Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 65
Velvakandi 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008
Lögga, læknir og lögfræðingur
Kippan
BÍDDU AÐEINS! ÞÚ SAGÐIR AÐ
„HVAR? HVENÆR? AF HVERJU? OG
HVERNIG?“ VÆRU SPURNINGAR SEM
ALLAR LÖGGUR ÞYRFTU AÐ SVARA...
MIKILVÆGASTA
SPURNINGIN
HLÝTUR SAMT
AÐ VERA
„HVER?“
EF ÞÚ SVARAR
ÞESSUM FJÓRUM
SPURNINGUM ÞÁ
LEIÐA ÞÆR ÞIG
AÐ „HVER?“
ÆTTU
ÞETTA ÞÁ
EKKI AÐ VERA
FIMM
SPURNINGAR?
NEI, MÉR
FINNST ÞAÐ EKKI
ÉG VAR AÐ HEYRA ORÐRÓM
ÞESS EFNIS AÐ MAFÍAN SÉ
BÚIN AÐ KAUPA FYRIRTÆKIÐ
STEYPU-
SMIÐJAN ehf.
RÉTTU
MÉR KYLFU
NÚMER
SEX...
VANTAR
ÞIG
FAR?
RÚNAR, ÞÚ VARST HEPPINN AÐ
FINNA SVONA VINNUSAMAN HUND
ER SKEIÐIN
EKKI
ÖRUGGLEGA
FITUSNAUÐ?
UNDANFARNAR vikur hefur verið fjölmennt á Laugaveginum og þá sér-
staklega um helgar, fólk er e.t.v. byrjað að kaupa inn fyrir jólin eða jafnvel
bara að fá sér passlegan göngutúr upp Laugaveginn.
Morgunblaðið/Golli
Á Laugaveginum
Leiðtogar og
merkismenn
ÞAÐ óhætt að segja að
þjóðin hafi verið í
spennu undanfarnar
vikur, bæði vegna
hruns alls efnahags-
kerfis okkar, sem er
þyngra en tárum taki,
og svo jafnframt vegna
forsetakosninga í
Bandaríkjunum þar
sem styrinn stóð um
svartan og svo hvítan
mann, annar er maður
á besta aldri og hinn
eldri borgari. Maðurinn
sem vann er demókrat-
inn Obama og þetta eru náttúrlega
stórkostlegar fréttir. Hann ætlar og
mun hafa áhrif á efnahagskerfi
Bandaríkjanna sem er brýnasta
þörfin í bili. Auðvitað vitum við að
þeir þurfa líka og ekkert síður að
gera út um þessar tvær stríðshrjáðu
þjóðir, Írak og Afganistan, þar sem
þeir eiga stóran hlut að máli. Von-
andi lagast samband Bandaríkja-
manna við Evrópu. Fyrir þá sem
ekki vita má til gamans geta að
Obama er 186 cm á hæð sem þykir
býsna mikið en málið var að Lincoln
var 193 cm en Bush ekki nema 180
cm. Á undanförnum vikum hefur ým-
islegt gengið á og það sem mér hefur
fundist ógeðfelldast er umfjöllun
fólks um einn merkilegasta stjórn-
málamann síðari tíma, Davíð Odds-
son. Sjálf er ég og var í allt öðrum
flokki en hann, og var í framboði til
alþingiskosninga hér um árið. Samt
sem áður er ekkert sem réttlætir það
þótt eitthvað komi upp í samfélagi
sem kallar á að sökudólgar séu
fundnir að taka einn mann, gera
hann að sökudólgi fyrir heila þjóð
vegna margra hluta sem eru ax-
arskaftatengdir og koma ekki allir
honum við. Davíð er þekkt ljóðskáld
og var Bubbi kóngur í gamla daga.
Hann á sér mjög merkilega sögu af
allt öðrum toga sem við
þurfum líka að muna
eftir. Hann var for-
sætisráðherra árum
saman og hefur gegnt
ótal störfum innan
þings sem utan og ég
leyfi mér að fullyrða að
fáir núlifandi Íslend-
ingar eru eins gáfaðir
og merkilegir fyrir
margra hluta sakir og
þessi einstaki maður,
Davíð Oddsson. Íslend-
ingar hafa verið and-
aktugir að undanförnu
og ég verð að segja eft-
ir að hafa fylgst með
umræðunni að sá mað-
ur sem ber höfuð og herðar yfir alla
sem þurfa að uppfræða okkur þjóð-
ina er merkilegur alþingismaður sem
heitir Pétur Blöndal. Hann er ekki
bara stórgáfaður heldur hefur
óvenjulegan hugsunarhátt og á auð-
velt með að setja sig inn í hugarheim
þeirra sem eru óupplýstir/ómennt-
aðir ekkert síður en þeirra sem eru
menntaðir. Hann hefur einstaka
hæfileika til að útskýra flókin mál
fyrir okkur hinum á einfaldan og að-
gengilegan máta. Heyr, heyr, Pétur
Blöndal, haltu áfram þínu góða starfi.
