Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is N ú gengur tölvupóstur milli manna um Framsóknarflokkinn. Í honum segir, að þar sem tveir framsóknarmenn komi saman þar sé spegill. Einungis það eitt að pósturinn gangi fólki til skemmtunar er lýsandi fyrir stjórn- málaflokk sem tekst á við vandamál sem virðist hon- um ofviða; það er leitin að tilverugrundvelli. Fylgis- hrun, úr fjórðungsfylgi niður í undir tíu prósent á rúmum áratug, segir sína sögu um erfiðleikana. Framsóknarmenn eru vandfundnir. Erfitt ár senn á enda Árið 2008 hefur verið Framsóknarflokknum afar erfitt. Eini kjörni fulltrúi flokksins í Reykjavík, Björn Ingi Hrafnsson, hætti störfum fyrir flokkinn eftir snarpar deilur við flokksmenn. Bjarni Harðar- son sagði af sér þingmennsku á dögunum eftir að hafa sent fjölmiðlum bréf tveggja framsókn- armanna úr Skagafirði, Sigtryggs Jóns Björnssonar og Gunnars Oddssonar, þar sem vegið var að Val- gerði Sverrisdóttur, varaformanni flokksins. Upp úr sauð síðan á miðstjórnarfundi á laugar- deginum fyrir viku sem endaði með því að Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku og hætti sem formaður flokksins, að því er virðist öðrum þing- mönnum flokksins til nokkurrar furðu. Innanflokksátökin hafa verið hörðust í starfi flokksins á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur kraumað óánægja meðal flokksmanna um nokkurra ára skeið sem ekki verður séð að verði leyst, nema með rót- tækum aðgerðum. Tilraun Guðna Ágústssonar um að færa flokksstarfið nær grasrótarstarfi flokksins, frá því sem var í formannstíð Halldórs Ásgríms- sonar, gekk ekki sem skyldi. Samstaðan sem Guðni taldi forsendu fyrir því að efla flokkinn myndaðist aldrei. „Kvöldið hans“ Þvert á móti hafa átök við flokksmenn stigmagn- ast með tímanum. Reglulega hefur síðan upp úr soð- ið með látum, sem endar með miklum uppgjörum á opinberum vettvangi sem fjölmiðlar hafa gert ít- arleg skil. „Flokkurinn virðist haldinn sjálfseyðing- arhvöt,“ sagði einn viðmælenda Morgunblaðsins innan Framsóknarflokksins aðspurður um ástæður innanflokksátaka. Grunnhugsjón flokksins, samvinna, hefur orðið að aukaatriði í þessum deilum, að mati viðmælenda Morgunblaðsins. Stefnumálin hafa orðið undir í bar- áttu við eiginhagsmuni flokksmanna, sem hafa bar- ist um völd í flokknum. Oft hefur því verið haldið fram að valdataflið innan flokksins væri meðal ann- ars milli helstu fylgismanna Halldórs Ásgrímssonar, þeirra á meðal áhrifamanna í íslensku viðskiptalífi eins og Finns Ingólfssonar og Helga S. Guðmunds- sonar, og svo hinna sem töldu sig til grasrótarinnar utan valdataflsins. Þegar Halldór ákvað að hætta var hann þegar farinn að ganga frá málum með þeim hætti að Finnur tæki við af sér sem formaður. Guðni, sem þá var varaformaður, var ósáttur við þetta ráðabrugg. „Þetta var kvöldið hans,“ sagði Guðni við blaðamenn þegar hann strunsaði út úr ráðherrabústaðnum á Þingvöllum fyrstur manna að kvöldi dags 5. júní 2006 þar sem Halldór kallaði trúnaðarmenn sína saman ásamt þingflokknum og tilkynnti formlega að hann væri að hætta störfum sem þingmaður og formaður Framsóknarflokksins. Viðmælendur Morgunblaðsins voru á einu máli um að viðskilnaður Halldórs hefði verið með þeim hætti að flokkurinn hefði í raun verið klofinn. Flokk- urinn var „stefnulaust rekald“ eins og einn viðmæl- enda komst að orði. Einn af hverjum fjórum Þrátt fyrir erfiðleika, sem skýrast hafa komið fram í innra starfi flokksins á höfuðborgarsvæðinu, er það alls ekki svo að tvo framsóknarmenn sé því sem næst ómögulegt að sjá saman, eins og grínast er nú með, þegar horft er út á landsbyggðina. Í Þingeyjarsýslum í Norðausturkjördæmi er einn af hverjum fjórum sem kjósa framsóknarmaður ef horft er til síðustu alþingis- og sveitarstjórnarkosn- inga. Úr kjördæminu koma þrír af sjö þingmönnum flokksins. Hjálmar Bogi Hafliðason, 28 ára formað- ur Framsóknarfélags Þingeyinga, segir heiðarleg og hreinskiptin samskipti leggja grunn að góðu samstarfi. Tekist sé á um mál en þau ekki látin leiða til sundrungar. „Það hljómar kannski sem einföld skýring, en við höfum bara talað um pólitík af áhuga og leyft okkur að vera ósammála um allt mögulegt. Það breytir því ekki að við sameinumst um sam- vinnustefnuna