Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 16
16 Gjaldmiðill MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 Öflugt háskólasamfélag er hornsteinn í þeirri uppbyggingu sem nú bíður þjóðarinnar. Með miða í Happdrætti Háskólans leggur þú þitt af mörkum og átt um leið mikla möguleika á frábærum vinningum. Gakktu í hópinn og brostu og brostu! - Þú færð miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. ...OG GÆTIR UM LEIÐ UNNIÐ MILLJÓNIR ÞÚ STYÐUR UPPBYGGINGU HÁSKÓLA ÍSLANDS... gengið var ofnotað til þess að vega upp á móti innlendum verðhækkunum og svo elti hvað annað. Þessi þróun var gegnumgangandi, að vísu með hléum, og náði hámarki árið 1983, í lok ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen, þegar verðbólguhraðinn mældist 120% á einum ársfjórðungi. Einn aðalkosturinn sem menn sjá við fast gengi er sá að í því felst vörn gegn verðbólgu. Víst má leysa viss vandamál með gengisfellingum og verðbólgu, en ef ekki er festa og aðhald í peningastefnunni, þá skap- ast hætta á vítahring og ofsaverðbólgu. Með nýrri ríkisstjórn myndaðist fyrst alvarlegt viðnám, haldið var fastar í gengið og hækkandi vöxtum og aðhaldssemi beitt í pen- ingamálum. Þegar Íslend- ingar fóru inn í EES, þá var verð- bólgan komin nokkurn veginn nið- ur á sama stig og annars staðar í Evrópu. Ekki var tekin upp frjáls geng- isskráning strax, heldur frjáls gjald- eyrismarkaður með vikmörkum, sem þýddi að gengi krónunnar gat sveiflast innan ákveðinna marka. En svo fór árið 2001 að Ís- lendingar voru komnir upp að vegg með það kerfi, það var sprungið, því ekki tókst að halda þeim stöðugleika innanlands sem nauðsyn- legur var til að halda genginu innan þessara marka. Fyrir vikið var verðbólgumarkmið tekið upp og frjáls gengisskráning. Gengið féll nokkuð fyrst eftir það, en það náði sér upp aftur og varð of sterkt. Mikið fjárstreymi var inn í land- ið í gegnum bankaþensluna og Seðlabankinn reyndi að hamla gegn því með því að halda genginu sterku. En það gat ekki gengið til lengdar, enda kom það niður á viðskiptajöfn- uðinum. Bankabólgan Ef gengið hefði verið fast undanfarin ár, til dæmis með evrunni, og Íslendingar hefðu samt lent í hruninu, er ljóst að eina leiðin út úr vand- anum hefði verið að lækka laun og verðlag í landinu. En þeir sem eru fylgjandi því að taka upp evru halda því fram að Íslendingar þoli betur en áður að vera með fast gengi núna. Stórir skellir, eins og hvarf síldarinnar og hrun bankanna, séu að verða ólík- legri, þjóðfélagið sé jafnara, útflutn- ingur fjölbreytilegri og minni sveiflur í sjávarútvegi vegna kvótakerfisins. Svo er smæðarrökunum teflt fram, sem gilda fyrst og fremst um bankakerfið, þ.e. að við þyrftum að hafa aðrar varnir í því en gengið. Bankabólga hefði þó einnig getað átt sér stað, þó að Ísland hefði verið aðili að ESB. Ef til vill hefði stuðningur verið meiri við bankakerfið í haust, en bankarnir hefðu getað bólgnað fyrir því og alls óvíst er að þeir hefðu komist í gegnum þrengingarnar. Efnahagslífið hefði þá lent í miklum sam- drætti, jafnvel meiri en nú. Höfuðáhersla er lögð á að það takist að fleyta krónunni, án þess að botninn verði of djúpur fyrir skuldsett heimili og fyrirtæki. En lágt gengi krónunnar hefur einnig jákvæð áhrif og flýtir fyrir aðlög- un. Áhrifin eru tvöföld – krónan hvetur bæði og letur. Ódýrt verðlag ýtir undir komu er- lendra ferðamanna og eyðslu þeirra hér á landi og ódýrt vinnuafl stuðlar að því að fyrirtæki flytja starfsemi hingað. En á sama tíma fara erlendir verkamenn af landi brott, sem hugs- uðu sér að vera hér tímabundið, vegna þess að þeir hafa lækkað í launum gagnvart verðlaginu heima fyrir. Það er ekkert sterkara jafnvægis- tæki til en gengið þegar tekist er á við slík vandamál. Jákvæð teikn Hvað sem öðru líður, þá er ekki tímabært að festa gengið núna. Til þess þarf að hafa náðst jafnvægi í skynsamlegu gengi. Eftir banka- hrunið hér á landi var ákveðið að skammta til verðugra verkefna á föstu gengi og gengið ákveðið á útboði, þar sem bæði verð og magn er ákveðið. Bankarnir gera tilboð í takmarkaða fjárhæð sem Seðlabankinn eða aðrir útvega. En einnig er innstreymi í bankana, sem kaupa af viðskiptavinum gjaldeyri. Suma daga er því engin eftirspurn eftir gjaldeyri frá Seðlabank- anum, því bankarnir hafa ekki þörf fyrir það. Það eru jákvæð teikn að Seðlabankagengið hefur verið að nálgast það sem tíðkast í tvíhliða flæði á markaði, en þó kemur jafnvægið ekki í ljós fyrr en krónan fer á flot aftur, því enn eru vinsamleg tilmæli um það frá Seðlabankanum að forgangsraða