Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 25
Kyrrlífsmynd Gamall mjólkurbrúsi og bali sem not-
aður var áður fyrr til að brynna hestum.
bollanum seytlar vatnið aftur niður
í litlum fossi og myndar þannig ei-
lífa hringrás. Þegar hljótt er á
kvöldin og algjört logn má heyra
lækjarniðinn inn í húsið.
Fyrir nokkrum sumrum var
gerð tilraun til að setja fáeina gull-
fiska í tjörnina og lifðu þeir þar
góðu lífi. Þeir voru látnir vera í
tjörninni yfir veturinn, og viti
menn, um vorið lifðu þeir enn. Síð-
an týndu þeir tölunni og tilraunin
hefur ekki verið endurtekin. Ljóst
er að ef vel ætti að vera þyrfti að
taka fiskana úr tjörninni yfir vet-
urinn og setja þá í hana aftur að
vori, enda botnfrýs hún oft.
Njóta góðs
af nágrannatrjánum
Fyrir utan trén sem eru á lóðar-
helmingi þeirra Selmu og Eggerts
er aðeins eitt lerkitré, reynitré og
birkihrísla á lóðinni. Hins vegar
njóta garðeigendurnir blómstrandi
sírena, limgerðis og trjáa nágrann-
ans sem eru á lóðarmörkum svo
ekki þarf að gráta eigið trjáleysi.
Á víð og dreif í sprungum í klöpp-
unum hafa fjölærar jurtir skotið
rótum. Sumar voru settir þar nið-
ur, aðrar hafa komið og sest þarna
að af eigin rammleika. Töluvert
ber á marglitum valmúa, sem virð-
ist eiga auðvelt með að tylla sér
þarna niður. Guðbjörg segir að
erfiðara hafi verið að fá íslensku
fjóluna til að haga sér eins og hún
hafi helst viljað. Fjólan virðist
en þar fyrir utan má líta svo á að
jafnvel illgresið geti farið hér vel.
Þetta er náttúrugarður og illgresið
er vissulega hluti af náttúrunni og
ástæðulaust að leggja mikla vinnu
í að hreinsa það í burtu.
fridabjornsdottir@gmail.com
bara skjóta upp kollinum á ólíkleg-
ustu stöðum, óháð óskum mann-
fólksins.
Það kemur öllum saman um að
þetta sé þægilegur garður, sem
eiginlega þurfi ekkert um að
hugsa. Í honum er lítið af illgresi
Hvíld er góð Milli trjánna í öðrum enda garðsins er
hengirúm. Sindri Snær nýtur hvíldarinnar vel.
Risavalmúi Rauður liturinn fer vel
við umhverfið í grjótgarðinum.
Tjörnin og fossinn Fínlegur, fjölær gróður hefur fest rætur í sprungunum.Smáaðskilnaður Selma og Sindri öðrum megin veggjarins og Guðbjörg hinum megin.
Þegar rignir fyllist tjörnin
af vatni og sömuleiðis allir
bollar í steinhellunni í
kring, en í langvarandi
þurrkum minnkar vatnið
og þá þarf að bæta í hana
svolitlu vatni.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 25
Vestmannaeyingar minntust þess um helgina að
þann 3. júlí voru 35 ár frá því Heimaeyjargosið,
sem hófst þann 23. janúar 1973, var endanlega blás-
ið af. Brottfluttir flykktust til Eyja til að sýna sig
og sjá aðra og fylgjast með fjölbreyttri dagskrá
sem stóð frá fimmtudegi til sunnudags. Lætur
nærri að um 2.500 manns hafi komið til Eyja til að
gleðjast með Eyjaskeggjum á þessum tímamótum.
Og gleðin var ríkjandi því allt fór vel fram og veður
lék við Eyjarnar allan tímann þó minna hafi verið
um sólina en veðurstofur lofuðu.
Aldrei hafa eins margir Íslendingar verið í bráðri
hættu og þegar gos hófst á Heimaey veturinn 1973.
Þá bjuggu um 5.200 manns í Vestmannaeyjum og
sáu íbúarnir að mestu sjálfir um að koma sér í land
með eigin flota. Þegar þangað var komið stóðu Ís-
lendingar allt í einu uppi með á sjötta þúsund
flóttamenn sem var ansi stór hluti fámennrar þjóð-
ar. Enginn fórst og tókst að leysa með einhverjum
hætti mál flestra. Ennþá gaus þegar hreins-
unarstarf hófst og um áramót höfðu rúmlega 1.200
manns flutt til baka.
