Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2008 • Vitum af fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum sem vilja skoða sameiningar með hagræðingu í huga. • Heildverslun sem blómstrar í kreppunni. Ársvelta 130 mkr. EBITDA 25 mkr. • Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr. • Lítil heildverslun með búsáhöld og gjafavörur. Hentar vel til sameiningar. Ársvelta 70 mkr. • Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 90 mkr. Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta. • Framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem þjónar fiskvinnslu og matvælafyrirtækjum. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 6 mkr. Stöðugur vöxtur. • Rótgróið bílaþjónustufyrirtæki. Ársvelta 100 mkr. Auðveld kaup fyrir duglegan mann. • Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr. Góður hagnaður. Gæti hentað til flutnings út á land. • Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 620 mkr. Skuldsett með hagstæðu erlendu láni. Suðurlandsbraut 4, 7. hæð • Sími 414 1200 Netfang: kontakt@kontakt.is • www.kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Höskuldur Frímannsson rekstrarhagfræðingur, hoskuldur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. sigurdur@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson, lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is MENNINGARMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is Ungblind Ljósmyndasýning Björns Sigurjónssonar Utan-garðs Málverkasýning Halldóru Helgadótturbókum kvenna 2008 Kellíngabækur Kynning á Sunnudaginn 23. nóvember 2008 kl. 13.00-16.00 Opnun sýninganna Ungblind og Utan-garðs Kynning á nýútgefnum bókum kvenna 2008 TÓNLIST Geislaplata og mynddiskur Hinn íslenzki Þursaflokkur og Caput í Höll- inni á þorra 2008 bbbbn Í FEBRÚARMÁNUÐI síðast- liðnum mærði ég mikið og réttilega hinn íslenzka Þursaflokk á síðum þessa blaðs. Afmælisár þrítugra Þursa fór enda afar vel af stað með myndarlegri heildarútgáfu á verk- um flokksins, svonefndum Þursa- kassa. Í kjölfarið var blásið til form- legra afmælishljómleika í Laugardalshöllinni, þar sem Caput- hópurinn var Þursum til fulltingis. Dómur minn um hljómleikana forð- um hljóðaði upp á fjórar og hálfa stjörnu, þar sem fátt var að- finnsluvert annað en erfið akústík í Laugardalshöll. Konsertinn er nú kominn út í veglegum pakka sem inniheldur bæði mynddisk og geisla- plötu og því var það með nokkurri eftirvæntingu sem ég settist við hljómflutningstækin og flatskjáinn. Ég komst fljótt að raun um að hljómleikarnir voru eins góðir og ég man þá – jafnvel enn betri. Því þjónar engum tilgangi að end- ursegja hér dóminn frá því í febr- úar; hver og einn einasti Þurs stóð fyrir sínu og rúmlega það. Hinn ís- lenzki Þursaflokkur fór nokkuð ít- arlega yfir glæstan ferilinn og flutti á þriðja tug tónsmíða, flestar þeirra frábærlega og hnökralaust. Hljóð- blöndun Adda 800 fyrir mynddisk- inn er til mikillar fyrirmyndar og allt hljómar vitaskuld skýrar en það gerði í eyrum hljómleikagesta kvöldið góða. Umfangsmiklar út- setningar fyrir Caput-hópinn skila sér nú mun betur og ljómandi fínn flutningurinn fellur einkar vel að kynngimögnuðum performans Þursa. Að því sögðu hefði vel getað kom- ið til greina að gefa útgefnum hljómleikunum fullt hús fimm stjarna og bæta þannig um betur frá dómi eftir sjálft hljóm- leikakvöldið. Því miður kemur afleit myndvinnsla í veg fyrir það og raunar er með ólíkindum hversu illa er klippt á köflum með tilliti til hljóðs. Þannig eru myndskot víða á eftir hljóðrásinni og stundum er það svo slæmt að flytjandi í mynd virð- ist á gagnslagi við tónlistina sem heyrist. Á stöku stað horfir maður meira að segja upp á hljóðfæraleik- ara gera eitthvað allt annað en það sem eyrun nema; þess gætir til að mynda í annars frábærlega fluttum „Æra-Tobba“. Þá var „Þursasía“ Ríkarðs Arnar Pálssonar nánast pínleg á að horfa, eins hljóðlega vönduð og hún annars er. Þetta er vægast sagt bagalegt og ber að harma sérstaklega svo ómúsíkalska vinnu við eftirvinnslu hljóm- leikamyndar, þegar viðfangsefnið er vissulega svo einstaklega mús- íkalskt og glæsilegt. Ég mæli engu að síður með því að fólk festi kaup á þessum frábæru hljómleikum í stafrænu formi; slökkva má á skjánum og hækka svo í græjunum. Mynddiskurinn geymir fleiri lög en geislaplatan og hljómar auk þess betur. Hlustið og þér munuð heyra; þetta eru hljóm- leikar ársins. Orri Harðarson Af myndsynd en mögnuðu hljóði Umslagið Hinn íslenzki Þursaflokkur og Caput. Morgunblaðið/Golli Tómas og Egill „Hlustið og þér munuð heyra; þetta eru hljómleikar ársins,“ segir Orri Harðarson í lok dómsins. DÓMSTÓLL á Bretlandi var búinn undir að þurfa að sætta sig við að sér- vitur sakborningur neitaði að mæta fyrir rétt. Sakborningurinn, Michael Jackson, hefur hins vegar tilkynnt að hann muni koma til Lundúna í stað þess að senda dómnum myndbands- upptöku af vörn sinni. Sá sem sækir málið gegn óþekktaranganum er Sheik Abdulla bin Hamad Al Khalifa prins í Barein, og vill hann að söngvarinn end- urgreiði sér andvirði eins milljarðs króna sem hann lét Jackson hafa árið 2005 fyrir að gefa út plötu og skrifa sjálfsævisögu. Hvorugt hafi hann stað- ið við. Michael Jackson byggir vörn sína á því að prinsinn hafi gefið honum féð, – bara si svona. Reuters Óþekkur Jackson ætlaði að senda myndbandsupptöku af vörn sinni. Michael Jackson fyrir dóm Reuters Hrærður Sheikh Abdullah bíður þess nú að Michael Jackson svari fyrir sig fyrir dómi. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.