Morgunblaðið - 12.07.2008, Page 10
10 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Guðni Ágústsson, formaðurFramsóknarflokksins, sagði í
gær, að loknum fundi þingflokks
Framsóknarflokksins, að hann
væri reiðubúinn að taka við ef
ríkisstjórnin gæfist upp á því
verkefni að stýra efnahagsmálum
þjóðarinnar.
Í fréttum Sjón-varpsins sagði
Guðni að ríkis-
stjórnin væri
handónýt. „Ég
held að [þjóðin]
þurfi auðvitað
að fá nýja for-
ystu í sam-
félagið. Við er-
um tilbúnir að
axla þá ábyrgð, Framsóknar-
menn,“ sagði Guðni.
Ef Framsóknarflokkurinn ættinú gífurlegu fylgi að fagna
meðal þjóðarinnar en ríkisstjórnin
nyti minnihlutastuðnings, væri
þetta auðvitað hraustlega mælt
hjá Guðna.
En hvernig lítur fylgi flokkannaút í raun? Í síðasta Þjóðarpúlsi
Gallup, í júní, voru stjórnarflokk-
arnir samtals með 63% fylgi og
stuðningur við ríkisstjórnina
reyndist 52%.
Framsóknarflokkurinn fékk 12%fylgi í síðustu þingkosningum.
Það var versta útkoma flokksins í
sögu hans. Fylgi hans hefur
minnkað frá kosningum; hann nýt-
ur nú fylgis 9% þjóðarinnar.
Getur verið að flokkur, sem get-ur haldið þingflokksfund í
jeppa, ætti bara að horfast í augu
við raunveruleikann í stað þess að
heimta stjórnartaumana við erfið-
ar aðstæður í þjóðarbúskapnum?
Guðni Ágústsson er annálaðurhúmoristi. Kannski átti þetta
bara að vera fyndið.
STAKSTEINAR
Guðni Ágústsson
Guðni alltaf jafnskemmtilegur
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!!
"
!!
#!
#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!!
"
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).? # #
#
#
#
# #
#
# #
#
*$BC
!"#$% &'
(#)#* &+,
*!
$$B *!
$% &!
!%!
'
(
)(
<2
<! <2
<! <2
$' & !*
"
+!,(-
C2D
62
- +,
($#$ &+,
B
' .
(
/
*
$"#)
%
0/
(#)#! &+,
./ !!(00
( !!1
(
(!*
"
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
ÚTIHÁTÍÐUM fylgir gjarnan
mikið drasl. Ruslatunnur eru oft af
skornum skammti og að hátíð-
unum loknum er öllum úrgangi,
sem oftast hefur verið látinn detta
í jörðina, safnað saman og hann
urðaður sem almennt sorp. Á ný-
legri sumarhátíð Vinnuskólans í
Reykjavík sem haldin var á Mikla-
túni var stigið tímabært skref í
grænni átt. Þar var allt rusl flokk-
að í endurvinnslutunnur en tíu
stöðvum með flokkunartunnum
hafði verið komið fyrir víðsvegar
um svæðið.
„Það er stefna Vinnuskólans að
vera umhverfisvænn vinnustaður
og vera framarlega í þeim málum,“
segir Sóley Þórisdóttir sem ásamt
Bryndísi Þórisdóttur hefur stýrt
Grænfánaverkefni í Vinnuskól-
anum nú í sumar. „Það lá beinast
við að þessi útihátíð yrði gerð eins
græn og mögulegt var,“ segir Sól-
ey.
Tókst vonum framar
Vinnuskólinn setti upp flokk-
unarstöðvarnar í samstarfi við
Gámaþjónustuna og var flokkað í
skilagjaldsumbúðir, lífrænan úr-
gang, plast og pappír.
Aðspurð segir Sóley hátíðina
hafa tekist vonum framar. Leið-
beinendur í Vinnuskólanum skiptu
með sér hálftímavöktum á hverri
flokkunarstöð til að gæta þess að
ruslið væri flokkað rétt. „Það lögð-
ust allir á eitt að hjálpa til við að
láta þetta ganga,“ segir Sóley.
„Auðvitað var alltaf eitthvað sem
þurfti að tína upp en það kom á
óvart hvað það var lítið.“
Sóley segist sannfærð um að
fyrirkomulag sem þetta sé raun-
hæft fyrir stærri hátíðir. Spurð
hvað þurfi til að átak sem þetta
gangi upp nefnir hún upplýsingu
og aðgengi.
„Það þarf fyrst og fremst að
upplýsa alla um hvað er í gangi,
það er lykillinn að þessu. Á sum-
arhátíðinni vissu allir að það væri
flokkun í gangi. Svo þarf að vera
nógu mikið af úrgangsílátum á
svæðinu þannig að þetta sé alltaf
við höndina. Fólk á ekki að þurfa
að ganga langa vegalengd til að
henda rusli,“ segir hún.
Vistvæn útihátíð Sóley Þórisdóttir flokkar dósir á sumarhátíð Vinnuskólans í Reykjavík á Klambratúni.
Græn
útihátíð
vinnu-
skólans
Krakkarnir í Vinnu-
skóla Reykjavíkur
flokkuðu ruslið á
sumarhátíð sinni
Stefna Þær Bryndís og Þórey segja það stefnu Vinnuskólans að vera um-
hverfisvænn vinnustaður og standa framarlega í umhverfismálum.
FÁIR eru jafnheppnir og bræðurnir á Ásvelli í Fljótshlíð sem fara allra
sinna ferða á steinselnum góða í Lambey. Þeir Elías Páll og Matthías Jóns-
synir eru jafnan á hraðferð enda skóp móðurbróðir þeirra, Þorsteinn Jóns-
son, garðyrkjuverktaki á Hvolsvelli, selinn ekki til hægagangs. Því mátti
ljósmyndarinn hafa sig allan við að ná þessari mynd af strákunum á selnum
– á næsta andartaki voru þeir horfnir út í buskann.
Morgunblaðið/Rax
Strákarnir á stein-
selnum í Lambey