Morgunblaðið - 12.07.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 41
www.listvinafelag.is
Alþjóðlegt orgelsumar
í Hallgrímskirkju
laugardaginn 12. júlí kl. 12
Einar Jóhannesson klarínett
og Douglas A. Brotchie orgel
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJU, 26. STARFSÁR
ALÞJÓÐLEGT ORGELSUMAR, 16. STARFSÁR
KLAISORGELIÐ 15 ÁRA
Alþjóðlegt orgelsumar
í Hallgrímskirkju
MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU S. 510 1000
Norræn orgelhátíð
HINN HEIMSÞEKKTI
BÁSÚNULEIKARI Christian Lindberg
OG Gunnar Idenstam ORGELLEIKARI
Í HALLGRÍMSKIRK JU
SUNNUDAGINN
13. JÚLÍ KL. 20.
Á efnisskránni eru
þeirra eigin verk og
umritanir á þekktum
tónverkum m.a.
BOLERO eftir Ravel.
l ist vinafelag. is
Dægurlagið „She,“ sem ElvisCostello gerði svo frægtum árið, hljómar skelfilega
í meðförum Garðars og í því end-
urspeglast allir þeir vankantar sem
víða heyrast á plötunni. Allt frá
fyrstu nótu er ákefðin í söngnum of
mikil og Garðari virðist efst í huga
að ljúka laginu sem allra fyrst.“
Þessi texti er fenginn úr gagn-
rýni Orra Harðarsonar á nýjustu
plötu tenórsins Garðars Thórs
Cortes, When You Say You Love
Me. Orri er öllu jákvæðari þegar
kemur að óperuaríum á diskinum:
„Honum tekst oftast nær prýðilega
upp í óperuaríunum og er söngur
hans í „Che Gelida Manina,“ úr La
Bohéme, framúrskarandi góður.“
Platan hlaut tvær stjörnur af fimm,
sem er nú enginn dauðadómur.
„She“ er rómantískur poppslagari
sem á ekki að keyra af fullum
krafti. Garðar er klassískt mennt-
aður óperusöngvari og það fer
ekki framhjá neinum þegar hann
tekur lagið, slíkur er krafturinn og
raddbeitingin. Af hverju er hann
að syngja lög eins og „She“, lag
sem hentar alls ekki klassískt
menntuðum tenórsöngvurum? Af
hverju eru slíkir söngvarar að
syngja popp í bland við aríur inn á
hljómplötur? Sjálfsagt af því þeim
þykja popplögin líka falleg og vilja
koma því á framfæri við hlust-
endur.
Gallinn er bara sá að þetta hent-
ar ekki þessum söngvurum, hvort
sem þeir heita Garðar Thór eða
Josh Groban. Frank Sinatra var
með fallega en veika rödd. Sem
betur fór tók hann ekki upp á því
að syngja aríur, hann þekkti sín
mörk.
Mega tenórar ekki syngjapoppslagara?“ kann ein-hver að spyrja. Ég spyr á
móti: Ætti Bono að syngja „Nessun
dorma“ og „Vesti la Giubba“? Eða
kannski Bruce Springsteen,
George Michael eða Michael Jack-
son? Nei, það væri skelfilegt. Af
hverju? Af því þeir kunna það ein-
faldlega ekki og geta það ekki.
Þeir eru ekki óperusöngvarar og
óperusöngvarar eru ekki popp-
söngvarar. Þetta er einhver tíska á
seinustu árum sem ég veit ekki
hver átti upptökin að, að hræra
saman óperuaríum og popplögum
og skella á hljómplötur. Oftar en
ekki eru þessir klassísku söngv-
arar huggulegir og sjálfsagt er það
stór hluti ástæðunnar fyrir því að
fjöldi manns kaupir plöturnar,
myndirnar af söngvurunum selja.
Sjálfsagt er ein ástæða þessapopp-aríubræðings hrein og
klár gróðahyggja, gert til að
stækka hlustendahópinn, selja
fleiri plötur, ná til fólksins sem
hlustar aldrei á klassík. Fólksins
sem á tvo eða þrjá klassíska diska í
hillu við hlið Best of Pavarotti.
Popp-aríudiskar eru geysivinsælir
en ég þekki ekki nokkurn mann
sem kaupir slíka diska. Skyldi
þetta vera fólkið sem fóðrar kló-
settseturnar sínar með rýjaáklæði?
