Morgunblaðið - 12.07.2008, Síða 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 23
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
„ÞETTA var mjög skemmtilegt og fróðlegt,“ segir
Hermína Fjóla Ingólfsdóttir sem er 14 ára og tók þátt
í Fornleifaskóla barnanna í annað sinn í vikunni. „Við
fengum að grafa og fundum margt fallegt. Til dæmis
fundum við glerperlu sem er sjaldgæft á Íslandi. Ég
veit ekki alveg nákvæmlega hvað hún er gömul og vil
ekki ljúga neinu að neinum. En hún var frá vík-
ingaöld.“
Hermína tók líka þátt í Fornleifaskóla barnanna í
fyrra en þá fengu þau eingöngu að skoða uppgreftrar-
svæði en í ár tóku börnin þátt í uppgreftri í fornum
ruslahaug að Skútustöðum í Mývatnssveit. „Ég var dá-
lítið smeyk við þetta,“ segir Hermína. „Aðallega við að
vera of harðhent, ég hélt að ég myndi brjóta eitthvað
ef ég færi of hratt. Hins vegar sá ég fljótt að fornleifa-
fræðingarnir sem voru vanir voru enn þá harðhentari.“
Starfið í Fornleifaskólanum hefur kveikt áhugann
hjá Hermínu sem segist jafnvel ætla að leggja fyrir
sig fræðigreinina í framtíðinni. Hún myndi þá sérhæfa
sig í skordýrum. Í haust mun hún vinna að einhverju
verkefni í tengslum við skólann sem enn er óskil-
greint.
Læra grunnatriði í fornleifafræði
Fornleifaskóli barnanna er sérstakt verkefni sem er
starfrækt í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Ásamt
Hermínu tóku fjögur önnur börn úr Vinnuskólanum á
Laugum þátt í uppgreftrinum en Fornleifaskólinn fel-
ur í sér að börn fara á vettvang fornleifarannsókna í
Þingeyjarsýslu og njóta leiðsagnar íslenskra og banda-
rískra fornleifafræðinga. Krakkarnir fá leiðsögn við
uppgröft, sigtun, fleytingu ásamt því að læra grunn-
atriði við skýrslugerð, uppdrætti og margt fleira.
„Þetta er verkefni sem er sprottið upp úr áhuga-
mennsku um fornleifafræði,“ segir Unnsteinn Ingason
sem starfrækir Fornleifaskólann ásamt Baldri Daníels-
syni og Pétri Ingólfssyni. „Við höfum myndað tengsl
við bandaríska fræðimenn við New York-háskóla sem
vinna með börnunum á uppgreftrarsvæðum. Í gegnum
þá fá börnin t.d. innsýn inn í starf vísindamannsins og
nákvæmnina sem felst í vinnubrögðum hans.“
Fornleifaskóli barnanna hefur vaxið hratt frá því
hann byrjaði sem góð hugmynd en að sögn Unnsteins
er ætlunin að halda vel á spöðunum og leyfa honum að
eflast hægt og bítandi. Skólinn er starfræktur í sam-
starfi við fjölda aðila, m.a. Fornleifastofnun Íslands,
Hið þingeyska fornleifafélag og Þingeyjarsveit og nýt-
ur stuðnings Menningarráðs Eyþings og Barnamenn-
ingarsjóðs.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson
Fornleifaskóli „Þetta var mjög skemmtilegt og fróðlegt,“ segir Hermína
Fjóla sem var á meðal fimm barna og unglinga sem tóku þátt í verkefninu.
Perlan Á sjötta tug perla af þessari gerð hafa fundist
við rannsóknir á Íslandi. Þær voru blásnar úr gleri og
eru til í mörgum litum.
Fundu perlu frá víkingaöld
ÁFENGI getur framkallað ofnæmi
hjá konum. Hættan er mest ef for-
eldrar viðkomandi konu eru með
astma og ef hún drekkur meira en
sem samsvarar 14 glösum af létt-
víni á viku.
Danskir vísindamenn hafa kom-
ist skrefi nær því að skilja hvers
vegna sumar manneskjur þróa með
sér ofnæmi en aðrar ekki að því er
Berlingske tidende greindi nýlega
frá á heimasíðu sinni. Ný rannsókn
sem gerð var á 6.000 dönskum kon-
um á aldrinum 20 til 29 ára sýnir að
mikil áfengisneysla eykur hættuna
verulega.
