Morgunblaðið - 26.08.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.08.2008, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ er eins og Mbl. geti alls ekki flutt aðr- ar erlendar fréttir en Reuters og það virtist vera sem engin rann- sóknarblaðamennska yfir erlendar fréttir sé til staðar hjá blaðinu, því það hefur ekkert verið fjallað um hvað Rússar eða aðrir hafa að segja um stríðið í Suður-Ossetíu. Fyrrverandi forseti Georgíu Eduard Shevardnadze sagði að núverandi forseti, Mikhail Saakashvili, hefði gert stór mistök með því að byrja þetta stríð er hann tók upp á því að ráðast inn í S- Ossetíu. Æi, mátti ég ekki segja frá því hverjir byrjuðu stríðið? En kannski má ekki nefna fólkið í S- Ossetíu sem sjálfstæðissinna því að í blöðum hér er það ævinlega nefnt „uppreisnarsinnar“ og „aðskiln- aðarsinnar“, kannski vegna þess að menn vilja alls ekki að S-Ossetía fái sjálfstæði frá Georgíu? En fólkið í S-Ossetíu hefur bundið vonir við það í mörg ár. Ofan á allt virðist sem fjölmiðlar séu á móti því að Rússar hafi farið þarna inn til að koma sínu fólki til hjálpar í S- Ossetíu. Nei, Rússar í Mbl. eru sagðir vera „grimmur björn „hjá Kristjáni Jónssyni eða í grein hans „Soltinn og grimmur björn úr híð- inu“ þar sem Kristján spyr: „Hvers vegna er Rússum svo mjög í mun að knésetja Gerorgíu?“ (Mbl. 11. ágúst 08). En hann spyr ekki hvers vegna Georgíu sé svo mjög í mun að knésetja S-Ossetíu? Nú, 90% íbúa í S-Ossetíu eru taldir vera Rússar eða með rússneskt vegabréf og ekkert rangt við það að Rússar fari þarna inn til berjast gegn innrásarliðinu Georgíumönn- um. Fyrrverandi forseti Rússlands Mikhel Gorbachev sagði að Rússar hefðu ekki getað annað en svarað þessari árás Georgíumanna gegn þeirra fólki í S-Ossetíu. Gorbachev spurði einnig á CNN, af hverju eru fjölmiðlar að reyna segja að Rússar hafi byrjað þetta stríð? Saakashvili, forseti Georgíu, reyndi ekkert að ræða við fólkið áður en hann hóf stríðið en hann hefur haft það sem markmið að reyna ná völdum yfir S- Ossetíu og Abkasíu og þannig átti að ryðja burtu sjálfákvörðunarrétt- inum. Og síðan átti greinilega að koma þeim inn í Evrópusambandið og NATO gegn vilja S-Ossetíu og Abkasíu. Það kom mér á óvart að sjá fréttaflutninginn í Mbl. og þær myndir hjá fleiri fréttamiðlum sem sögðu að þessar myndir voru teknar í Gori, en síðan kemur í ljós að þetta eru allt saman ósannindi og þessar myndir voru alls ekki teknar í Gori, heldur voru þær teknar í Tskhinvali í S-Ossetíu af Aleksandr Zhukov sem tók þær og sýndi fram á það. Það er ljóst að Rússar fóru ekki inn í Gori, og segjast reyndar ekki hafa verið í átökum fyrir utan árás- arsvæðið. Eins og öllum er kunnugt þá byrjaði þetta stríð við upphaf Ól- ympíuleikanna, það er svo spurning af hverju þeir völdu þennan dag, en georgíska pressan var ekkert að til- kynna af hverju þeir byrjuðu þetta stríð, ekki frekar en að reyna að svara því af hverju bandarískir svertingjar í hermannabúningum og Úkraínumenn finnast slasaðir og dauðir í S-Ossetíu. Bandaríkjamenn og Úkraínumenn höfðu gefið það út á sínum tíma að þeir hefðu hvergi komið nálægt þessu stríði en greini- legt er á öllu að samsæriskenn- ingasinnar hafa eitthvað til síns máls. Nú, innan við 24 klukkustund- um frá byrjun stríðsins, voru yfir 1.500 manns drepin, en á meðan voru rússneskir leiðtogar að óska eftir svari frá alþjóða samfélaginu, en þeim var hafnað og einnig af fjöl- miðlum. Rússneski herinn setti Georgíumönnum úrslitakosti og síð- an undirbjó hann sig til að fara inn í S-Ossetíu. En án samstarfsvilja Georgíumanna var farið inn í S- Ossetíu. Nú, þegar