Á púðluhunda í úlpum? Kaupir
spreylistaverk af plánetum af götu-
listamönnum á sólarströndum? Ég
viðurkenni fúslega að þetta eru
fordómafullar vangaveltur, tek
það á mig. Eða erum við sem hlust-
um ekki á þessar plötur kannski í
minnihluta, öðruvísi en hinir? Er-
um við plebbarnir?
Eru svona hljómplötur, popp ogklassík í bland, rétta leiðin til
að kynna fólk fyrir klassískri tón-
list? Nú er ég ekki að níða skóinn
af Garðari sérstaklega heldur
kviknuðu þessar vangaveltur í kjöl-
far fyrrnefndrar plötugagnrýni.
Garðar er stórgóður og efnilegur
klassískur söngvari og það heyrist
greinilega í aríum á nýja disknum,
m.a. „M’appari tutt’amor“ og
„Mattinata“. Ætlar Garðar í alvöru
að fara þessa leið, verða einn af
þessum popparíugæjum? Ég vona
hans vegna að metnaðurinn liggi
annars staðar, að Garðar einbeiti
sér að því sem hann gerir best. Er
þetta kannski tákn nýrra tíma? Er
þetta hin nýja gerð klassískt
menntaðs söngvara sem sækist eft-
ir frægð og frama eftir popp-
stjörnuleiðum? Er sígilda tónlistin
ekki nóg lengur? Eru þetta klass-
ísku söngvararnir sem ólust upp
við popp, sneru sér síðar að klassík
en ákváðu að loknu námi að miðla
hvoru tveggja? Kannski þarf að
finna hentugt heiti á þetta fyr-
irbæri. Fóðraðar klósettsetur
kannski? helgisnaer@mbl.is
Fóðraðar klósettsetur
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
»Ætti Bono að syngja„Nessun dorma“ eða
„Vesti la Giubba“? Eða
kannski Bruce Springs-
teen, George Michael
eða Michael Jackson?
Söngvarar þrír Bono tók lagið með Pavarotti hér um árið og afraksturinn var ágætur, popp mætti klassík. Guði sé
lof að Pavarotti heitinn tók ekki upp á því að syngja „One“ eftir U2. Hvert stefnir Garðar? Á fleiri popp-aríu-diska?
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
JOSE Canseco, fyrrverandi atvinnumaður í hafnabolta í
Bandaríkjunum, heldur því fram í viðtali í tímaritinu Us
Weekly að poppdrottningin Madonna hafi viljað giftast hon-
um og ala honum barn. Hann hafi hitt hana árið 1991 og þá
verið kvæntur maður.
„Ég er frá Kúbu og hún vildi eiga barn með Kúbverja.
Hún vildi giftast mér og eiga barn með mér,“ segir Canseco
sem eitt sinn lék hafnabolta með liðunum Oakland A og
Yankees. Madonna hafi eitt sinn nálgast hann og spurt hann
að því hvað hann myndi gera ef hún kyssti hann. Hún hafi
því næst sest í kjöltu hans og kysst hann.
Canseco segist hafa skýrt Madonnu frá því að hann væri
að reyna að bjarga hjónabandi sínu. Ef eiginkona hans
skildi við hann myndi hann tapa miklum peningum. Ma-
donna hafi þá sagt honum að hafa ekki áhyggjur, hún ætti
næga peninga.
Ekkert varð af sambandi Madonnu og Conseco.
Segir Madonnu hafa
viljað ala sér barn
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 23/8 kl. 15:00
Lau 23/8 kl. 20:00
Sun 24/8 kl. 16:00
Fös 29/8 kl. 20:00
Lau 30/8 kl. 15:00
Lau 30/8 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 15:00
Lau 6/9 kl. 20:00
Sun 7/9 kl. 16:00
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið)
Lau 12/7 kl. 20:00 Ö
Sun 13/7 kl. 16:00 U
Fim 17/7 kl. 20:00
Fös 18/7 kl. 20:00
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Soffía mús á tímaflakki (Farandleiksýning)
Lau 12/7 kl. 17:30 F Sun 13/7 kl. 16:00 F
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Gísli Súrsson (Haukadalur Dýrafirði/ferðasýning)
Fös 25/7 kl. 14:00 Lau 26/7 kl. 20:00 U
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 17/7 kl. 20:00 Fim 24/7 kl. 20:00 Fim 31/7 kl. 20:00