Þær konur sem drekka meira en
sem samsvarar 14 léttvínsglösum á
viku eru sérstaklega í hættu. Borið
saman við konur sem drekka minna
en eitt vínglas á viku eru þær í 80
prósent meiri hættu á að þróa með
sér ofnæmi, sem ekki er tengt árs-
tíðum, s.s. rykofnæmi.
Erfðir hafa einnig afgerandi
áhrif. Séu foreldrar konunnar með
astma er ofnæmishættan meira en
tvöföld borið saman við aðrar kon-
ur. Horfurnar eru sýnu verstar ef
báðir foreldrarnir eru með astma
og konan drekkur meira en 14 létt-
vínsglös á viku. Hún er í sexfaldri
hættu með að fá ofnæmi borið sam-
an við kynsystur hennar sem á báða
foreldra hrausta og drekkur minna
en glas á viku.
Vísindamennirnir hafa þó ekki
fundið fylgni milli áfengis og of-
næmis sem tengt er árstíðum, s.s.
gras- og frjókornaofnæmis.
Vín vekur ofnæmi hjá
konum, ekki körlum
Reuters
Áfengi Ekki er gott fyrir konur að
drekka mikið af því.
Nú verður eitthvað undan aðláta,“ sagði Ólafur G.
Einarsson kl. 6.30 að morgni,
þegar hann fór í vöðlurnar í
Haukadalsá um daginn. Hann
keyrði síðan yfir mýrar og móa
án þess að skeyta um vegi eða
slóðir. Hjálmar orti:
Veiðimann ég mikinn þekki
er margan hefur sett í lax.
En troðnar slóðir ekur ekki
Ólafur að morgni dags.
„Vissulega veiddi hann lax á
þessum morgni,“ segir Hjálmar,
sem ekki var hættur að yrkja. Að
kvöldi veiðidagsins veiddi Einar
Gottskálksson þrjá á stuttum
tíma. Þótt aðrir reyndu ákaflega
gekk ekkert. Þess vegna
safnaðist hollið á bakkann og
horfði á Einar. Hjálmar orti:
Mennirnir reynslu og þekkingu þrá
svo þroskaleið eigi þeir greiða.
Hefurðu verið við Haukadalsá
og horft þar á Einar veiða?
Hreiðar Karlsson á Húsavík
heyrði vísuna og orti:
Oft reynist flókið að uppfylla þrána,
öruggar fáar leiðir (þekki).
Hefurðu tafið við Haukadalsána
horft á prestinn sem veiðir (ekki)?
Hjálmar svaraði Hreiðari:
Út af hógværð úr ég dreg
auði, magni, gróða,
en vestur í Dölum veiddi ég
væna laxa og góða.
Í Biblíu langömmu segir að
Jesús hafi gengið með sjónum og
séð Símon og Andrés leggja net
sín. Hann sagði við þá: „Fylgið
mér eptir, og mun ég gjöra yður
að mannaveiðurum.“ Ólafur
Stefánsson lagði út af því og orti
í léttum dúr:
Herrann mælti:„Hættið strax að
fiska,
hér eftir þið veiða skulið menn“
En Hjálmar gerir laxi löngum miska,
lærisveinar bregðast svona enn.
Hreiðar orti þegar:
Prestur lagast lítið enn,
lundarfarið tryggt er.
Veiðir fiska, veiðir menn,
veiðir það sem kvikt er.
VÍSNAHORNIÐ
Af veiði og
presti
pebl@mbl.is
ÞETTA kínverska par stillir hér sér upp úti á götu í einu af hutong-
hverfum Pekingborgar fyrir brúðarmyndatöku af óvenjulegra taginu.
Að sögn kínverskra ríkisfjölmiðla er því spáð að rúmlega 9.000 kínversk
pör muni ganga í það heilaga þann 8. ágúst nk. Talan átta er happatala að
mati Kínverja, en hljóðmyndun hennar er sú sama og hluti hugtaksins að
auðgast. Þar sem opnunarhátíð Ólympíuleikanna ber upp á þennan sama
dag þetta árið þykir hann öðlast enn sterkari merkingu.
Reuters
Í blíðu jafnt sem stríðu
Útsölustaðir eru í
verslunum Byko
og verslun Rangá.
3.-24. júlí í Kringlunni
Bandarískur hermaður hvílist upp
við skotbyrgi í Korengal-dalnum í
Afganistan, 16 september
Tim Hetherington, UK fyrir Vanity Fair