Morgunblaðið - 26.08.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 27
✝ Sveinn Sig-urður Þorgeirs-
son myndlistar-
maður fæddist á
Hrafnkelsstöðum
III í Hrunamanna-
hreppi í Árnessýslu
18. febr. 1958.
Hann lést í Reykja-
vík 8. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hans eru Þorgeir
Sveinsson, f. á
Hrafnkelsstöðum í
Hrunamanna-
hreppi 16. júní
1927, d. 25. nóv. 1997, og Svava
Pálsdóttir, f. í Dalbæ í Hruna-
mannahreppi 20. apríl 1928.
Systkini Sveins eru Pálmar, f.
15. okt. 1951, rekur Flúðaleið
ehf. á Flúðum, maki Ragnhildur
Þórarinsdóttir og eiga þau þrjú
börn, Hrafnhildur, bókasafns- og
upplýsingafræðingur í Reykja-
vík, f. 18. des. 1952, maki Guð-
mundur Auðunsson, þau eiga
þrjú börn, Brynhildur, myndlist-
armaður í Reykjavík, f. 1. maí
1955, og Aðalsteinn, bóndi á
Hrafnkelsstöðum III, f. 4. febr.
1961, maki Margrét Jónsdóttir,
þau eiga fjögur börn.
Kona Sveins er Anna Guðný
Sigurðardóttir Ringsted, kaup-
skoða nýja fleti á möguleikum til
túlkunar. Sveinn var einn þeirra
og dvaldi hann í Hollandi næstu
árin og nam við hinn þekkta AKI
– Akademie voor Beeldende
Kunst í Enschede í Hollandi.
Seinna fór hann í framhaldsnám
til New York og var á árunum
1985-1987 í School of Visual
Arts, N.Y. og lauk hann þar
námi sem Master of Fine Art. Á
þessum árum og að loknu námi
hélt hann einkasýningar og tók
þátt í samsýningum, bæði innan-
lands og utan. Sveinn rak ásamt
öðrum trésmíðaverkstæði við
Skólastræti í Reykjavík lengi vel,
en fyrir nokkru fluttist verk-
stæðið í húsnæði á Granda. Hans
aðalverkefni sl. ár hafa verið að
gera upp eldri hús og íbúðir í
Reykjavík, og einnig að lagfæra
og gera upp gömul húsgögn,
einkum í tengslum við rekstur
konu sinnar í versluninni Fríðu
frænku. Hann var í raun „smiður
af Guðs náð“, lærði ekki smíða-
iðn í hefðbundnu iðnnámi, en
meðfædd handlagnin, verksvitið
og útsjónarsemin nýttust vel við
að leysa hin margvíslegu verk-
efni sem hann fékkst við á ferli
sínum. Honum var lagið að gera
gamalt gott og oft betra en nýtt,
og gefa gömlum hlutum og hús-
um þar með nýtt líf.
Útför Sveins verður gerð frá
Neskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
maður í versluninni
Fríðu frænku í
Reykjavík, f. á Ak-
ureyri 19. júlí 1954.
Foreldrar hennar
eru Sigurður J.
Ringsted, f. í Sig-
túnum í Höfða-
kaupstað í S-Þing.
29. okt. 1921, og
Hulda Haralds-
dóttir, f. á Akureyri
11. febr. 1930. Börn
Sveins og Önnu eru
Elísabet Ýr, nemi í
Verslunarskóla Ís-
lands, f. 24. nóv. 1989, og Þor-
geir, nemi í Verslunarskóla Ís-
lands, f. 25. júní 1991.
Sveinn ólst upp við hefðbundin
sveitastörf á Hrafnkelsstöðum
með foreldrum og systkinum.
Snemma fór að bera á listrænum
hæfileikum hans og var hann sí-
teiknandi sem barn og ungling-
ur. Eðlilegt framhald var því að
fara í Myndlista- og handíðaskól-
ann eins og hann hét þá, nú
Listaháskóli Íslands. Þar var
hann við nám á árunum 1976-
1981, síðast í hinni nýstofnuðu
nýlistardeild. Á þessu tímabili
var mikil gróska í óhefðbundinni
myndlist í Hollandi og lágu
þangað leiðir margra sem vildu
Að missa systkini sitt er eins og
að tapa hluta af sjálfum sér. Þeim
sem hefur verið samtvinnaður til-
veru þinni alla ævi, mótað og verið
meðvirkur þáttur í æsku, uppvexti
og fullorðinsárum. Verið svo órjúf-
anlegur þáttur í lífi þinu að erfitt er
að sjá hvernig hægt er að halda
áfram án hans. Kannske líkt því að
missa útlim. Þú finnur fyrir honum,
veist að hann á að vera þarna eins og
áður, ert vanur að hann hafi sitt
hlutverk, en nú er gripið í tómt.
Hann er farinn héðan svo skyndi-
lega, alltof snemma og án fyrirvara.