Þessa hafa Eyjamenn minnst árlega í byrjun júlí
frá árinu 1998, þegar 25 ár voru frá goslokum. Þá
var efnt til sýninga, lagið tekið og hápunkturinn var
þegar hist er í Skvísusundi þar sem tónlist hljómaði
úr hverri kró og fólk rifjaði upp gömul kynni og ný.
Þarna skapaðist hefð sem hefur haldist síðan
reyndar með meiri viðhöfn þegar afmæli stendur á
heilum eða hálfum tug eins og nú.
Ekki voru færri en fimm myndlistarsýningar í boði
og tónlistin var í hávegum höfð. Megas kom með
sína Senuþjófa þar sem mættu um 600 manns, 700
til 800 hlýddu á Eyjalög en þessir tónleikar fóru
hvorir tveggja fram í Höllinni. Um 100 hlýddu á
sögur úr gosinu í Vélasalnum sem að sumra mati
voru einn hápunktur hátíðarinnar, 1.500 til 2.000
tóku þátt í skrúðgöngu út á Skans og sjaldan eða
aldrei hafa fleiri sést á Stakkagerðistúni þar sem
fjölskyldan öll gat fundið eitthvað við sitt hæfi í
boði bæjarins og Sparisjóðsins. Í Skvísusundi var
stærsta ættarmót landsins þar sem mættu um 5.000
manns föstudags- og laugardagskvöld.
Á sunnudeginum mættu um 200 manns til að
verða vitni að því þegar Eyjapistlar Arnþórs og
Gísla Helgasona frá því í gosinu voru settir inn á
heimaslod.is sem er alfræðiorðabók um Vest-
mannaeyjar á Netinu. Botninn í þetta allt slógu
þeir Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson
með tónleikunum í Höllinni á sunnudagskvöldið og
þar voru um 400 manns.
Í sögulegu tilliti var þetta líka merkishelgi fyrir
Eyjamenn sem fengu nýja vatnsleiðslu frá landi.
Vígð var vatnsátöppunarverksmiðja, skrifað undir
samning við ríkið um Þekkingarsetur Vest-
mannaeyja og Nýsköpunarmiðstöð Íslands og fyrsti
áfangi Eldheima sem verða hluti af gosminjasafni
þar sem verið er að grafa upp hús sem fóru undir
vikur í gosinu voru kynntir. Þar fór tískusýning sjö
hönnuða sem allir tengdust Vestmannaeyjum.
VESTMANNAEYJAR
Eftir Ómar Garðarsson
úr bæjarlífinu
um og tannískum ávexti og ættu því
að falla í kramið hjá Íslendingum.
Soligamar Tempranillo Gar-
nacha 2006 er ágengt en einfalt í
uppbyggingu með ungum, svörtum
ávexti, sólberjum og kirsuberjum.
Vel uppbyggt með stömum tann-
ínum en engri finnanlegri eik. 1.590
krónur. 87/100
Soligamar Crianza 2003 er vín
nokkrum stærðum fyrir ofan hefð-
bundin Crianza-vín, þroskaður
berjaávöxtur í nefi, vanilla, jörð og
kaffi. Langt og nokkuð tannískt,
myndi mæla með umhellingu áður en
vínið er borið fram með nautakjöti.
1.690 krónur. 89/100
Soligamar Reserva 2001 er kraft-
mikill en að sama skapi fínlegur og
elegant Rioja. Krydduð angan með
kanil og túrmerik í bland við dökkan
ávöxt, plómur og sólber, þykkt í
munni með nokkuð mildum tann-
ínum. Karaktermikið vín. 1.990 krón-
ur. 91/100
Þriðja vínhúsið er loks Vina Sal-
ceda sem er staðsett á mörkum und-
irsvæðinu Alavesa og Alta – Rioja
Altavesa-megin. Salceda var stofnað
árið 1974 af nokkrum framleiðendum
á svæðinu en er nú í eigu vínhússins
Chivite í Navarra.
Vina Salceda Crianza 2004, þykk
eikuð angan með kókos og dökkum
berjum, Töluvert kryddað. Allstórt í
munni, mun meira vín en Crianza-
skilgreiningin gefur til kynna. Þetta
vín er betra en margar Reservur.
1.550 krónur. 89/100Reuters