Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 16
16 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
LEIÐTOGAR um 40 ríkja koma
saman í París á morgun til að hleypa
af stokkunum flaggskipi utanríkis-
stefnu Nicolas Sarkozys Frakk-
landsforseta – Miðjarðarhafssam-
bandinu – nú þegar Frakkar fara
fyrir Evrópusambandinu.
Ekki er þó búist við því að afrakst-
ur jómfrúrferðarinnar verði mikill,
enda leggur skipstjórinn meiri
áherslu á að þræða fyrir öll sker,
forðast boðaföll og gusur.
Það telst þó talsvert afrek að Sar-
kozy forseta skyldi takast að fá leið-
togana 40 til að sitja við sama borð og
er til marks um mikil áhrif Frakka í
Norður-Afríku og Mið-Austurlönd-
um.
Alls eiga 44 lönd aðild að Miðjarð-
arhafssambandinu – 27 aðildarríki
Evrópusambandsins og 17 lönd við
sunnan- og austanvert Miðjarðarhaf.
Sumar aðildarþjóðir nýja sambands-
ins hafa eldað grátt silfur í aldir.
Sarkozy segir að markmiðið með
stofnun Miðjarðarhafssambandsins
sé að reisa brú milli norðurs og suð-
urs, araba og Ísraela, múslíma, gyð-
inga og kristinna manna.
Sögulegt handaband?
Fyrsti fundur sambandsins er að
ýmsu leyti sögulegur, meðal annars
vegna þess að þetta er í fyrsta skipti
sem leiðtogar Ísraels og Sýrlands
sitja við sama borð. Bjartsýnismenn
vona að á leiðtogafundinum gefist
jafnvel tækifæri til að hefja friðarvið-
ræður milli landanna tveggja. Ekki
er þó víst að Ehud Olmert, forsætis-
ráðherra Ísraels, og Bashar al-As-
sad, forseti Sýrlands, fáist til að tak-
ast í hendur, hvað þá að tala saman.
Fundinn sitja einnig forseti Alsírs
og konungur Marokkó, þrátt fyrir
fornan fjandskap landanna. Á leið-
togafundinum verður sneitt hjá mik-
ilvægum málefnum og þrætueplum á
borð við ólöglega innflytjendur og
reglur um sanngjörn viðskipti.
Þess í stað verður fjallað um verk-
efni, sem allir ættu að geta verið
sáttir við, svo sem nemendaskipti,
þróun tækni til að beisla sólarorku,
hreinsun Miðjarðarhafsins og ráð-
stafanir til að tryggja öruggar sigl-
ingaleiðir.
Óskabarn Sarkozys
forðast þrætuepli
Um 40 ríki stofna
Miðjarðarhafs-
sambandið
///
:/;//
/</;/ /("/4/
/
:
/
< !/ <
/ 2= /74>:!/
/,44 !/
/ -/
: ?
7?
@A
)B9C)DD39/9B@)DB)D),77))2C7927
,44
)
44A
E:5
+
/
3 F:4
D0<
3
GA
75
44
7;A
3
,
G
0
F0 H? 4+
//
< /<//
!"
#
$ !
Í HNOTSKURN
» Þegar Sarkozy kynntifyrst hugmyndir sínar
um stofnun Miðjarðarhafs-
sambandsins fyrir forseta-
kosningarnar í Frakklandi í
fyrra gerði hann ráð fyrir
því að sambandið einskorð-
aðist við ríki sem liggja að
Miðjarðarhafi.
» Angela Merkel, kanslariÞýskalands, og fleiri
lögðust gegn þeirri hug-
mynd af ótta við að nýja
sambandið myndi grafa und-
an stofnunum Evrópusam-
bandsins. Merkel fékk því
framgengt að öll ESB-ríkin
fengju aðild að Miðjarð-
arhafssambandinu.
