Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 2
Skýrsla Samgönguráðherra fékk skýrslu Spalar um tvöföldun Hvalfjarð- arganga, í tilefni 10 ára afmælis ganganna sem fagnað var í gær. „OKKUR ber að tvöfalda Hvalfjarð- argöngin. Ég held að við getum öll verið sammála um það. Það eina sem menn greinir á um í þessum efnum eru tímasetningar,“ sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra á Akranesi í gær þar sem tíu ára af- mæli Hvalfjarðarganga var fagnað. Vilja ný göng 2013 eða 2014 Við það tilefni var ráðherra og Hreini Haraldssyni vegamálastjóra afhent skýrsla sérfræðinga um ný jarðgöng sem liggja myndu samsíða hinum eldri. Miða Spalarmenn við að þau yrðu tekin í notkun árið 2013 til 2014 eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær. „Mér finnst það umhugsunarefni hvort réttlætanlegt sé að fella niður gjaldtöku og ráðast á sama tíma í tvöföldun ganganna. Verðum við ekki fyrst að festa niður tímasetn- ingu tvöföldunar, reikna út kostn- aðinn og sjá þá hvenær hægt verður að hætta að rukka?“ segir sam- gönguráðherra sem telur tvöföldun og gjaldtöku ekki vera órjúfanleg at- riði. Mönnum beri skylda til að tvö- falda ekki göngin fyrr en þess sé þörf en þó ekki eftir að þau sé stífl- uð. „Við viljum ekki að tvöföld göng séu hálftóm og ekki að einföld göng séu stífluð,“ sagði ráðherrann sem telur áhrifasvæði Hvalfjarðarganga í raun spanna hálft landið. Einkum þó á Vesturlandi þar sem íbúum hafi fjölgað mikið á síðustu árum. Ber að tvö- falda Hval- fjarðargöng Samgönguráðherra vill skoða tvöföldun ganganna og afnám gjaldtöku samhliða 2 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÓSKAPLEGA mikilvægt er fyrir þjóðina við þessar aðstæður að finna festu í landstjórninni. Að í brúnni séu menn sem vita hvert þeir stefna, tali bjartsýni og kjark í fólkið og framkvæmi það sem allir aðrir sjá að þarf að gera,“ segir Guðni Ágústs- son, formaður Framsóknarflokksins. Flokkurinn sendi í gær frá sér tillögur vegna ástands efna- hagsmála og segist formaðurinn tilbúinn að taka við keflinu af núverandi ríkisstjórn sem hafi ekk- ert að gert. Guðni segir framsóknarmenn hafa miklar áhyggjur af þeirri stöðu sem upp er komin og sömu áhyggjur finnist hvar sem komið er að. „Það þyngir að og fólk hefur miklar áhyggjur af sínum hag og þjóðarhag. Því finnst að það vanti foryst- una í þjóðfélagið.“ Formaðurinn ritar grein sem birtist á leiðara- opnu Morgunblaðsins í dag. Í henni segist hann telja þörf á samstilltum og ákveðnum aðgerðum ríkisstjórnar og Seðlabankans. Nauðsynlegt sé að lækka stýrivexti og auka gjaldeyrisforðann. „Það er nákvæmlega það sem ríkið getur gert og einnig að vera tilbúið með stórframkvæmdir. Menn þurfa að undirbúa þær sem allra fyrst.“ Nýta þarf heimildir til töku láns sem fyrst Framsóknarflokkurinn kallar eftir því að rík- isstjórn og Seðlabanki komi fram með skýra áætl- un um hvernig íslenskt þjóðfélag á að vinna sig í gegnum efnahagslægðina. „Seðlabankinn verður að auka gagnsæi ákvarðanatöku sinnar, m.a. með birtingu rökstuðnings fyrir vaxtaákvörðunum. Hafa ber í huga að Seðlabankinn er ekki aðeins bundinn verðbólgumarkmiði heldur einnig því að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi og fram- gangi efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar,“ segir í tillögum flokksins. Guðni segir einnig afar mikilvægt að heimildir Alþingis til töku erlends láns verði nýtt sem allra fyrst. „Við trúðum því að það yrði gert strax og heimildin var veitt, en ekkert gerist. Það má velta fyrir sér, hvort stífni ríki á milli ríkisstjórnar og Seðlabanka um að taka lánið. Það er líka spurning hvort Evrópa veitir Íslendingum ekki lán á góðum kjörum. Þá þurfum við að hafa kjark til að líta víð- ar, því við eigum vini í fleiri heimsálfum, s.s. til Bandaríkjanna, Kína eða Rússlands.