Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 47

Morgunblaðið - 12.07.2008, Side 47
Geimvera? Sitt sýnist hverjum um ágæti Dior-tískuhússins sem vill hafa metal-glans á sem flestu. Eru skærblá jakkaföt málið næsta sumar? Svalur Gaultier gerði góða hluti í París. Það getur ekki hver sem er látið örstutta sundskýlu og stráhatt vinna svo flott saman. Bresk klassík Paul Smith kann að vinna vel með klassískan stíl. Meira blátt Skærblá jakkaföt sáust víða á tískuvikunni í París. Þessi eru úr smiðju Lanvin. Agalegt Ömmulegir sólhattar með blómum voru áberandi hjá Lanvin. Hattarnir eru auðvitað skelfilegir, en það mætti brúka þessi jakkaföt. Á stjórnarfundinn Er ekki um að gera að hlýða kalli Pauls Smith og hneppa skyrturnar svolítið lágt á sumrin, láta skína á bringuna? Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is PAUL Smith sýndi góða takta í herratískunni vor/ sumar 2009 sem sýnd var í París á dög- unum. Bretinn smekklegi reiddi fram skemmtilega hversdags-sparilega blöndu. Einkum huggulega sniðin jakkaföt sem brotin voru upp með smekklegum hönnunartilþrifum og samsetningum. Paul Smith veit sem er að maður þarf ekki að vera bjúrókratalegur þó maður klæðist fallegum teinóttum jakkafötum. Töff Gaultier Kúrekaþema var yfir sýn- ingunni hjá Jean-Paul Gaul- tier, jafnvel spaghettí-vestra yfirbragð á sumum fatnaðinum. Dökkir frumlitir á sumum fyr- irsætunum en á öðrum var eit- urfínt svart og/eða hvítt ráðandi. Það er eitthvað óvenjutöff við Jean-Paul þetta árið, þó reyndar megi efast um röndótta stráhatta. Franck Boclet á heiðurinn að línu Emmanuel Ungaro í ár. Neonlitir eru áberandi í línunni þetta skiptið, skærbláir og skærbleikir jakkar. Einnig var eitthvað um hálsklúta. Fyrirmælin frá Ungaro næsta sumar eru sumsé að karlar sem fylgjast með tískunni sjáist langar leiðir. Ræfilslegar línur Dior Svo var það Dior, sem Belginn Kris Van Assche hannar herralínuna fyrir. Eins og síðustu ár hittir Dior ekki í mark hjá undirrituðum. Þó finna megi stöku smekklegan aukahlut í vöruúrvali Dior er herrafatnaðurinn agalega ræfilslegur. Þá er kvennatískan sem hinn smái en knái John Galliano á heiðurinn að tölu- vert klæðilegri. Metalglans á peysum og buxum og skærbleikir eða skærbláir jakkar í bland við níðþröngar svartar buxur er það sem Dior ætlast til að tískuþenkjandi borgi fúlgur fjár fyrir næsta sumar. Kirsuberið á ísnum á síðan að vera stórundarleg kloss- uð sólglerugu sem fáanleg verða í svörtu, bláu og rauðu. Það held ég að hún amma myndi gera mig arflausan ef hún sæi mig í þessu! Talandi um ömmur: Ömmulegir stráhattar voru gegnumgangandi í sýningu Lanvin sem Alber Elbaz á heiðurinn að. Léttkrumpað silki og nokkuð pokaleg snið og blágrár tónn ráðandi með stöku skærlitri flík, eins og í bláu jakkafötunum sem fylgja þessari grein. Forsjónin forði okkur frá því að ömmuhattarnir festist í tísku. Herratískan í París vor/ sumar 2009, seinni hluti Litagleði Það gerist varla litríkara en á skærlitri sýning- unni hjá Ungaro. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 47 - kemur þér við Paul Ramses gæti kært íslenska ríkið Stúdentar í vanda vegna fría á leik- skólum 700 milljónir farið í þjóðlendumál Iðnaðarráðherra gagn- rýnir Landsvirkjun Miðborgarþjónn hjálpar fólki heim eftir skemmtun Loftárás gerð á brúði og gesti Hvað ætlar þú að lesa í dag?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.