þeim sem sækja um gjaldeyri. Ef til þess kemur að bankinn selji gjaldeyri inn á markaðinn, og reyni þannig að hafa áhrif á gengið, þá eru sérfræðingar sammála um að lykilatriði í slíkri aðgerð sé að greina ekki frá forsendunum fyrirfram. Framkvæmdin verði að vera þannig að markaðurinn geti ekki spilað á það. Menn þurfi að geta óttast inngrip Seðla- bankans, en megi ekki hafa vissu um það, því þá fari það að hafa óeðlileg áhrif á hegðun markaðsaðila. Talið er líklegt að krónunni verði leyft að falla, en síðan komi stuðningur þegar menn telja líkur á að botninum verði náð. Þá verði freistandi fyrir erlenda fjárfesta að fara ekki strax með aurana sína úr landi, því ávöxtun sé 18% ofan á krónu, og einnig búast við að hún eigi eftir að styrkjast frekar, enda sé gengið í sögulegu lágmarki og eigi ekki að vera erfitt að halda raungenginu, þ.e. verðbólguleiðréttu gengi, í þeim tölum sem við sjáum núna. En ef botninn fellur undan krónunni, þá er bent á að erlendir lánardrottnar séu að fara út á afar lágu gengi, og er á það bent að þjóð- arbúið losni við þær kvaðir með hagstæðum hætti. Þeir erlendu lánardrottnar sem um ræð- ir keyptu meðal annars innstæðubréf sem Seðlabankinn gaf út í vor og ríkisskuldabréf, hvort tveggja til skamms tíma, og var það meira og minna notað til að baktryggja jökla- bréfalán, sem nú liggja föst í gömlu bönkunum. Hættan er sú að þeir vilji fara út og sækja á þennan nýja gjaldeyrissjóð, sem myndast hef- ur með lántökum ríkisins, en þá fara þeir á heldur hraklegum kjörum. „Humm …,“ segir Anton Holt safnstjóri í Seðlabankanum og myntsafnari og dæsir, spurður hver sé fallegasti íslenski pen- ingaseðillinn. „Má ég bara velja einn?“ Hann gengur fram til að svara símanum og tekur sér umþóttunartíma á meðan, en skilar sér aftur ákveðinn í bragði. „Við erum mennskir og tökum alltaf mið af verðmætum,“ segir hann. „Ljótur hlutur verður sjálfkrafa flottur ef hann er verðmætur; ef fréttist að hann er tíu millj- óna virði, þá skoðar maður hann aftur með afar jákvæðu hugarfari.“ Anton hlær. „Seðlarnir hafa verið mitt áhugamál í marga áratugi. Ég held ég fari alveg út í öfugan enda og segi að fallegasti seðillinn sé sá fyrsti sem ég man eftir. Og það er þessi.“ Hann bendir á rauðan tíkall með mynd af Jóni forseta, sem var gefinn út 1947. „Ég man eftir seðlinum vegna þess að langafabróðir minn var rukkari hjá Ísafold, gekk með stórt og feitt rukkaraveski og þegar við bræðurnir hittum hann í bæn- um, þá dró hann upp veskið, gaukaði að okkur seðli og sagði: „Fáið ykkur ís, strák- ar.“ Þar af leiðandi verður seðillinn alltaf í hávegum hafður hjá mér.“ Fáið ykkur ís, strákar skrifaði síðar um hágengið á líkum nót- um og Keynes. 1927 Landsbankinn tók við peningaútgáfunni samkvæmt lögum 1927/28 og prentaði þá á tveimur árum. „Seðlarnir voru í lík- ingu við dönsku ríkissjóðsseðlana og var almenningur óánægður með það,“ segir Anton. „Þess vegna var strax farið að leita eftir tilboðum erlendis og seðl- arnir voru heldur skammlífir. Fyrirtækið Bradbury & Wilkinson í London tók að arár íslenskrar krónu,“ segir Anton. „Það er ekki fyrr en þá sem hægt er að þukla hana.“ Fyrsta íslenska auramynt- in var slegin árið 1922 og lokið var við alla röðina á árunum 1922-26. En það voru 1, 2, 5, 10 og 25 aura mynt, króna og túkall. „Allt var slegið í Kaupmannahöfn, en það gekk seint af því að þá var málm- kreppa,“ segir Anton. „Þess vegna var tekið það ráð að gefa út einnar krónu seðil. Bókstafstrúarmenn líta á hann sem slegna mynt, þó að krónan væri í pappír, af því að lögin heimiluðu aðeins slegna mynt. Krónan var náttúrlega neyðarúrræði, prentuð í Gutenberg, Ólafur J. Hvanndal prentmótasmiður hannaði og notaður var sá pappír sem var til. Þetta var frekar „hjemmelavet“, en svínvirkaði.“ 1925 Gengi íslensku krónunnar var látið stöðvast árið 1925 og tekið upp jafn- gildi þess við stríðsbyrjun, eins og í Bandaríkjunum og ýmsum Evr- ópulöndum. Hagfræðingurinn Keynes taldi mesta óráð að snúa klukkunni þannig við og óhóflega árás á geng- iskerfið. Pétur Halldórsson borgarstjóri sér að gefa nýju seðlana út og í stað kóngsins komu Jón Eiríksson og Jón Sigurðsson. Þá voru fálkinn og róm- antíska fjallkonan tekin út og í staðinn kom Landsbankahúsið, fossar, Vest- mannaeyjar, fjárrekstur og Þingvellir. Þetta var í anda ættjarðarástarinnar.“ 1931 Kreppan á Íslandi skall á Íslendingum með miklu offorsi, en það gerðist ekki fyrr en árið 1931. „Íslendingar voru í svo mikilli sæluvímu Alþingishátíðarárið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.