“ Guðni segir Framsóknarflokkinn hafa mikla reynslu í að leiða íslenskt hagkerfi á ögurstundu. Spurður hvort slík reynsla leynist ekki í Sjálfstæð- isflokknum játar hann því. „En það er eins og sam- starfið gangi ekki upp. Það er eins og Sjálfstæð- isflokkurinn hafi dáið inn í Samfylkinguna og sé ábyrgðarlítill í efnahagsmálum við þessar aðstæð- ur.“  Gengisfelld ríkisstjórn | 27 Þjóðin þarf festu í landstjórnina Í HNOTSKURN »Tillögur framsóknar-manna eru settar fram í framhaldi af fundum með að- ilum vinnumarkaðar, fjár- málafyrirtækja og hinum ýmsu fræðimönnum þjóð- arinnar. »Flokkurinn segir stjórn-völd ekki hafa gripið inn í atburðarásina með afgerandi hætti og fyrir vikið er útlit fyrir að efnahagslægðin verði dýpri og lengri en ella. Þá stefni í verulega aukið at- vinnuleysi. MIÐBÆRINN iðar af lífi þegar skapandi sumar- hópar Hins hússins fara á stjá, en það gera þeir á föstudögum í sumar. Þá gefst gestum miðborgarinnar færi á að fylgjast með hljómsveit leika smekklega djass- tónlist við mót Laugavegar og Skólavörðustígs, fylgjast með fimum dönsurum leika listir sínar á götunum eða hlusta á magnþrunginn textaflaum hirðskálds Hins hússins á þaki veitingastaðarins Lækjarbrekku. Veður var milt og gott til list- sköpunar á hádegi í gær en í dag og næstu daga er spáð rigningu víða um land. haa@mbl.is Morgunblaðið/Valdís Thor Listsköpun í miðborginni á föstudögum VIÐ athöfnina á Akranesi kom formlega út bók Atla Rúnars Hall- dórssonar þar sem fjallað er um Hvalfjarðargöngin. Þar er m.a. rætt um flókna samningagerð milli Spalar og verktaka sem leiða þurfti til lykta. Þegar skrifað var undir samninga um Hvalfjarð- argöng 22. febrúar 1996 voru til að mynda enn lausir endar. Undir- skriftaathöfn var frestað í þrígang á meðan reynt var að tjaldabaki að leysa ágreining í hópi fjárfesta og verktaka um hver bera ætti ábyrgð á greiðslu skaðabóta, ef til kæmi. Samkomulag tókst ekki og gripið var til þess að skrifa undir það sem hægt var í kastljósum sjón- varpsvéla í Súlnasal Hótel Sögu. Þeir sem höfðu ekki lokið sínum málum munduðu penna og létu sem þeir skrifuðu undir. Sviðsett undirskrift í Súlnasalnum UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að ganga til samninga við fyrirtækin Fjarska ehf. og Og fjar- skipti ehf. um rekstur tveggja ljós- leiðara Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Íslandi. Markmið ráðuneytisins með út- leigunni er meðal annars að draga úr kostnaði vegna viðhalds og reksturs ljósleiðara Atlantshafs- bandalagsins og auka aðgengi al- mennings að háhraðatengingum, einkum úti á landi. Fimm verkefnatillögur bárust frá fjórum fyrirtækjum í kjölfar auglýsingar Ríkiskaupa. Áður- nefnd fyrirtæki hlutu flest stig eftir ákveðnu stigakerfi sem hannað var og því var gengið til samninga við þau. Tilboð Fjarska ehf. hljóðaði upp á 20 milljónir króna og Og fjar- skipta ehf. upp á 19.150.000 króna. haa@mbl.is Samningar um rekstur ljósleiðara LÖGREGLAN á Suðurnesjum hafði hendur í hári ökumanns bifhjóls á Reykjanesbraut í gærdag. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að maðurinn ók hjóli sínu á 212 km hraða. Hann hundsaði jafn- framt stöðvunarmerki lögreglu og reyndi að stinga hana af. Maðurinn gafst upp nærri höfuðstöðvum Kaffitárs. Maðurinn var handtekinn, fluttur á lögreglustöð og sviptur ökurétt- indum til bráðabirgða. Hann má einnig búast við hárri sekt. Ökumenn sem urðu vitni að eft- irför lögreglunnar, frá Vogaaf- leggjara og að Njarðvík, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu Suðurnesja í síma 480-1800. Ók bifhjóli á 212 km hraða NOKKUÐ líf glæddist á fasteigna- markaði í vikunni. Stimpilgjöld voru enda afnumin á veðskulda- bréfum til fyrstu kaupa hinn 1. júlí. Heildarfjöldi kaupsamninga á höf- uðborgarsvæðinu frá 4. júlí til og með 10. júlí var 82. Til samanburðar var heildar- fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu frá 13. júní til og með 19. júní 33. Þá námu heildarútlán Íbúðalána- sjóðs samtals tæplega fimm millj- örðum króna í júnímánuði. Heildar- útlán jukust því um 4% frá fyrri mánuði. haa@mbl.is Markaðurinn glæðist lífi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.