Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 8

Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is Akureyri | Ekkert aldurstakmark verður inn á tjaldsvæðin á Akureyri um verslunarmannahelgina. Tjald- svæðin sem skátarnir reka verða hins vegar ætluð fjölskyldufólki og ferðamönnum sem endranær. Sér- stakt „þriðja tjaldsvæði“ verður rek- ið af Íþróttafélaginu Þór um helgina. Áhersla verður lögð á að beina þang- að næturhröfnum, þótt ströng gæsla á svæðinu eigi að koma í veg fyrir að þar skapist stemning eins og var á unglingatjaldsvæði við Hamra fyrir nokkrum árum. „Á Hömrum og Þórunnarstræti verðum við með fjölskyldutjald- svæði,“ segir Edward Huijbens, tals- maður Skátafélagsins Klakks. „Bæði tjaldsvæðin eru fjölskyldutjaldsvæði og fyrir erlenda ferðamenn og verða það einnig um verslunarmannahelg- ina. Við ætlum einfaldlega að halda þeirri línu gagnvart kúnnunum að það verði næturfriður á tjaldsvæð- unum um verslunarmannahelgina. Ef gestir verða með ölvunarlæti um helgina munum við beina þeim ann- að, enda stangast það á við umhverf- isreglur okkar.“ Verið er að ganga frá samningum um staðsetningu þriðja tjaldstæðis- ins. Að sögn Þórgnýs Dýrfjörð, framkvæmdastjóra Akureyrarstofu, verða útivistarreglur þar rýmri og svæðið hugsað fyrir þá sem vaka lengur. Hins vegar verður gesta- gangur þar ekki leyfður og gríðarleg gæsla á svæðinu. Tjaldsvæði næturhrafna Morgunblaðið/Margrét Þóra Tjaldsvæði Sérstakt tjaldsvæði verður rekið af Íþróttafélaginu Þór á Ak- ureyri um verslunarmannahelgina. Nú verður ekkert aldurstakmark. Ekkert aldurs- takmark inn á tjald- svæðin á Akureyri Í HNOTSKURN »Í fyrra voru sett aldurs-viðmið á tjaldsvæði bæj- arins í Þórunnarstræti og að Hömrum. Fólki yngra en 23 ára var ekki hleypt inn. »Ákvörðunin var mjög um-deild, en í ár verða ekki viðlíka aldurstakmörk. »Fjölskyldufólk fær for-gang á tjaldsvæði skát- anna um helgina, og sérstakt þriðja tjaldsvæði verður opn- að fyrir þá sem vilja vaka lengi. ÞAÐ þyrfti bara að rigna í Gljúfurá, þá væri þetta fullkomið,“ sagði Haraldur Eiríksson á skrifstofu SVFR í gær en fyrirtaksveiði og veiðihorfur eru á laxveiðisvæðum félagsins. Hann tók sem dæmi að í Krossá á Skarðsströnd séu yfir 130 laxar farnir gegnum teljarann, mun fleiri en á sama tíma met- veiðisumarsins 2006. Þótt vatn sé víða orðið mjög lítið, eins og í Leirvogsá, þá hafa veiðimenn verið að ná allt að 20 þar á dag á tvær stangir. Mikið líf er á Nesveiðunum í Laxá í Aðaldal. Hollið sem er þar núna var komið með á annan tug laxa í gær og þá höfðu menn misst tvo sannkallaða „tröll“ - fiska, vel yfir 20 pund. Tuttugu punda múrinn var þó rofinn í Vitaðsgjafa er breskur veiðimaður fékk rúmlega tuttugu punda hæng og einn 19 punda náðist í Hornflúð. Fleiri stórir laxar höfðu komið í fluguna í Presthyl, án þess að taka. Góð veiði er í Tungufljóti í Biskupstungum, þar sem allt að 18 punda laxar hafa veiðst í bland við vænan smálax. Hefur á annan tug laxa fengist á dag á stangirnar fjórar, aðallega