Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 40
Það er eitthvað
óvenjutöff við Jean-
Paul þetta árið, þó reyndar
megi efast um röndótta strá-
hatta… 47
»
reykjavíkreykjavík
HLJÓMSVEITIN Hjálmar frá
Keflavík er mörgum að góðu kunn
og margir urðu til að trega það þeg-
ar sveitin hætti á sínum tíma. Þeir
tóku þó gleði sína er hún sneri aftur
og urðu svo enn harmi slegnir þegar
Hjálmar hættu aftur. Það er þó svo
að fátt eiga Hjálmar eins erfitt með
og að hætta, því þeir eru enn aft-
urgengnir eins og gefst kostur á að
heyra í kvöld (og nótt) í Nasa.
Hjálmar eru semsé komnir saman
aftur og leika á tónleikum í Nasa í
völd, sumartónleikum í anda við
sumarsmellinn „Þá mun vorið vaxa“
sem hljómað hefur í útvarpi und-
anfarið.
Guðmundur Kristinn Jónsson
segir að þeir Hjálmar séu aðallega
komnir saman aftur til að vinna með
sænska rapparanum og reggílista-
manninum Timbuktu (Jason Mich-
ael Robinson Diakité) sem leitaði til
sveitarinnar um að gera með sér
nokkur lög og hugsanlega plötu.
Plata í aðsigi
„Hann heyrði í okkur í þætti í
sænska sjónvarpinu og fann sér svo
eitthvað til að hlusta á á Netinu.
Hann er svo staddur hérna núna og
fyrst við vorum komnir saman aftur
fannst okkur upplagt að spila á
nokkrum tónleikum, meðal annars
til að leyfa honum að heyra í okkur,“
segir Kristinn. „Ætli okkur takist
ekki að drösla honum á sviðið með
okkur í kvöld.“
Ekki eru þó bara tónleikar og
sænskt hipphopprapp heldur eru
þeir félagar líka að taka upp lög fyrir
sjálfa sig, Hjálmalög, en hann gefur
lítið út á það hvort plata sé í burð-
arliðnum. „Við ætlum bara að vinna
við þetta og sjá hvað gerist,“ segir
hann. „Hvenær þetta endar veit
enginn og alls ekki við sjálfir,“ segir
hann en bætir svo að þetta sé heldur
frísklegri tónlist en á síðustu
Hjálmaskífu (Ferðasóti), enda séu
þeir eiginlega helst að skemmta sér.
Nasa verður opnað á miðnætti en
næst gefst svo færi á að sjá Hjálma á
innipúkanum um verslunarmanna-
helgina, en þá helgi leika þeir félag-
ar líka á Græna hattinum.
arnim@mbl.is
Sumartónleikar Hjálma
Hjálmar Geta ekki hætt ... ekki frekar en Barbra Streisand.
Hjálmar vinna að sænskri reggírappskífu og eigin lögum
Í heimi kvik-
myndanna getur
álit kvikmynda-
gagnrýnanda
skipt miklu um
aðsókn, ekki síst
vegna þess að
gagnrýnendur fá alla jafna að sjá
myndirnar á undan venjulegum
bíógestum sem reiða sig á faglegt
álit gagnrýnandans þegar það kem-
ur að því að velja bíómynd. En
gagnrýnendur geta verið skrítnar
skepnur og þá er mikilvægt að
meta dómana út frá trausti og
áreiðanleika miðilsins sem dóm-
urinn birtist í. Og hvað skyldu hinir
áreiðanlegu miðlar segja um Jour-
ney to the Center of the Earth?
Látum okkur sjá: Washington
Post gefur myndinni 80/100 og seg-
ir hana frábæra fjölskylduskemmt-
un. Wall Street Journal gefur
myndinni 60/100 og segir þrívídd-
artæknina heillandi. Los Angeles
Times segir myndina henta þeim
sem ólust upp við Jurassic Park og
Harry Potter en gefur henni bara
50/100 í einkunn. New York Times
veitir henni sömu einkunn og segir
myndina meira í ætt við rússíban-
aferð en kvikmynd. Chicago Trib-
une segir svo myndina vera vel
leikna og gefur henni 75/100.
Hverjum á maður svo að treysta?
