Morgunblaðið - 12.07.2008, Qupperneq 13
og Eitt sumar í hólminum bláa. Opin safnageymsla,
gamaldags krambúð.
Safnahús Borgarfjarðar
Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi.
Opið kl. 13-18.
Aðgangur ókeypis.
Börn í hundrað ár, óvenjuleg sýning sem vakið hefur mikla
athygli. Leiðsögn á heila tímanum.
NORÐURLAND
Byggðasafnið Hvoll á Dalvík
v/Karlsrauðatorg, Dalvík.
Opið kl. 11-18.
Aðgangur ókeypis.
Heimamenn og gestir Dalvíkurbyggðar, Byggðasafnið Hvoll
er fjölskylduvænt safn! Kaffi og kleinur!
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Árbraut 29, Blönduósi.
Opið kl. 10-17.
Aðgangur ókeypis fyrir börn 16 ára og yngri.
Boðið upp á kaffi og kleinur einnig hina margrómuðu Kosta
sviðasultu ásamt mysudrykk sem verður innifalið í
aðganseyri. Frá kl.14 verður sérstök dagskrá í safninu, sýnd
verða gömul vinnubrögð í meðferð ullar, einnig margskonar
útsaumur, auk þess heklað, gimbað, knipplað og slegið í
vef. Safnverðir munu skarta íslenskum búningum.
Sumarsýning safnsins er sýning Snjólaugar
Guðmundsdóttur, 'Sólu'.
Safnahúsið á Húsavík
Stóragarði 17, Húsavík.
Opið kl. 10-18.
Aðgangur ókeypis.
Boðið upp á kaffi. Í Safnahúsinu er að finna fjölmargar
áhugaverðar sýningar sem tengja unga sem aldna og er því
tilvalinn staður fyrir alla fjölskylduna að heimsækja saman.
Hér geta börnin lært af sér eldri, en þeir eldri geta einnig
lært af því að sjá fortíðina með augum barnanna.
Byggðasafnið Grenjaðarstað
Aðaldal, 641 Húsavík.
Opið kl. 10-18.
Aðgangur ókeypis.
Að Grenjaðarstað í Aðaldal er einn glæsilegasti torfbær
landsins sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hundruði
safngripa er að finna í bænum, baðstofu, búri og
hlóðaeldhúsi sem vekja áhuga allra í fjölskyldunni. Ókeypis
kaffi og djús í þjónustuhúsi við bæinn.
Byggðasafn Norður-Þingeyinga
v/Snartarstaði, 671 Kópaskeri.
Opið kl. 13-18.
Aðgangur ókeypis.
Safnið varðveitir einstaka muni sem margir hverjir eru yngri
kynslóðum ráðgáta og tilefni fyrir þá eldri að rifja upp. Hvað
er úrmotta og af hverju er sprengjubrotið? Ókeypis kaffi fyrir
gesti.
Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
Snorragötu 10, Siglufirði.
Opið kl. 10-18.
Aðgangur ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri.
Safnið hlaut verðlaun Evrópuráðs safna 2004. Lifandi safn
um stórbrotna síldarsögu Íslendinga.
AKUREYRI
Flugsafn Íslands, Akureyrarflugvelli
Opið kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára.
Safngripir:Flugvélar, fornbílar, mótorhjól. Flugsaga Íslands í
myndum og texta.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, Akureyri
Opið kl. 10-17.
Aðgangur ókeypis.
Hvað er í matinn? sumarsýning Minjasafnins.
Grunnsýningarnar Eyjafjörður frá öndverðu og Akureyri
bærinn við Pollinn. Minjasafnið á Akureyri er eitt þriggja
safna sem tilnefnd eru til Íslensku safnaverðlaunanna 2008.
Gamli bærinn Laufási
Grýtubakkahreppi, 601 Akureyri.
Opið kl. 9-18.
Aðgangur ókeypis.
Hvað ungur nemur gamall temur - starfsdagur í Gamla
bænum. Hægt verður að fylgjast með fólki við ýmsa iðju
sem tíðkaðist í gamla daga frá 13:30 - 17:00.
Nonnahús
Aðalstræti 56, Akureyri
Opið kl. 10-17
Aðgangur ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
AUSTURLAND
Minjasafn Austurlands
Laufskógar 1, Egilsstaðir
Opið kl. 11-17.
Aðgangur ókeypis.
Lifandi safn, sýningin ÓlíKINDI, uppákomur og
skemmtilegheit.
Minjasafnið Bustarfelli
í Hofsárdal Vopnafirði, 30km frá þjóðvegi 1.
Opið kl. 10-18.
Aðgangseyrir kr. 500 fyrir fulloðrna, frítt fyrir börn yngri en
12 ára.
Dagskrá hefst kl. 14 - 17. Sýnd vinnubrögð fyrri tíma.
Amman og börnin verða á staðnum. Boðið uppá heitar
lummur og rúgbrauð. Kaffiveitingar í Hjáleigunni-Café.
Safnahúsið Norðfirði
Egilsbraut 2, Norðfirði.