Bashar al-Assad Ehud Olmert
NEMENDURNIR í grunnskólanum í borginni Arosa í
Sviss nutu veðurblíðunnar og sundaðstöðunnar í gær,
ekki er þó víst að tilburðir þess sem þarna stingur sér í
vatnið fengju náð fyrir augum strangra dómara á ól-
ympíuleikunum sem verða í næsta mánuði í Beijing. En
alpalandslagið er fagurt og minnir á gæðaostana og
súkkulaðið góða sem Svisslendingar eru svo þekktir
fyrir auk úranna.
AP
Sundfimi í alpablíðunni
Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
sigrunhlin@mbl.is
KONUR hafa hlotið mikla athygli
forsetaframbjóðendanna Baracks
Obamas og Johns McCains síðustu
vikuna. Rannsóknir hafa sýnt að þær
ákveða sig seinna en karlar, en síð-
ustu þrjátíu árin hafa fleiri konur
kosið demókrata en repúblikana. Þá
er einnig talið líklegt að það verði
Obama í hag að konur láti sig efna-
hagsmál varða, því hann hefur lagt
meiri áherslu á þau í kosningabar-
áttu sinni en McCain, sem hefur
fremur lagt áherslu á utanríkismál.
Líklegt þykir að Obama geti unnið
sér inn stuðning stórs hóps kvenna
ef hann fær liðsmenn Hillary Clinton
á sitt band. Að undanförnu hefur
hann fundað ásamt Clinton og fylg-
ismönnum hennar í leit að stuðningi
þeirra, nú síðast í New York og Fair-
fax í Virginíu.
Obama höfðar
til ungra kvenna
Obama beinir sjónum sínum einn-
ig að einhleypum, vel menntuðum
yngri konum og hefur gagnrýnt
McCain fyrir að hafa lagst gegn
frumvarpi sem fór fyrir öldungadeild
um að jafna laun kynjanna. Obama
gagnrýnir McCain einnig fyrir að
leggjast gegn rétti kvenna til að láta
eyða fóstri. Hann lýsti því yfir í gær
að hann myndi aldrei snúa baki við
baráttunni fyrir réttindum kvenna
til að velja hvað hún gerði við líkama
sinn. Hann hefur þó látið í veðri vaka
í samskiptum sínum við kristileg
samtök að sá réttur eigi ekki að vera
skilyrðislaus.
McCain fundaði í gær með kven-
kyns fyrirtækjaeigendum í St. Paul í
Minnesota og í Hudson í Wisconsin
hélt hann fund í ráðhúsinu þar sem
áherslan var á málefni kvenna. Hann
telur að baráttu fyrir réttindum
kvenna sé best að heyja án beinna af-
skipta ríkisins.
Lög sem knýja á um jöfn laun
kynjanna telur hann til þess fallin að
mál verði höfðuð á hendur vinnuveit-
endum að óþörfu. McCain sagði í vik-
unni að sú stefna hans að lækka
skatta og styðja við minni fyrirtæki
gæti höfðað til kvenna, því margar
bandarískar konur vinni í litlum fyr-
irtækjum.
Eitt sem Obama hefur þó fram yf-
ir McCain gæti þó riðið baggamun-
inn fyrir óákveðna kvenkyns kjós-
endur: Hann er yngri, myndarlegri
og hefur meiri útgeislun.
Slást um
hylli kvenna
AP
Keppinautar Liggur leiðin að Hvíta húsinu í gegnum hjörtu kvennanna?
Í HNOTSKURN
»Síðan 1980 hafa konurfrekar kosið demókrata.
»Obama vill höfða tilkvenna með því að stuðla
að jöfnum launum kynjanna
og frelsi til fóstureyðinga. Þá
gæti stuðningur fylgismanna
Hillary Clinton skipt sköpum.
»McCain segir að stuðn-ingur hans við minni fyr-
irtæki, starfsvettvang margra
kvenna og loforð um óbreytta
skatta eigi að höfða til kvenna.