Jóna Rúna Kvaran.
Ert þú stúlkan í berjamónum?
Á FALLEGUM sunnudegi í lok
sumars var ég í berjamó með stúlku
sem ég þarf endilega að komast í
samband við. Hún var lágvaxin,
fremur smáfætt og gleymdi hálsmeni
sem ég hef í fórum mínum. Háls-
menið er hvítt á gylltri keðju og í lag-
inu eins og liljublað. Ef stúlkan les
þetta er hún beðin að senda mér
tölvupóst á oliskoli@gmail.com
Pilturinn.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Jólafagnaður verður
fimmtudaginn 4. desember kl. 17. Sr.
Hans Markús verður með jólahugvekju,
hátíðarsöngvar Bergþór Pálsson, Jónas
Þórir leikur á píanó. Lúsíur syngja. Jóla-
saga Tinna K. Victorsd. Jólahlaðborð frá
Lárusi Loftssyni. Miðaverð 3.800 kr.
Skráning í síma 535-2760 fyrir þriðju-
daginn 2. desember.
Breiðfirðingabúð | Jólafundur verður
mánud. 1. desember kl. 19. Tilkynnið
þáttöku hjá Grétu í síma 553-0491.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur kl. 20 í kvöld. Danshljómsveitin
Klassík leikur. Félag eldri borgara í
Reykjavík, Þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalag Íslands standa fyrir
samstöðufundi á Ingólfstorgi mánudag-
inn 24. nóvember kl. 16.30. Tilefni fund-
arins er núverandi óvissuástand í efna-
hagsmálum. Jólakaffi verður þriðjud.
25. nóvember kl. 20 í Víkingasal Hótel
Loftleiða, fyrir þær konur sem tóku þátt
í orlofsferðum félagsins á árinu.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Jólaskemmtunin verður í Hlé-
garði 28. desember. Söngur, jólahlað-
borð, tískusýning og dans. Miðasala er
hafin á skrifstofu félagsstarfsins á Hlað-
hömrum kl. 13-16. Sími 586-8014 og
692-0814.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga eru m.a. opnar vinnustofur, spila-
salur o.fl. Mánudaga og miðvikudaga kl.
9.50 er vatnsleikfimi í Breiðholtslaug.
Þriðjudaga og föstudaga kl. 10.30 er
létt ganga um nágrennið. Mánudaga kl.
9 og föstudaga kl. 13 er fjölbreytt leik-
fimi (frítt) í ÍR-heimilinu v/Skógarsel.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Félagsvist mánudag kl. 13, stund í kirkj-
unni miðvikudag kl. 11, súpa í hádeginu,
brids kl. 13, bridsaðstoð fyrir dömur
föstudag kl. 13.
Hraunbær 105 | Jólafagnaður verður 5.
desember, upplýsingar og skráning í
síma 411-2711.
Hæðargarður 31 | Jólagjafakort og
ókeypis töluleiðbeiningar á mánudag og
miðvikudag kl. 13-15. Hárgreiðslustofa,
sími 568-3139 og fótaaðgerðastofa,
sími 897-9801.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga frá Egils-
höll alla mánudaga kl. 10.
Korpúlfar, Grafarvogi | Bútasaumur
annan hvern mánudag á Korpúlfs-
stöðum kl. 13-16.
Vesturgata 7 | Jólafagnaður föstudag-
inn 5. desember. Sigurgeir verður við
flygilinn, veislustjóri Örn Árnason, jóla-
hlaðborð, barnakór Vesturbæjarskóla
syngur, hugvekju flytur sr. Hjálmar
Jónsson dómkirkjuprestur. Guðmundur
Haukur leikur fyrir dansi. Glerbræðslu-
námskeið hefst 2. desember. Upplýs-
ingar og skráning í síma 535-2740.