Á hverjum morgni bregst vonin um
að fráfall bróðurins hafi aðeins verið
fáránleg martröð sem þú vaknar af
og að allt verði aftur eins og það á að
vera. Fjarvera hans venst ekki, því
alltaf vantar einn hlekkinn í keðjuna
okkar. Með aldrinum gefst meiri
tími til að rækta fjölskyldu og vini,
og ekki síst samveru systkinanna
sem eiga svo margt sameiginlegt,
sömu setningar sem hver botnar hjá
öðrum, sömu minningar og umhverfi
æskunnar. Allt sem lifir með þér alla
tíð, hvert sem þú ferð um heiminn,
burtséð frá öðru því sem bætist í
reynsluheiminn síðar á lífsleiðinni.
Stétt og staða hafa lítt áhrif á sam-
band systkina, hver og einn stendur
fyrir sínu á sama grunni og lagður
var í uppeldinu. Persónueiginleikar,
verklag, húmor og hefðir hvers og
eins, allt er þetta hinum þekkt og
vitað um getu og hæfileika hvert
annars.
Sveinn var í 5 systkina hópi sem
fæddust með nokkuð jöfnu bili á tíu
árum. Honum voru gefnir í vöggu-
gjöf margvíslegir hæfileikar, var
frábær teiknari og skapaði eigin
heim í teikningum sínum strax í
æsku, og hélt sérstöðu sinni í mynd-
list gegnum nám og í verkum sínum
seinna meir. Í minningu okkar var
alltaf sól og blíða, gleði og fjör jafnt í
leik og starfi. Ekki var þó æskan
okkur áfallalaus, en ekkert var þó
lífshættulegt nema dráttarvélarslys
sem Sveinn lenti í 16 ára og hlaut af
mikil bakmeiðsl og aðra áverka, m.a.
innvortis. Kraftaverk má það kalla
að hann komst á fæturna eftir langa
legu. Þetta slys markaði djúp spor í
líf hans og hafði áhrif á lífsviðhorf
hans og heilsu. Hann varð sannkall-
aður lífskúnstner og pældi í lífsins
gildum og skoðaði lífsgátuna með
húmor og gleði, enda manna glað-
astur á góðri stund. Var fagurkeri í
bókmenntum ekki síður en myndlist.
Trúlega má tengja orsök hins
skyndilega dauðsfalls hans v/bráða
hjartastopps sem varð vegna lang-
varandi háþrýstings, við þetta slys
forðum, að því leyti að hann tengdi
gjarnan verki, ekki síst bakverkina,
við slysið og leitaði því ekki læknis í
tíma. En í þetta sinn fékk hann ekki
annað kraftaverk til bjargar. Við
þökkum fyrir hið fyrra og að hann
fékk árin öll í viðbót og ráðrúm til að
eignast bestu konu í heimi, hana
Önnu, og eiga með henni gullmolana
tvo, þau Elísabetu og Þorgeir, sem
öll þurfa nú að skoða heiminn uppá
nýtt, minnug orða Steins Steinarr:
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil.
með spekingslegum svip og taka í nefið,
(Og allt með glöðu geði
er gjarnan sett að veði.)
Og þó þú tapir, það gerir ekkert til
því það var nefnilega vitlaust gefið.
Kveðja, þín systir,
Hrafnhildur.
Ástkær vinur okkar, Sveinn Þor-
geirsson, er fallinn frá. Hans verður
sárt saknað. Þegar við sem ungling-
ar fyrst kynntumst Sveini sýndi
hann alltaf mikið sjálfstæði. Hann
hafði dvalið veturlangt í Kaup-
mannahöfn og stundað listnám í
Hollandi og bar með sér nýja
strauma frá meginlandinu. Strauma
kennda við nýbylgju og pönk. Litað
hár og klippingar, leðurjakkar og
bolir með slagorðum, flottir skór og
stígvél. Sveinn var pönkari og an-
arkisti í hjartanu, fór ekki troðnar
slóðir. Hann var skýr í hugsun og
sannur sinni sannfæringu. Hann sá
á örskotsstund muninn á vitleysu og
snilld og kom vel orðum að þeim
mun. Hann vildi alltaf vera sinn eig-
inn herra og var séður við að skapa
sér sjálfur atvinnu og verða sér út
um verkefni sem varð svo til þess að
hann stofnaði trésmíðaverkstæði og
rak í um 30 ára skeið ásamt félögum
sínum, sem flestir voru sjálfmennt-
aðir smiðir, eins og hann sjálfur.
Sveinn var alltaf vinnusamur og
vildi vera sjálfum sér nógur og ekki
upp á aðra kominn. Eignaðist sína
fyrstu íbúð af eigin rammleik strax
að loknu námi í myndlistaskólanum.
Hann stundaði einnig nám um tíma í
Enskede í Hollandi og í New York,
en þar bjó hann um árabil. Sveinn
var m.a. undir handleiðslu Sigurðar
Guðmundssonar og hreifst hann
mjög af lífshlaupi og list þeirra
Kristjáns og Sigurðar frænda sinna
og sagði oft af þeim sögur. Skúlptúr-
ar Sveins voru ljóðrænir og drama-
tískir og er heim var komið hélt
hann sýningu á þeim í Nýlistasafn-
inu. En Sveinn þoldi illa ringulreið,
blankheit og þann hégóma er oft
fylgir listalífi og segja má að vinnu-
semin og viðleitnin að standa á eigin
fótum, skulda engum neitt, hafi orð-
ið listamanninum yfirsterkari. Samt
mun hann lifa í þessum sérstæðu
verkum sínum er voru full af ljóð-
rænu og dulúð.