Rússar minntust hinna látnu með því að flagga í hálfa stöng tóku Georgíumenn upp á því að stilla sér upp með sinn georgíska fána rétt eins og fáninn væri mót- mælaspjald til að mótmæla Rússum. En stjórnvöld og stofnanir í Banda- ríkjunum voru heldur ekkert að minnast þeirra látnu, hvað þá að flagga í hálfa stöng. Og þegar svo 12 ára stúlka frá S-Ossetíu reyndi að segja sannleikann um hverjir bæru ábyrgðina á þessu stríði og þakka Rússum fyrir að koma þeim til hjálp- ar voru fréttastjórnendur í því að stöðva fréttina á FOX News, þar sem stjórnendur vildu frekar reyna að styðja áróður Bush-stjórnarinnar og hefja nýtt kaldastríð. Ef til vil er það stefna Mbl. að taka ævinlega undir allan áróður Bandaríkja- manna án þess að spyrja og jafnvel ganga svo langt í því sambandi að rakka Rússa og aðra niður í skítinn? Er áróðurs- eða kaldastríðið byrjað í Mbl.? Þorsteinn Scheving Thorsteinsson er ósáttur við erlendar fréttir Mbl. »Nú, 90% íbúa í S- Ossetíu eru taldir vera Rússar eða með rússneskt vegabréf og ekkert rangt við það að Rússar fari þarna inn til berjast gegn innrásarlið- inu Georgíumönnum. Þorsteinn Scheving Thorsteinsson Höfundur er formaður samstarfs- nefndar trúfélaga fyrir heimsfriði. ÁRSFUNDUR Vestnorræna ráðsins er haldinn í Grund- arfirði þessa dagana. Jafnframt er haldinn þemadagur um sam- eiginlega sögu og menningu Vestur– Norðurlandanna í Sögusetrinu. Vest- norræna ráðið á ræt- ur sínar að rekja til ársins 1985. Þjóðþing Íslands, Færeyja og Grænlands skipa 6 þingmenn hvert í ráðið. Vestur-Norðurlönd byggja samstarf sitt á sameig- inlegum sögulegum og menning- arlegum grunni sem mótaður er af náttúrulegu umhverfi eyþjóð- anna við Norður-Atlantshaf en löndin eiga það sameiginlegt að vera fámenn, harð- og strjálbýl, erfið yfirferðar og umlukin víð- feðmu hafsvæði. Meðal markmiða Vestnorræna ráðsins er að standa vörð um og rækta menn- ingu landana og efla samráð rík- is- og landstjórna þjóðanna í sameiginlegum hagsmunamálum sem snerta m.a. samgöngur, um- hverfismál og auðlindanýtingu á landi og í sjó. Stefna Vestnor- ræna ráðsins kemur fram í álykt- unum aðalfunda ráðsins sem haldnir eru árlega. Ályktanir ráðsins eru síðan lagðar fyrir þjóðþing landanna og afgreiddar sem þingsályktanir. Viðburðaríkt ár Frá því á aðalfundi Vestnor- ræna ráðsins í Grænlandi sl. ár hefur margt verið í gangi á vett- vangi ráðsins. Ber þar hæst eft- irfylgni við ályktun ráðsins um aukið samstarf þjóða við Norður- Atlantshaf á sviði öryggis- og björgunarmála á Norðurlanda- ráðsþinginu í Ósló sl. haust á grundvelli samstarfssamnings Vestnorræna ráðsins og Norður- landsráðs frá árinu 2006. Var það ekki síst fyrir að þakka Íslands- deild Norðurlandaráðs með for- manninn Árna Pál Árnason í broddi fylkingar. Í kjölfarið var málið tekið á dagskrá á forsæt- isnefndarfundi Norðurlandaráðs í Reykjavík í desember sl. og tekið inn í skýrslugerð um samfélags- legt öryggi sem verður tekið til afgreiðslu á Norðurlandaráðs- þingið í Helsinki nk. október. Þemaráðstefna Vest- norræna ráðsins sem haldin var í Þórshöfn í Færeyjum í júní sl. var einnig helguð ör- yggis- og björg- unarmálum. Í tengslum við ráð- stefnuna var haldin sameiginleg land- og sjóbjörgunaræfing Landsbjargar og björgunarsveita Fær- eyja auk Landhelg- isgæslu Íslands og danska sjóhersins með þátttöku ráðstefnugesta. Er það í fyrsta sinn sem slík sameiginleg æfing fer fram og við hæfi að nota tækifærið og þakka öllum þeim sem lögðu lóð sitt á vogarskál- arnar við að gera æfinguna að veruleika. Ályktun um aukið sam- starf landanna um sameiginlegar rannsóknir