Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 24
lifun 24 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli P arhúsið reis fyrir tæp- um 20 árum. Þar hafa búið frá upphafi Kristján Aðalbjörns- son og Guðbjörg Egg- ertsdóttir, í öðrum húsinu, og sonur þeirra Eggert og tengda- dóttirin Selma Einarsdóttir í hinu. Töluverð fyrirhöfn var að grafa fyrir húsinu því fleyga þurfti berghelluna þegar grunn- urinn var grafinn. Fyrirhöfnin minnkaði ekki þegar kom að því að ganga frá garðinum sjálfum. Kristján segir að í byrjun hafi verið meiningin að slétta lóðina næst húsinu en þegar fjær dró reyndist þetta ekki vinnandi veg- ur. Þar voru menn komnir í berg sem ómögulegt hefði verið að losa sig við. Spúlaði hellurnar Margur hefði þá kannski valið að láta aka óteljandi bílhlössum af mold í lóðina og þekja svo yfir allt saman. Svo var þó ekki í þessu tilfelli. Guðbjörg fékk þá hugdettu að reyna að skola möl og leir ofan af hellunum og eyddi í það ófáum vinnustundum. Hún segir að Kristján hafi helst ekk- ert viljað af þessu vita til að byrja með en hún lét það ekki á sig fá, hélt ótrauð áfram og með hjálp fjölskyldunnar tókst að hreinsa leirinn af hellunum. Kristján viðurkennir að hann og fleiri hafi þurft að moka upp leirnum, út á götu og aka svo því sem ekki átti að verða í garðinum beint í Sorpu. Hann viðurkennir líka að hann sé ánægður með ár- angurinn af „steinþvotti“ eig- inkonunnar. Reyndar verður að viðurkenna að í öðrum enda garðsins, hjá þeim Eggert og Selmu, er smág- rasflöt og meira að segja nokkur hávaxin tré. Þar hefði þurft mikla vinnu ef ætlunin hefði ver- ið að komast niður á fast. Gras- flötin var því góður kostur og gerir garðinn í heild jafnvel enn skemmtilegri en ekki hefur verið gerð tilraun til að skipta honum á nokkurn hátt þótt tvær fjöl- skyldur búi í parhúsinu. Tjörnin er garðprýði Við húsið hefur verið smíðaður nokkuð breiður pallur, sem að vísu er skipt í tvennt en meðfram honum endilöngum er frábær tjörn! Þegar rignir fyllist tjörnin af vatni og sömuleiðis allir bollar í steinhellunni í kring, en í lang- varandi þurrkum minnkar vatnið og þá þarf að bæta í hana svolitlu vatni. Í tjörninni er dæla sem dælir vatni upp í steinbolla sem er í hellunni ofan við hana. ÚrGóður leikvöllur Sigurður situr flötum beinum á klettinum en krakkarnir hafa gaman af að leika sér í garðinum. Listaverk náttúrunnar í grjótgarði í Grafarvogi Flestir garðeigendur vilja helst vera með rennisléttar grasflatir og snyrtileg blómabeð í görðum sínum. Í garði við parhús í Grafarvogi eru hins vegar berghell- ur og grjót sem ísaldarjökullinn skildi eftir sig í aðal- hlutverki. Fríða Björnsdóttir skoðaði skemmtilegt náttúrulistaverk. Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is RAUÐVÍNIN frá Rioja eruað mörgu leyti eins ogklettar í hafinu. Það erávallt – eða að minnsta kosti undantekningalítið – hægt að treysta á að þau standi fyrir sínu. Úrvalið í vínbúðunum er líka ágætt og þar má fá mörg mjög frambærileg vín frá þessu héraði. Að þessu sinni skoðum við jafnt vín frá vínhúsi sem segja má að sé „góðkunningi“ ís- lenskra vínneytenda sem nýja full- trúa Rioja í búðunum. Það er komið vel á annan áratug frá því að fyrstu vínin frá Montecillo komu til Íslands og mjög snemma ruddu þau sér til rúms sem einhver vinsælustu rauðvín landsins. Vínin stóðu ágætlega undir þeirri upphefð, þetta er gæðavínhús í eigu Osborne- fjölskyldunnar, sem leggur mikið upp úr vínum sínum. Stíllinn, sem er ekki alveg klassískur þar sem eik- artunnurnar sem notaðar eru við víngerðina, eru franskar en ekki bandarískar, líkt og hefð er fyrir í Rioja. Þetta setur mark sitt á vínin sem eru „franskari“ – örlítið stífari – en mörg önnur Rioja-vín. Kíkjum á þá árganga sem nú eru í boði. Montecillo Crianza 2003 er grunnvínið frá vínhúsinu, þurr angan, þarna má finna kryddjurtir, vott af kaffi og rauð ber, milda eik og tannín. Eins og ávallt eru góð kaup í þessu Rioja-víni. 1.290 krónur. 87/ 100 Montecillo Re- serva 2002 er vín sem er meira að upplagi og hefur verið geymt leng- ur jafnt á flösku sem tunnu áður en það fer á markað. Í nefi eleg- ant með þroskuðum kirsuberjum, allt að því sultuðum, vanillu og vindlatóbaki. Mjúkt, þétt og vel upp- byggt. Með rauðu kjöti.1.590 krónur. 88/ 100 Montecillo Gran Re- serva 2001 mjúkt og þægilegt með kaffi, súkkulaði, svörtum ólívum og dökkum ávöxtum í nefi. Mjúkt og rúnnað, ör- lítið kryddað með ágætri endingu. Reynið með nauta- kjöti og mildri villi- bráð á borð við hrein- dýr, varist þó sætt eða sýruríkt meðlæti. 1.990 krónur. 90/100 Vínhúsið Bodega y Vinedos Ortega Esquerro er nýtt á markaðnum en vínin eru seld undir nafninu Soligamar og hafa getið sér gott orð víða um heim. Þetta eru kraftmikil vín með dökk- Góðkunningi íslenskra vínneytenda Morgunblaðið/Frikki vín ÞAÐ ERU ekki bara konur sem upplifa minnkaða frjósemi eftir þrítugsaldurinn, heldur hafa nú vísindamenn uppgötvað að lík- amsklukka karlmanna byrjar að tifa um 35 ára aldur. Franskir vísindamenn rannsök- uðu 12.200 pör sem gengust undir frjósemismeðferð og sáu að þverrandi líkur voru á árangri ef karlmaðurinn var eldri en 35 ára. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að pörum gengur verr að geta barn sé karlmaðurinn orðinn 40 ára, hvort sem getnaðurinn er nátt- úrulegur eða með hjálp lækna. Samkvæmt vefmiðli BBC telja vís- indamenn ástæðuna vera skemmdir á erfðaefni í sæðis- frumum. Aldur kvenna hefur talsvert að segja varðandi frjósemi og fóst- urlát, en vísindamennirnir upp- götvuðu að fósturlát er líka al- gengara sé karlmaðurinn kominn langt á fertugsaldur. Dr. Stephanie Belloc segir niðurstöðurnar mikilvægar og mælir með glasafrjóvgun eða smásjárfrjóvgun í stað hefðbund- innar tæknisæðingar fyrir eldri pör sem eiga við frjósemisvanda að stríða. Þannig sé hægt að velja sæðisfrumurnar og freista þess að komast hjá vandkvæðum. Reuters Of seinn? Aldur karla og kvenna getur haft áhrif á ófrjósemi. Líkams- klukka karla tifar líka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.