við fossinn Faxa. Síðasta vika gaf 398 laxa í Norðurá, á 14 stangir, 11 veiddust á jafnmargar stangir í Þverá-Kjarrá, en 145 í Haffjarðará, á sex stangir. efi@mbl.is Tröllin sýna sig í Aðaldalnum  Metgöngur hafa verið í Krossá  Í Tungufljóti veiðist á annan tug laxa á dag  Í síðustu viku veiddust 398 laxar í Norðurá eða um fjórir á dagsstöngina Vænn Dagrún Hálfdánardóttir með 7 kg lax. „ALVEG örugg- lega,“ sagði Öss- ur Skarphéð- insson af sannfærandi festu, aðspurður um hvort hann ætlaði að taka áskorun Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur um að hjóla í vinn- una. Sjálf hefur Ingibjörg vakið at- hygli fyrir að hjóla til vinnu í utan- ríkisráðuneytinu í sumar og reynt að nota hjólið í styttri ferðir innan- bæjar. „Ég þarf að kaupa mér hjálm, ég á forláta hjól sem ég nota stundum til að hjóla með mínum dætrum. Solla gaf mér [hjólið] ásamt Sam- fylkingunni þegar ég varð fimm- tugur,“ útskýrir Össur sem full- yrðir að hann hafi mikið hjólað í gegnum tíðina. andresth@mbl.is Össur tekur áskoruninni Hjólar Össur ætlar að fá sér hjálm LANDSNET og Landgræðslan hafa haldið áfram samstarfi sínu um upp- græðslu sunnan Langjökuls. Til stendur að dreifa þar í sumar áburði og sá í um 240 hektara lands. Samstarfið hefur verið frá árinu 2006 vegna uppgræðslu og stöðv- unar jarðvegseyðingar í nágrenni háspennulína á afréttinum sunn- an Langjökuls. Í sumar á að beina kröftunum að verkefnum annars vegar við Tjaldafell og hins vegar að nýju svæði á móts við vegamót línuvegar og Kalda- dalsvegar. Uppgræðslustarf sumarsins hófst í síðustu viku þegar ung- lingavinnuflokkur Landsnets vann undir verkstjórn Land- græðslunnar að handsáningu í rofabörð. bjb@mbl.is Sáð í mela við Langjökul Sáð í mel sunnan við Langjökul. BETUR fór en á horfðist þegar ökumaður fólksbifreiðar sofnaði undir stýri á þjóðvegi 1 skammt frá verslun Bónuss í Borgarnesi um há- degisbil í gær, að því er mbl.is greindi frá. Að sögn lögreglu valt bifreiðin á hliðina eftir að hún rakst á jeppa sem var að beygja inn á planið við matvöruverslunina. Eng- an sakaði. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu voru ökumaður fólksbílsins og farþegar fluttir á heilsugæslu- stöðina til aðhlynningar, en þeir sem voru í jeppanum fóru sjálfir síðar um daginn. Meiðsl fólksins eru minniháttar. Sofandi öku- maður velti Á DÖGUNUM færði Ingibjörg R. Magnúsdóttir Háskóla Íslands afar rausnarlega gjöf er hún bætti 1.750.000 krónum við sjóð sem starfar í hennar nafni við Rann- sóknastofnun háskólans í hjúkr- unarfræði. Þetta rausnarlega framlag Ingi- bjargar er í tilefni af eins árs af- mæli sjóðsins og 85 ára afmæli hennar sjálfrar. Markmið sjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur er að efla rannsóknir í hjúkrunarfræði og ljósmóð- urfræði. Sjóðurinn mun styrkja rannsóknaverkefni hjúkrunarfræð- inga og ljósmæðra í doktorsnámi sem falla að markmiði sjóðsins. jonhelgi@mbl.is Háskóli Ís- lands fær gjöf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.