á fiskistofnum hlaut einnig jákvæðar undirtektir eins og sér stað í auknum samskiptum sjávarútvegsráðherra landanna. Menningar- og félagsmál mikilvæg Auk áherslu á sameiginleg hagsmunamál leggur Vestnor- ræna ráðið ríka áherslu á sam- starf á sviði menningar og félags- mála enda víða svigrúm til að gera betur á þeim vettvangi. Á síðasta ársfundi samþykkti ráðið ályktun þar sem mennta- málaráðuneyti landanna eru hvött til að undirbúa og gefa út skyldunámsefni fyrir nemendur á unglingastigi um kjör og hlut- skipti kvenna og stöðu kynjanna á norðurslóðum. Það er von okk- ar í Vestnorræna ráðinu að frum- kvæðið verði gert að veruleika enda mikilvægt að hafa áhrif á viðhorf framtíðarkynslóða í gegn- um menntakerfið í viðleitninni til að stuðla að aukinni virðingu fyr- ir mannréttindum og mannhelgi kvenna og stemma þar með stigu við kvennakúgun, vændi og man- sali. Alþjóðlegt samstarf Vestnorræna ráðinu hefur í ár tekist að koma á formlegu sam- starfi við Evrópuþingið. Fyrsta skrefið var stigið í apríl þegar Vestnorræna ráðið átti sinn fyrsta fund með sendinefnd Evr- ópuþingsins sem framvegis mun hafa formleg samskipti við ráðið á sinni könnu. Í því felst að ráðið mun geta komið áherslum sínum milliliðalaust á framfæri við Evr- ópuþingið. Því er að lokum við að bæta að undanfarið starfsár hef ég sem formaður Vestnorræna ráðsins sótt fundi þingmannaráð- stefnu um norðurskautsmál þar sem ég hef kynnt áherslur ráðs- ins á sviði öryggis- og björg- unarmála auk þess að ræða fé- lagsleg vandamál frumbyggja og hvernig styrkja megi samfélög frumbyggja á norðurslóðum. Samþætting Vestur- Norðurlanda Árið 2006 undirrituðu Íslend- ingar og Færeyingar víðtækasta fríverslunarsamning sem löndin eiga aðild að en samningurinn tekur til gagnkvæmra réttinda á sviði vöru- og þjónustuviðskipta, fjármagnsflæðis og vinnuafls. Grænlendingar hafa fylgst með af því hvernig samningurinn er framkvæmdur. Ráðið hefur lagt á það áherslu að Grænland verði aðili að samningnum þegar fram líða stundir. Aukin samskipti ut- anríkisráðherra Íslands og Græn- lands eru góð vísbending í þá veru. Mikilvægt samstarf Vestnorræna ráðið hefur sýnt í verki hversu mikilvægt starf þess er fyrir Vestur-Norðurlöndin og nágranna þeirra við Norður- Atlantshaf. Margs konar jákvæð þróun, sem hefur átt sér stað í aðildarlöndunum þremur og sam- skiptum milli þeirra og annarra landa, á rætur að rekja til Vest- norræna ráðsins. Á aðalfundi Vestnorræna ráðsins, sem nú stendur yfir í Grundarfirði, held- ur hið góða starf Vestnorræna ráðsins áfram enda eigum við margt sameiginlegt í vörn og sókn og saman er afl okkar meira, þjóðum okkar til heilla. Mikilvægur hlekkur í sam- skiptum Vestur-Norðurlanda Karl V. Matthíasson skrifar um Vestnor- ræna ráðið »Meðal markmiða Vestnorræna ráðs- ins er að standa vörð um og rækta menningu landanna og efla samráð ríkis- og landstjórna þjóðanna í sameig- inlegum hagsmuna- málum … Karl V. Matthíasson Höfundur er formaður Vestnorræna ráðsins. ÞAÐ vakti athygli að með fyrstu embætt- isverkum núverandi ut- anríkisráðherra var að senda sérstaka við- skiptafulltrúa til Írans, þess ríkis sem helst er grunað um að styðja hryðjuverk um allan heim í dag. Á sama tíma urðu menn varir við það að dregið var úr sam- skiptum við Kína ásamt Indlandi og fleiri lýð- ræðisríkjum, sem höfðu lýst yfir áhuga á auknum viðskiptum við Ísland. Framhaldið er þekkt, fríverslunarsamningur sem gera átti við Kína liggur í láginni og hefur sennilega verið kastað fyrir róða og flestum samskiptum við önnur lýðræðisríki, utan ESB, hefur verið slegið á frest. Á