Traustir miðlar –
traustir gagnrýnendur
Take me sexy boy
Don’t go, need you now
So tough, makes me blush
– Get it on, get it on
We’re gona (sic) get hot tonight
No fear, don’t protest
Scream out, let it go
Fill me up, make me come
– Get it on, get it on
(Desire með Merzedes Club)
Ekki mótmæla
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
AÐ KVÖLDI 29. maí fögnuðu þrír ungir menn
því að hafa hlotið fyrstu verðlaun á Stutt-
myndadögum. Þeir hafa örugglega allir ímynd-
að sér stórar fyrirsagnir í öllum helstu blöðum
landsins og greinargott viðtal um stuttmyndina;
framtíðardrauma þeirra og mögulega sigra á
kvikmyndavellinum. En náttúruöflin gerðu út
um þær vonir þrímenninganna. Sama dag skalf
Suðurlandsundirlendið og einhvern veginn urðu
úrslit stuttmyndahátíðar í Reykjavík að lítilli,
myndalausri frétt á öftustu síðum blaðanna.
„So it goes“ hefði Vonnegut sagt.
Á Cannes að ári
Kvikmyndagerðarmennirnir heita Arnar Már
Brynjarsson, Gunnar Anton Guðmundsson og
Hjörtur A. Guðmundsson. Stuttmyndin heitir
Hux, er 21 mínúta að lengd og fjallar um fáfróð-
an og lífsleiðan einstakling sem sér fram á að
missa móður sína úr lungnakrabba. Í myndinni
gera hann hvað hann getur til að aftra þeim ör-
lögum móður sinnar, „á kaldhæðinn og skemmti-
legan máta,“ að sögn Arnars Más, leikstjóra og
aðalleikara myndarinnar. Verðlaunin fyrir
fyrsta sætið voru ferð til Cannes á næsta ári þar
sem myndin verður sýnd á stuttmyndahátíðinni
Short Film Corner sem haldin er í tengslum við
stóru kvikmyndahátíðina í Cannes. Ef til vill
komast þeir Arnar, Gunnar og Hjörtur á for-
síður blaðanna að ári, takist þeim að sigra á
frönsku rivíerunni. Við sjáum til með það.
Royal & Zlátur
Í millitíðinni hefur Arnar Már ásamt nokkrum
félögum standsett tækjaleigu í Reykjavík. Royal
& Zlátur kallast hún og leigir út tæki og tól til
kvikmyndagerðar. Þar fæst til dæmis góð kvik-
myndatökuvél í sólarhringsleigu á 10 þúsund
krónur. En hvernig kom þetta til?
„Upphaflega vildum við bara koma okkur upp
nægum tækjum en síðar fórum við að leigja þessi
tæki út svo að úr varð tækjaleigan Royal & Zlát-
ur. Áhugamannaleikhúsin eru okkar stærstu við-
skiptavinir en svo er alls konar fólk að banka
uppá,“ segir Arnar Már og bætir við að sjálfir
séu þeir fáanlegir í vinnu með tækjunum.
„Þetta fyrirtæki er til dæmis mjög sniðugt fyr-
ir unga tónlistarmenn sem vilja gera myndband
en hafa kannski ekki kunnáttu né mikla fjármuni
á reiðum höndum. Við getum aðstoðað þessar
hljómsveitir fyrir minni pening en gengur og
gerist og lokaútkoman verður ekki síðri hvað út-
lit varðar.“
Réttu samböndin mikilvæg
Hvað þeirra eigin framtíðardrauma varðar er
stefnan að sjálfsögðu sett á toppinn. Hug-
myndum að handritum er varpað á milli og nú
þegar er eitt handrit komið langt á veg. „Það er
svakalega epískt og bitastætt en vandamálið er
að maður er heldur latur við að skrifa. Sagan er
kannski tilbúin en samtölin eiga það svo til að
sitja á hakanum. En það er að sjálfsögðu draum-
urinn að geta lifað á þessu en það er erfitt þegar
maður er algerlega ómenntaður.“
Royal & Slátur með z-u
Suðurlandsskjálftinn setti strik í reikning ungra kvikmyndagerðarmanna
Morgunblaðið/G.Rúnar
Royal & Zlátur Þeir Arnar Már Brynjarsson og Gunnar Anton Guðmundsson bjóða, meðal annars,
ungum tónlistarmönnum upp á ódýra leið til að gera tónlistarmyndbönd.
Tvær HD kvikmyndatökuvélar
Jafnvægis-tökuvél (e. steady-cam)
Stýri
Fjórar rafhlöður
Bóma og stöng
Reyk- og þokuvél
Mónitor – skjár
Þrífótur
Ýmis ljósa- og hljóðbúnaður
Áhugasamir leigutakar sendi póst á net-
fangið arnar43@hotmail.com
Græjur til leigu