrýni.“
Poetrix segir í framhaldinu að margir af þeim
röppurum sem eru í sviðsljósinu séu að gera af-
skaplega skrítna hluti.
„Ég hef gagnrýnt þetta hjá Rottweiler t.d. en
mér er ekkert illa við þá. Þegar ég sé að hlut-
irnir breytast, eins og t.d. þetta lag „Reykjavík
Belfast“ þar sem maður fær á tilfinninguna að
þeir séu að meina það sem þeir segja og að það
sé einhver trúverðugleiki á bakvið það, þetta
séu ekki bara stælar og töffaraskapur, þá er það
allt annað mál. Þá er ég jafn viðbúinn að gefa
mönnum hrós og gagnrýni.“
Erjur tíðkast
Sögulega eru skærur á milli rappara svo gott
sem bundnar í formið, þetta er partur af leikn-
um og menn stunda þetta sem sport, frekar en
að þeir missi svefn yfir þessu.
„Það er að vissu leyti rétt. Oft var það þannig,
að þeir sem gengu inn í rappið komu úr sam-
félagsumhverfi þar sem erjur tíðkast. En það
sem mér hefur þótt áberandi í þessum músík-
bransa eru þessi risastóru egó sem snúa öllu
upp í árásir á sig og sína tilveru þegar það er
verið að benda á eitthvað í sjálfri tónlistinni. En
jú … þetta er líka svolítið leikurinn, ég get alveg
tekið undir það. En svo er það líka jákvætt að
þetta veldur því að allir eru á tánum og vilja
gera betur en næsti maður. Þetta er eins og
samkeppni í fótboltaliði; ef þú ert ekki í baráttu
um stöðuna þína þá þarftu heldur ekki að leggja
neitt á þig. Hipp-hoppið hefur af einhverjum
ástæðum alltaf snúist mikið um það að vera
betri en næsti maður. Það er ekki þannig að
menn séu bara að gera sitt og séu ánægðir með
það.“
Ekkert persónulegt
Rappstríð eru heilbrigð sam-
keppni en líka órofa partur
hipp hopp-menningarinnar
segir Poetrix að gefnu tilefni,
en skot hafa gengið á milli
hans og rapparans Móra að
undanförnu.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Poetrix „Ég var einhvern tímann nýfarinn af kaffihúsi þegar ég frétti að fimmtán manna hópur
hefði komið þar inn og ætlað að taka mig til bæna.“