Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
189. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
VIÐTALIÐ
ÁLGJÖR KETTLINGUR
INN VIÐ BEINIÐ
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Búum okkur undir
bláu herratískuna
LESBÓK
„Ég skrifaði ljóðin á fjórum
tímum. Svona urðu þau til,
þau gossuðu úr heilabúinu í
einni lotu,“ segir Ingunn
Snædal sem hefur sent frá
sér þriðju ljóðabókina.
Ljóð eftir
Íslandskorti
„Orðræða Framtíðarlandsins er afmörkuð af
hugmyndafræði markaðshyggjunnar og þeim
gildum sem hún setur ofar öllu: arðsemi.“ Þetta
segir Anna Björk Einarsdóttir sem bregst við
svargrein talsmanna Framtíðarlandsins en hún
gagnrýndi áherslur þess í Lesbókargrein.
Er Framtíðarlandið
frjálshyggið?
Emily Gould ritstýrði vefsíðu
sem fjallaði um einkalíf fræga
fólksins. Hún var gagnrýnd en
varði stefnu sína. Þegar hún
varð sjálf viðfangsefni slúðurs
runnu á hana tvær grímur.
Að þola ljós
fjölmiðlanna
SÖFNIN Í LANDINU
síða 15 í Lesbók
ÞEIM fjölgar dönsku bönkunum
sem eiga í alvarlegum fjárhagsvanda
en staða danska bankans Roskilde
Bank er orðin svo slæm að bankinn
hefur óskað eftir og fengið neyðarlán
frá danska seðlabankanum upp á um
12 milljarða íslenskra króna. For-
stædernes Bank gaf í gær út af-
komuviðvörun en horfur eru á mjög
lakri afkomu bankans á árinu 2008.
Þá varð danska hagkerfið það fyrsta
innan ESB til að renna inn í formlegt
kreppuástand í apríl en það er skil-
greint sem tveir samhliða ársfjórð-
ungar þar sem samdráttur verður í
vergri landsframleiðslu. | 15
Dönsk bankakreppa
Vandi Roskilde Bank sem á við al-
varlegan vanda að stríða.
Þyrlueign landsmanna hefur auk-
ist verulega undanfarið, en frá lok-
um árs 2006 hefur þyrlufjöldinn tvö-
faldast.
Nú eru skráðar ellefu þyrlur á Ís-
landi, þar af eru átta skráðar á op-
inbera aðila og félög en þrjár til
einkaflugs.
Að sögn rekstrarstjóra í flugi er
hópur viðskiptavina sem leigja þyrl-
ur breiður. Þyrluflug sé ekki aðeins
fyrir ríkt fólk, flestir þeirra sem
leigi þyrlur séu „venjulegt fólk“. » 9
„Venjulegt fólk“ á þyrlum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÓRÉTTLÆTIÐ er skelfilegt en
nú er það vísindalega sannað: Ung-
ar konur vilja frekar villta, ábyrgð-
arlausa, lygna og ótrygga stráka en
þá prúðu, ábyrgu og traustu.
Kristelegt Dagblad í Danmörku
segir frá rannsókn sem gerð var við
ríkisháskólann í Nýju Mexíkó og
var þar kannaður ferill 200 ungra
karla. Strákar sem ekki hika við að
fitja upp á samtölum eiga greiðan
aðgang að stúlkunum þótt það orð
fari af þeim að þeir yfirgefi þær
fljótt á ný og séu því óheppilegir
feður. Segja vísindamenn að um sé
að ræða arfgengt val. Konur til
forna hafi sóst eftir sterkum og
framkvæmdaglöðum körlum, þeir
séu líklegir til að geta verndað fjöl-
skylduna. kjon@mbl.is
Vondu strákarnir sigra
Forráðamenn
kvennaliðs HK/
Víkings í knatt-
spyrnu eiga í
deilum við Út-
lendingastofnun
vegna serbnesku
landsliðskon-
unnar Marinu
Nesic. Henni var
gert að yfirgefa
landið í vikunni þegar dvalarleyfi
hennar rann út. Að sögn forráða-
manna liðsins hefur talsmaður
stofnunarinnar farið með ósannindi
í málinu og refsað þeim og stúlk-
unni fyrir að koma heiðarlega
fram. | Íþróttir
Telja að Útlendingastofn-
un fari með ósannindi
Marina Nesic
KRANAR snúast, steypa rennur í mót og hamars-
högg glymja nú við framkvæmdir á nýja tónlistar-
og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík. Húsið rís ört og
stefnt er að því að taka það í notkun í desember ár-
ið 2009.
Gestastofa, upplýsingamiðstöð hússins, verður
opnuð klukkan 13.00 í dag í Hafnarstræti 20. Í
henni gefst fólki möguleiki á að kynna sér merki-
lega sýningu um byggingu hússins.
Morgunblaðið/RAX
Hamagangur við hafnarbakkann
Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið rís hratt við höfnina í Reykjavík
VESTURBÆRINN og miðbærinn
eru vinsælustu hverfi borgarinnar
þegar kemur að búsetu. Það kemur
fram í könnun á húsnæðis- og bú-
setuóskum Reykvíkinga 2007 sem
unnin var fyrir skipulags- og bygg-
ingasvið Reykjavíkurborgar. Þetta
eru sömu niðurstöður og árið 2003 en
vinsældir miðbæjarins hafa þó ekki
vaxið mikið miðað við aukið framboð
nýs húsnæðis þar.
Þau hverfi sem hafa mest sótt á
síðan 2003 eru Árbær/Grafarvogur,
Kjalarnes og Hlíðarnar. Vatnsmýrin
og Úlfarsárdalur eru vinsælustu ný-
byggingarsvæðin, en t.a.m. nefndu
aðeins 4% aðspurðra Örfirisey.
Vantar fleiri lág fjölbýlishús
Bjarni Reynarsson, skipulags-
fræðingur hjá Landráði sf., hafði
umsjón með könnuninni. Hann telur
að vinsældir Vesturbæjarins og mið-
bæjarins megi helst rekja til þess að
fólk vilji vera í grónu umhverfi, í
nánd við miðbæinn, gömlu höfnina
og háskólastofnanir. Fólk leggi
mesta áherslu á fjölskylduvænt og
friðsælt umhverfi. Útsýni, skjól og
útivistarmöguleikar eru þá mikil-
vægustu umhverfisþættirnir.
Þegar spurt var hvernig húsnæði
vantar helst í borgina svöruðu flest-
ir, eða um fjórðungur, lág fjölbýlis-
hús, tæpur fimmtungur nefndi hæðir
og því næst komu einbýlishús og rað-
hús. 47% voru á móti fjölgun háhýsa.
Væntingar og veruleiki | 4
Vesturbærinn enn vinsæll
Flestir svarendur húsnæðis- og búsetukönnunar völdu Vatnsmýrina og Úlfarsárdal
sem álitlegustu kostina þegar kemur að nýbyggingarsvæðum, aðeins 4% Örfirisey
Í HNOTSKURN
»Um netkönnun var aðræða. Leitað var til um
1.600 borgarbúa og bárust
svör frá um 700 þeirra.
»Þátttakendur svöruðu 34spurningum og mátu 29
myndir af húsum og umhverfi
út frá búsetuskilyrðum.