Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 45
45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
hvirfilvindur“
Listamaðurinn Óli G. Jóhannsson við verk sitt á sýningunni í Dubai ásamt
eiginkonu sinni, Lilju Sigurðardóttur.
Þættirnir um ekkjuna og börnin
hennar fimm, sem ferðuðust um
Bandaríkin í skrautlegri rútu og
tróðu upp á hljómleikum, nutu mik-
illa vinsælda þau fjögur ár sem þeir
voru sýndir, 1970-1974. Og gerðu
David Cassidy að stórstjörnu.
Líkamsburðir Davids og barns-
legt andlitið gerði að verkum að
flestir héldu að þar færi 15-16 ára
piltur. En hann var orðinn tvítugur
þegar þættirnir hófu göngu sína og
24 ára þegar þeim lauk. En ennþá
nánast eins og 16 ára. Núna er
hann 58 ára og þótt unglegur sé eru
árin farin að taka sinn toll.
Strax á fyrsta sýningarári Par-
tridge-fjölskyldunnar söng David
vinsælasta lag sitt til þessa dags, I
think I love you. Svo komu nokkur í
röð, t.d. hið ofurvæmna Cherish.
David nýtti sér frægðina til hins
ýtrasta. Hann fór enda létt með að
troðfylla Wembley-leikvanginn í
London sex sinnum á einni og sömu
helginni og á enn aðsóknarmet að
tónleikum í Houston Astrodome
höllinni í Texas.
Löggan virkaði ekki
Popparar vilja gjarnan verða
kvikmyndaleikarar, rétt eins og
kvikmyndaleikarar spreyta sig oft
á söng. Hvort tveggja getur haft
hörmulegar afleiðingar. En David
var sjóaður í sjónvarpsbransanum
og sótti stíft að fá þar gott hlutverk
að nýju, eftir að aðdáun táninga fór
að dala. NBC kynnti til sögunnar
nýja sjónvarpsþáttaröð, David Cas-
sidy: Man under cover, þar sem
hann lék löggu. En þættirnir náðu
ekki flugi og sjónvarpsstöðin hætti
gerð þeirra eftir fyrsta sýning-
arárið. Þeir voru reyndar end-
urvaktir síðar, með Johnny Depp í
aðalhlutverki og hétu þá 21 Jump
Street.
Allt fram á þennan dag á David
Cassidy ágætu fylgi að fagna. Hann
hefur sést reglulega á met-
sölulistum, bæði í Bandaríkjunum
og Bretlandi og átti meira að segja
eina af fimm mest seldu plötum
Bretlands árið 2001, Then and
Now.
Ef fólk hefur áhuga á að rifja upp
gömul kynni af David Cassidy er
ágætt að byrja á heimasíðu hans,
davidcassidy.com, eða fara inn á
MySpace síðuna myspace.com/
therealdavidcassidy. rsv@mbl.is
Ástarbréf Hjartaknúsarinn mikli.Núna David Cassidy er enn að.
Blómi Hann bar það ekki með
sér 1975 að vera orðinn 25 ára.
Goð David Cassidy var átrún-
aðargoð unglingsstúlkna um allan
heim á fyrri hluta 8. áratugarins.
‘‘LÍKAMSBURÐIR DAVIDSOG BARNSLEGT AND-LITIÐ GERÐI AÐ VERKUMAÐ FLESTIR HÉLDU AÐ
ÞAR FÆRI 15-16 ÁRA
UNGLINGUR
Breytti slys þínum aðstæðum?
Við könnum rétt þinn á bótum!
Slys hafa margs konar áhrif á líf okkar og starf.
Fáðu ráðleggingar – það kostar þig ekkert.
Fulltingi þér við hlið / www.fulltingi.is / sími 533 2050
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n