og grunnstefin í stefnu Framsóknar- flokksins og reynum að hafa áhrif á almenna stefnu flokksins,“ segir Hjálmar Bogi. Nýrrar forystu, sem kosin verður á landsþingi flokksins í byrjun næsta árs, bíður það erfiða verk- efni að sætta fylkingar og takast á við nýja tíma. Ekki er endilega víst að spegla muni þurfa til þess að helminga fjölda flokksmanna ef rétt verður hald- ið á spöðunum og „sjálfseyðingarhvöt“ flokksins verður endanlega slökkt. Flokkur sem er haldinn „sjálfseyðingarhvöt“  Framsóknarflokkurinn er „stefnulaust rekald“  Verða að geta rætt um pólitík Morgunblaðið/Kristinn Tekist á Það reyndi mikið á Guðna Ágústsson á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins fyrir skömmu. Harðar undirliggjandi deilur eru í flokknum.  Eftir stuttar formannstíðir Jóns Sigurðssonar og Guðna Ágústs- sonar, tveggja síðustu formanna Framsóknarflokksins, bíður flokks- manna það erfiða hlutverk að kjósa sér nýja forystu. Landsþing fer fram í byrjun næsta árs en ákveðið var að flýta því á miðstjórnarfundi flokksins fyrir rúmri viku. Sam- þykkt var tillaga þess efnis að greiða atkvæði um að hefja við- ræður um aðild að Evrópusam- bandinu. Búast má við hörðum átökum á þinginu um Evrópumál auk helstu áherslumála flokksins í ljósi breyttra samfélagsaðstæðna. Slagur framundan? Morgunblaðið/Golli Foyrstufólk Ný forysta verður kjörin á landsþingi.  „Halldór [Ás- grímsson] hafði margt til brunns að bera en enda- lok stjórnmála- ferils hans voru ekki falleg,“ seg- ir Steingrímur Hermannsson. „Of mikil frávik frá grundvall- argildum Fram- sóknarflokksins hafa reynst flokknum erfið. Stjórnmálastarf er alltaf háð því að marka stefnu sem miðast við þjóðfélagsaðstæður hverju sinni. Það hefur reynst erfitt að hverfa til baka og finna réttu gildin aft- ur.“ Ekki falleg endalok Halldór Ásgrímsson  „Við setjum manngildi ofar auðgildi,“ segir grundvallar- stefnuskrá Framsóknarflokksins í umfjöllun um jafnræði þegna í samfélaginu. „Við viljum að hver og einn hafi sama rétt til mennt- unar, þroska og grundvallarlífs- kjara óháð uppruna, heilsu og efnahag,“ segir í stefnunni. Einn- ig er lögð áhersla á að mann- auður sé efldur og sérhver ein- staklingur fái örvun og tækifæri til að þroskast og vaxa í leik og starfi. „Við stefnum að samfélagi umburðarlyndis og víðsýni svo margbreytileiki þjóðlífs og ein- staklinga fái notið sín,“ segir ennfremur í stefnunni. Manngildi ofar auði                                                                             !! " Um 12 þúsund í flokknum Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is „Mér finnst atburðir síðustu vikna fyrst og fremst sorglegir,“ segir Steingrímur Hermannsson, fyrr- verandi forsætisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins, um atburði sem leiddu til þess að Guðni Ágústsson hætti sem þing- maður og formaður Framsókn- arflokksins. „Guðni er mikill vinur minn og fáum mönnum treysti ég betur til góðra verka en honum. Hann brást hins vegar óskyn- samlega við gagnrýni frá ungliðum í flokknum. Ég tel hins vegar að Guðni hafi með dugnaði sínum og ósérhlífni gert flokknum gott eitt á sínum ferli.“ Þegar Steingrímur var formaður Framsóknarflokksins hafði hann um og yfir 25 prósent fylgi. Stein- grímur segir margt smátt, og sumt stórt, hafa leitt til þess að flokk- urinn leiddist útaf brautinni sem hann hefði átt að vera á. „Stuðn- ingur forystunnar við innrásina í Írak var flokknum erfiður og fór illa í bæði flokksmenn og almenn- ing. Náið samstarf Halldórs Ás- grímssonar og Davíðs Oddssonar var óvinsælt þar sem flokksmenn töldu sig ekki standa forystu flokksins nógu nærri. Ég held, eftir á að hyggja, að það atriði hafi verið einna áhrifaríkast í öllu flokksstarfi því Framsóknarflokkurinn er í eðli sínu grasrótarflokkur, sem byggir á samvinnu flokksmanna og fé- lagshyggju,“ segir Steingrímur. Hann telur að Framsóknarflokk- urinn þurfi að hleypa ungu fólki að til forystu. „Það þarf róttækar breytingar.“ Flokkurinn fjarlægðist uppruna sinn Morgunblaðið/Sverrir Vill breytingar Steingrímur segir Framsóknarflokkinn hafa misst tengslin við upprunann. Atburðir síðustu vikna í flokknum eru sorglegir segir Steingrímur Hermannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.