Opið kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
Náttúrugripasafn Austurlands. Sjóminja- og
smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar. Myndlistarsafn
Tryggva Ólafssonar.
Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði
Spítalakampi við Hæðargerði, Reyðarfirði.
Opið kl. 13-18.
Aðgangur ókeypis.
Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði
Strandgötu 39b, Eskifirði.
Opið kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
Tækniminjasafn Austurlands
Wathnestorfunni, Hafnargötu 44, Seyðisfirði
Opið kl. 11-17
Aðgangur ókeypis.
Allar sýningar safnsins opnar.
SUÐURLAND
Byggðasafn Árnesinga
í Húsinu á Eyrarbakka.
Opið kl. 11-18.
Aðgangur ókeypis.
Í borðstofu Hússins er sýningin 'Faldarnir lyftust og síðpilsin
sviptust', í Assistentahúsinu sýning á afleiðingum
Landskjálftans 29.5.2008 og tónlistardagskrá í stássstofu
Hússins kl. 14-16.
sunnudaginn 13. júlí 2008
Landsmenn eru hvattir til að heimsækja söfn á Íslenska safnadaginn og njóta skemmtunar og fræðslu fyrir alla fjölskylduna
Fyrir fjölskylduna
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka
Opið kl. 11-18.
Aðgangur ókeypis.
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka stendur að sýningu í Gallerí
Gónhól á Eyrarbakka á ýmsum safnmunum tengdum
samgöngum. Til sýnis verða gamli slökkviliðsbíllinn á
Eyrarbakka, hluti bílhúss ÁR 2 - Sandvíkurbílsins
svokallaða, dekk sem bjargaði Jóni I. Guðmundssyni
mjólkurbílstjóra frá drukknun haustið 1944 auk fleiri
safnmuna. Fornbílar í eigu Sverris Andréssonar verða til
sýnis, m.a. nákvæm endurgerð Thomsen-bílsins. Ingibergur
Bjarnason sýnir í Gallerý Gónhól ljósmyndir af fornbílum.
Þuríðarbúð á Stokkseyri
Sjóbúð til minningar um horfna sjávarhætti og merka
sjókonu.
Opið allan daginn.
Aðgangur ókeypis.
Rjómabúið á Baugsstöðum
Opið kl. 13-18.
Aðgangseyrir 300 kr.
Vélar, knúnar vatnsafli, gangsettar fyrir gesti.
Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21, Hveragerði.
Opið kl. 12-18.
Aðgangur ókeypis.
Listamaðurinn í verkinu - Magnús Kjartansson.
Ratleikur um verkin - fyrir fjölskylduna.
Skógasafn
Skógum undir Eyjafjöllum.
Opið kl. 9-18:30.
Aðgangur ókeypis fyrir börn undir 16 ára aldri.
Ókeypis aðgangur á Jazzhátíð í Samgöngusafninu.
Jazzhátíð í Skógum 11.-12. júlí.
Jazztónleikar í Skógakaffi í Samgöngusafninu, ókeypis
aðgangur meðan húsrúm leyfir. Eldsmiður að störfum í
smiðju Skógasafns. Slegið með orfi og ljá á safnlóðinni.
Spunnið á rokk og snældu.
Veiðisafnið
Eyrarbraut 49, Stokkseyri.
Opið kl. 11-18.
Aðgangur ókeypis.
Safnaleiðsögn um grunnsýningar safnsins sem innihalda
m.a. uppstoppuð veiðidýr, skotvopn bæði innlend og
erlend ásamt veiðitengdum munum.
Fiska og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja
Heiðarvegi 12, Vestmannaeyjum
Opið kl. 11-17.
Aðgangur ókeypis.
REYKJANES
Byggðasafn Garðskaga
Skagabraut 100, v. Garðskagavita.
Opið kl 13-17.
Aðgangur ókeypis.
Safnið er opið frá 1. apríl - 31.október alla daga frá kl 13:00
- 17:00. Leiðsögn um safnið
Duushús, menningar- og listamiðstöð
Reykjanesbæjar
Duusgata 2-8, Reykjanesbæ.
Opið kl. 11-17.
Ókeypis aðgangur
Listasalur - Þríviður, Guðjón Ketilsson, Helgi Hjaltalín,
Hannes Lárusson. Ein af sýningum Listahátíðar. Bátasalur -
Bátafloti Gríms Karlssonar, 100 bátalíkön og sjómminjar úr
eigu Byggaðsafnsins. Poppminjasafnið - Vagg og velta,
rokkárin á Íslandi. Bíósalur - Íslensk myndlist, safneign
Listasafsnins.
Víkingaskipið Íslendingur og torfbærinn
Stekkjarkot.
Njarðvíkurbraut 42 í Innri Njarðvík, Reykjanesbæ.
Opið kl. 13-17.
Aðgangur ókeypis.
Heimili Jórunnar Jónsdóttur síðasta ábúandans. Innri-
Njarðvíkurkirkja er einnig opin
Náttúruminjasafn Íslands