sama tíma berast fréttir af því að utanrík- isráðherrann rói að því öllum árum að auka samskipti við Ír- an og Jemen ásamt því að bæta við safnið einræðisríkjum eins og Sádi- Arabíu og Dubai, ríkjum þar sem fátt af því sem við köllum sjálfsögð mann- réttindi, svo sem málfrelsi, trúfrelsi eða almennur kosningaréttur, eru í heiðri höfð. Mikil áhersla er allt í einu lögð á aukin samskipti við önnur ríkí í Mið-Austurlöndum sem flest eiga það sameiginlegt að mannréttindi eru þar lítils virði. Þessi utanríkisstefna, sem utanrík- isráðherra er að marka, veldur ís- lensku þjóðinni stórskaða og er stór- hættuleg íslenskum hagsmunum og sennilegt að við höfum ekki bitið úr nálinni með það enn. Íslendingar hafa enga hagsmuni af því að auka sam- skipti sín við þessi ríki sem hafa mjög vafasamt orðspor á alþjóðavettvangi svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Á sama hátt er öruggt að hagsmunum Íslands væri vel borgið ef hægt yrði að gera fríverslunarsamninga við Kína eða Indland eða önnur lýðræð- isríki. Hvernig stendur þá á því að utan- ríkisráðherra er svo augljóslega að vinna gegn hagsmunum Íslendinga. Svarið er nokkuð ljóst. Ástæðan er sennilega sú að því einangraðri sem Íslendingar verða á alþjóðavettvangi því meir aukast líkurnar á því að við neyðumst til að ganga inn í Evrópu- sambandið og sætta okkur við allar þær kröfur sem sambandið mun gera til auðlinda okkar. Það er draumur Samfylkingarinnar. Samfylkingin er þeg- ar farin að beita fjöl- miðlum sínum á Íslandi til þess að réttlæta að- gerðir sínar samanber ritstjórnargrein Auð- uns Arnórssonar í Fréttablaðinu 24. ágúst síðastliðinn. Þar gerir hann lítið úr því afreki sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefur unnið fyrir Íslands hönd á alþjóðavett- vangi og reynir að gera fríverslunarsamning við Kína tortryggileg- an. Utanríkisráðherra verður að gera sér grein fyrir afleiðingum verka sinna. Með lyg- um, með því að reyna að telja Kínverjum trú um að hún sé að vinna að heilum hug að frí- verslunarsamningi milli Kína og Íslands; með svikum, með því að falla frá gerð fríverslunarsamningsins og með flá- ræði, með því að reyna að fá Kínverja til að reyna að greiða Íslendingum at- kvæði í kosningu til öryggisráðsins á sama tíma og hún er að vinna gegn góðum samskiptum Kína og Íslands er hún að eyðileggja þann stuðning sem framboð Íslands til öryggisráðs- ins hefur haft hjá mörgum ríkjum, ekki aðeins Kína. Með því að hafa slegið á útrétta vin- áttuhönd Kínverja er utanrík- isráðherrann að fremja verknað sem er Íslendingum til mikillar óþurftar. Enn meiri hætta er á því að með vali sínu á þeim ríkjum sem hún er að hefja samskipti við, fyrir hönd ís- lensku þjóðarinnar, um leið og hún hafnar samskiptum við önnur, er ut- anríkisráðherra að vinna þjóðinni skaða sem gæti orðið óbætanlegur. Ég skora á alla þingmenn sem er eitthvað annt um sjálfstæði og velferð Íslands og orðspor á alþjóðavettvangi að taka höndum saman og stöðva þetta óhæfuverk utanríkisráðherrans áður en það verður um seinan. Jafn- framt verða þau íslensku fyrirtæki sem eiga viðskiptahagsmuna að gæta um allan heim að gera sér grein fyrir hvers konar tjóni hún er mögulega að valda þeim. Mikil er ábyrgð ut- anríkisráðherrans Birgir Örn Stein- grímsson er ósáttur við utanríkisstefnu Ingibjargar Sólrúnar Birgir Örn Steingrímsson » Ástæðan er sú að því ein- angraðri sem Íslendingar verða á alþjóða- vettvangi því meir aukast lík- urnar á því að við neyðumst til að ganga inn í Evrópusam- bandið… Höfundur er framkvæmdastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.