Sveinn var mikill gæfumaður.
Hann varð þeirrar miklu blessunar
aðnjótandi að hafa hitt Önnu, sem
var kona hans og barnsmóðir. Hún
var klettur hans og kjölfesta. Hann
var sífellt að sýsla eitthvað í kring-
um antíkverslun hennar, í viðgerð-
um og allskyns betrumbótum og
hafði hann gaman af að segja okkur
sögur af ýmsum sérkennilegum
söfnurum er þangað vöndu komur
sínar, en Sveinn hafði unun af fögr-
um hlutum, skrítnu handverki og
óvenjulegum einstaklingum.
Þrátt fyrir að vera oftast um-
kringdur af fólki í sínu lífi, var
Sveinn að mörgu leyti einfari. Bæði í
sinni list og sem persóna. Í honum
bærðust djúpar tilfinningar og ofur-
viðkvæmni, tröll af manni sem hann
var og átti hann það til að verða
særður ef menn gættu ekki tungu
sinnar.
Sveinn lifir ekki bara í verkum
sínum heldur líka í okkur sem vor-
um náin honum og þótti vænt um
hann. Við sem berum Svein til graf-
ar í dag ætlum ekki að kveðja hann
hinstu kveðju, enda ætlum við að
hitta hann aftur hinum megin við
móðuna miklu. Þar bíða nú þegar
góðir vinir sem taka fagnandi á móti
honum.
Heill sé þér Sveinn Þorgeirsson,
öðlingur og vinur vina þinna, nú
þegar þú kveður þessa jörð. Þín
verður sárt saknað. Við hittum þig
fagnandi, vinur, þegar okkar tími
kemur.
Önnu, Elísabetu, Þorgeiri og
Brynhildi sendum við ást okkar og
vottum fjölskyldu Sveins okkar
dýpstu samúð.
Ágúst Karlsson, Ámundi
Sigurðsson, Björn Karlsson,
Finnbogi Pétursson, Ómar
Stefánsson, Páll Hjaltason.
Meira: mbl.is/minningar
Sveinn S. Þorgeirsson ✝
Elskuleg móðir mín, amma okkar og langamma,
BJÖRG JÓHANNSDÓTTIR
frá Steinum,
A-Eyjafjöllum,
síðast til heimilis að Gullsmára 11,
Kópavogi,
lést á öldrunardeild Landspítalans í Fossvogi
fimmtudaginn 21. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju fimmtu-
daginn 28. ágúst kl. 13.00.
Guðbjörg Jóna Jóhanns,
Vilhjálmur R. Vilhjálmsson, Elísabet Marteinsdóttir,
Björgvin F. Vilhjálmsson, Gróa Helga Eggertsdóttir,
Ingibjörg J. Vilhjálmsdóttir, Sigurður Jón Ásbergsson,
Berglind Ó. Vilhjálmsdóttir,
Gyða Stefanía, Sigríður Jóna og Arna Liv.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ÁGÚSTA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Prestastíg 11,
Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítala háskóla-
sjúkrahúss við Hringbraut aðfaranótt fimmtudagsins
21. ágúst, verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu-
daginn 28. ágúst kl. 13.00.
Guðjón Þór Ólafsson,
Guðný Björk Guðjónsdóttir, Kristján Logason,
Þorsteinn Þór Guðjónsson, Lilja Dís Guðbergsdóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG NORDQUIST
hjúkrunarfræðingur,
Urðarvegi 18,
Ísafirði,
lést á heimili dóttur sinnar föstudaginn 22. ágúst.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Ása Nordquist, Pálmi Gunnarsson,
Jón Sigurður Norðkvist, Harpa Þórisdóttir,
Theódór Norðkvist,
Sigurður Grétar Marinósson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
PÁLA ÞRÚÐUR JAKOBSDÓTTIR,
Fossvegi 2,
Selfossi,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hring-
braut mánudaginn 25. ágúst.
Hún verður jarðsungin frá Selfosskirkju,
föstudaginn 29. ágúst kl. 13.00.
Skúli Jakobsson,
Kristinn Jakobsson, Hildur Birgisdóttir,
Jakob Kristinsson,
Karen Kristinsdóttir,
Íris Mjöll Valdimarsdóttir, Magnús Baldursson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNA ÞÓRUNN SNÆBJÖRNSDÓTTIR,
Grund,
Kolbeinsstaðahreppi,
Borgarbyggð,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn
24. ágúst verður jarðsungin frá Borgarneskirkju
laugardaginn 30. ágúst kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi.
Þórður Þorsteinn Ásmundsson, Huldís Þorfinnsdóttir,
Ólöf Ásmundsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista